
Morðsál
Kristín Lea fer yfir morðmál frá aldamótum til dagsins í dag.
Episodes

Glæpagengi
Íslenskur maður er sendur í verkefni erlendis á vegum vinnuveitanda síns. Þar verður hann ástfanginn af konu sem áður átti í ástarsambandi við meðlim eins stærsta glæpagengis landsins. Þegar parið hverfur sporlaust tekur við rannsókn á hrottalegu tvöföldu morði.
Samstarfsaðilar þáttarins:
GULI MIÐINN LANCÔME
Hljóðheimur og lokastef: Finnbjörn Benónýsson
Framleiðandi: TAL
Upphafsstef: Kerfis

Pylsuhnífur
Bærinn Valle í Noregi var lítið og samheldið samfélag þar sem allir þekktu alla. Það var því mikið áfall fyrir bæjarbúa þegar dáður útvarpsmaður í bænum lét lífið og gerandinn bjó í sama bæ.
Samstarfsaðilar þáttarins: GULI MIÐINN I LANCÔME
Hljóðheimur og lokastef: Finnbjörn Benónýsson
Þáttarstjórnandi: Kristín Lea
Framleiðandi: TAL
Instagram: @mordsalin
Upphafsstef: Kerfisbundin þrá - Mau

Íslenskur leigumorðingi
Árið 2024 var íslenskur karlmaður ráðinn til að fremja morð gegn greiðslu fyrir sænsk glæpasamtök. Eftir því sem best verður séð er um að ræða fyrsta þekkta íslenska leigumorðingjann, að minnsta kosti frá lokum síðmiðalda.
Samstarfsaðilar þáttarins:
GULI MIÐINN I LANCÔME
Hljóðheimur og lokastef: Finnbjörn Benónýsson
Framleiðandi: TAL
Upphafsstef: Kerfisbundin þrá - Maus

Dulkóðuð gögn
Íslendingur og sænskur maður höfðu átt í langvarandi deilum sem enduðu með ósköpum á tjaldsvæði í Svíþjóð árið 2016. Árásarmaðurinn flúði af vettvangi og frásagnir vitna urðu lykillinn að því að varpa ljósi á það sem gerðist.
Samstarfsaðilar þáttarins: GULI MIÐINN I LANCÔME
Hljóðheimur og lokastef: Finnbjörn Benónýsson
Þáttarstjórnandi: Kristín Lea
Framleiðandi: TAL
Instagram: @mordsalin
Up

Íslendingur í Flórída
Íslenskur karlmaður hringir í neyðarlínuna og tilkynnir að vinur hans hafi framið sjálfsvíg. Fljótlega fer lögreglan þó að púsla saman allt annarri mynd af því sem gerðist.
Samstarfsaðilar þáttarins: GULI MIÐINN I LANCÔME
Hljóðheimur og lokastef: Finnbjörn Benónýsson
Þáttarstjórnandi: Kristín Lea
Framleiðandi: TAL
Instagram: @mordsalin
Upphafsstef: Kerfisbundin þrá - Maus

Ísexi
Íslendingur í Kaliforníu myrðir unga konu á hrottafenginn hátt skömmu eftir að samband þeirra hefst.
Samstarfsaðilar þáttarins:
Guli miðinn | Lancôme
Hljóðheimur & lokastef: Finnbjörn Benónýsson
Framleiðandi: TAL
Instagram: @mordsalin
Upphafsstef: Kerfisbundin þrá - Maus

Ted Bundy I Partur 2
Yfirvöld víðs vegar um vesturríki Bandaríkjanna voru farin að bera saman bækur sínar og fljótlega fóru öll vötn að renna að sama manninum – Ted Bundy. En það stöðvaði hann ekki. Þvert á móti átti hann eftir að fremja einn af sínum verstu glæpum til þessa.
Samstarfsaðilar þáttarins: GULI MIÐINN I HÚÐIN I LANCÔME
Hljóðheimur og lokastef: Finnbjörn Benónýsson
Þáttarstjórnandi: Kristín Lea
Framl

