Home Podcasts Hugrænn styrkur
Hugrænn styrkur

Hugrænn styrkur

Hugrænn styrkur 11 Episodes Aug 25, 2026

Hugrænn styrkur er hlaðvarp sem fjallar um andlega hlið afreksíþrótta og afreksstarfs. Í hverjum þætti er rætt við afreks- og fagfólk sem deilir áhugaverðum sögum, fræðslu og opinni umræðu um hugrænan styrk. Markmiðið er að varpa ljósi á þá þætti sem skipta máli fyrir árangur og vellíðan.

Episodes

#10 - Arnar Pétursson
#10 - Arnar Pétursson Aug 25, 2026 4978 Í þessum þætti er rætt við Arnar Pétursson, einn sigursælasta hlaupara í sögu Íslands. Arnar er sjötíu og þrefaldur Íslandsmeistari, hefur sigrað Laugaveginn tvisvar, sett Íslandsmet í 100 kílómetra hlaupi og keppt fjórum sinnum á HM í hálfmaraþoni og einu sinni á HM í utanvegahlaupum. Arnar ræðir um mikilvægi sterks hugarfars og hvernig maður fær það mesta úr sjálfum sér í keppni. 
#9 - Agnar Smári Jónsson
#9 - Agnar Smári Jónsson Nov 6, 2024 4992 Agnar Smári Jónsson, handknattleiksmaður, var gestur í níunda þætti. Agnar Smári á farsælan feril á bakinu. Hann talar um baráttu sína við átröskun og afleiðingar hennar, þ.á.m. sjálfsvígshugsanir, og pressuna á að halda andliti og frammistöðu undir pressu. Áhugaverður þáttur um mikilvægt málefni. 
#8 - Arnór Sveinn Aðalsteinsson
#8 - Arnór Sveinn Aðalsteinsson Oct 13, 2024 5733 Arnór Sveinn Aðalsteinsson, knattspyrnumaður, heimspekingur og kennari, var gestur í áttunda þætti. Arnór Sveinn á langan feril í knattspyrnu. Hann segir frá sinni nálgun á hugarfari bæði innan knattspyrnunnar sem og í lífinu. Þá fer hann yfir hvernig hann fann ástríðuna aftur eftir að hafa misst hana um tíma. Arnór Sveinn útskýrir dyggðarsiðfræði og lýsir hvernig hann nýtir sér þau fræði til að v
#7 - Anton Sveinn McKee
#7 - Anton Sveinn McKee Sep 18, 2024 4924 Anton Sveinn McKee, afreksmaður í sundi og Ólympíufari, var gestur í sjöunda þætti. Anton fer yfir feril sinn og segir frá hinum ýmsu verkfærum sem hann nýtti til að ná sínum árangri. Anton fór inn á sín gildi sem íþróttamaður og bað okkur um að bæta hér í textann þriðja gildinu sem hann gleymdi að nefna í viðtalinu. Gildin hans eru þrjú; óttalaus, vera í núvitund og óbrjótanlegur. Hann kemur einn
#6 - Guðlaug Edda Hannesdóttir
#6 - Guðlaug Edda Hannesdóttir Sep 3, 2024 4446 Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþrautarkona og Ólympíufari, var gestur í þætti sex. Guðlaug Edda fer yfir Ólympíuleikana í París, mótlæti og meiðsli sem hún hefur gengur í gegnum og segir frá þróun hennar sem íþróttakonu. Þá fer hún yfir hvernig hún þjálfaði líkama og huga fyrir íþróttina og sitt daglega líf. 
#5 - Kristófer Acox
#5 - Kristófer Acox Aug 20, 2024 4989 Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta og leikmaður Vals, var gestur í þætti 5. Farið var yfir sögu hans og Kristófer gaf góð dæmi um hvernig hugurinn getur reynt að leika gegn manni innan sem utan vallar. Hann lýsir því hvernig hann vann sérstaklega í að þjálfa sig að mæta huganum. 
#4 - Hildur Antonsdóttir
#4 - Hildur Antonsdóttir Aug 13, 2024 4973 Hildur Antonsdóttir, landsliðs- og atvinnukona í knattspyrnu, var gestur í fjórða þætti. Farið var yfir meiðsli og mótlæti sem hafa haft áhrif á feril Hildar. Hún ræðir mikilvægi þess að þjálfa hugann líkt og líkamann. Hildur lýsir hvernig hún þjálfar hugann, meðal annars með sjónmyndaþjálfun, og ræðir áhrif sjálfstrausts á frammistöðu. 
#3 - Höskuldur Gunnlaugsson
#3 - Höskuldur Gunnlaugsson Aug 6, 2024 6566 Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks í knattspyrnu, var gestur í þriðja þætti Hugræns Styrks. Höskuldur segir frá erfiðleikum sem hann hefur gengið í gegnum, bæði á knattspyrnuferlinum sem og í lífinu. Hann segir frá tímanum eftir að eldri bróðir hans féll frá, þá hvernig hans upplifun var og hvernig hann vann með það áfall. 
#2 - Jóhannes Damian Patreksson (JóiPé)
#2 - Jóhannes Damian Patreksson (JóiPé) Jul 30, 2024 4092 Jóhannes Damian Patreksson (JóiPé), tónlistamaður og handknattleiksmaður, var gestur í öðrum þætti Hugræns Styrks. Jói sagði frá sínum kvíða og erfiðu hugsunum sem fylgja tónlistinni og handknattleiknum. Hann fór yfir sína upplifun af tónlistarheiminum og hver hans framtíðarplön eru á sínum tónlistarferli.
#1 - Sara Björk Gunnarsdóttir
#1 - Sara Björk Gunnarsdóttir Jul 24, 2024 6810 Sara Björk Gunnarsdóttir, atvinnukona í knattspyrnu, fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins, var gestur í fyrsta þætti Hugræns Styrks. Sara Björk fór yfir góðu og erfiðu stundirnar á ferlinum. Rætt var um andlegu hlið knattspyrnunnar. 
Kynningarþáttur
Kynningarþáttur Jul 24, 2024 552 Hugrænn styrkur er hlaðvarp sem fær íþrótta- og annað afreksfólk, fagfólk og fleiri til að ræða áhugaverðar sögur og andlegu hliðina. Hér er stutt kynning á því.

Recommended