Home Podcasts Orð af orði
Orð af orði

Orð af orði

RÚV 71 Episodes Aug 23, 2026

Þáttur um íslensku og önnur mál þar sem fjallað er um tungumálaheild, orðsifjar og málfræði. Umsjón hafa Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir. Í hverjum þætti er rætt við gesti og svarað spurningum hlustenda.

Episodes

Ristabrauð úr ristavél
Ristabrauð úr ristavél Aug 23, 2026 0:27:58 Orðið ristabrauð finnst ekki í orðabókum og í rituðu máli er mun algengara að talað sé um ristað brauð. Það þarf þó ekki að þýða að ristabrauð sé ekki til. Mörg orð eru til þótt þau finnist ekki í orðabókum. Það sama á við um ristavél, sem þykir ófínna en samheitið brauðrist. Ristavél er ekki í Íslenskri orðabók og í Íslenskri nútímamálsorðabók er það skýrt með orðinu brauðrist og sagt vera barna
Upphaf útvarps
Upphaf útvarps Aug 16, 2026 0:30:00 Það var stórhuga og bjartsýn þjóð sem byggði landið þegar Ríkisútvarpið var stofnað 1930; og tungan var sameiningartákn. Guðrún og Anna gramsa í kistu Ríkisútvarpsins, rifja upp Daglegt mál í umsjón Eiríks Hreins Finnbogasonar og blaða í Útvarpstíðindum.
Um sólmyrkva og fleiri 19. aldar nýyrði
Um sólmyrkva og fleiri 19. aldar nýyrði Aug 9, 2026 0:29:36 „Jeg kalla það ekki formyrkvan, því það er ljótt orð,“ sagði Jónas Hallgrímsson um það þegar tungl myrkvar sólu og gaf því heitið sólmyrkvi. Þegar Jónas þýddi bók um stjörnufræði úr dönsku bjó hann til fjölmörg íslensk orð yfir hugtök í stjörnufræði, eðlsifræði og stærðfræði. Mörg þeirra eru enn notuð sem íðorð og sum urðu hluti af daglegum orðaforða og lifa enn góðu lífi tæpum 200 árum síðar.
Margvíslegar merkingar orðsins mót
Margvíslegar merkingar orðsins mót Aug 2, 2026 0:30:32 Sumarið er tími hvers kyns móta. Haldin eru íþróttamót, skátamót, héraðsmót og þannig mætti lengi teljs. Orðið mót getur verið af ýmsum orðflokkum og haft mismunandi merkingarlegt hlutverk innan hvers þeirra. Það kemur á óvart að orð sem lætur svona lítið yfir sér skuli vera svona fjölhæft.
Tíska
Tíska Jul 26, 2026 0:30:52 Tíska er hverfult fyrirbæri, hún kemur og fer og breytist minnst ársfjórðungslega, jafnvel oftar. Það mætti auðveldlega halda því fram að tíska sé tiltölulega nýlegt fyrirbæri á Íslandi, hafi jafnvel ekki komið til sögunnar fyrr en kannski um miðja 20. öld. En svo einfalt er það víst ekki. Í þessum þætti verður spáð í tískuna – orðið, það er að segja – aldur þess og merkingu, hlutverk, samheiti o
Harðfiskur og skreið
Harðfiskur og skreið Jul 19, 2026 0:28:26 Skreið til Nígeríu – þetta er vafalaust ein þekktasta blaðafyrirsögn allra tíma. Nú orðið eru sjaldan fluttar fréttir af skreiðarútflutningi og ætla má að orðaforðinn sem tilheyrir skreiðarverkun sé ekki lengur á allra vörum. Í þættinum er kannaður merkingarmunurinn á orðunum skreið og harðfiskur og spáð í hvort skreið sé aðeins þurrkuð á trönum eða hvort það megi líka kalla þau mannvirki hjalla
Nýyrðasmíði
Nýyrðasmíði Jul 12, 2026 0:30:36 Nýyrðasmíði hefur verið stunduð á Íslandi að því er virðist frá landnámi til að koma merkingu nýrra hugtaka til skila frekar en að fá lánuð orð úr öðrum málum. Nýyrðastefna hefur öldum saman verið eins konar tíska, og alls ekki verið haldið fram af yfirvöldum gegn vilja almennings. Fjallað er um íslenska nýyrðastefnu og Málstofu-erindi Jóhannesar Gísla Jónssonar prófessors í íslenskri málfræði er
Íslensk málstefna
Íslensk málstefna Jul 5, 2026 0:30:11 Málstefna getur átt við um tvennt: líklega tengja flestir orðið málstefna við útgefna framkvæmdaáætlun en í víðari merkingu er átt við flókið samspil viðhorfa, málnotkunar og ákvarðana um málið. Erindi Guðrúnar Kvaran um málstefnu, í Málstofunni, er rifjað upp.
Daglegt mál 24 – Nýyrðið bifreið
Daglegt mál 24 – Nýyrðið bifreið Jun 21, 2026 0:30:10 Arnór Sigurjónsson ritstjóri sá um Daglegt mál í Ríkisútvarpinu árið 1957. Í tveimur þáttanna talaði hann um nýyrðið bifreið, sem hann var ekki mjög hrifinn af. Bifreið og önnur heiti á þessum þarfasta þjóni nútímans var einnig tekið fyrir í Orði af orði árið 2017. Hér eru þessum gömlu þáttum gerð nokkur skil.
Daglegt mál 23 Baldur Jónsson og Lög unga fólksins
Daglegt mál 23 Baldur Jónsson og Lög unga fólksins Jun 14, 2026 0:32:12 Í bréfi til stjórnanda Daglegs máls árið 1968 veltir bréfritari fyrir sér orðunum táningur og Karnabær. Hann hefur líka talsverðar áhyggjur af málfari unga fólksins eins og það birtist í þættinum Lögum unga fólksins. Baldur Jónsson hafði umsjón með Daglegu máli og útskýrði þar orðið táningur og segir í örstuttu máli frá Karnabæ en deilir ekki áhyggjum af málfari unglinganna. Í Orði af orði er ka
Orðbragð að nýyrðum
Orðbragð að nýyrðum Jun 8, 2026 0:26:58 Nýyrði eru skoðuð frá ýmsum hliðum og rifjað er upp hvað var sagt um þau í skemmtiþættinum Orðbragði í sjónvarpinu árið 2013. Og það er ekki hægt að tala um nýyrði án þess að minnast á síma og Jónas Hallgrímsson.
Daglegt mál 22 – Fólk á ólíkum öldrum með góðar samviskur
Daglegt mál 22 – Fólk á ólíkum öldrum með góðar samviskur Jun 1, 2026 0:30:01 Árni Böðvarsson og Eiríkur Rögnvaldsson gera tölu orða að umtalsefni í útvarpinu og víðar á áttunda og níunda áratugnum. Hlustandi Ríkisútvarpsins spyr um fleirtölu orðsins lýður; og annar spyr um fleirtölu orðsins sprund.

Recommended