
Golfkennsla
Golfkennsla er fróðlegt hlaðvarp sem gefur hlustendum innsýn inn í golftækni, æfingar, búnað og leikinn sjálfan. Upplýsingar sem gagnast bæði byrjendum og lengra komnum í golfíþróttinni.
Episodes

Þáttur 18. - Lægsti punktur og innkoma kylfunnar á golfboltann
Hér ræðum við um Low point eða neðsta hluta sveiflubogans og mikilvægi hans með tilliti til innkomu kylfunnar á golfboltann.

Þáttur 17. - Högg dagsins á vellinum?
Förum yfir það hvernig við getum unnið með breytilegt boltaflug á golfvellinum.

Þáttur 16. - Gullna reglan í stutta spilinu
Í þessum þætti ræðum við mikilvæga vinnureglu í kringum flatirnar.

Þáttur 15. - Algengar spurningar kylfinga?
Hefjumst handa við að svara til algengum spurningum kylfinga í þessum þætti.

Þáttur 14. - Hvernig fer einkakennsla fram?
Farið yfir feril dæmigerðs 50 mín einkakennslu hjá golfkennara í sveifluviðgerð.

Þáttur 13. - Sandjárnið (SW)
Farið yfir þróun, notagildi og sögu sandjárnsins og afhverju þessi kylfa hentar betur en aðrar í flatarglompum.

Þáttur 12. - Að tía upp boltann?
Farið yfir helstu atriði sem ber að hafa í huga við upptíun golfboltans á teig með mismunandi kylfum.

Þáttur 11. - Grunnatriðin eru allt.
Farið yfir mikilvægi grunnatriða í golftækninni ogg afhverju þau skipta öllu máli.

Þáttur 10. - Skiptir upphitun fyrir golfhring máli?
Farið yfir mikilvægi þess að hita upp fyrir golfhring og hvaða kosti það hefur í för með sér.

Þáttur 9. - Pre Shot routine eða vanaferli fyrir högg.
Farið yfir mikilvægi þess að fylgja vanaferli fyrir öll leikin högg.

Þáttur 8. - Hvað er forgjöf?
Forgjöf í golfi útskýrð, hvernig hún reiknast og gagnast.

Þáttur 7. - Mismunandi lega boltans.
Fair yfir það hverju þarf að breyta til þess að mæta mismunandi halla og legu háu grasi.

Kynning.
Kynning á þáttaraðaröðinni.

Þáttur 6. - Leikskipulag 101.
Skiptir máli hvernig við högum undirbúningi og ákvarðanatöku? Farið yfir grunnatriði í leikskipulagi og hvað þarf að hafa í huga til þess að geta leikið 18 holur á sem fæstum högggum.

Þáttur 5. - Skiptir gripið máli?
Farið yfir mikilvægasta einstaka atriði golftækninnar og markmið þess.

Þáttur 4. - Hvað er Club fitting eða sérsmíði á golfkylfum?
Farið yfir af hverju sérsniðnar golfkylfur skipta máli þegar það kemur að því að leika stöðugu boltaflugi.

Þáttur 3. - Hvernig vel ég réttar kylfur úti á golfvelli?
Farið yfir hvernig er best að standa að því að velja réttar kylfur við mismunandi aðstæður úti á golfvelli.

Þáttur 2. - Hvernig á að æfa golf?
Farið yfir hvaða atriði skipta máli þegar kemur að því að vinna að markmiðum sínum og bæta sig.

Þáttur 1. - Að byrja í golfi.
Farið yfir helstu atriði sem snúa að fyrstu skrefunum fyrir nýliða í golfi.











