Home Podcasts Flugvarpið
Flugvarpið

Flugvarpið

Jóhannes Bjarni Guðmundsson 161 Episodes Jul 25, 2026

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

Episodes

#166 – Hátíðin Flug&fákar framundan á Egilsstaðaflugvelli – von á tugum flugvéla austur og margs konar græjur til sýnis – mikil tækifæri í að nýta flugvöllinn betur en gert er í dag – Þura Garðarsdóttir
#166 – Hátíðin Flug&fákar framundan á Egilsstaðaflugvelli – von á tugum flugvéla austur og margs konar græjur til sýnis – mikil tækifæri í að nýta flugvöllinn betur en gert er í dag – Þura Garðarsdóttir Jul 25, 2026 00:20:30 Flughátíðin Flug og fákar verður á Egilsstöðum 26. júlí og af því tilefni er rætt við Þuru Garðarsdóttur sem starfar í dag sem flugradíómaður á Egilsstaðaflugvelli og er aðalsprautan í skipulagningu hátíðarinnar. Hún segir að græjumenningin sé rík í Austfirðingum og það verði sannkölluð upplifun fyrir gesti að mæta á hátíðina á Egilsstaðaflugvelli þar sem verði fullt af alls konar græjum til sýnis
#165 - Forystumaður í grasrót flugsins – hannar og framleiðir Pixweather, nýjar veðurstöðvar sem virka einkar vel fyrir flugið og vill opnari umræðu um flugatvik- og slys til að flugmenn geti lært af þeim – Ágúst Guðmundsson
#165 - Forystumaður í grasrót flugsins – hannar og framleiðir Pixweather, nýjar veðurstöðvar sem virka einkar vel fyrir flugið og vill opnari umræðu um flugatvik- og slys til að flugmenn geti lært af þeim – Ágúst Guðmundsson Jul 21, 2026 01:28:05 Ágúst Guðmundsson er tölvunarfræðingur og flugmaður sem er vel þekktur í grasrót flugsins hér á landi. Hann situr í framkvæmdastjórn alþjóða Flugmálafélagsins (FAI) og hefur á undanförnum áratugum tekið virkan þátt í félagsstörfum hér heima og erlendis. Ágúst er þjálfunar- og tæknistjóri Fisfélags Reykjavíkur sem er fjölmennasti flugklúbbur á Íslandi í dag með um 400 félagsmenn. Félagsstarfið þar
#164 – Fyrstur á fisflugvél yfir Norðurpólinn – ferðasaga tékkneska fisflugmannsins – nú í fjórða skiptið á fisflugvél til Ísland og stefnir á að heimsækja alla flugvelli landsins - Jiří Pruša
#164 – Fyrstur á fisflugvél yfir Norðurpólinn – ferðasaga tékkneska fisflugmannsins – nú í fjórða skiptið á fisflugvél til Ísland og stefnir á að heimsækja alla flugvelli landsins - Jiří Pruša Jul 14, 2026 00:28:56 Tékkneski fisflugmaðurinn Jiří Pruša flaug yfir Norðurpólinn þann 4. júlí 2026 og var það í fyrsta sinn sem fisflugvél er flogið yfir pólinn og til baka. Jiří er mikill Íslandsvinur og hafði viðkomu hér á landi á leið sinni frá pólnum og heim til Tékklands. Hann segir hér frá ferðalaginu á fisflugvélinni frá Svalbarða til Norðurpólsins, en ferðin krafðist mikils undirbúnings og það tók langan tím
#163 – 80 ár frá því að Bretar afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll – völlurinn öruggari í sessi nú en áður – samantekt frá viðburði ISAVIA innanlandsflugvalla í tilefni tímamótanna.
#163 – 80 ár frá því að Bretar afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll – völlurinn öruggari í sessi nú en áður – samantekt frá viðburði ISAVIA innanlandsflugvalla í tilefni tímamótanna. Jul 12, 2026 00:38:19 Þann 6. Júlí 2026 voru liðin 80 ár frá því að Bretar afhentu íslenska ríkinu Reykjavíkurflugvöll með formlegum hætti og af því tilefni efndi ISAVIA innanlands til kaffisamsætis í flugstjórnarmiðstöðinni við Nauthólsveg þar sem tímamótanna var minnst. Í þessum þætti fer samantekt Flugvarpsins á þessum viðburði, viðtöl við nokkra þá sem tóku til máls og við heyrum áhugaverða og sögulega yfirverð Ste
