Home Podcasts Börnin á vistinni
Börnin á vistinni

Börnin á vistinni

RÚV Hlaðvörp 18 Episodes Sep 19, 2026

Sögur fólks sem þurfti að dvelja barnungt á heimavist fjarri fjölskyldum sínum til þess að stunda grunnskólanám. Fyrir mörg var það þungbær reynsla meðan önnur eiga ljúfar minningar. Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

Episodes

2. þáttur: Sprengjan
2. þáttur: Sprengjan Sep 19, 2026 37:09 Hvaðan kom Hafmeyjan og hvernig bar hana að ströndum Íslands? Og hvernig var rætt um verkið í aðdraganda sprengjunnar? Við sögu koma sendiherra og olíukóngur, sjálfstæðismenn í borginni, Kalda stríðið og óánægðir módernistar.Dagskrárgerð: Halla Harðardóttir______________________________Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft u
1. þáttur Úr torfbæ til Hollywood
1. þáttur Úr torfbæ til Hollywood Sep 19, 2026 37:33 Saga Nínu sem ólst upp í torfbæ, braust til mennta í Kaupmannahöfn og hélt svo til Parísar, Rómar, New York og Hollywood. Hvar staðsetjum við Nínu í listasögunni og afhverju þótti hún gamaldags þegar hún sneri aftur heim?______________Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Va
3. þáttur - „svona var þetta bara“
3. þáttur - „svona var þetta bara“ Apr 24, 2026 41:24 Heimavistarskólarnir voru barn síns tíma. Nauðsynlegt úrræði til þess að mennta börn til sveita en ekki ákjósanlegasta fyrirkomulagið til þess að sinna tilfinningalegum þörfum þeirra. Í þessum lokaþætti köfum við aðeins ofan í tilfinningarnar en bregðum okkur líka aftur í tímann og heimsækjum Reykjanesskóla í Ísafjarðardjúpi árið 1980 og Hallormsstaðaskóla aldamótaárið 2000.Viðmælendur: Guðbrandur
2. þáttur - gamli skólinn minn
2. þáttur - gamli skólinn minn Apr 17, 2026 39:01 Umsjónarmaður heimsækir sinn gamla skóla, Þelamerkurskóla í Hörgárdal, og spjallar við fólk sem dvaldi þar í heimavist á sjöunda og áttunda áratugnum. Sum þeirra ylja sér við ljúfar minningar en önnur líkja vistinni við helvíti á jörð.Viðmælendur. Anna Rósa Friðriksdóttir, Anna Ragna Árnadóttir, Eydís Björk Davíðsdóttir og ónefnd systkini.Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir. Hosted on Aca
1. Þáttur - skólahald til sveita
1. Þáttur - skólahald til sveita Apr 10, 2026 41:00 Það er flókið að tryggja öllum börnum í strjálbýlu landi sömu tækifæri til menntunar. Heimavistarskólar voru langþráð lausn og stolt hverrar sveitar þegar þeir loksins risu. Í þessum fyrsta þætti skoðum við hvernig skólahald til sveita þróaðist á 20. öldinni og heyrum bæði af heimþrá og hamingju á heimavist.Viðmælendur: Rúnar Sigþórsson, Jónína Einarsdóttir, Þura Jónasdóttir, Ragnheiður Jóna Ingim
Bruninn í Skildi 3/3: Þögnin
Bruninn í Skildi 3/3: Þögnin Apr 3, 2026 42:30 Það er gamlársdagur og grimmur raunveruleiki blasir við íbúum í Keflavíkurkauptúni. Eldurinn er slökknaður en leitað er í rústunum að fórnarlömbum brunans í Skildi. Þau finnast fljótt en ekki er hægt að bera kennsl á alla. Á sjúkrahúsi liggja 13 þungt haldin.Harmi lostnir kveðja íbúar Keflavíkurhrepps hið liðna ár og heilsa hinu komandi með sorg og kvíða.Umsjón: Dagný MaggýjarRitstjórn: Anna Marsi
Bruninn í Skildi 2/3: Eldur laus
Bruninn í Skildi 2/3: Eldur laus Mar 31, 2026 42:16 Jólatréð stóð aðeins fyrir innan miðjan salinn í Skildi. Börnin gengu í kringum tréð og sungu á milli þess sem þau fóru til skiptis upp á svið til að þiggja þar veitingar. Salurinn var í hátíðarbúningi og litfilmur voru settar við ljós til að skapa stemningu. Klukkan var um hálf tíu, og gestir sungu Göngum við í kringum einiberjarunn, þegar skyndilega kviknaði í trénu.Umsjón: Dagný MaggýjarRitstjó
Bruninn í Skildi 1/3: Fyrirboðar
Bruninn í Skildi 1/3: Fyrirboðar Mar 27, 2026 37:59 Það er 30. desember. Árið er 1935. Veðrið er kyrrt, snjóföl liggur yfir og hiti er rétt undir frostmarki. Að samkomuhúsinu Skildi í Keflavík streymir prúðbúinn hópur ungmenna á seinni jólaskemmtun dagsins.Lítil hnáta skokkar við hlið bróður í nýrri kápu, systur með krullað hár leiðast og piltar í sparibuxum ærslast. Amma leiðir lítinn dreng sem er örlítið haltur. Engan grunar hættuna fra
Sprengjan sem sprakk - 4. þáttur
Sprengjan sem sprakk - 4. þáttur Mar 14, 2026 41:59 Áföll geta mótað fólk fyrir lífstíð og því miður er það ekki fyrr en á síðustu árum sem það þykir eðlilegt að tala um hlutina. Fólkið á Ási og í Veturhúsum talaði aldrei um þá lífsreynslu sem það gekk í gegnum á fimmta áratug síðustu aldar. Viðmælendur í þættinum eru: Baldur Davíðsson, Edda Emilsdóttir, Friðþór Eydal, Sigrún Sigurðardóttir og Sturla Pálsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy
Sprengjan sem sprakk - 3. þáttur
Sprengjan sem sprakk - 3. þáttur Mar 7, 2026 43:00 Í þessum þætti liggur förin upp á Eskifjarðarheiði og til fjölskyldunnar í Veturhúsum. Fjölskyldu sem vann hetjudáð á dimmri janúarnóttu 1942. Viðmælendur í þættinum eru: Edda Emilsdóttir, Friðþór Eydal, Sigrún Sigurðardóttir og Sturla Pálsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Sprengjan sem sprakk - 2. þáttur
Sprengjan sem sprakk - 2. þáttur Feb 28, 2026 41:00 Íslenska ríkið skuldbatt sig til þess að greiða ekkjum sjómanna, sem létust á hafi úti af völdum stríðsátakanna, bætur. En hvað með bónda og börnin sem létust af völdum handvammar af hálfu breska hersins og hvernig metum við mannslíf? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Sprengjan sem sprakk - 1. þáttur
Sprengjan sem sprakk - 1. þáttur Feb 21, 2026 39:50 Sprengja sem sprakk á Ási í Fellum árið 1946 kostaði fjögur mannslíf. Talið er að sprengjan hafi verið skilin eftir af breska hernámsliðinu. Mikið var fjallað um atburðinn í fjölmiðlum í nokkrar vikur en svo fjaraði umræðan út og um leið krafan um sprengjuleit þrátt fyrir að þess væru mörg dæmi að ósprungin skothylki fyndust í Norður-Múlasýslu síðan breski herinn var þar við skotæfingar. Hosted on

Recommended