
Heilsuvarpid
Podcast by Ragga Nagli sem fjallar um heilsu og vellíðan.
Episodes
#130 Kristín Berta heilsunuddari
Kristín Berta Sigurðardóttir heilsunuddari og eigandi Birtu Heilsu er gestur Heilsuvarpsins. Hún vann í bankageiranum en sneri við blaðinu eftir að hafa greinst með krabbamein í miðju Covid og sneri sér að heilsunuddi, bandvefslosun, jóga nidra og hjálpar nú fólki í gegnum reynslu og þekkingu að bæta heilsu sína með heildrænni nálgun andlega og líkamlega.
Hægt að fylgjast með Kristínu Bertu @birt
#128 Stopp í fitutapi - mögulegar lausnir án þess að borða minna
Ef þú upplifir að vera stopp í fitutapi geta verið margar mögulegar ástæður og lausnir án þess að grípa strax í að borða minna og æfa meira. Því færri hitaeiningar og meiri æfingar ætti ekki að vera fyrsta úrræðið, þar sem slíkt getur leitt til orkuskorts, vannæringar og ofþjálfunar.
Hér fer ég yfir mögulega ástæður fyrir stöðnun í fitutapi, og hvað þú getur gert til að halda boltanum rúllandi.
#127 Magnesíum
Heilsuvarpið snýr aftur með fræðslu um magnesíum, hvað er það, muninn á mismunandi tegundum, hvað gerir magnesíum í líkamanum, hvernig lýsa einkenni af skorti sér, hvenær er best að taka magnesíum, er hægt að blanda saman tegundum og fleiri spurningum svarað.
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi
@nowiceland
#126 Nanna Kaaber íþróttafræðingur fitubjúgur/Lipidema
Nanna Kaaber íþróttafræðingur leiðir okkur í allan sannleika um sjúkdóminn fitubjúg (Lipidema), hvað er fitubjúgur og hvaða áhrif hann hefur á líkamlega og andlega vellíðan kvenna. Nanna er íþróttafræðingur og hefur sjálf fengið greiningu af fitubjúg og sótt fjölmargar ráðstefnur, haldið erindi, skrifað pistla og frætt sjálfa sig og aðra um sjúkdóminn.
Nanna Kaaber @nannakaaber
Heilsuvarpið er
#125 Helgi Ómars heilsumarkþjálfi - núvitund, öndun, tónheilun, streitulosun
Okkar allra besti Helgi Ómars er orðinn heilsumarkþjálfi og fræðir okkur hér um núvitund, streitulosun, öndunaræfingar og tónheilun ´a sinn fallega og einlæga hátt.
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi
@nowiceland
Kóði NAGLINOW20
#124 Unnur Valdís - Flot er allra meina bót
Unnur Valdís Kristjánsdóttir vöruhönnuðuur og vatnsmeðferðaraðili er gestur Heilsuvarpsins
Hún er hugmyndasmiður Flothettu sem er flotbúnaður sérhannaður ti að veita stuðning í vatni og skapa djúpslökun, draga úr verkjum í vöðva og stoðkerfi líkamans. Þetta slökunarástand í vatninu losar um streitu í öllu kerfinu og er gott fyrir kvíða, depurð og andlega heilsu.
@flothetta
Heilsuvarpið er í bo
Alma Hafsteinsdóttir - Spilafíkn
Alma Hafsteinsdóttir er spilafíklaráðgjafi, með B.S í sálfræði, viðskiptafræðingur og spilafíkill í bata. Hún situr í stjórn Samtaka Áhugafólks um spilafíkn sem vilja umræðu um spilakassarekstur Háskóla Íslands, og lokun spilakassa. Spilafíkn fylgir mikil skömm svo fólk ræðir ekki vandann opinberlega og þær alvarlegu samfélagsleg, efnahagslegu og heilsufarslegu afleiðingar sem hljótast af þessar
#122 Bætiefni fyrir geðheilsuna
Þessi þáttur fjallar um hvaða bætiefni eru góð fyrir geðheilsuna. Sem bæta svefn, minnka bólgur, lækka kortisól, minnka kvíða. Hvaða rannsóknir styðja notkun þeirra.
Omega-3
L-theanine
Magnesíum Glycinate
D-vítamín
Góðgerlar
Narsissmi - Eitruð samskiptamynstur og klækjabrögð
Klækjabrögð og stjórnunartækni sem finnast oft í eitruðum samböndum og hjá narssistum.
#120 Hærri Grunnbrennsla - hvernig hækkarðu grunnbrennsluna?
Margir upplifa að grunnbrennslan virðist hægari en áður. Þessi þáttur fjallar um grunnbrennsluna og svarar vonandi mörgum spurningum. Hvað er grunnbrennsla? Hvers vegna lækkar grunnbrennsluhraðinn þegar við förum í megrun? Hvernig hækkum við grunnbrennsluna aftur? Hvernig getum við misst fitu á heilbrigðan hátt með dúndur grunnbrennslu?
#119 Prótín-Allt sem þú þarft að vita
Allt sem þú þarft að vita um prótín. Hvað er prótín. Hvað gerir prótín fyrir okkur í líkamanum? Hversu mikið prótín þarftu til að byggja og viðhalda vöðvamassa? Hvaða matvæli eru prótínrík? Hver er munurinn á mismunandi prótíndufti. Af hverju er prótín mikilvægt. Af hverju er mikilvægt að byggja upp vöðva.