#162 – Flughátíðin Allt sem flýgur á Hellu – einn af hápunktum flugsumarsins – margir viðburðir víða um land - Edda Ingibjörg Eggertsdóttir og Matthías Sveinbjörnsson
#162 – Flughátíðin Allt sem flýgur á Hellu – einn af hápunktum flugsumarsins – margir viðburðir víða um land - Edda Ingibjörg Eggertsdóttir og Matthías Sveinbjörnsson Jul 8, 2026 00:36:38 Árleg flughátíð Flugmálafélags Íslands verður helgina 10. til 12. júlí n.k. og af því tilefni er spjallað við þau Eddu Ingibjörgu Eggertsdóttur varaforseta og Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélagsins. Rætt er um dagskrá hátíðarinnar í ár og við hverju megi búast ásamt því að spjalla almennt um einkaflugið og stöðu mála í grasrót flugsins á Íslandi. Þau Edda Ingibjörg og Matthías segja lík
#161 – Þyrluflugið mikilvægur þáttur í ferðaþjónstunni - Sameining HeliAir og Reykjavik Helicopters lofar góðu – Friðgeir Guðjónsson
#161 – Þyrluflugið mikilvægur þáttur í ferðaþjónstunni - Sameining HeliAir og Reykjavik Helicopters lofar góðu – Friðgeir Guðjónsson Jul 3, 2026 00:37:29 Rætt er við Friðgeir Guðjónsson framkvæmdastjóra sameinaðs þyrlufélags HeliAir Iceland og Reykjavik Helicopters. Farið er yfir aðdragandann að sameiningu félaganna nú í vor og hvernig gengur hjá nýju félagi. Friðgeir segir þyrlubransann engu líkann, þar fái viðskiptavinir stúkusæti til að skoða íslenska náttúru og rík eftirspurn sé eftir því að komast á afskekkta staði þar sem þögnin ríkir. Hann s
#160 – „Flugið er lífsstíll“ – Stórveldið í Kópavogi með  risaþotur um allan heim - Valdir kaflar úr upptöku frá „Live podcast“ viðburði Air Atlanta í tilefni 40 ára afmælis félagsins.
#160 – „Flugið er lífsstíll“ – Stórveldið í Kópavogi með risaþotur um allan heim - Valdir kaflar úr upptöku frá „Live podcast“ viðburði Air Atlanta í tilefni 40 ára afmælis félagsins. Jun 15, 2026 02:09:33 Það var fjölmenni sem mætti á „live podcast“ viðburð í tilefni af 40 ára afmæli Air Atlanta á þessu ári sem haldinn var í Cafe Atlanta 28. maí 2026. Í þessum þætti er búið að klippa saman viðtalsefni frá kvöldinu en þennan dag var einmitt tilkynnt um viðskipti lykilstjórnenda Atlanta og Atlas flugfélagsins. Atlas kaupir 49% í Atlanta og núverandi stjórnendur Air Atlanta eignast 51%. Í ljósi þessa
#159 – „Þetta er náttúrulega bara della“ – einstakur ferill í atvinnuflugi í meira en hálfa öld – flaug fyrstu Twin Otter vélinni til Íslands en besta tímabilið var í Þýskalandi – Ómar Ólafsson
#159 – „Þetta er náttúrulega bara della“ – einstakur ferill í atvinnuflugi í meira en hálfa öld – flaug fyrstu Twin Otter vélinni til Íslands en besta tímabilið var í Þýskalandi – Ómar Ólafsson Jun 3, 2026 01:51:10 Ómar Ólafsson flugstjóri á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Hann fór í flugnám um miðjan sjöunda áratuginn og hefur sinnt ótrúlega fjölbreyttum störfum á langri starfsævi hjá fjölda flugfélaga. Má þar nefna Flugfélagið Þór í Keflavík, flugþjónustu Björns Pálssonar, Vængi, Arnarflug, Transwede ab í Stokkhólmi, Sudflug GmbH og Condor í Þýskalandi. Að loknum atvinnuflugmannsferli réð