Ted Bundy I Partur 1
Á áttunda áratug síðustu aldar voru nokkrir alræmdir raðmorðingjar í kastljósinu. En meðal allra þeirra nafna sem birtust í fyrirsögnum þessara ára var eitt sem átti eftir að verða þekktara en flest önnur: Ted Bundy.
Samstarfsaðilar þáttarins: GULI MIÐINN I HÚÐIN I LANCÔME
Hljóðheimur og lokastef: Finnbjörn Benónýsson
Þáttarstjórnandi: Kristín Lea
Framleiðandi: TAL
Instagram: @mordsalin
Up

Andrea Göppner & Sabine Hilschenz
⚠️Sérstök viðvörun: Þessi þáttur er ekki við hæfi barna eða þeirra sem eru viðkvæm fyrir umfjöllun af þessum toga.
Í þætti dagsins rekjum við tvö aðskilin sakamál sem vöktu mikinn óhug í Þýskalandi. Enn í dag vekja þau spurningar um hvað varð til þess að þessar tvær konur urðu fjölda nýfæddra barna sinna að bana og földu líkamsleifar þeirra með svo vanvirðandi hætti.
Samstarfsaðilar þáttarins: G

John Wayne Gacy „The Killer Clown“ - Partur II
Seinnipartur sögu John Wayne Gacy „The Killer Clown“.
Samstarfsaðilar þáttarins:
Guli miðinn | Vítamín & bætiefni
Verdi Travel | Skipulagning hópferða
Húðin | Húðmeðferðir & dekur
Lancôme | Snyrtivörur & ilmir
Hljóðheimur: Finnbjörn Benónýsson
Framleiðandi: TAL
Upphafsstef: Kerfisbundin þrá - Maus

John Wayne Gacy „The Killer Clown“ - Partur I
Á meðan 27 ungir menn lágu grafnir undir heimili hans og sex til viðbótar á botni vatna, vann John Wayne Gacy sér inn virðingu og völd í samfélaginu og skemmti börnum sem trúðurinn Pogo.
Samstarfsaðilar þáttarins:
Guli miðinn | Vítamín & bætiefni
Verdi Travel | Skipulagning hópferða
Húðin | Húðmeðferðir & dekur
Lancôme | Snyrtivörur & ilmir
Hljóðheimur: Finnbjörn Benónýsson
Framlei

Israel Keyes
Þegar gerandi í morðmáli ungrar konu var loks handtekinn tók rannsóknin nýja stefnu. Það sem í fyrstu virtist vera eitt mannrán og morð þróaðist smám saman í mál sem náði þvert yfir Bandaríkin. Í kjölfarið hófust umfangsmiklar yfirheyrslur þar sem sérfræðingar FBI í hegðunargreiningu reyndu að varpa ljósi á hugsunarhátt og glæpi manns sem síðar var grunaður um fjölda morða.
Samstarfsaðilar þát

Gilgo Beach morðin – Partur II
Þrýstingur frá fjölskyldum fórnarlambanna og almenningi leiddi til þess að rannsóknin var tekin upp af nýjum krafti. Ný sönnunargögn leiddu rannsakendur að manni sem hafði lifað tvöföldu lífi í áratugi. Nú var loksins komið andlit á hinn dularfulla Gilgo Beach-morðingja.
Samstarfsaðilar þáttarins: Guli miðinn - Verdi Travel - Húðin
Hljóðheimur: Finnbjörn Benónýsson
Upphafsstef: Kerfisbundin þr

Gilgo Beach morðin – Partur I
Það sem hófst sem leit að einni konu átti eftir að afhjúpa eitt umfangsmesta raðmorðmál samtímans.
Samstarfsaðilar þáttarins: Guli miðinn - Verdi Travel - Húðin
Hljóðheimur: Finnbjörn Benónýsson
Upphafsstef: Kerfisbundin þrá - Maus
Þáttastjórnandi: Kristín Lea
Framleiðandi: TAL
Instagram: @mordsalin

Pétur Guðmann réttarmeinafræðingur - viðtal
Pétur Guðmann Guðmannsson réttarmeinafræðingur kom til mín í spjall um vísindalegu hlið dauðans. Hvað gerist þegar og eftir við deyjum? Fáum að vita það og margt annað áhugavert í þessum síðasta þætti af seríu 2 af Morðsál.
Þessi þáttur er í boði Einn tveir og elda og PLAY
Morðsál á instagram