#118 Halldóra Skúla- Breytingaskeiðið og fjármál kvenna
Halldóra Skúla frá Kvennaráð er óendanlegur brunnur visku og þekkingu þegar kemur breytingaskeiðinu. Halldóra heldur úti fróðleikssíðu og fyrirlestra um breytingaskeiðið fyrir vinnustaði en i þessum þætti tölum við um áhrif breytingaskeiðs á atvinnuþátttöku og fjármál kvenna og hvað vinnustaðir geta gert til að vera breytingaskeiðsvænir og styðja við konur svo þær detti ekki út af vinnumarkaði a
#117 Magnús Friðrik Ólafssson sálfræðingur - Skjánotkun barna og Adolescence þættirnir
Magnús F Ólafsson sálfræðingur hjá Sálstofunni vinnur með hegðunarvanda barna/ unglinga ásamt ráðgjöf til foreldra, starfaði áður með Fjölkerfarmeðferð, fjölskyldumiðað úrræði á vegum Barna – og fjölskyldustofu fyrir unglinga með alvarlegan hegðunarvanda. Magnús er hokinn af reynslu af vinnu með börnum og unglingum. Við ræddum skjánotkun barna/ unglinga og áhrif á andlega/ líkamlega heilsu. Hvað
#116 Liðleika Lilja - Liðleiki, hreyfanleiki, lyftingar
Lilja Sigurgeirsdóttir eða Liðleika Lilja er ÍAK einkaþjálfari sem sérhæfir sig í liðleika og hreyfanleika. Hún heldur úti námskeiðunum Flex Fit, Stirðir strákar, lyftingar fyrir konur, liðleiki fyrir golfara og margt fleira. Lilja er hafsjór af fróðleik um liðamót, líkamsstöðu og allt sem viðkemur þjálfun líkamans.
Hún setur inn myndbönd af góðum liðleikaæfingum á Instagram @lidleika_lilja
Heil
#115 Svefn -Verkfæri fyrir dúndur góðan svefn
Verkfæri fyrir góða svefnrútínu til að stuðla að dúndur góðum svefni, hvers vegna við vöknum oft kl 2-3 á nóttunni og dettum í ofhugsanir, og hvað við getum gert til að róa líkamann niður og sofna aftur.
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó
@nowiceland
@netto.is
#114 Erla Guðmundsdóttir (HeilsuErla)- Streita, kulnun, mataræði, hreyfing
Erla Guðmundsdóttir, HeilsuErla, er íþróttafræðingur og markþjálfi sem starfar sem íþróttakennari og heldur úti hlaðvarpinu 'Með lífið í lúkunum'. Við töluðum um hennar reynslu af kulnun og streitu, og hvað hjálpaði henni tækla það sem og allskonar mýtur í heilsubransanum.
Ótrúlega skemmtilegt spjall enda erum við á sömu bylgjulengd í öllu þessu heilsubrölti.
@heilsuerla
Heilsuvarpið er í boði
#113 Berglind Sigmars sálfræðingur - Uppbyggileg samskipti og lausn ágreininga
Gestur þáttarins er Berglind Sigmarsdóttir sálfræðingur hjá Samkennd heilsusetri og veitir einstaklingsmeðferð og heldur námskeiðið Tölum saman samskiptanámskeið.
Svo hún er hokin af reynslu þegar kemur að heilbrigðum uppbyggilegum samskiptum.
Við fórum um víðan völl í hvernig við setjum mörk hvað einkennir góð samskipti, og virka hlustun og hvernig við leysum deilur á uppbyggilegan hátt.
Hei
#112 Næring fyrir + eftir æfingu
Þetta sólóvarp fjallar um hvers vegna við þurfum að næra okkur vel fyrir og eftir æfingu og hvað sé best að borða.
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó.
@nowiceland
@netto.is
#111 Breytingaskeiðið mitt
Þessi þáttur er sólókast þar sem ég tala um vegferð mína á breytingaskeiðinu, hvað ég þurfti að gera í heilbrigðiskerfinu og hverju ég breytti varðandi lífsstíl, bætiefni, mataræði og æfingar til að fara í gegnum þetta skeið eins þægilega og kostur er.
Vonandi einhverjum konum þarna úti til gagns og jafnvel gamans.
Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á Íslandi
@nowiceland
@netto.is
#110 Ég alla leið - sjálfsrækt
Gestir Heilsuvarpsins eru Helga Fríður Garðarsdóttir félagsráðgjafi, Inga Guðlaug Helgadóttir sálfræðingur, Margrét K. Pétursdóttir jógakennari standa að baki Ég alla leið, sem er sjálfsræktardagbóka helguð sjálfseflingu sem og sjálfsstyrkingarnámskeiðum. Við spjölluðum um allt sem tengist sjálfsrækt, núvitund, sálfræði með allskonar ráð til að hlúa að andlegu hliðinni.
@eg.allaleid
Heilsuvarpi
#109 Atli Steinn Guðmundsson - Að lyfta lóðum alla ævi
Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður á Morgunblaðinu og lyftingakappi per exelans er gestur Heilsuvarpsins. Atli er fimmtugur og hefur lyft síðan hann var 14 ára gamall. Við tölum um hvað stuðlar að langlífi í lyftingum nú þegar við samanlagt erum með 70 ára lyftingasögu. Atli talar líka um hverju hann þurfti að breyta og aðlaga eftir því sem hann varð eldri.