#158 – ”Live podcast” - Viðburður Icelandair og Flugvarpsins – upptaka frá 7. maí 2026 – Linda Gunnarsdóttir, Snorri Tómasson og Guðbergur Ólafsson
#158 – ”Live podcast” - Viðburður Icelandair og Flugvarpsins – upptaka frá 7. maí 2026 – Linda Gunnarsdóttir, Snorri Tómasson og Guðbergur Ólafsson May 20, 2026 01:19:58 Upptaka frá ”live podcast” viðburði Icelandair sem haldinn var í samvinnu við Flugvarpið 7. maí 2026. Rætt er við þau Lindu Gunnarsdóttur director chief pilots office, Snorra Tómasson director network and scheduling og Guðberg Ólafsson manager operations control center. Spjallað er um starf þeirra hjá Icelandair og hvernig mismunandi deildir félagsins vinna í sameiningu við að halda tengimiðstöðin
#157 – Samantekt frá fundi Flugmálafélagsins um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
#157 – Samantekt frá fundi Flugmálafélagsins um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. May 16, 2026 00:43:30 Flugmálafélag Íslands stóð fyrir fundi um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitastjórnarkosninga. Fulltrúar allra framboða sem bjóða fram í höfuðborginni mættu, hlustuðu á erindi og greindu frá afstöðu sinni og síns flokks. Þessi þáttur er stutt samantekt frá þessum fundi og samanstendur af inngangsorðum frá Matthíasi Sveinsbjörnssyni forseta Flugmálafélagsins, á eftir honum fer Viðar J
#156 – Efast um heimildir heilbrigðiseftirlits borgarinnar til að setja hömlur á starfsemi flugvallarins - Rætt um skipulagsmál RKV og KEF og af hverju er Malta vinsæl? – Karl Alvarsson
#156 – Efast um heimildir heilbrigðiseftirlits borgarinnar til að setja hömlur á starfsemi flugvallarins - Rætt um skipulagsmál RKV og KEF og af hverju er Malta vinsæl? – Karl Alvarsson May 13, 2026 01:31:01 Karl Alvarsson er fyrrverandi flugumferðarstjóri og lögfræðingur og hefur unnið ýmis sérfræðistörf tengd fluginu. Hann er í dag formaður Fagráðs um flugmál sem er innviðaráðherra til ráðuneytis í málaflokknum og er þar að auki formaður skipulagsnefndar fyrir Keflavíkurflugvöll. Í þættinum er rætt við Karl um skipulagsmálin, þá einkum í Reykjavík. Karl gagnrýnir að alþjóðaflugvöllurinn í höfuðborgi
#155 – Flugfreyja, leikkona, leiðsögumaður og uppistandari með ólæknandi ferðabakteríu – „Samskipti við fólk eru mínar ær og kýr“ segir Helga Braga í spjalli um flugfreyjustarfið, leiklistina o.fl. – Helga Braga Jónsdóttir
#155 – Flugfreyja, leikkona, leiðsögumaður og uppistandari með ólæknandi ferðabakteríu – „Samskipti við fólk eru mínar ær og kýr“ segir Helga Braga í spjalli um flugfreyjustarfið, leiklistina o.fl. – Helga Braga Jónsdóttir May 4, 2026 01:13:50 Rætt er við Helgu Brögu Jónsdóttur flugfreyju og eina þekkturstu leikkonu landsins. Hún hefur verið í ferðabransanum í um 40 ár, vann um skeið hjá Ferðaskrifstofu Íslands og hóf flugfreyjuferil sinn hjá Iceland Express árið 2011, áður en hún fór til WOW air og síðar Icelandair þar sem hún starfar í dag. Helga Braga segir hér stuttlega frá ýmsu á sínum langa ferli og rifjar upp skemmtileg atvik og

Recommended