Home Podcasts Spursmál
Spursmál

Spursmál

Ritstjórn Morgunblaðsins 138 episodes Nov 20, 2026

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is. Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

Episodes

#151. - Þjóðaröryggi og ástandið á Alþingi
#151. - Þjóðaröryggi og ástandið á Alþingi Nov 20, 2026 01:56:58 Landhelgisgæsla Íslands fagnar 100 ára afmæli um þessar mundir og verkefni stofnunarinnar hafa aldrei verið eins umfangsmikil. Georg Kr. Lárusson hefur verið forstjóri hennar í meira en tvo áratugi og hefur fylgt starfseminni eftir í gegnum gríðarlega breytingar, tæknilegar og þær sem tengjast umróti á alþjóðasviðinu.Georg er gestur Stefáns Einars í Spursmálum í dag og fer yfir þær áskoranir sem s
#150. - Getur stjórn Landsvirkjunar ráðið nýjan forstjóra?
#150. - Getur stjórn Landsvirkjunar ráðið nýjan forstjóra? Nov 13, 2026 01:36:35 Hver er staða Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra í lok vikunnar nú þegar Landsvirkjunarmálið hefur enn undið upp á sig? Getur stjórnin sem nú er yfir fyrirtækinu ráðið nýjan forstjóra þrátt fyrir skakkaföllin að undanförnu?Þessu svara stjórnmálarýnendurnir Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu og Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins í Spursm
#149. - Eru dagar Viðreisnar taldir?
#149. - Eru dagar Viðreisnar taldir? Nov 6, 2026 01:26:03 Hvert er pólitískt erindi Viðreisnar nú þegar þjóðin hefur hafnað Evrópuleiðangri flokksins? Þessari spurningu er hreyft í nýrri bók Björns Bjarnasonar þar sem hann gerir upp þjóðaratkvæðagreiðsluna sem efnt var til 29. ágúst síðastliðinn.Hann er gestur Spursmála að þessu sinni og ræðir stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og öðrum samstarfsþjóðum nú þegar ljóst er að Ísland er ekki á leið þang
#148. - Íslamskir öfgamenn, óþarfir biðlistar og kosningar
#148. - Íslamskir öfgamenn, óþarfir biðlistar og kosningar Oct 30, 2026 01:54:33 Hvað segir heimsókn Muhammad Taqi Usmani til Íslands um uppgang íslamskra öfgahópa hér á landi? Hver er afstaða múslima á Íslandi til þeirra viðhorfa sem hann heldur á lofti?Þetta er meðal þess sem rætt er í Spursmálum í dag. Þar mætast þau Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss og Jasmina Vajzovic, stjórnmálafræðingur. Þau hafa átt orðastað á samfélagsmiðlum síðustu vikuna í kjölfar þess að Elliði
#147. - Veifa byssum á götum Reykjavíkur
#147. - Veifa byssum á götum Reykjavíkur Oct 23, 2026 01:37:19 Um tuttugu glæpahópar, sem flestir hafa rík tengsl við útlönd eru starfræktir hér. Vopnaútköllum lögreglu hefur fjölgað og tilteknir hópar innflytjenda hika ekki við að veifa skotvopnum á götum úti.Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjón og sviðsstjóra öryggis- og greiningarsviðs Ríkislögreglustjóra í Spursmálum í dag. Í þættinum eru birtar ljósmyndi
#146. - Jón Gnarr leysir frá skjóðunni
#146. - Jón Gnarr leysir frá skjóðunni Oct 16, 2026 02:01:20 Hvað gerðist að tjaldabaki í þingflokki Viðreisnar í aðdraganda þess að Jón Gnarr sagði skilið við hópinn? Gengið verður á þingmanninn í Spursmálum.Þá er einnig rætt við tvo varaformenn, Snorra Másson frá Miðflokki og Guðmund Ara Sigurjónsson frá Samfylkingunni. Farið verður yfir stjórnmálaástandið, Bókun 35 og hallalaus fjárlög sem margir telja að verði allt annað en það.Í þættinum er sömuleiðis
#145. - Skattaóð ríkisstjórn, ömurlegt leikrit og stýrivextir
#145. - Skattaóð ríkisstjórn, ömurlegt leikrit og stýrivextir Oct 9, 2026 01:40:35 Farið verður yfir fréttir vikunnar með fjölmiðlakonunni Elísabetu Ingu Sigurðardóttur og Hallmundi Albertssyni lögmanni. Elísabet hefur setið undir árásum Helga Magnússonar og Ólafs Arnarson í nafnlausum skrifum þeirra á DV en pistill sem þeir birtu í liðinni viku hefur nú verið fjarlægður af vef fjölmiðilsins. Hallmundur hefur tekið að sér hagsmunavörslu fyrir forsvarsmenn hlaðvarpsins Chess afte
#144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ
#144. - Vilja bera klæði á vopnin í ASÍ Oct 2, 2026 01:16:39 Tveir bjóða sig fram til embættis forseta Alþýðusambands Íslands nú í mánuðinum en það fagnar 110 ára afmæli um þessar mundir. Þeir telja sig geta borið klæði á vopnin í erjum innan hreyfingarinnar.Þetta eru þeir Arnaldur Grétarsson, sem starfar á skrifstofu ASÍ og Georg Páll Skúlason, formaður stéttarfélagsins Grafíu.Í þættinum er einnig rætt við þau Brynjar Níelsson, borgarfulltrúa og fyrrverand
#143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í
#143. - 1.685 milljarða pakki sem kíkja þarf í Sep 11, 2026 01:26:58 Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir tæplega 1.700 milljarða útgjöldum ríkissjóðs á komandi ári. Allt stefnir í hörð átök í þinginu um þessi viðamiklu og stefnumarkandi lög.Af því tilefni mæta þeir í Spursmál þingmennirnir Grímur Grímsson frá Viðreisn og Stefán Vagn Stefánsson frá Framsóknarflokki. Þeir líta þessi mál gjörólíkum augum og munu meðal annars takast á um skattahækkanir sem
#142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu
#142. - Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu Sep 4, 2026 01:42:48 Grípa þarf til enn frekari aðhaldsaðgerða hjá Reykjavíkurborg að sögn Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem er gestur Spursmála að þessu sinni. Hallareksturinn nam 4,6 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi.Í liðinni viku var greint frá umtalsverðum skipulagsbreytingum hjá borginni sem spara eiga um 900 milljónir króna á ársgrundvelli. Fer Hildur yfir þessar aðgerðir í þættinum og hvernig hún hyggist á s
#141. - Uppgjörið
#141. - Uppgjörið Sep 1, 2026 01:01:52 Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum?Þessu hyggjast blaðamennirnir Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon svara í aukaþætti Spursmála sem fer í loftið klukkan 14:00. Þau hafa leitt fréttaumfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is síðustu
#140. - Titringur á lokametrum baráttunnar
#140. - Titringur á lokametrum baráttunnar Aug 28, 2026 01:42:37 Nú er innan við sólarhringur í að kjörstaðir opni um allt land og það styttist óðum í að úrslit fáist í einu stærsta pólitíska þrætumáli síðari ára á Íslandi. En hver verður niðurstaðan?Þeirri spurningu munu þau Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar reyna að svara í Spursmálum dagsins.Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Loga Bergm

Recommended