Atli er megahress og þetta var stórskem
#108 Hafdís Helgadóttir næringarfræðingur - næring barna og fullorðinna
Hafdís Helgadóttir næringarfræðingur er gestur Heilsuvarpsins var að gefa út barnabókina Petra paprika, fræðsluefni um næringu fyrir börn sem nýtist líka fullorðnum. Hafdís kom með góðar ráðleggingar bæði fyrir matarvenjur barna og fullorðna.
Súper fróðlegur þáttur, svo dragið fram penna og glósubók.
Fylgið Hafdísi á Instagram @hafdisnaering
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó
@nowic
#107 Þorleifur Þorleifsson - últrahlaupari
Gestur Heilsuvarpsins er Þorleifur Þorleifsson últrahlaupari.
Hann er gríðarleg fyrirmynd því hann sýnir okkur að öll geta hreyft sig því hann er faðir í fullri vinnu sem byrjaði að hlaupa þrítugur en lauk nýverið 62 hringum í Bakgarðshlaupinu og sló Íslandsmet. Við tölum um vegferð hans í hlaupunum, hvernig félagslegur stuðningur hefur spilað stórt hlutverk í árangrinum, og hvernig hann kemst an
#106 Vilborg Arna - ofurkona, pólfari, ferðamálafræðingur
Vilborg Arna Gissurardóttir pólfari er gestur Heilsuvarpsins. Hún býr í Slóveníu og þarf vart að kynan fyrir neinum en hún var fyrsta og eina konan til að fara Suðurpólinn og ganga 8000 m tind ein síns liðs. Hún hefur marga fjöruna sopið í fjallamennskunni, en hún upplifði bæði jarðskjálfta og snjóflóð á Everest. Og haldið fjölda fyrirlestra um mikilvægi þess að taka bara eitt lítið skref í einu t
#105 Unnur Borgþórs- Heilsudagar Nettó
Unnur Borgþórsdóttir úr Morðcastinu kíkti í spjall um Heilsudaga en þessi þáttur er síðasti þáttur í Heilsudagaseríu Nettó. Við töluðum um sameiginlegan áhuga á sönnum sakamálum, og um allskonar heilsustöff, vegan gúrmeti og Heilsudagagleði.
@mordcastid
Heilsuvarpið er einnig í boði NOW á Íslandi
@nowiceland
@netto.is
#104 Helga Dís og Bjarki hjá Nettó - Heilsudagar
Helga Dís markaðs og upplifunarstjóri og Bjarki innkaupastjóri hjá Nettó kíktu í spjall og fræða okkur um sögu Heilsudaga, þróun og vinnuna við að skipuleggja stærstu hátíð okkar heilsuperranna.
Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á íslandi
@netto.is
@nowiceland
#103 Jana heilsukokkur - Heilsudagar Nettó
Jana Steingríms heilsukokkur kíkti í Heilsuvarpið en hún heldur úti vinsælu matarbloggi undir jana.is og á instagram undir janast.
Þessi þáttur er annar af fjórum í sérstakri Heilsudagaseríu í samstarfi við Nettó.
Jana er einmitt forsíðustúlkan á heilsublaðinu og segir að við getum öll eldað.
Við Jana getum matarperrast saman í marga klukkutíma og vonandi skilaði spjallið allskyns góðum ráðum í a
#102 Helgi Ómars Heilsudagar Nettó
Helgi Ómars er einn áhrifavaldur hjá Nettó og hann kíkti í Heilsuvarpið af þessu tilefni og við röbbuðum saman um allskonar heilsutengt, og eins og okkar er von og vísa förum við um víðan völl þar sem meira að segja Smjattpattarnir koma við sögu.
Þessi þáttur er fyrsti þáttur af fjórum í Heilsudagaseríu í samstarfi við Nettó í tilefni af Heilsudagar eru 29/8-8/9 með fullt af frábærum tilboðum á
#101 Magnús Jóhann - einkaþjálfari og borðtennismeistari
Gestur Heilsuvarpsins er Magnús Jóhann einkaþjálfari í Hreyfingu,BS í sálfræði og margfaldur íslandsmeistari í borðtennis.er með , s
Hann hefur hjálpað hundruðum ná markmiðum sínum í ræktinni en einnig búið í Suður Kóreu svo hann hefur upplifað margt og hefur frá mörgu að segja. Skemmtilegt spjall við megahressan gaur,
Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á Íslandi
@nowiceland
@netto.is
#100 Lotuþjálfun HIIT - sólóvarp
Allt um lotuþjálfun (HIIT) í þessu sólóvarpi.
Vonandi öllum spurningum um þetta æfingaáreiti svarað.
Hvað er það?
Hvers vegna er HIIT gott fyrir okkur
Hvenær er best að gera lotuþjálfun?
Hversu margar lotur í einu?
Hversu langar lotur?
Hversu oft í viku.
Heilsuvarpið er styrkt af NOW á Íslandi og Nettó
@nowiceland
@netto.is
#98 Krissi Haff - Jákvæðasti maður Íslands
Krissi Haff félagsfræðingur er örugglega jákvæðasti maður Íslands.
Hann missti pabba sinn 15 ára og glímdi við sorgina með jákvæðni og von og hugarfari að glasið er alltaf hálffullt
Hann heldur úti hlaðvarpinu Jákastið þar sem hann fær til sín þekkta einstaklinga og spyr hvernig þau nota jákvæðni í sínu lífi.
