Home Podcasts Grænvarpið
Grænvarpið

Grænvarpið

Landsvirkjun 45 episodes Latest May 29, 2026

Hlaðvarp Landsvirkjunar um grænar lausnir.

Episodes

Konan í brúnni May 29, 2026 2178 Ásbjörg er framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Landsvirkjun og konan í brúnni á einu mesta framkvæmdatímabili í sögu fyrirtækisins. Hún segir okkur frá því hvernig gengur og hvernig er að stýra svo mörgum og viðamiklum verkefnum.Þátturinn á YouTube.
Kraftur breytinga í orkugeiranum Apr 30, 2026 1267 Selma Svavarsdóttir segir frá þróun KÍO og stöðu kvenna í orkugeiranum. Þar hefur konum fjölgað  – sérstaklega í hópi stjórnenda – en enn er langt í land. Selma undirstrikar að fjölbreytileiki, sýnilegar fyrirmyndir og markviss vinna skipti sköpum fyrir betri ákvarðanatöku og framtíð greinarinnar.Þátturinn á YouTube.
Að borða fíl Mar 20, 2026 1648 Hvernig á að flytja 28 vindmyllur í 400 hlutum eftir íslensku vegakerfi án þess að trufla vegfarendur of mikið? Sigurgeir og Gunnar Aron segja okkur allt um vindmylluflutningana frá Þorlákshöfn í Vaðölduver sem byrja núna í vor.Þátturinn á YouTube
Í nánum tengslum við nærsamfélagið Feb 27, 2026 555 Rætt er um mikilvægi opinna og traustra samskipta við nærsamfélagið í kringum aflstöðvar Landsvirkjunar. Hildur Vésteinsdóttir, verkefnisstjóri á deild nærsamfélags og náttúru, fer yfir hvernig reglulegt samtal, fjölbreyttar samskiptaleiðir og gagnsæi stuðla að trausti og jákvæðum tengslum við íbúa og aðra hagsmunaaðila.Þátturinn á YouTube
Erlend verkefni Landsvirkjunar Jan 28, 2026 1431 Sérþekking Landsvirkjunar í vatnsafli og jarðvarma er eftirsótt víða um heim. Kristján Guðmundsson, forstöðumaður erlendra verkefna, segir okkur frá verkefnum Landsvirkjunar á erlendri grund. Það er nóg af tækifærum en stefna fyrirtækisins er að halda sig við verkefni á norðurslóðum, einkum í Kanada og á Grænlandi. 
Nærsamfélag og vöktun á Austurlandi Dec 23, 2025 1170 Vel hefur verið fylgst með áhrifum Kárahnjúkavirkjunar og Fljótsdalsstöðvar á samfélag og náttúru á Austurlandi í þau tæplega 20 ár sem liðin eru síðan stöðin var gangsett. Árni Óðinsson, verkefnisstjóri á deild nærsamfélags og náttúru, hefur verið potturinn og pannan í þeirri vöktun og samskiptum við samfélagið á svæðinu síðustu 17 ár.Þátturinn á YouTube
Lengi má gott bæta Nov 27, 2025 1050 Hildigunnur Jónsdóttir er forstöðumaður endurbótadeildar, sem hefur viðamikil verkefni með höndum innan Landsvirkjunar og sér til þess að aflstöðvarnar séu í toppstandi, auk þess að bregðast við ófyrirsjáanlegum bilunum og atburðum í rekstri. Endurbætur eru mikilvægur þáttur í því að nýta auðlindirnar sem best og tryggja að rekstur orkufyrirtækis þjóðarinnar sé eins áreiðanlegur og hægt er.Þátturi
Vatnsbúskapurinn skiptir sköpum Oct 31, 2025 1284 Staðan í lónunum okkar er heldur betur mikilvæg fyrir Landsvirkjun og þjóðina alla. Ívar Baldvinsson, forstöðumaður vinnsluáætlana, fer  yfir allt sem lýtur að vatnsbúskapnum, hverju við getum stjórnað og hvað er alveg undir náttúruöflunum komið.Þátturinn á YouTube
Endurnýjanleg orkuvinnsla og umhverfismál Oct 6, 2025 728 Hvernig tengist orkuvinnsla Landsvirkjunar markmiðum heims um að sporna við hlýnun jarðar og hvernig tengjast þau markmið öðrum umhverfismálum? Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og sjálfbærni, spjallaði við Ívar Pál um umhverfis- og loftslagsmál.Þátturinn á YouTube 
Hvernig er að vera ung kona í Landsvirkjun? Aug 29, 2025 1117 Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun – fyrir ungar konur? Á hverju vori kemur stór hópur háskólanema til sumarstarfa hjá Landsvirkjun. Sumir ílengjast svo í alls konar verkefnum sem tengjast náminu. Ívar Páll ræðir hér annars vegar við Öldu Ægisdóttur, sem sér meðal annars um gestastofur Landsvirkjunar og Bryndísi Brynjúlfsdóttur, sem starfaði framan af fyrir samskiptadeildina en er nú útskrifuð úr
Orkan í Ástralíu - Einar Erlingsson Jun 30, 2025 2353 Einar Erlingsson, verkefnastjóri í erlendum verkefnum, segir frá lífi sínu og starfi í Ástralíu, en hann dvaldi þar um tæplega sex ára skeið sem ráðgjafi við stærsta vatnsaflsverkefni í sögu landsins, í Snowy-fjöllum.Þátturinn á YouTube
Orkan í orkuskiptunum - Sigríður Mogensen og Haukur Ásberg Hilmarsson Jun 2, 2025 1497 Þóra ræðir við Sigríði Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins og Hauk Ásberg Hilmarsson hjá Landsvirkjun um vefinn orkuskipti.is, sem fjallar um það hvernig Íslendingar geta skipt út milljón tonnum af olíu á ári fyrir loftslagsmarkmið, orkuöryggi, hreinna loft og orkusjálfstæði.Þátturinn á YouTube

Recommended

Playing