Labbitúr er podcast þar sem Halli fer í labbitúr með skapandi einstaklingum. Í hverjum þætti ræðir hann við gesti um sköpunargáfu, feril þeirra og áhugamál. Podcastið er á íslensku og miðar að því að veita innblástur og innsýn í líf skapandi fólks.
Episodes

Labbitúr : Einar Már Guðmundsson
Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þeirra hugarheim.

Labbitúr : Hugleikur Dagsson
„Ef fólk bregst illa við brandara þá er það þér að kennaHugleikur Dagsson myndasöguhöfundur segir að það megi gera grín að öllu, en brandarinn verði alltaf að vera fyndinn. Ef áhorfendur móðgist sé sökin grínistans, ekki þeirra. Hugleikur er fyrsti gestur Haraldar Þorleifssonar í fjórðu seríu hlaðvarpsins Labbitúrs, þar sem Halli fer í göngutúr með skapandi fólki og ræðir lífið og listina.Komdu í

Labbitúr: Ragga Gísla
Ragga Gísla um feimnina, höggborinn, Grýlurnar og að setja mótlæti á færiband út í geiminnRagnhildur Gísladóttir hefur verið ein af skærustu stjörnum íslenskrar tónlistar í áratugi – bæði sem sólólistamaður og með hljómsveitum á borð við Brunaliðið, Grýlurnar og Stuðmenn. Hún hefur sungið þjóðhátíðarlög, samið tilraunakennd verk og lifað í takt við tónlistina nánast frá því hún man eftir sér. Í vi

Labbitúr: Ólafur Egilsson
Óli Egils um áfengi, Bubba, fjölskylduna og leikinn sem lögmálÓlafur Egill Egilsson hefur komið víða við – sem leikari, leikstjóri og handritshöfundur. Hann hefur leikið í klassískum kvikmyndum eins og Einkalífi, skrifað og leikstýrt á sviðum borgarinnar og nýlega snert hjörtu landsmanna með verkinu Níu líf Bubba, sem hann skrifaði og setti á svið í Þjóðleikhúsinu.Í viðtali við Halla fer hann yfir

Labbitúr: Friðgeir Einarsson
Friðgeir Einarsson hefur komið víða við á íslenskum menningarpalli síðustu ár – sem leikari, leikstjóri, rithöfundur og skaupshöfundur. Í nýjasta þætti Labbitúrs ræðir hann við Halla um það að vilja stjórna öllu… en líka sleppa takinu. Og að skrifa sér hlutverk sem eru svolítið gremjuleg. Eins og hann segir sjálfur: „Ég er kannski bara í svona góðri æfingu að nota einhverja svona karakterbresti og

Labbitúr: Bragi Valdimar
Bragi Valdimar Skúlason hefur verið hluti af lífi þjóðarinnar í meira en tvo áratugi. Með skop, söng, framkomu á skjá og smekkleysu að eigin sögn. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hann um götur borgarinnar með Halla þar sem þeir ræða allt frá þungarokki og jólalögum yfir í íslenskuna og gervigreind.Það sem byrjaði sem tæknitilraun um aldamótin hefur á undarlegan hátt þróast í eitt vinsælasta jólas

Labbitúr: Sigtryggur Baldursson
Sigtryggur Baldursson hefur lifað tónlistarlífi sem fæstir geta státað af. Hann var einn af stofnmeðlimum Sykurmolana, sveit sem setti Ísland á heimskortið þegar hún hitaði meðal annars upp fyrir U2 á sínum tíma. Í dag sinnir hann starfi hjá Tónlistarmiðstöðinni, leiðir verkefni sem styðja íslenska tónlist um allan heim og segir tónlistarbransann bæði fallegan og óútreiknanlegan.Halli gekk með Si

Labbitúr: Edda Björgvinsdóttir
Edda Björgvinsdóttir, ein ástsælasta og áhrifamesta leikkona landsins, tók þátt í nýjasta þætti hlaðvarpsins Labbitúr þar sem hún gekk um götur Reykjavíkur með Halla. Þar ræðir hún opinskátt um leiklistina, sorgina, ástina, húmorinn – og að orkan sé loksins komin aftur.„Ef hláturinn er ekki í lífinu þá á að ná í hann.“Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rith

Labbitúr: Ingvar E. Sigurðsson
Ingvar E. Sigurðsson, einn virtasti leikari Íslandssögunnar, rölti nýverið með Halla meðfram sjónum. Þar deilir hann dýrmætum viskuperlum, myndrænum líkingum og persónulegum sögum af löndum og farsælum ferli á sviði, í þáttum og kvikmyndum.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn í þei

Labbitúr: Ásgeir Trausti
Ásgeir Trausti er einn af ástsælustu tónlistarmönnum Íslands, bæði heima og erlendis. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hann með Halla um götur Reykjavíkur og spjallar opinskátt um ferilinn, fjölskylduna, streaming-kerfið og draumana sem enn lifa.Komdu í Labbitúr með Halla, þar sem skapandi fólk segir sína sögu. Allt frá rithöfundum til stórleikara og uppistandara deila reynslu sinni og gefa innsýn

Labbitúr: Saga Garðarsdóttir
Saga Garðarsdóttir er ein ástsælasta leikkona og uppistandari þjóðarinnar. Hún hefur náð einstökum árangri í sviðslistum og grínheiminum með sinn persónulega, hráa og oft hjartnæma stíl. Í nýjasta þætti Labbitúrs gengur hún með Halla um vesturbæinn og spjallar hispurslaust um fjölskyldulíf, frægð og sjálfstraustið sem fylgir sviðinu – og hvað það er erfitt að semja brandara.Komdu í Labbitúr með Ha

Labbitúr: Baltasar Kormákur
Baltasar Kormákur þarf vart að kynna. Hann er líklega þekktasti kvikmyndaleikstjóri Íslandssögunnar, með feril sem spannar íslenskar kvikmyndir, stórmyndir frá Hollywood og eigin kvikmyndaver – RVK Studios – sem hefur sett Ísland á heimskort kvikmyndagerðar. Í þessum þætti labbar hann með Halla um stúdíóið sem sem hann byggði og fer yfir ævi, áhrif og ólíka fasa í sínum stórbrotnu ferli.Komdu í La












