Home Podcasts Ljósmæðrarýmið
Ljósmæðrarýmið

Ljósmæðrarýmið

Hafdís og Oddný 14 Episodes Sep 3, 2026

Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum. Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu. Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim! Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu.

Episodes

#26 Fæðingarsögur: Gangsetning, heimafæðing og tvíburar
#26 Fæðingarsögur: Gangsetning, heimafæðing og tvíburar Sep 3, 2026 00:58:00 Í þætti vikunnar fáið þið að heyra þrjár mismunandi fæðingarsögur sem við lesum fyrir ykkur og ræðum!Gangsetning á LSH, þrátt fyrir upphafleg plön um að eiga á Selfossi, heimafæðing sem tók líka óvænta stefnu og tvíburafæðing við miklar bráða aðstæður.Við förum um víðan völl en “take home message” er kannski að þú getur haft óskir fyrir fæðinguna án þess að halda svo fast í þær að allt hrynji ef p
#25 Sigríður - Má hafa gaman í fæðingunni sinni?
#25 Sigríður - Má hafa gaman í fæðingunni sinni? Aug 27, 2026 01:02:07 Jákvæðni í fæðingu getur skipt sköpum 💛✨Í þessum þætti kemur Sigríður til okkar og segir frá sinni fæðingarreynslu, meðal annars hvernig hún hélt í jákvæðnina og hvernig maðurinn hennar var duglegur að minna hana á hana alla leiðina 😄Við tölum um mikilvægi þess að skapa ró, öryggi og góða stemningu í fæðingu – og hvernig það getur stutt við losun oxýtósíns, hormónsins sem gegnir svo mikilvægu hlut
#24 Fæðingarplan, er það sniðugt?
#24 Fæðingarplan, er það sniðugt? Aug 21, 2026 00:47:15 Þetta getur verið hot topic hvort þú eigir að gera fæðingarplan eða leyfa þér bara að go with the flow…?Við kryfjum þetta til mergjar í þætti vikunnar þangað til þetta er orðið kýrskýrt.Linkur á myndband um öndun í fæðingu:https://www.sofabordaelska.is/ondunVertu með okkur á Instagram:⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
#23 Alexandra - Tvær heimafæðingar
#23 Alexandra - Tvær heimafæðingar Aug 13, 2026 01:15:20 Elsku Alexandra, þroskaþjálfi og mikill snillingur, kom til okkar í svo skemmtilegt spjall um sínar tvær ólíku heimafæðingar.Hvað varð til þess að hún valdi heimafæðingu?Hvernig gengu þær fyrir sig?Áður en hún varð ólétt af fyrsta barni var hún frekar hrædd við að fæða, en eftir að hún áttaði sig á því að hún hefði val um hvar og hvernig hún fæddi barnið sitt, byrjaði hún að vera spennt fyrir fæði
#22 Mænurótardeyfing - allt sem þú þarft að vita
#22 Mænurótardeyfing - allt sem þú þarft að vita Aug 7, 2026 00:51:59 Mænudeyfing, mænurótardeyfing, utanbastdeyfing eða hvað sem þú vilt kalla hana, hér kemur góð umfjöllun um kosti, galla, fylgikvilla og verkun deyfinga í fæðingum á Íslandi. Hvenær er best að fá sér deyfingu?Hvað breytist þegar ég fæ mér deyfingu?Og margt margt fleira.Og ekki hafa neinar áhyggjur, að sjálfsögðu tölum við um kúk og piss líka og hlæjum mikið mikið af sjálfum okkur í leiðinni. Allt s
#21 Hildur Grímsdóttir
#21 Hildur Grímsdóttir Jul 30, 2026 01:26:31 TW Þáttur dagsins krefst þess að við setjum Trigger Warning við en Hildur fer yfir allar 5 fæðingarnar sínar, þar á meðal andvana fæðingu sonar síns Hergeirs Þórs sem fæddist eftir 25 vikna meðgöngu.Hildur lýsir á einlægan hátt erfiðri, sárri en jafnframt fallegri reynslu þegar Hergeir Þór kom í mömmufang. Ef þú treystir þér til mælum við eindregið með að hlusta á þessa fallegu fæðingu og fund ynd
#20 Arna Ýr
#20 Arna Ýr Jul 16, 2026 01:53:59 Arna Ýr, íþróttakona, fyrirtækjaeigandi, fyrrverandi fegurðardrottning og almennur brasari og fiðrildi eins og hún lýsir sjálf segir frá öllum fæðingunum sínum í löngu og skemmtilegu máli. Allar 3 er ólíkar en þó með sameiginlegum rauðum þræði, S E I G L A.Arna er mögnuð kona og það er heiður að fá að hlusta á hana segja frá fæðingunum sínum, hún er hreinskilin opin og hrá í þessum þætti.Getur hve
#19 Foreldrajátningar
#19 Foreldrajátningar Jul 9, 2026 00:45:13 Hefur þú gleymt að þú varst að keyra um með ungabarn í aftursætinu? Engar áhyggjur, það höfum við líka gert, og flestir hlustendur okkar líka! Endilega skelltu þessum í eyrun ef þú vilt eyða foreldra samviskubiti dagsins, enda erum við flest í sama rugli.
#18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið
#18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið Jul 2, 2026 01:34:54 Í þessum einstaka þætti segir Dýrleif okkur af svo mikilli einlægni og innsýn frá sínar tveimur ólíku fæðingum og hvernig það var að vera sjálf ljósmóðir þegar kom að því að fæða.Dýrleif deilir líka reynslu sinni af því hvernig áföll úr fortíðinni komu óvænt upp á yfirborðið í fyrri fæðingunni og hvað hún gerði til að geta átt ánægjulega seinni fæðingu.Þetta er þáttur sem við höfum beðið spenntar
#17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar
#17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar Jun 25, 2026 01:13:09 Missir snemma á meðgöngu er mun algengari en flestir gera sér grein fyrir. Samt upplifa margar konur sig einar í þessari reynslu og sorginni sem fylgir.Í þessum einlæga þætti deilir Oddný, annar þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins, sinni eigin reynslu af missi á 12. viku meðgöngu. Hún segir frá fyrstu einkennunum, greiningunni, lyfjameðferðinni, líkamlega ferlinu við missinn og þeim bjargráðum sem h
#16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara
#16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara Jun 18, 2026 01:11:12 Íris Rut þriggja barna móðir í úthverfi, kennari og fellihýsa áhugakona, segir okkur frá keisarafæðingunum sínum. Hún fór í gegnum allar 3 tegundir keisara, bjöllu, bráða og skipulagðan. Hún fer vel yfir hvernig fæðingarnar hófust og hvað varð til þess að fæðingarnar hennar voru keisarafæðingar, dregur upp fallega mynd af því þegar keisarar eru besta mögulega útkoman fyrir konu og barn þegar þörf
#15 Hvar vorum við og hvert erum við að fara?
#15 Hvar vorum við og hvert erum við að fara? Jun 11, 2026 00:44:10 Við erum mættar aftur eftir stutta pásu! Ferskari en nokkru sinni fyrr.Hvert fórum við? Hvert erum við að fara með hlaðvarpið?Pælingar: Af hverju heyrum við og sjáum lang mest af hryllingssögum um fæðingu en sjaldan góðu sögurnar?Af hverju ákváðum við að synda svolítið gegn straumnum og skapa vettvang fyrir jákvæðar fæðingarupplifanir?🎧 Njóttu vel!Vertu með okkur á Instagram:⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠

Recommended