Home Podcasts Víðsjá
Víðsjá

Víðsjá

RÚV 572 Episodes Sep 17, 2026

Víðsjá er íslenskur menningarþáttur sem fjallar um listir og menningu. Umsjónarmennirnir Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir varpa ljósi á það sem efst er á baugi hverju sinni, skoða menningu nær og fjær frá ólíkum sjónarhornum og setja skapandi miðla undir smásjána.

Episodes

Vaka og Varkár
Vaka og Varkár Sep 17, 2026 0:54:18 Ein af fyrstu bókunum til að flæða inn fyrir dyr ríkisútvarpsins í komandi jólabókaflóði er skáldsagan Varkár eftir rit- og danshöfundinn Margréti Bjarnadóttur. Verkið fjallar um þrána eftir því að eignast barn og þá miklu óvissu og ókyrrð sem fylgir því að missa fóstur. Margrét mun heimsækja okkur í hljóðstofu í síðari hluta þáttar og segja frá bókinni. Fyrst förum við uppeftir í Kópavog þar sem
Aldrei las ég Laxness / Heimsljós
Aldrei las ég Laxness / Heimsljós Sep 16, 2026 0:55:28 Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Heimsljós sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940. Heimsljós fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga, og fylgir vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Nafnið Heimsljós er sótt í síðustu ljóðlínur kvæðisins Söknuður eftir Jónas Hallgrímsson: Hnigið er heimsljó
Valgerður Briem, 1.h.v og upphitun fyrir Heimsljós
Valgerður Briem, 1.h.v og upphitun fyrir Heimsljós Sep 15, 2026 0:52:29 Víðsjá hefst að sinni í Gerðarsafni þar sem yfirlitssýning á verkum Valgerðar Briem opnar annað kvöld. Cecilie Gaihede sýningarstjóri og Brynja Sveinsdóttir safnstjóri sögðu frá sýningunni og rannsókninni sem liggur að baki. Vala Sigþrúðardóttir Jónsdóttir kíkti á sýningu Joe Keys og Svövu Björnsdóttur, Glundroða, í heimagalleríinu 1.h.v. að Lönguhlíð 19 og rýnir í sýninguna í myndlistarpistli s
Open og sýningarstjórnun
Open og sýningarstjórnun Sep 14, 2026 0:59:15 Víðsjá kemur við á gjörningi í Open, listamannareknu rými í vesturbænum, þar sem sýningin Lesbíur frá Agoo opnaði um helgina. Pétur Eggertsson ræðir við þær Karin Itturalde Nurnberg og Hildigunni Birgisdóttur um sýninguna. Við hugum að starfi sýningarstjórans. Daria Sól Andrews mun segja frá ferli sínum sem sýningarstjóri, rekja stöðu sýningarstjórnar hér á landi sem og afhjúpa þá margræðu mögule
Robert le Diable og Breadcrumbs
Robert le Diable og Breadcrumbs Sep 10, 2026 0:50:29 Fyrir tæpum 200 árum var frumflutt ópera sem hafði feykileg áhrif á tónlistarsöguna en er að mestu gleymd og vanrækt á okkar dögum: Robert le Diable eftir Giacomo Meyerbeer. Egill Arnarsson, ritstjóri, mun fjalla um óperuna í þltti dagsins og setja í samhengi við hina svokölluðu risaóperu (grand opéra) en það óperuform stóð í mestum blóma um 1830 til 1850. Sjöfn Hauksdóttir, bókmenntafræðingur, s
Úlfur Eldjárn 50 ára, Heimsljós og Töfrafjallið.
Úlfur Eldjárn 50 ára, Heimsljós og Töfrafjallið. Sep 9, 2026 0:51:47 Úlfur Eldjárn tónlistarmaður og tónskáld fagnaði fimmtusgafmæli fyrir helgi. Alls ekki af því tilefni blés hann til tónleika í Fríkirkjunni síðasta sunnudag en Guðrún Sóley heimsótti hann á æfingu fyrir tónleikana sem hitti einmitt beint á afmælisdaginn. Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur, lítur við í hljóðstöfu og ræðir við okkur um Heimsljós og Töfrafjallið. En hún mun halda fyrirlestur um að