Rosalega skemmtilegt spjall og öll fara súper jákvæð inni í daginn eftir þessa hlustun
#97 Gynamedica Harpa Lind og Sonja - Breytingaskeiðið
Harpa Lind og Sonja frá Gynamedica eru hafsjór af fróðleik um allt sem viðkemur breytingaskeiðinu. Gynamedica er lækninga og heilsumiðstöð fyrir konur sem fagna 2 ára afmæli um þessar mundir. Þar starfar teymi lækna, hjúkrunarfræðing sem bjóða stuðning, fræðslu, eftirfylgni á breytingaskeiði. Leggið vel við hlustir og dragið fram glósubækurnar.
Styrktaraðilar
@nowiceland
@netto.is
#96 Kristinn Johnson - Allt um skó í hlaup og göngur
Kristinn Johnson framkvæmdastjóri Eirberg er gestur Heilsuvarpsins. Eirberg selja vörur sem efla heilsu, auka lífsgæði, auðvelda störf og daglegt líf. Undir þeim hatti eru ALTRA hlaupaskór sem og Vivo barefoot skór. Umfjöllunarefni þáttarins er hvernig skór eru bestir í hlaup, göngur sem og daglegt líf.
Mjög fróðlegur þáttur fyrir alla sem vilja gefa fótunum sínum alla ást sem þeir eiga skilið me
#95 Vöðvabygging 101 - hvernig byggirðu vöðva
Allt sem þú þarft að vita um lyftingar og hvaða þættir þurfa að vera til staðar til að byggja upp vöðva.
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó.
@nowiceland
@netto.is
#94 Birna Varðar næringarfræðingur - orkuskortur og æfingar
Birna Varðar, næringarfræðingur, doktorsnemi í íþrótta og heilsufræði, rannsakandi á sviði fæðu og átraskana.
Hún hefur skoðað orkuskort í íþróttum og áhrif á heilsu og árangur.
Við tölum um orkuskort í æfingum hjá almenna ræktariðkanda því alltof mörg borða of lítið í samræmi við æfingarnar og fjöllum um áhrif of lítillar næringar hefur á líkamlega og andlega heilsu, og langtíma afleiðingar.
Fyl
#93 Kreatín - allt sem þú vilt vita
Í þessum þætti tala ég um kreatín og svara algengum spurningum
Hvernig virkar kreatín? Hvenær er best að taka það.
Hvernig? Hversu mikið? Hvaða týpa er best? Get ég tekið kreatín þó ég sé ekki að æfa?
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó
@nowiceland
@netto.is
#92 Geir Gunnar - mataræði án öfga
Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur er gestur Heilsuvarpsins
Geir Gunnar starfar hjá Heilsustofnun NLFÍ og ritstjóri heimasíðunnar. BS í matvælafræði og MS í næringarfræði og einkaþjálfarapróf og brennur fyrir heilsu, næringu, hreyfingu og berst gegn öfgum og hindurvísindum í næringar- og heilsufræðum.
Bókin hans Góð heilsa alla ævi án öfga fáanleg í næstu bókabúð.
Við töluðum um nýju bókin
#91 Valdimar Þór - Meðvirkni og samskipti
Valdimar Þór Svavarsson er ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu, með MS í stjórnun og stefnumótun, BA í félagsráðgjöf. áfalla- og uppeldisfræðum Piu Mellody.
Við tölum um meðvirkni og samskipti og áföll í æsku.
Stútfullur þáttur af fróðleik og verkfærum fyrir góð samskipti og aukinn skilning á meðvirkni.
www.fyrstaskrefid.is
Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó
@netto.is
@nowiceland
#90 Katrín Edda - ADHD sem fullorðin
Gestur þáttarins er Katrín Edda Þorsteinsdóttir, verkfræðingur, samfélagsmiðlastjarna, Crossfittari, móðir og eiginkona búsett í Þýskalandi og vinnur fyrir Bosch.
Við töluðum um þjálfun á meðgöngu og eftir fæðingu en aðallega um hvernig var að fá ADHD greinginu sem fullorðin og hvað áhrif það hefur haft á hennar líf í dag.
@katrinedda
Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó
@netto.is
@nowiceland
#89 Erlendur Jóhanns - Testósterón og hormónakerfi karla
Gestur þáttarins er Erlendur Jóhann Guðmundsson einkaþjálfari
sem hefur startað sem einkaþjálfari í 15 ár á hinum ýmsu stöðum, og því hokinn af reynslu í bransanum. Hann rekur núna Formið heilsurækt í Ármúla sem er persónuleg nálgun í þjálfun í öruggu umhverfi.
Við tölum um ýmislegt sem viðkemur þjálfun, að koma sér í form á nýju ári en aðallega tölum við um hormónakerfi karla og ótrúlegur fró
#88 Kristín Þórhalls- Kraftlyftingakona og dýralæknir
Kristín Þórhallsdótir er líklega sterkasti dýralæknir Íslands og klárlega ein af sterkustu konum landsins. Hún fann sig í kraftlyftingum eftir að hafa eignast langveikt barn árið 2018. Hún byrjaði að dútla í venjulegri rækt og Crossfit en áttaði sig fljótlega á að hún var mjög sterk og var hvött til að reyna fyrir sér í kraftlyftingum.
Kristín hefur unnið til fjölda verðlauna á skömmum tíma en hún
#87 Erla Súsanna - Jákvæð sálfræði og þakklæti
Erla Súsanna er menntaður kennari og heldur úti heimasíðunni Töfrakistan.is en hún leggur áherslu á jákvæða sálfræði og þakklætisiðkun.
