
EKKI AUMINGI
Eva Matta endurrammar umræðuna um endurhæfingu og kulnun. Af hverju er svona erfitt að hægja á, án þess að líða eins og aumingja?
Episodes

S1E1 - Lóan er komin að segja mér að vera ekki aumingi
Fyrsti þáttur í fyrstu seríu! Þetta podcast er tilraun Evu til þess að endurramma orðræðuna um hvíld, endurhæfingu og allt sem fylgir. Hún fer yfir hvers vegna í ósköpunum henni datt í hug að henda í þetta podcast og að sjálfsögðu þurfum við að ræða þessa aumingjahræðslu okkar...
TAKK FYRIR AÐ VERA MEÐ: LYFJA, NORDAID, SAN PELLEGRINO & BATI.APP <3

S1E2 - "Ekki ganga yfir Vatnajökul einn" - Matti Osvald
Kæri hlustandi það er komið að fyrsta viðmælanda þessa ágæta hlaðvarps.. og fyrst ég er að vanda mig að halda taugakerfinu rólegu í endurhæfingunni þá var best að fá hann pabba minn bara með mér í fyrsta þátt. Hann er engum líkur, fagmaður í því að koma fólki í gegnum krefjandi tímabil, Matti Osvald gjöriðisvovel!

S1E3 - "Hvað er líkaminn að reyna að segja þér?" - Hólmfríður sjúkraþjálfari
Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir eða Hófí eins og við þekkjum hana mörg, er sjúkraþjálfari sem ég fór til í minni endurhæfingu, og það breytti öllu. Hófí starfar hjá Verkjalausnum og er önnur stofnenda Stoðkerfis- og heilsuskóla Hólmfríðar og Þórhöllu, ásamt allskonar öðrum áhugaverðum úrræðum fyrir fólk í leit af lausnum fyrir líkamann. Þetta er fagkona sem þú vilt hlusta á.
Þátturinn er í boði Lyf

S1E4 - Er baðið að sjóða þig lifandi?
Hvað einkenndi langlífustu konu heims? Skammar þú þig einhverntíman? Ertu að bíða eftir að einhver sjái þig? Hvað er temmilegt hitastig á baði? Þetta og margt fleira í þætti vikunnar.
Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

S1E5 - "Ég er ekki lengur með áfallastreituröskun" - Svava Brooks
Svava Brooks er er mögnuð kona, TRE® leiðbeinandi og ein af stofnendum samtakanna Blátt áfram. Hún hefur áratuga reynslu af því að styðja fólk á batavegi eftir áföll og erfiðleika.
Ég er vægast sagt þakklát fyrir að hafa tekið þetta spjall við Svövu og þú verður eiginlega að heyra þetta. Í þættinum ræðum við meðal annars TRE® (Tension & Trauma Releasing Exercises), aðferð sem hjálpar líkamanu

S1E6 - "Þegar taugakerfin tengjast" - Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur
Hvað hefur ástin með endurhæfingu að gera?
Meira en maður myndi halda.
Í þessum þætti sest ég niður með sálfræðingnum og rithöfundinum Guðbrandi Árna Ísberg, höfundi bókanna Skömmin, Í nándinni og nýju bókarinnar Í augum þínum verð ég til – um ástina. Guðbrandur hefur í áratugi unnið með fólki í leit að betri tengslum, meiri nánd og sterkari sjálfsvirðingu.
Við ræðum ástina, sambönd, skömm og það

S1E7 - Hver á að setja þessi mörk? ER ÞAÐ ÉG?
Ræðum aðeins bókina When the body says No eftir Gabor Maté, námskeið sem Virk sendi mig á þar sem ég stórgræddi mikilvæga innsýn í lífið, Kaleo á Þingvöllum og smá vanmat hjá skvís.
Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

S1E8 - "Kvenheilsa í forgang" - Thera Studio
Systurnar Hera og Thelma eru að stofna heilsusamfélagið Thera Studio með áherslu á kvenheilsu. JÁ TAKK. Þær eru meðal annars að flytja inn fyrsta meðgöngu- sjúkraþjálfunarbekk landsins sem allar mæður fyrr og síðar hafa beðið eftir. Við áttum virkilega gott spjall um kvenheilsu, mæður, mikilvægi þess að við mætum okkur á þeim stað sem við erum, og svo margt annað!
Hér er Thera Studio á instagram

S1E9 - Taugakerfið mitt er komið með nóg af mér
Einn extra hrár hér á ferð... endurhæfingin gefur og endurhæfingin tekur (:
Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK

S1E10 - "Fjárhagslega fullorðin" - Björn Berg fjármálaráðgjafi
Þegar lífið tekur óvænta u-beygju fylgir oft fjárhagslegt óöryggi.
Mörg upplifa skömm, ótta og vanmátt gagnvart eigin fjármálum og mér fannst tilvalið að fá Björn í þáttinn, vegna þess að hann talar um fjármálahlið lífsins á mannlegan og yfirvegaðan hátt. Hvernig getum við undirbúið okkur betur? Hvaða mistök eru algeng? Hvernig getum við rætt um peninga af meiri ró og minni skömm?
Þátturinn er í b

S1E11 - "Ef ég get hjálpað fólki í gegnum erfiðleika, þá er ég ALL IN" - Ellen Helga
Ellen Helga vinkona mín komst í gegnum brjóstakrabbamein og uppskar reynslu sem er auðvitað ljúfsár, en fyrir vikið getur hún sett sig í spor fólks og barna sem eru á erfiðum stað í lífinu, ekki síst þar sem hún starfar sem hjúkrunarfræðingur á Barnaspítala Hringsins. Ellen er fáránlega góð í að hvetja, með fallega sýn á lífið og eitt mesta bein í nefinu sem ég hef kynnst. Sannkallaður demantur se

S1E12 - Hvenær er endurhæfingin búin?!
Lokaþáttur fyrstu seríu gott fólk! Ég fer yfir allskonar skemmtileg atriði í þessum þætti og vildi óska þess að þið væruð bara öll með mér í stúdíóinu. Hlakka til að heyra frá ykkur. Þangað til næst, þú ert ekki aumingi. 😎
Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, Bati.app og San Pellegrino - TAKK











