Home Podcasts Hlaðvarp Lestrarklefans
Hlaðvarp Lestrarklefans

Hlaðvarp Lestrarklefans

Lestrarklefinn 26 Episodes Jul 17, 2026

Í hlaðvarpi Lestrarklefans ræða þáttastjórnendur við fjölbreytta lesendur um öll málefni tengd bókmenntum, lestri og menningu. Gestirnir deila sýn sinni á bækur, lestrarvenjur og menningarlíf. Hlustendur fá innsýn í ólíkar bókmenntaumræður og hvattir til að taka sér sæti í Lestrarklefann.

Episodes

26. Sumarlestur - Sexý vandamál?
26. Sumarlestur - Sexý vandamál? Jul 17, 2026 1469 Í síðasta þætti sumarsins fjalla Sjöfn og Rebekka um sumarlestur. Hvða ætla þær að lesa í sumar, hvað ætla þær ekki að lesa, og hvað les fólk almennt? Hvað er sumarlestur og hvaða bækur eru tilvaldar í hann? Umsjón þáttar, Sjöfn Asare og Rebekka Sif
25. Úr bók í bíó: Kindred
25. Úr bók í bíó: Kindred Jul 3, 2026 2034 Er Kindred Yesteryear 1976? Þeirri spurningu og öðrum í þeim dúr verður svarað í þessu spjalli Sjafnar og Rebekku um bókina Kindred eftir Octaviu E. Butler og sjónvarpsaðlögunina á henni frá 2022. Umsjón: Sjöfn Asare og Rebekka Sif
24. Leirburður í grasrótinni
24. Leirburður í grasrótinni Jun 12, 2026 2353 Lestrarklefinn fær góða gesti í hlaðvarpi vikunnar, Elísu Rún Svansdóttur og Amöndu Líf Fritzdóttur, sem báðar hafa ritstýrt bókmenntatímaritinu Leirburði. Tímarit sem þessi eru einstaklega mikilvæg grasrótinni og Rebekka Sif fékk að forvitnast um þetta góða starf bókmenntafræðinema Háskóla Íslands. Umsjónarmaður: Rebekka Sif Stefánsdóttir
23. Hefðbundnar húsmæður: Yesteryear eftir Caro Claire Burke
23. Hefðbundnar húsmæður: Yesteryear eftir Caro Claire Burke May 20, 2026 2140 Rebekka og Sjöfn ræða hina geysivinsælu skáldsögu Yesteryear sem hefur aldeilis slegið í gegn á skömmum tíma. Rebekka spyr Sjöfn út í hefðbundnar húsmæður (e. Tradwives), en Sjöfn hefur kafað djúpt í þennan áhugaverða og merkilega mormónska subkúltúr sem tröllríður samfélagsmiðlum og hefur djúpstæð áhrif víða um samfélagið. Umsjón: Rebekka Sif og Sjöfn Asare
22. Ungar stúlkur og eldri menn: Half his Age eftir Jeanette McCurdy
22. Ungar stúlkur og eldri menn: Half his Age eftir Jeanette McCurdy May 7, 2026 2268 Díana Sjöfn og Sjöfn ræða bókina "Half his Age" eftir unghöfundinn Jeanette McCurdy, sem þekktust er fyrir feril sinn á Disney stöðinni og fyrir endurminningarsögu sína "I'm Glad My Mom Died."Bókin fellur í flokk þeirra ritverka sem fjalla um ungar konur eða stelpur sem eiga í ástarsamböndum við, eða eru táldregnar af, eldri mönnum, sem eiga það mjög oft sameiginlegt að vera enskukennarar. Hvers v
21. Úr bók í bíó: Wuthering Heights
21. Úr bók í bíó: Wuthering Heights Apr 23, 2026 1742 Úr bók í bíó snýr aftur með æsispennandi umfjöllun um hina umdeildu aðlögun "Wuthering Heights," sem Sjöfn gerist svo djörf að kalla það versta sem nokkru sinni hefur verið fest á filmu og kallað bíómynd.Umsjón: Sjöfn Asare og Rebekka Sif
20. Hinsegin aðstæður með Evu Rún og Höllu Þórlaugu
20. Hinsegin aðstæður með Evu Rún og Höllu Þórlaugu Apr 17, 2026 2717 Jæja. Eftir mikla tæknilega örðugleika við framleiðslu og útgáfu þáttarins um bókmenntahátíðina Queer Situations snýr hann aftur á streymið. Sjöfn og Unnur Steina ræða við þær Evu Rún og Höllu um æsispennandi bókmenntahátíðina sem þær standa fyrir þar sem alls konar hinsegin bókmenntir eru í fyrirrúmi.Umsjón: Sjöfn Asare
19. Úr bók í bíó: Hamnet
19. Úr bók í bíó: Hamnet Mar 25, 2026 1833 Við kynnum nýjan dagskrárlið: Úr bók í bíó! Rebekka Sif segir að þessu sinni Sjöfn Asare af upplifun sinni á sögulegu skáldsögunni Hamnet og kvikmyndaaðlögun hennar. Kafað er ofan í frásagnaraðferðir Maggie O´Farrell og hvernig henni tekst að glæða gamla sögu nýju og hrífandi lífi. Umsjónarmenn: Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare
18. Leikhúsannáll Lestrarklefans
18. Leikhúsannáll Lestrarklefans Feb 15, 2026 3111 Leikhúsgagnrýnendurnir okkar Díana Sjöfn og Sjöfn Asare fara yfir liðið leikár og líta til þess sem er spennandi í leikhúsunum 2026. Umsjónarmenn: Díana Sjöfn Jóhannsdóttir og Sjöfn Asare.
13. Hrollvekjur með Gunnari Theodóri
13. Hrollvekjur með Gunnari Theodóri Oct 30, 2025 2246 Hrekkjavaka og hræðilegar verur hafa tekið yfir bókmenntirnar þessa dagana. Við fengum Gunnar Theodór til okkar sem hefur einmitt skrifað nokkrar hrollvekjur, þar á meðal Vatnið brennur og Álfareiðina, sem er nýútkomin og er ætluð ungmennum. Kannið með okkur hryllilegar slóðir í hlaðvarpi dagsins. Það er vel við hæfi að þátturinn sé einmitt númer þrettán!Umsjónarmenn: Rebekka Sif og Sjöfn Asare
12. Landslag ljóðsins með Maó
12. Landslag ljóðsins með Maó Oct 24, 2025 2368 Í þætti dagsins fáum við góðan gest, ljóðskáldið og rithöfundinn Maó Alheimsdóttur, sem gaf nýverið út ljóðabókina Hvalbak. Við ræðum um ljóðið, náttúruna og innblásturinn. Stjórendur hlaðvarpsins eru Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare.
17. Bókmenntaskandalar ársins 2025
17. Bókmenntaskandalar ársins 2025 Jan 2, 2026 2768 Í þessum hressilega hátíðarþætti Hlaðvarps Lestrarklefans fara Rebekka, Díana og Sjöfn yfir bókmenntaskandala ársins 2026. Er Laxness úti? Arnaldur líka? Hver á að skrifa ungmennabækur? Hver er Akörn? Mun Bókaklúbbur Íslands fordæma þennan þátt? Gleðilegt nýtt lestrarár kæru lesendur!Umsjónarmenn: Rebekka Sif, Díana Sjöfn og Sjöfn Asare

Recommended