Erla kennir einnig Jóga nidra, býður uppá allskonar retreat og selur þakklætisdagbókina á töfrakistan.is
Mjög áhugavert spjall við stórkostlega jákvæða konu með hlýja nærveru. Gjöriði svo vel.
Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó
@nowiceland
@netto.is
#86 Helgi Ómars - öryggi í samböndum og allskonar spjall
Sameiginlegur þáttur Helga og Röggu fyrir bæði Helgaspjallið og Heilsuvarpið.
Við töluðum um allt og allskonar tengt samböndum, að setja mörk, og meira að segja pólitík.
Sjálfseflingarnámskeiðið er 20. og 21. október
Skráning raggaoghelgi@gmail.com
Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó
@nowiceland
@netto.is
Árni Þóroddur - Narsissmi
Árni Þóroddur sálræðingur kíkti í spjall og við köfum djúpt í samskiptavanda, að setja mörk, eitruð sambönd og narsissma. Árni er einn vinsælasti viðmælandinn minn og svíkur sannarlega ekki í þetta sinn frekar en fyrri daginn
Fylgið endilega Árna þar eru fræðslumyndbönd um allskyns sálfræðitengd málefni.
@mind.in.motion.psychology
Ég minni á námskeiðið okkar Helga ómars Sjálfseflin allur pakkin
#84 Eik Gylfadóttir - Dóttirin í eyðimörkinni
Eik Gylfadóttir er sjúkraþjálfari, næringarþjálfari og bjó um árabil í Dubai og Abu Dabi og þjálfaði Crossfit. Eik hefur farið á heimsleikana í Crossfit þrisvar sinnum.
Hún er hafsjór af fróðleik um alt sem viðkemur þjálfun, næringu og endurhæfingu en spáir líka mikið í hugarfarinu sem knýr okkur áfram í æfingum.
Kíkið endilega á Eik á samfélagsmiðlum en hún heldur úti Building Thriving lifesty
#BiggiBingó
Gestur Heilsuvarpsins er Arnaldur Birgir eða Biggi þjálfari. Við tölum um þjálfun eftir fertugt, hvernig líkaminn breytist og hvernig við þurfum að hagræða þjálfun og næringu í samræmi en halda samt áfram að ná árangri. Biggi er hokinn af reynslu eftir næstum þrjátíu ár í bransanum og þúsundir skjólstæðinga á ferilskránni.
@coachbirgir
Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á Íslandi
Kóðinn HEILS
#82 Khan Porter - Mest sjarmerandi maðurinn í CrossFit
Gestur minn í HV er enginn annar en Ástralinn Khan Porter sem er ein stærsta stjarnan í Crossfit heiminum. Khan er ekki bara afburða íþrottamaður en er líka sálfræðimenntaður, djúpur hugsuður, brennur fyrir andlega heilsu og er mikill talsmaður þess að fólk opni sig um vandamál en hann hefur sjálfur glímt við andleg veikindi. Khan bjó á Íslandi í 6 mánuði og æfði í CrossFit Reykjavík með liðinu
# 81 Lucie Martinsdóttir - Sterkasta mamma Íslands?
Lucie Stefanikova (Martinsdóttir) er kraftlyfingakona frá Tékklandi búsett á Íslandi. Hún er grjótsterk en líka stórkostleg fyrirmynd hvernig hún sinnir móðurhlutverkinu, starfi sínu sem þjálfari og rífur í lóðin. Lucie er fróð, hógvær, róleg og með einstakt æðruleysi.
Mögulega sterkasta mamma íslands gjöriði svo vel.
@lucie_martins_lifts
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi
Mæli með kreatíni
#80 Nökkvi Fjalar - konungur heilsunnar
Nökkvi Fjalar Orrason er gestur Heilsuvarpsins að þessu sinni og miðlar af þekkingu reynslu í gegnum sína miðla til að tileinka sér betri heilsuvenjur t.d hugleiðslu, æfingar, mataræði, föstur, betri svefn og öndunaræfingar.
Nökkvi býr í London þar sem hann er að þróa nýtt app fyrir áhrifavalda, Mintseer, sem hjálpar þeim að halda utan um sín verkefni og samstörf við fyrirtæki.
Dragið fram glós
#79 Hjörtur Jóhann - buffaðasti leikari Íslands
Gestur HEILSUVARPSINS er Hjörtur Jóhann Jónsson leikari.
Ég hef verið aðdáandi Hjartar síðan 2016 þegar ég sá hann eiga stórleik í Njálu. Hjörtur er stórkostlegur leikari og hann segir okkur hér frá sínum heilsuvenjum og hvernig hann æfir í ræktinni fyrir hin ýmsu hlutverk í bíói og á sviði. Hjörtur er með hlýja nærveru, skemmtilegur, einlægur og fyndinn. Frábært spjall við frábæran mann.
Heil
#78 Heiðrún Finnsdóttir - Allir geta eitthvað
Heiðrún Finnsdóttir er gestur Heilsuvarpsins.
Heiðrún á ótrúlega sögu. Hún var 105 kg með vefjagigt, þunglyndi, liðagigt og kvíða og ákvað að snúa við blaðinu.
Hún var búin að prófa alla kúra þegar hún fór í Polefitness og þaðan lá leiðin í Crosfit og er með Level 1 Crossfit þjálfararéttindi.
Síðan hefur margt vatn runnið til sjávar og hún setti á fót hin geysivinsælu Allir geta eitthvað námskei
#77 Snorri Barón - umboðsmaður Crossfitstjarnanna
Snorri Barón umboðsmaður er með rúmlega 30 Crossfitstjörnur undir sínum verndarvæng, og eins og bangsapabbi sem hugsar um þau með alúð og umhyggju. Hann er þeim innan handar hvenær sem er sólarhringsins, og semur ríkulega við styrktaraðila svo þau geti lifað af sinni íþrótt.