Noregur
Illa farnir líkamspartar fundust í útbrunnum varðeldi í Öyer fylki nálægt Lillehammer í Noregi. Í ljós kom að um hræðilegan fjölskylduharmleik var að ræða.
Þessi þáttur er í boði Einn tveir og elda og PLAY
Morðsál á instagram

Bretland - Killamarsh morðin
*Sérstök viðvörun. Þessi þáttur inniheldur lýsingar á ofbeldi í ýmsum myndum. Ekki við hæfi barna eða viðkvæmra.
Í máli dagsins hringdu ítrekað viðvörunarbjöllur í kerfinu vegna afbrotamanns en eftirliti var ekki sinnt sem skyldi. Enginn átti þó von á að afleiðingar þess ættu eftir að kosta fjórar manneskjur lífið í þessum litla bæ í Bretlandi árið 2021.
Þessi þáttur er í boði Einn tveir og elda

Berlín - Mannæta
Árið 2020 fundust bein í almenningsgarði í Berlín. Við frekari skoðun komu í ljós ummerki eftir mannætu. Það var svo líkamsvefur á einu beinanna sem leiddi til handtöku í málinu.
Þessi þáttur er í boði Einn tveir og elda og PLAY
Morðsál á instagram

Svíþjóð - blásýra
Blásýrumorð í Svíþjóð árið 2020.
Þessi þáttur er í boði Verdi travel og Taramar
Morðsál á instagram

Færeyjar - Pidda málið
Árið er 2011 og við erum stödd í Færeyjum en á þeim tíma hafði ekki komið upp morðmál í Færeyjum síðan árið 1988.
Þessi þáttur er í boði: Verdi travel & Taramar
Morðsál á instagram

Hryðjuverk í Barcelona 2017
Árið 2017 sat Barcelona undir árásum af höndum tólf manna hryðjuverkasellu á vegum Íslamska ríkisins (ISIS). Markmið hópsins voru mun stærri og mannskæðari voðaverk en raun varð, vegna slyss sem raskaði áformum þeirra.
Þessi þáttur er í boði: Verdi travel - Taramar
Morðsál á instagram

Danska kafbáta morðið
Sænski blaðamaðurinn Kim Wall steig um borð í heimasmíðaðan kafbát í eigu Peter Madsen þann 10. ágúst árið 2017. Hvorki Kim né kafbáturinn snéru aftur til hafnar þennan dag.
Verdi travel
Taramar
Morðsál á instagram
Buy me a coffe

Viðtal I Ragnar Jónsson blóðferlasérfræðingur
Í þessum síðasta þætti í seríu 1 fáum við að skyggnast inn í líf og starf Ragnars Jónssonar rannsóknarlögreglumanns og eins fremsta sérfræðings okkar íslendinga í blóðferlafræðum.
Takk fyrir samfylgdina í seríu 1. Ég minni á Morðsál á instagram.
Heyrumst í næstu seríu af Morðsál.

Klapparstígur
Maður deyðir konu sína á heimili þeirra árið 1988. Fjórtán árum síðar er honum ráðinn bani í sama húsi.
Minni á Morðsál á instagram

Stórholt
Gerandinn í þessu máli gaf falska játningu og reyndi að afvegaleiða lögreglu sem tafði rannsókn gífurlega.
Vek athygli á þeim úrræðum sem í boði eru fyrir þolendur heimilisofbeldis sem og gerendum sem vilja leita sér hjálpar.
Hér er hlekkur á upplýsingaskjal frá Landspítalanum:
Heimilisofbeldi aðstoð

Hringbraut
Í þessu óhugnarlega máli var notast við háþróaða tækni við skoðun blóðferla á vettvangi og þegar uppi var staðið var blóðið lykilvitni málsins.

Akranes
Harmleikur á Akranesi árið 2015.

Skúlaskeið
Í fyrstu var ekkert sem gaf annað til kynna en að andlátið hafi borið að vegna veikinda. En þegar komið var á vettvang, fóru grunsemdir að vakna um að ekki væri allt með felldu.

Leifsgata
Bakkus náði snemma völdum á lífi konu og varð að lokum örlagavaldur í lífi hennar og annara sem koma við sögu.

Hamraborg
Harmleikur í Hamraborg.











