Home Podcasts Biblían á mannamáli
Biblían á mannamáli

Biblían á mannamáli

Halldór Lár 54 Episodes Sep 11, 2026

Í þessu hlaðvarpi lesa þáttastjórnendur Nýja testamentið og ræða textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Tengd eru Gamla og Nýja testamentið og litið er á Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi. Þátturinn inniheldur viðtöl við alls konar fólk og góða gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.

Episodes

Dagur 57 - Fullkomið lögmál frelsisins
Dagur 57 - Fullkomið lögmál frelsisins Sep 11, 2026 1395 Í þættinum fáum við innsýn í Jakobsbréf 1:19–27. Við ræðum um að vera fljót til að hlusta og heyra, sein til að tala og sein til reiði; um mikilvægi þess að taka við orðinu og vera gerendur þess frekar en aðeins heyrendur. Við tengjum þetta við Jesú sem er lifandi orð og frelsandi lögmál. Þátturinn vekur athygli á valdi tungunnar, umhyggju fyrir fátækum og því hvernig sönn trú birtist í kærleiksrí
Dagur 56 - Engir flöktandi skuggar
Dagur 56 - Engir flöktandi skuggar Sep 8, 2026 1804 Jakobsbréfið, kafli 1: um að finna gleði í þrautum, þroska trúarinnar og hvernig þol og verk sýna sanna trú. Jakob talar til gyðingakristinna í dreifingunni um átök, misrétti og ábyrgð gagnvart fátækum. Þátturinn fjallar einnig um að biðja Guð um visku, að forðast tvílyndi, að trú án verka sé dauð, og að Guð sé Faðir ljósanna - stöðugur, góður og fullur af náð.
Dagur 55 - Hálfbróðir Jesú
Dagur 55 - Hálfbróðir Jesú Sep 4, 2026 2468 Í þættinum er Galatabréfinu lokið og við færum okkur yfir í Jakobsbréfið. Við skoðum sögulegt samhengi bréfsins: ráðstefnan í Jerúsalem, ágreiningur um lögmál Móse og boðskap Páls. Það var hálfgert kreppuástand í mörgum hinna kristnu safnaða og Jakob ávarpar stöðuna. Áherslan er á að trúin verði sýnileg í verki, að kristin kærleikssamfélög komi til hjálpar fátækum — allt er þetta sett í raunverule
Dagur 54 - Innan frá og út
Dagur 54 - Innan frá og út Sep 1, 2026 2161 Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti skoðum við hvernig Páll ber saman frelsið í Kristi og kröfur lögmálsins, og varar við að leita aftur til þvingun utan frá og inn.  Hann kallar okkur til að lifa í anda: ekki nota frelsið til að svala eigingirninni, heldur láta ávöxt andans birtast í kærleika, gleði, friði, þolgæði og góðvild - að lifa innan frá og út.
Dagur 53 - Guð er bara góður
Dagur 53 - Guð er bara góður Aug 28, 2026 2281 Páll varpar ljósi á frelsið í Kristi og hvernig sönn trú birtist í kærleika og innra lífi. Við tengjum textann við nútímann, ræðum innra jafnvægi, lækningu sára og hvernig náð Guðs umbreytir lífi okkar innan frá og út. Í lokin ræðum við aðeins um þá þætti sem við þurfum að "aflæra", að mati þáttastjórnanda. - Rjúfum manngerða mynd hefndar-guðsins. 
Dagur 52 - Tvær konur
Dagur 52 - Tvær konur Aug 25, 2026 1804 Velkomin í Biblíuna mannamáli. Í þessum þætti er enn farið yfir Galatabréfið, þar sem Páll ræðir andspænis umskurnarsinnum og leggur fram kjarnann: í Kristi er engin sundrung milli þjóðfélagshópa — við erum öll eitt. Þátturinn notar myndlíf Abrahams, Söru og Hagars til að skýra muninn á lögmáli og náð. Páll sýnir að réttlæting kemur vegna Krists, en ekki vegna ánauðar lögmálsins. Loks hvetur þáttu
