Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni, t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
Episodes

132. Hvernig greinum við innsæi frá ótta? (Sársauki, sjálfsþekking, athygli, dómgreind og hegðun). Hrund Gunnsteinsdóttir
Í nýjasta þættinum af Með lífið í lúkunum settist ég niður með Hrund Gunnsteinsdóttur, höfundi, leiðtogaþjálfa, fyrirlesara, frumkvöðli og könnuði.Hrund hefur um árabil rannsakað innsæið, bæði frá vísindalegu og andlegu sjónarhorni. Hún er meðal annars höfundur bókarinnar InnSæi og leikstjóri samnefndrar heimildarmyndar.Í þessu áhugaverða samtali förum við víða og veltum meðal annars fyrir okkur:H

131. Skömmin var aldrei mín. (Áföll, fíkn, meðvirkni, meðvitund, hugrekki og sjálfsvinna). Hrund Ottósdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Hrund Ottósdóttur, höfund bókarinnar Skömmin var aldrei mín.Í þessari sjálfsævisögu deilir Hrund sögu sem snertir djúpt. Saga um fjölskyldubönd, þögn, áföll, fíkn, sorg og missi, en ekki síður um hugrekki, sjálfsvinnu, að rjúfa gömul mynstur og finna leiðina út úr gömlum vítahring.Þetta er samtal sem minnir okkur á að við berum ekki ábyrgð á því sem við urðum fyrir en á s

130. Dugnaður drepur. (Heilsuorlof, ofurkonan, mygla og leitin að heilsunni). Guðrún Hafþórs
Í þessum þætti ræðir Erla við alveg hreint dásamleg stelpukonu, Guðrúnu Hafþórs, um lífið og tilveruna, heilsumissi, streitu, myglu, áhrif áfalla, leitina að heilsunni, um ofurkonuna og dugnaðinn sem drepur!Á Instagram síðu sinni deilir Guðrún raunveruleikanum á einlægan og hispurslausan hátt undir slagorðinu „vott jú sí is vott jú get“. Þar fjallar hún um lífið eins og það er í heilsuorlofi, bæði

Eru skjáir að ræna okkur félagslegum töfrum? Viðar Halldórsson (Heilsumoli 50)
Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands um nýju bókina hans “How Digital Screen Use Alienates Human Societies: A treatise on social magic and its decadence”. Bókin fjallar um neikvæð áhrif skjábyltingarinnar og varpar ljósi á þá þversögn hvernig fjölbreyttari og víðtækari samskiptahættir hafa stuðlað að auknu samskiptaleys

129. Þú getur ekki hafnað þér til heilsu. Guðni Gunnarsson
Í þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun, þakklæti og hvað þarf að gera til þess að vera virkur þátttakandi í eigin lífi.Guðni hefur verið áberandi í umræðunni um heilsu, hreyfingu, jóga og sjálfsrækt um árabil.Guðni sem notar íslenskuna svo fallega með skilgreingum á orðum sem við notum hugsunarlaust, hefur meðal annars skrifað bækurnar Máttur athyglin

128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson
Í þættinum ræðir Erla við Kristján Þór Gunnarsson, heimilislækni um áhrif lífsstíls á heilsu, samfélagssjúkdóma, skaðsemi gjörunninna matvæli á almenna heilsu, næringarlæsi, stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og hver eða hvað ber ábyrgð á versnandi heilsu þjóðarinnar, hvernig við getum mögulega snúið þeirri þróun við og um leið fjölgað heilbrigðum æviárum. Erla og Kristján ræða einnig um heildræ

127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir.
Í þættinum ræðir Erla við Heiðrúnu Birnu Rúnarsdóttur. Heiðrún hefur verið ötull talsmaður fyrir umhverfisvernd og er stofnandi og eigandi Grænu stofunnar sem er eina umhverfisvottaða hárgreiðslustofan á Íslandi.Þær stöllur ræðu um áhrif þess að alast upp í sveit, hvaðan áhuginn og virðingin fyrir umhverfinu spratt, hvernig gildi okkar geta verið leiðarvísir í lífi og starfi og hve mikilvægt það e

Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49)
Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október.Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning.Miðasala er hafin hér.Húsið opnar kl.18:15Fordrykkur og kvöldmatur* innifalinn.Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22.Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsaEdda Björgvins-

Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48)
Langar þig að koma þér aftur í þínar góðu venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald?Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andlega, líkamlega og félagslegasterkur líkami 💪🏻sterkur hugur 🧠sterk næring 🌱sterk tengsl 🫶= Sterk heild!Taktu þátt! Þetta er afar auðvelt.Hér er hlekkur á sniðmátið af áskoruninni.Prentaðu út blaðiðSkrifaðu inn þær venjur sem þig langar að tileinka þér í september. (1-1

126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir
Í þessu viðtalið ræðir Erla við Söru Sigmundsdóttur afrekskonu í CrossFit um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár.Saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur. Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan t

125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson
Í þessum þætti ræðir Erla við Hlyn Kristinn Rúnarsson, pabba, lögfræðing, fíkniráðgjafa og stofnanda félagasamtakanna Það er Von um fíkn, hvað hún er í raun og veru, hvernig hún getur haft áhrif á einstaklinginn sjálfan og fólkið í kringum hann og hvers vegna við þurfum að tala um hana með meiri skilningi og minni skömm.Þetta er ekki auðveld umræða en hún er mikilvæg. Ég vona að þetta samtal veki

124. Konur eru alls konar. (Áhrif næringar, svefns, streitu, álags og endurheimtar á frammistöðu og heilsu). Lára Hafliðadóttir.
Í þættinum ræðir Erla við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega.Þær stöllur ræða um alls kyns mýtur varðandi þjálfun og hreyfingu, hvort að það sé munur á konum og körlum, hvort að æfa þurfi á mismunandi hátt eftir því hvar konar er stödd í tíðarhringnum, hvernig æfinga