Þessi þáttur er bæði fyrir þá sem vita lítið um Crossfit því Snorri er megahress og segir skemttilega frá en líka fyrir ok
#76 Halldóra og Viðar Kvennastyrkur + Kvennakraftur
Halldóra Anna Hagalín og Viðar Bjarnason eigendur Kvennastyrks í Hafnarfirði sem er líkamsræktarstöð eingöngu fyrir konur þar sem áherslan er á að hver og ein hreyfi sig útfrá eigin getu og þjálfun aðlöguð að hverri konu með áherslu á getu en ekki útlit og vigt. Þau segja að það sé nauðsynlegt að hafa líkamsræktarstöð eingöngu fyrir konur þar sem margar upplifa sig óörugga í hefðbundnum kynjablönd
#75 Ingi Torfi Macros og mataræði
Í þessum þætti er ég að tala við Inga Torfa Sverrisson hjá ITS macros en þau hafa hjálpað þúsundum að ná árangri með að telja orkuefni og læra gott máltíðamynstur.
Við fórum um víðan völl í öllu sem viðkemur mataræði, macros og heilbrigðu sambandi við mat.
Ég minni á Heilsukvöldið þar sem bæði ég og Ingi Torfi verðum með fyrirlestra um mataræði í Hverslun þann 21. apríl kl 18.30.
Heilsuvarpið er
#74 Jónas Tryggvi Betra Box sambönd + samskipti
Jónas Tryggvi Stefánsson frá Betra Box, er áhugamaður um samskipti, sambönd, og meðvirkni. Hann vill ekki að við festum okkur í ákveðnu boxi. Í þættinum töluðum við um allskonar tengt samböndum, kynlífi, heilbrigð samskipti, tilfinningar og sjálfsbetrun.
@betrabox
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó
@nowiceland
@netto.is
#73 Hlynur Kristinn Það er Von
Hlynur Kristinn Rúnarsson er stofnandi samtakann Það er von
Markmið þeirra er að vinna gegn fordómum, skömm og vekja von hjá þeim sem glíma við fíknisjúkdóma og gefa annað tækifæri í lífinu.
Hlynur á sjálfur ótrúlega sögu af bata en hann hefur verið edrú í næstum 4 ár.
Hann er nýútskrifaður með BS í lögfræði og er nú í mastersnámi. Heilsuvarpið hvetur alla til að gerast Vonarliðar og leggja sam
#72 Halldóra Skúladóttir - Breytingaskeiðið
Gestur þáttarins er Halldóra SKúladóttir hjá Kvennaráð.is. Hún er sprenglærð í breytingaskeiði kvenna, sjúkraliðamenntun og dáleiðari. Halldóra er hafsjór af fróðleik um breytingaskeiðið, og markmið hennar er að fræða, upplýsa og uppræta fordóma. Takið fram penna og stílabók, því þið eruð að fara að glósa hérna.
@kvennarad.is
Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó
@nowiceland
@netto.is
#71 Sólveig Sigurðardóttir Crossfitstjarna
Í þessum þætti tala ég við Sólveigu Sigurðardóttur, Crossfitstjörnu, en hennar frægðar Sól reis hratt síðasta ár þegar hún stóð sig stórkostlega í undanúrslitunum í London og tryggði sig inn á Crossfitleikana í einstaklingskeppni.
Sólveig er einlæg, hlý, hreinskilin og í alla staði yndisleg manneskja. Hún opnar sig um reynsluna af Crossfit keppnum, að æfa með háklassa keppendum á Mallorca, og h
#70 Daníel Gunnarsson - frá magaermi í vaxtarrækt
Daníel Gunnarsson fór í magaermi í maí 2021. Í nóvember 2022 stóð hann helskafinn á sviði að keppa í vaxtarrækt og lét þar gamlan draum rætast. Draumur sem hann hélt að yrði alltaf bara óraunhæf óskhyggja. Ekki nóg með að fara á svið, heldur lenti hann í öðru sæti. Ótrúleg saga af dugnaði, elju, þrautseigju, jákvæðni og skynsemi hjá okkar manni.
Heilsuvarpið er rækilega styrkt af NOW á Íslandi o
#69 Sara Sigmunds Crossfit drottning
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Crossfit drottning, sálfræðinemi, verðandi einkaflugmaður. Sara er hlý, kærleiksrík, fyndin og einlæg.
Hún opnar sig um hvernig hún komst andlega í gegnum meiðslin á hnénu, hversu mikilvægt er að hrósa, og hvernig eitt hrós var þúfan sem velti þungu hlassi á hennar Crossfit ferli. Ótrúlega skemmtilegt viðtal við stórkostlega konu.
Styrktaraðilar Heilsuvarpsins
N
#68 Sveinn Gunnar Björnsson kírópraktor
Sveinn Gunnar Björnsson eða Svenni Kíró er kírópraktor hjá Kíró Lindum. Hann lærði í Atlanta Georgia, og glímdi sjálfur við bakmeiðsli ungur að árum. Svenni er gangandi fróðleiksmoli um allt sem viðkemur líkamsstöðu og beitingu í æfingum og daglegu lífi.
Hann er líka einn af þremur frumkvöðlum sem settu á markað Kuldi Sleeve sem er kæliermi fyrir hné, olnboga og fleiri liði.
