Home Podcasts Fotbolti.net
Fotbolti.net

Fotbolti.net

Fotbolti.net 2811 Episodes Aug 10, 2026

Podcastþættir Fótbolta.net fjalla um íslenskan og erlendan fótbolta. Í hverjum þætti ræða gestir og umsjónarmenn um nýjustu fréttir, leiki og þróun í fótboltaheiminum. Þættirnir eru á íslensku og koma út reglulega.

Episodes

Enski boltinn - Getur Man Utd barist um titilinn í ár?
Enski boltinn - Getur Man Utd barist um titilinn í ár? Aug 10, 2026 Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Í dag er komið að heyra hvað stuðningsmenn Manchester United hafa að segja. Grétar Óskarsson og Orri Freyr Rúnarsson mættu í Coke stúdíóið. Michael Carrick er að fara inn í sitt fyrsta heila
Útvarpsþátturinn - Stefán Páls og Siggi Raggi
Útvarpsþátturinn - Stefán Páls og Siggi Raggi Aug 8, 2026 Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í beinni á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltavikuna og það sem er framundan. Sérstakur gestur er Stefán Pálsson. Hitað er upp fyrir komandi leiki í Bestu deildinni, þá sérstaklega stórleik Fram og KR sem verður á mánudag. Einnig er rætt um Luton og St. Pauli. Í seinni hluta þáttarins er Sigurður Ragnar Eyjólfsson á línunni frá Færeyjum en hann hefur ve
Enski boltinn - Lífið eftir Guardiola
Enski boltinn - Lífið eftir Guardiola Aug 7, 2026 Það styttist í nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni og Fótbolti.net hitar vel upp að venju. Við ætlum að ræða við stuðningsmenn nokkurra af stærstu félögum Englands í hlaðvarpi núna á næstu dögum fyrir mót. Við byrjum á Manchester City sem endaði í öðru sæti á síðasta tímabili en City hefur gengið í gegnum miklar breytingar í vetur. Pep Guardiola umbreytti félaginu öllu en hann er núna horfinn
38 umferðir: Nýtt hlaðvarp Fótbolta.net um draumaliðsleik enska boltans
38 umferðir: Nýtt hlaðvarp Fótbolta.net um draumaliðsleik enska boltans Aug 6, 2026 38 umferðir er nýtt hlaðvarp fotbolta.net um Fantasy Premier League, draumaliðsleik enska boltans. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Fyrsti þáttur tímabilsins fór í loftið í dag. Fantasy Premier League nýtur gríðarlegra vinsælda á Íslandi þar sem yfir 25 þúsund Íslendingar spila leikinn. Albert og Sindri munu vera með þátt eftir allar 38 umferðir tímabilsins, greina frá þv
Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri
Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri Aug 5, 2026 Innkastið eftir 17. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn fara yfir leikina og alla helstu fréttamolana þar í kring. Deildin er að spilast á mjög áhugaverðan hátt. Eru KA og ÍBV á leiðinni niður? Það er nóg að gerast á skrifstofu Íslandsmeistara Víkings.
Útvarpsþátturinn - Slagsmál og Schram með skikkju
Útvarpsþátturinn - Slagsmál og Schram með skikkju Jul 31, 2026 Verslunarmannahelgin 2026. Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er áfram í sumarútgáfu, frumfluttur í hlaðvarpi á föstudegi. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta. Besta deildin, Evrópuleikirnir, Lengjudeildin og í lokin er farið yfir í erlenda fótboltann. Það var slegist í Keflavík, Valur komst áfram í Evrópu og Þróttur vann toppslag Lengjudeildarinnar.
Harkið - Great escape?
Harkið - Great escape? Jul 30, 2026 Harkið fór yfir stærstu atvikin í fimmtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. uppgjör 3.deild: 9:20 uppgjör 2.deild: 33:30 spá: 01:02 Gatorade bikarinn: 01:08 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson
Uppbótartíminn - Stór félög í bullandi vandræðum
Uppbótartíminn - Stór félög í bullandi vandræðum Jul 29, 2026 Þrettán umferðir eru búnar í Bestu deild kvenna og það er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört komu sér fyrir í hljóðveri og fóru yfir umferðina. Það eru stór félög í vandræðum í deildinni, það er svakalegur pakki að myndast í neðri hlutanum og á toppnum eru tvö lið jöfn. Hvað gerist áður en glugginn lokar. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Innkastið - Stefnir í trylltan dans í neðri hlutanum
Innkastið - Stefnir í trylltan dans í neðri hlutanum Jul 27, 2026 Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Páll eftir 16. umferð Bestu deildarinnar. Er komin einhver hræðsla í liðin? Akureyrarslagurinn olli vonbrigðum, Stjörnumenn hörmulegir gegn Skagamönnum og Aron Einar átti stutt innlit.
Harkið - Þrennu VÖK
Harkið - Þrennu VÖK Jul 27, 2026 Harkið fór yfir stærstu atvikin í fjórtándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 06:00 Uppgjör 2.deild: 36:55 Spá: 01:10 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Útvarpsþátturinn - Bikartöfrar, Evrópustig og Akureyrarslagur
Útvarpsþátturinn - Bikartöfrar, Evrópustig og Akureyrarslagur Jul 24, 2026 Þátturinn er aftur frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir allt það helsta. Hver er bestur í Bestu?, bikargleði Mosfellinga, öflug Evrópuvika, spennandi Akureyrarslagur framundan og er 64 liða HM kannski málið eftir allt saman?
Harkið - Draugavíti í Mosfellsbæ
Harkið - Draugavíti í Mosfellsbæ Jul 22, 2026

Recommended