Dagur 51 - Námsefnið í skóla lífsins
Dagur 51 - Námsefnið í skóla lífsins Aug 21, 2026 1779 Velkomin í Biblían á mannamáli. Þátturinn heldur áfram að skoða Galatabréfið þar sem Páll rökræðir gegn málflutningi umskurnarsinna og útskýrir muninn á fyrirheiti Guðs til Abrahams og lögmáli Móse. Rædd eru megintök trúarinnar sem réttlætingu, að trú Abrahams kom á undan lögmálinu, og hvernig sönn, lifandi trú birtist í kærleika og góðum verkum – ávöxtum frelsisins. Lífið er skóli og námsefnið er
Dagur 50 - Biblíuleg trú, Abraham, Páll og kærleikurinn
Dagur 50 - Biblíuleg trú, Abraham, Páll og kærleikurinn Aug 18, 2026 2536 Þá er það 50. þátturinn og hann er í lengra lagi. Í þættinum rýnum við í Galatabréfið betur, lögmálið, trúna og góðverkin; skoðum Abraham sem föður trúarinnar og hvernig lögmálið leiddi menn til Krists. Við útskýrum hvernig Kristur uppfyllir lögmálið, hvernig Heilagur Andi breytir hjörtum og hvernig sönn trú birtist í kærleika og verkum sem sameinar fólk í Kristi. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson
Dagur 49 - Kærleikurinn gnæfir
Dagur 49 - Kærleikurinn gnæfir Aug 14, 2026 2213 Velkomin í Biblían á mannamáli, þar sem við byrjum á þriðja kafla Galatabréfsins: bæn um að rótfestast í kærleika og skoðum rökfærslu Páls gagnvart umskurnarsinnunum.  Þátturinn dregur fram muninn á réttlætingu fyrir trú og lögmálsverkum; minnist Abrahams sem fyrirmynd trúar og undirstrikar að heilagur andi skapar innri breytingu sem ber sannan ávöxt.
Dagur 48 - Miklu meira en orðaskak
Dagur 48 - Miklu meira en orðaskak Aug 11, 2026 2211 Í þessum þætti er farið í 2.kafla Galatabréfsins. Páll lýsir för sinni til Jerúsalem með Barnabasi og Títusi; viðurkenningu postulanna á boðun hans og átökum varðandi umskurn og lögmál. Hann leggur áherslu á að fagnaðarerindið sé frá Kristi, réttlæting sé fyrir trú en ekki af verkum lögmálsins, og að frelsi í Kristi leiði til kærleiks og breyttrar lífsstefnu.  Átökin voru miklu meira en orðaskak;
Dagur 47 - Denni og aðlaðandi velvild
Dagur 47 - Denni og aðlaðandi velvild Aug 8, 2026 2056 Velkomin í Biblían á mannamáli. Við erum að fara af stað í Galatabréfið. Í þættinum er gerð grein fyrir uppruna og ástæðu bréfsins, höfuðatriðum Páls: umdeildri túlkun umskurnar og lögmáls Móse innan kirkjunnar, réttlætingu fyrir trú og frelsi í Kristi. Páll ver boðskapinn og leggur áherslu á að náð og trú skapi réttlæti; að verkin séu ávöxturinn en ekki orsökin.  Lífið í Kristi er innan frá og út
Dagur 46 - Það styttist í fyrsta bréfið
Dagur 46 - Það styttist í fyrsta bréfið Aug 4, 2026 1498 Til að byrja með rifjum við örstutt upp söguþráð Postulasögunnar fram að 16. kafla.. eða svo. Nú eru umskurnarsinnar á ferðalagi um Galatíu og Páll er ekki hress.  Athygli beinist að ágreiningi um umskurn og lögmál Móse meðal ný-trúaðra og það styttist í það að Páll skrifi fyrsta bréfið sem finnst eftir hann í Nýja testamentinu. Páll skrifar bréfið til að verja fagnaðarerindið sem byggt er á Jesú

Recommended