Kuldi sleeve fæst t.d
#67 Erlendur Rafnkell Crossfit Fenrir Elite
Í þessum þætti tala ég við Ella eiganda Fenrir Elite á Höfn í Hornafirði. Elli á magnaða sögu þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur glímt við þunglyndi kvíða, og fíkn en vann sig útúr því og stofnað Crossfit stöð sem fagnar mikilli velgengni. Sannarlega frumkvöðull sem á framtíðina fyrir sér, bæði sem elítu Krossfittari og slyngur viðskiptamaður. Skemmtilegt spjall við kláran og duglegan mann.
He
#66 - Gústi Hermanns - ADHD á fullorðinsárum
Gústi Hermanns er verkfræðingur sem glímdi við kulnun og í þvi ferli greindist hann með ADHD og það opnaði augu hans fyrir ýmsu úr æskunni. Hér segir hann frá einkennunum og hvernig er að vera með ADHD sem fullorðinn.
Þátturinn er í boði NOW á Íslandi og Nettó
@nowiceland
@netto.is
#65 - Friðrik Agni Árnason dansari og hamingjusprengja
Friðrik Agni Árnason er dansari og annar eigandi Happy studios.
Hér talar hann um lífshlaup sitt, starfið sitt og opnar sig á einlægan hátt um kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir snemma á lífsleiðinni og hvernig hann hefur unnið úr því áfalli.
Heilsuvarpið er styrkt af NOW á Íslandi og Nettó
@fridrikagni
@nowiceland
@netto.is
#64 Hinrik Páls - Lyftingar og mataræði
Hinrik Pálsson situr í stjórn Kraftlyftingasambands Íslands og er með næringarþjálfunargráðu frá Working against gravity.
Hann veitir næringarráðgjöf hjá Fiercely fuelled nutrition.
Hinrik hefur síðustu ár keppt í kraftlyftingum bæði hér heima og erlendis, og er einnig að klára nám til að fá þjálfararéttindi í greininni.
Hann er með margar háskólagráður, BA í félagsfræði, MA í afbrotafræði, M.S
#63 - Anna Claessen- Kulnun, streita, zumba og Jallabína
Anna Claessen glímdi við kulnun í starfi og persónulega lífinu en komst uppúr því með ýmiss konar aðstoð. Nú er hún að fara af stað með netnámskeið í streitustjórnun. Anna er dansari, fjölmiðlafræðingur, markþjálfi,einkaþjálfari, skemmtikraftur og prófessjónal peppari.
Hún kennir Zumba og Jallabína og rekur Happy studios ásamt Friðriki Agna Árnasyni.
@happystudiosiceland
Heilsuvarpið er í boð N
#Breytingaskeið - Æfingar og mataræði
Margar konur klóra sér í hausnum hvernig þær eiga að haga æfingum og mataræði fyrir, á meðan, og eftir breytingaskeið. Því líkaminn breytist, hormónabúskapur breytist, insúlínnæmið breytist, líkamssamsetningin breytist. Og margar konur upplifa að þó þær æfi mikið og borði hollt sjái þær fitusöfnun á kvið og verra líkamsform eftir fertugt.
Í þessum þætti tala ég um hvaða æfingar eru áhrifaríkastar
Ragga Nagli - Heilsuhegðun í sumarfríi
Í þessu sólókasti tala ég um að vera kortér í kulnun, nauðsyn þess að taka frí og hvernig við viðhöldum heilsuhegðun í sumarfríinu.
Heilsuvarpið fór í smá marineringu í nokkra mánuði en snýr nú aftur í vetur með hvetjandi og fræðandi þætti.
Styrktaraðilar Heilsuvarpsins
@netto.is
@nowiceland
#60- Haraldur Holgersson Crossfit og Friends
Haraldur Holgersson er klárlega næsta karlkyns vonarstjarna Íslands í Crossfit heiminum. Hann hefur farið á Crossfit leikana sem unglingur og í liðakeppni. Hann æfir og þjálfar í Crossfit XY og stefnir á leikana sem einstaklingur 2022. Haraldur er líka manna fróðastur um Friends þættina.
Þátturinn er í boði Nettó verslananna og NOW á Íslandi
#59- Rannveig Ásgeirs - Konur og hjartasjúkdómar
Í þessum þætti tala ég við Rannveigu Ásgeirsdóttir, verkefnastýru hjá GORED iceland sem er vitundarvakning um hjarta og æðasjúkdóma kvenna. Ungar konur eru í aukinni áhættu á háþrýstingi og sykursýki á meðgöngu og síðan seinni hluta ævinnar á breytingaskeiðinu. Febrúar er HJARTAMÁNUÐURINN og vill GÓRED hamra á að fólk þekki ættarsögu sína, sem og hin ýmsu gildi eins og blóðþrýsting, sykurstuðul o.
#58-Helgi Ómars - Lífið eftir ofbeldissamband
Helgi Ómars er áhrifavaldur, frumkvöðull, ljósmyndari, en fyrst og fremst dásamleg mannvera og hugrökk hetja, en hann kom sér út úr margra ára ofbeldissambandi. Hann hefur unnið í sjálfum sér síðan, að styrkja sjálfsmyndina og sjálfstraustið og deilir hér hvað reyndist honum vel í þessari sjálfsvinnu og ráðleggingar til annarra í sömu stöðu.
