
Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um börnin sem kerfið nær ekki utan um.
Týndu Strákarnir er hlaðvarp sem fjallar um börn sem kerfið nær ekki utan um. Framleitt af Samson.is fyrir samtökin Strax í dag, í umsjón Steindórs Þórarinssonar og Jóns K. Í þættinum er rætt við fólk sem hefur lent í kerfinu, aðstandendur, fagfólk og stundum fólk í ábyrgðarstöðum. Markmiðið er að leita að skýrum dæmum, samhengi og ábyrgð, ekki hávaða. Milli þátta er Nonni á gólfinu og Steindór að fara yfir gögn og halda umræðunni á lofti.
Episodes

Sería 2 Þáttur #2: Móðir, barn og kerfi án svara
Ingibjörg Einarsdóttir kemur í Týndu Strákana og segir frá syni sínum, baráttu fjölskyldunnar við kerfið og ákvörðuninni um að leita meðferðar í Suður Afríku eftir að íslensk úrræði dugðu ekki.Í þættinum ræðum við reynslu foreldris sem þurfti að berjast fyrir hjálp, skort á sérhæfðum úrræðum, spurningar um gagnreyndar aðferðir Barna og fjölskyldusstsofu og það sem Ingibjörg lýsir sem óheiðarlegum

Sería 2 #1 Þáttur - Það er auðvelt að tala um börnin fyrst.
Týndu Strákarnir eru mættir aftur. Beittari, ákveðnari og með minni þolinmæði fyrir fallegum orðum sem breyta engu.Í fyrsta þætti Seríu 2 fara Steindór Þórarinsson og Jón K. Jackopssen yfir stöðuna eftir stutt hlé, hvað hefur gerst síðustu vikur og hvert verkefnið stefnir næst. Rætt er um börn með fjölþættan vanda, barnavernd, fósturheimili, Lækjarbakka, Týndu börnin, samfélagsmiðla, slæmar fyrirm

Þáttur #6 | Brynjar Karl Sigurðsson: Stelpur, kerfi og rými sem stendur tómt
Brynjar Karl Sigurðsson, stofnandi Aþenu körfuboltafélagsins, er gestur í þætti #6 af Týndu Strákunum.Í þættinum ræðum við Aþenu, baráttu Brynjars og það sem gerist þegar fólk reynir að byggja upp starf fyrir börn og ungmenni en mætir kerfi sem virðist of oft verja sjálft sig betur en þau sem það á að þjóna.Við ræðum gaslýsingu, stjórnsýslu, þöggun og það hvernig mikilvægt starf getur lent í veggj

Þáttur #5 | Kristján Halldór Jensson | Frá kerfinu í fangelsið og til baka
Í þætti #5 af Týndu Strákunum ræðum við við Kristján Halldór Jensson sem flakkaði ungur á milli kerfa, fór snemma í neyslu og endaði síðar í fangelsiskerfinu.Við ræðum leiðina þangað, botninn, viðsnúninginn og hvernig hann fann loks leið til að róa taugakerfið og horfast í augu við sjálfan sig. Einnig förum við inn í það hvernig Nonni tók á móti honum þegar hann var hvað lengst niðri.Í dag helgar

Þáttur #4 Eitt af týndu börnunum um Stuðla, lyfin og kerfi sem brást
Þáttur #4 af Týndu Strákunum fjallar um það sem gerist þegar barn biður um hjálp en fær í staðinn þögn, fordóma, lyf og kerfi sem virðist hvorki hlusta né grípa. Við ræðum við ungan mann sem hefur verið eitt af týndu börnunum, er nú kominn yfir 18 ára aldur og fastur á milli kerfa sem eiga að taka við, en skilja fólk of oft eftir á jaðrinum.Í þættinum lýsir hann reynslu sinni af því að vera í umhv

Þáttur #3 Þáttur Rósa Ólöf Ólafíudótir - Systir Lalla Johns um kerfið, skýrslurnar og skaðann
Í þriðja þætti Týndu Strákanna ræðum við við Rósu Ólöfu Ólafíudóttur, systur Lalla Johns, um bókina sem hún hefur skrifað um bróður sinn, tengsl þeirra systkina og sögu sem varpar hörðu ljósi á kerfi sem brást ekki aðeins honum heldur líka aðstandendum hans.Í þættinum förum við yfir sláandi gögn og skýrslur um Lalla John, þar sem orðalag, mat og framsetning bera með sér fordóma, gaslýsingu og vald

Þáttur #2 Sævar Hlynur Jónsson - Skólakerfið, fíkn og heimilisleysi
Í þessum þætti segir Sævar Hlynur Jónsson frá því hvernig hann var dæmdur snemma af skólakerfinu sem vandræðaunglingur og hvernig sú stimplun ýtti honum síðar inn í neyslu, heimilisleysi og líf á ystu brún. Þetta er ekki bara saga um einn mann heldur líka um fjölskyldu sem brotnar með honum, foreldra sem standa úrvinda eftir og móður sem á einum stað í örvæntingu veltir því fyrir sér hvort best sé

AUKAÞÁTTUR: Bruninn á Stuðlum og stjórnkerfið
Í þessum aukaþætti fara Steindór Þórarinsson og Jón K. Jacobsen beint í skýrslu HMS um brunann á Stuðlum 19. október 2024, sem birt var 18. mars 2026.Farið er í það sem stendur í skýrslunni, það sem hún varpar ljósi á, það sem enn vantar svör við og upplifun Jóns af kvöldinu sem breytti öllu.Þetta er ekki snyrt útgáfa. Ekki mýkt. Ekki þynnt. Í þættinum ræðum við ábyrgð, afleiðingar, spurningarnar

Þáttur 1: Hvað við erum að gera
Týndu Strákarnir er hlaðvarp í tengslum við Strax í dag, framleitt af Samson.is.Í fyrsta þætti ræða Steindór Þórarinsson aka ADHD pabbi og Jón K. Jacobsson, Nonni Lobo, um hvað þetta verkefni er, hvað er verið að gera í hlaðvarpinu, á gólfinu og á bakvið tjöldin, og af hverju við leggjum svona mikla áherslu á skýr dæmi, samhengi og ábyrgð.Upptökur og tæknileg framleiðsla eru unnar með Ásgeiri Páli











