Home Podcasts Samfélagið
Samfélagið

Samfélagið

RÚV 477 episodes Latest Feb 26, 2026

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is

Episodes

Sálfæði snúbúa og þvottahús spítalanna Feb 26, 2026 0:58:46 Í þessum síðasta þætti Samfélagsins veltum við fyrir okkur snúbúum – einstaklingum sem flytja til útlanda og snúa svo aftur. Karítas Hrundar Pálsdóttir, doktor í ritlist, hefur rannsakað snúbúa og svokallaðar snúbúabókmenntir. Hún kafar ofan í sálfræði snúbúa og birtingarmyndir þeirra í bókmenntum og ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að ræða þennan áhugaverða hóp. Svo ætlum við að r
Reykjavík Grapevine, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og May Morris Feb 25, 2026 0:58:16 Rekstur dagblaðsins Reykjavík Grapevine er í járnum. Dagblaðið, sem kemur út á ensku, einu sinni til tvisvar í mánuði og hefur gert frá árinu 2003, hefur neyðst til að segja upp þremur blaðamönnum, en biðlar nú til almennings að halda því á lífi. Jón Trausti Sigurðarson, útgefandi, settist niður með okkur og fór yfir reksturinn, söguna og stöðu íslenskrar fjölmiðlaflóru. Við förum líka í heimsókn
Barnaverndarkerfið og ferðaþjónusta í Grænlandi Feb 19, 2026 0:57:47 Barnaverndarkerfið hefur verið mikið til umræðu. Tómas Hrafn Sveinsson formaður umdæmisráðs barnaverndar Reykjavíkur ræddi við Fanneyju Birnu Jónsdóttur um stöðu barnaverndar í dag, uppbyggingu og gang kerfisins og feril málanna sem koma inn á borð barnaverndarnefnda. Og síðan ætlum við að fræðast aðeins um ferðaþjónustu í Grænlandi, eins og hún blasti við árið 2021. Við endurflytjum viðtal sem Þ
Gervigreind forritar gervigreind, virk efri ár og vetrarklippingar Feb 18, 2026 0:59:10 Við byrjum þáttinn á gervigreindinni. Eyrún Magnúsdóttir gervigreindarfréttaritari Samfélagsins ætlar að kíkja til okkar og segja okkur frá því sem ber hæst í gervigreindarumræðunni þessa dagana. Í dag segir hún okkur frá meintum tímamótum í þróun gervigreindar, þegar gervigreindin byrjaði að forrita sjálfa sig – og hvaða áhrif það gæti haft á daglegt líf fólks sem tengist gervigreind ekki neitt.
Ávaxtaflugur, grænlenskur atvinnurekstur og kaffinördismi Feb 12, 2026 0:58:17 Í byrjun þáttar fáum við til okkar Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, til að fræða okkur um ávaxtaflugur. Svo heimsækjum við Christian Keldsen, framkvæmdarstjóra Sulisitsisut, félag atvinnurekenda í Grænlandi. Og að lokum rifjum við upp heimsókn okkar á kaffinördakaffihús á Akureyri sem farin var í október 2024. Tónlist úr þættinum: Canadian Brass - The flight of the bumbl
Bitcoin á niðurleið, listnám háskólastigi á Akureyri og fiskiflugan Feb 11, 2026 0:58:56 Verð á rafmyntinni Bitcoin hefur sveiflast duglega niður á við síðustu mánuði. Í síðustu viku rifjuðum við upp samtal sem við áttum fyrir nokkrum árum við hagfræðinginn Björgvin Inga Ólafsson um rafmyntina, sem þá hafði risið mjög hátt. Nú er þessu öfugt farið og ætlum við að ræða aftur við Björgvin um ástæður þessarar niðursveiflu, traust á rafmyntum og um breytingar á notkun Bitcoin yfirleitt.
Afleiðingar ofbeldis í æsku, Grænland árið 1976 og Bitcoin sveiflur Feb 5, 2026 1:00:08 Rætt við þær Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur, prófessor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og Þóru Sigfríði Einarsdóttur, sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein, um áföll og ofbeldi sem börn verða fyrir í æsku sem og þau úrræði sem bæði börn og fullorðnir sem verða fyrir slíku geta leitað í. Þá lítum við um öxl og flytjum brot úr áhugaverðum þáttum frá 1976 sem fj
Eyðibyggðir, dagur í lífi stelpu í 9. bekk og Grænland árið 1976 Feb 4, 2026 0:59:19 Fræðimenn á ýmsum fræðasviðum Háskóla Íslands vinna nú að umfangsmikilli rannsókn sem ber heitið Eyðibyggðir miðalda á Íslandi. Þar mætast sagnfræðin og fornleifafræðin meðal annars og varpa nýju ljósi á hvernig samfélag og byggð þróuðust á Íslandi á tímabilinu 1100-1400 (ellefu hundruð og fjórtánhunduð). Árni Daníel Júlíusson rannsóknarsérfræðingur við Sagnfræðistofnun háskólans ræðir við Fanneyj
Almyrkvi á sólu, gervigreind í Davos og dagskrárbreytingar á Rás 1 Jan 30, 2026 0:59:55 Almyrkvi á sólu verður sjáanlegur frá Íslandi þann tólfta ágúst. Það er í fyrsta sinn síðan 1954 sem hægt verður að sjá almyrkva hér á Íslandi. Hann mun sjást á vestasta hluta landsins, og má búast við að fólk flykkist að til að verða vitni af þessum atburði. Við sláum á þráðinn vestur á Snæfellsnes þar sem Ragnhildur Sigurðardóttir þjóðgarðsvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði ætlar að segja okkur af
Vinnumansal, bráðnun jökla og umhverfismál Jan 29, 2026 0:56:37 Þrældómur nútímans er yfirskrift málþings sem ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International heldur í næstu viku. fjallað verður um hvernig vinnumansal birtist okkur á Íslandi og á heimsvísu. Við fáum Árna Kristjánsson Ungliða- og aðgerðastjóra og Heiðrúnu Völu Hilmarsdóttur ungliða til okkar í upphafi þáttar. Síðasta jökulár 2024 til 25 fór illa með jöklana okkar. Þeir rýrnuðu um fimmtán mi
Aðlögun að loftslagsbreytingum, hlaðvarp um fornleifafræði og ADHD Jan 28, 2026 0:59:16 Loftslagsbreytingum fylgja ýmsar áskoranir sem þarf að bregðast við, meðal annars þarf að tryggja að húsin okkar standi aukið álag af sér. Það var til umræðu í erindi Elínar Þórólfsdóttur teymisstjóra hjá húsnæðis- og mannvirkjastofnun á málþingi um aðlögun að loftslagsbreytingum á dögunum. Við tölum við Elínu í upphafi þáttar. Heiðnar grafir á Íslandi, landnám Reykjavíkur og Grænland og Ameríka
Smáforritið Bati, Persónuvernd í 25 ár, ljótt og flott umhverfi Jan 27, 2026 0:58:53 Í dag ætlum við að kynna okkur smáforritið Bata, sem hefur það markmið að styðja við fólk með fíknisjúkdóma. Þórdís Rögn Jónsdóttir, annar stofnenda fyrirtækisins Rekovy á bak við smáforritið, ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar og segja okkur meira. Á morgun verður haldið upp á 25 ára afmæli Persónuverndar – stofnunin býður til afmælismálþings í Eddu, húsi stofnunar Árna Magnússonar, þa

Recommended

Playing