Þátturinn er tekinn upp í Podcaststöðinni @podcastodin
#57-Daníel Gunnarsson- Magaermi, breyttar matarvenjur, líkamsímynd
Daníel Gunnarsson er smiður, og nemi í mannauðsstjórn og skipulagsstjórnun. M.Sc í Háskólanum í Reykjavík.
Hann fór í magaermi í maí 2021.
Hann talar hér um reynslu sína af þeirri aðgerð, breyttar matarvenjur með nýtt magarými, líkamsímynd sína, bæði fyrir og eftir aðgerð og einelti í æsku vegna vaxtarlags og margt fleira.
Þátturinn er tekinn upp í Podcaststöðinni í Kópavogi @podcaststodin
Þátt
#56 Anna Marta - Næring, hreyfing, sorg
Anna Marta hefur gengið í gegnum barnsmissi og talar hér um hvernig heilbrigður lífsstíll og einstök jákvæð sýn á lífið hefur hjálpað henni að takast á við sorgina og lifa með henni. Anna Marta er með online þjálfun en einnig framleiðir hún pestó og Döðlumauk undir merkinu AnnaMarta og súkkulaðið Dásemd til styrktar Barnaspítala Hringsins.
Þátturinn er í boði Nettó og NOW á Íslandi.
@nowiceland
#55 Júlían Jóhannsson - kraftlyftingakappi og heimsmethafi
Júlían Jóhann Karl Jóhannsson er fremsti kraftlyftingamaður Íslands en hann var kosinn íþróttamaður ársins 2019. Júlían setti heimsmetið í réttstöðulyftu í 120 + kg flokki en hann togaði 405.5 kíló upp frá jörðu árið 2019 í Dubai. Nýlega vann hann gull í réttstöðulyftu í Stavanger í Noregi.
Kona Júlíans, Ellen Ýr, stundar einnig kraftlyftingar svo þetta er líklega sterkasta par Íslands.
Þú getur
#54 Hekla Guðmunds - Bandvefslosun, nudd og teygjur
Hekla Guðmundsdóttir er eigandi Bandvefslosun,is
Hekla hefur hannað Body reroll, nýtt æfingakerfi sem sameinar teygjur, slökun, djúpteygjur og bandvefslosun.
Hekla fræðir okkur um hvað bandvefur, hlutverk hans í líkamanum og mikilvægi þess að hugsa vel um hann með teygjum og nuddi og hvernig bandvefslosun minnkar verki og vöðvaspennu, bætir líkamsstöðu, eykur hreyfanleika, og undirbýr líkamann f
#54 Hjördís Ósk - Crossfit, næring, líkamsímynd
Hjördís Ósk er íþróttafræðingur, yfirþjálfari og framkvæmdastjóri Crossfit XY. Hún hefur tvisvar keppt á Crossfit leikunum. Hjördís á frækinn feril í íþróttum frá blautu barnsbeini, körfu, fótbolta frjálsum og sundi
Sannkölluð ofurkona með mörg járn í eldinum.
Þátturinn er sem fyrr í boð NOW á íslandi
@nowiceland
@hverslun
#53 Ásdís Hjálms spjótkastari- Hugarfar í íþróttum. Neikvæð ummæli.
Ásdís Hjálmsdóttir er lyfjafræðingur og fremsti spjótkastari Íslandssögunnar og keppt 3x á ÓL 2008, 2012 og 2016.
Býr í Svíþjóð og er eigi kona einsömul.
Hún talar um þjálfun á meðgöngu, hvernig er að lesa ummæli um sjálfa sig og hvort það sé sanngjarnt að ætlast til að það sé hluti af því að vera íþróttamaður að mynda þykkan skráp og mikilvægi hugarfarsins og sjónmynda þegar kemur að þjálfun.
#52 Árni Björn - Lyftingar - Crossfit - Langveikt barn
Árni Björn Kristjánsson eigandi og stöðvarstjóri að Crossfit XY. Árið 2009 var hann var 130 kg með of háan blóðþrýsting og missti 30 kg á örfáum mánuðum í CrossFit. Hann talar hér um Lyftingar, CrossFit og Árni Björn og kona hans eiga langveikt barn og í þessum þætti opnar hann sig um hvernig þau hafa þurft að berjast við kerfið til að sækja réttindi sín.
Þátturinn er í boði NOW á Íslandi
@nowi
#52- Silja Úlfars - Hlaupastíll, hlaupatækni og ofþjálfun
Silja úlfars er frjálsíþróttakona er þekktust sem spretthlaupari í 100-200 og 400 m vegalengdum. Silja hefur lagt keppnisskóna á hilluna og sinnir nú námskeiðahaldi í hlaupatækni og hlaupastíl
Ég ráðlegg öllum að draga fram glósubækurnar og blýantinn því í þessum þætti eys hún úr viskubrunninum og dælir úr reynslubankanum góðum ráðum til að hámarka hlaupaþjálfunina.
En hún talar líka um þegar hú
#51- Björgvin Karl Crossfittari -næsti arftaki Matt Fraser?
Björgvin Karl Guðmundsson hefur keppt á Crossfit heimsleikunum síðan árið 2014 og tvisvar komist þar á pall í þriðja sætið. Hann er án efa skærasta karlkyns Crossfit stjarna okkar Íslendinga.
Björgvin er konungur Hveragerðis þar sem hann æfir og þjálfar í Crossfit Hengill sem bróðir hans og mágkona eiga og reka.
Hvernig er hann að þjálfa fyrir Open og heimsleikana, hvaða veikleika er hann að vi