Led Zeppelin, íslenska og gríska.
Led Zeppelin, íslenska og gríska. Sep 8, 2026 0:53:36 Led Zeppelin kom hingað til lands sumarið 1970 sem eins konar varalausn á Listahátíð eftir að annar listamaður, Donovan, reyndist of kostnaðarsamur fyrir tónleikahaldara - í þætti dagsins hleypum við nýjum dagskrárgerðarmanni að hljóðnemanum; Diljá Valsdóttir tekur við stjórninni og mun reyna að setja okkur inn í hugarheim fólksins sem sótti tónleika Led Zeppelin í Laugardalshöll á sínum tíma. H
Hið heilaga og hið vanhelga í íslenskum bókmenntum og Fela Kuti
Hið heilaga og hið vanhelga í íslenskum bókmenntum og Fela Kuti Sep 7, 2026 0:54:09 Í fyrra sendi hlaðvarparinn frægi Jad Abumrad, sem þekktur er fyrir Radiolab og Dolly Partons America, frá sér nýja hlaðvarpsseríu um tónlistarmanninn Fela Kuti og arleifð hans. En við munum kynna okkur tónlistarmanninn að gefnu tilefni í þættinum. Nýverið kom út bókin The Sacred and the Profane in premodern Icelandic literature, ca. 1500–1800 (í. Hið heilaga og hið vanhelga í íslenskum bókmenntu
Tinna Gunnlaugsdóttir, Eiríksþing, Davíð Þór í Heimsljósi og Gao Xingjian
Tinna Gunnlaugsdóttir, Eiríksþing, Davíð Þór í Heimsljósi og Gao Xingjian Sep 3, 2026 0:55:40 Leikkona, fyrrum þjóðleikhússstjóri og doktor í þýingafræðum eru þrír titlar sem allir eiga við um Tinnu Gunnlaugsdóttur. Doktorsnafnbótin er nýjasta rósin í hnappagatið en hún varði nýverið doktorsverkefni sitt sem bar titilinn Lifandi texti - áhrif þýðinga á sögu leiklistariðkunar á Íslandi. Við ræðum við Tunni í þættinum. Gauti Kristmannsson, bókmenntarýnir, segir frá nýútkominni þýðingu Gyrði
Miles Davis, Jazzhátíð og Miles Davis
Miles Davis, Jazzhátíð og Miles Davis Sep 2, 2026 0:50:51 Sigurður Flosason, tónlistarmaður, lítur við í hljóðstofu og segir frá Miles Davis. Í tilefni af því að 100 ár eru liðin frá fæðingu þessa trompetbákns blæs stórsveit reykjavíkur til tónleika honum til heiðurs nú á sunnudag þar sem leikin verða lög af tveimur merkilegum stórsveitaplötum sem Miles sendi frá sér á 6. áratugnum. Tumi Árnason flytur stutta samantekt á Jazzhátíð Reykjavíkur og dregur
Svipmynd af Magnúsi Jóhanni
Svipmynd af Magnúsi Jóhanni Sep 1, 2026 0:50:50 Í þætti dagsins spjöllum við við tónlistarmanninn Magnús Jóhann Ragnarsson sem hefur getið sér gott orð í tónlistarsenu þessa lands fyrir eigin verk og sem meðleikari margra. Hann stendur nú fyrir stórtónleikum í Háskólabíói sem fara fram 17. september en þar fagnar hann 30 ára afmæli og tíu ára starfsafmæli sem tónlistarmaður. Á tónleikunum verður mörgu af helsta samstarfsfólki Magnúsar smalað s
Saumó og Bifreiðarstöð Oddeyrar
Saumó og Bifreiðarstöð Oddeyrar Aug 31, 2026 0:51:05 Sýningin Saumó er hluti af sýningaröðinni Heimsókn á Hönnunarsafni Íslands og er viðfangsefnið hlutverk og form saumaklúbba nú á tímum. En á sýningunni upplifa gestir sig sem „flugu á vegg“ og fá að gægjast inn í ólíka klúbba. Katla Einarsdóttir, grafískur hönnuður, er sýningarstjóri Saumó en hún hefur áður rannsakað viðhorf til hönnunar, handverka og föndurs. Við ræðum við Kötlu í þættinum. Áki

Recommended