Home Podcasts Eftirvaktin
Eftirvaktin

Eftirvaktin

Birgir Olgeirsson 2 Episodes Jul 25, 2026

Eftirvaktin er hlaðvarp um íslenskt skemmti-, veitinga- og tónlistarlíf. Við ræðum við fólkið sem þekkir bransann innan frá; barþjóna, kokka, eigendur, tónlistarfólk, dyraverði, birgja og aðra sem hafa staðið vaktina. Sögur af góðum kvöldum, erfiðum kvöldum, eftirminnilegum gestum, rekstrinum, ruglinu og menningunni sem verður til eftir að vinnudegi flestra annarra lýkur.

Episodes

6. Bjórinn, bransinn og Tenerife – Níels Hafsteinsson
6. Bjórinn, bransinn og Tenerife – Níels Hafsteinsson Jul 25, 2026 01:11:45 Níels Hafsteinsson þekkir veitingabransann bæði á Íslandi og Tenerife. Hann starfaði á Hótel Sögu í 21 ár og kom síðar að rekstri meðal annars Rauða ljónsins, Steikhússins og Kjallarans. Á Tenerife tók síðan við nýr kafli í veitinga- og barrekstri.Í þættinum ber Níels saman rekstrarumhverfið á Íslandi og Tenerife og útskýrir hvers vegna bjór getur kostað gjörólíkt á þessum tveimur eyjum. Við ræðum
5. Saga Kaffibarsins –Litla rauða húsið sem mótaði Reykjavík
5. Saga Kaffibarsins –Litla rauða húsið sem mótaði Reykjavík Jul 18, 2026 00:57:54 Árið 1993 varð hugmynd Friðriks Weisshappel og Dýrleifar Ýrar Örlygsdóttur að Kaffibarnum að veruleika. Staðurinn varð fljótt að suðupotti listafólks, tónlistarfólks og næturhrafna og átti stóran þátt í að móta skemmtanalíf og ímynd miðborgar Reykjavíkur. Við förum yfir söguna, fólkið og stemninguna sem gerði litla rauða húsið að einu helsta kennileiti íslensks næturlífs. Gestur þáttarins er blaða
4. Vantar Reykjavík alvöru „dinner & a show“?
4. Vantar Reykjavík alvöru „dinner & a show“? Jul 12, 2026 00:45:22 Í fjórða þætti Eftirvaktarinnar setjast Baldur Búi, Birgir og Kristján Högni niður og ræða það helsta úr veitinga-, skemmti- og borgarlífinu.Þeir fara yfir Hjarta Hafnarfjarðar, velta fyrir sér hvar sé best að horfa á HM og ræða hvað vanti í miðbæ Reykjavíkur — þar á meðal hvort það sé kominn tími á alvöru „dinner & a show“.Þetta og ýmislegt fleira í fjórða þætti Eftirvaktarinnar.
3. Bak við barinn með Fannari Loga
3. Bak við barinn með Fannari Loga Jul 3, 2026 00:53:44 Í þriðja þætti Eftirvaktarinnar setjast Baldur Búi Heimisson og Kristján Högni Kristjánsson niður með Fannari Loga Jónssyni barþjóni, veitingastjóra, brand ambassador hjá Ölgerðini og ræða starfið, stemninguna og lífið í bransanum þegar kvöldið fer af stað.
2. Steinþór Helgi: Ég vildi bara opna bar
2. Steinþór Helgi: Ég vildi bara opna bar Jun 25, 2026 01:14:40 Steinþór Helgi Arnsteinsson hefur komið víða við í íslensku skemmti-, tónlistar- og fjölmiðlalífi. Hann hefur starfað í fjölmiðlum, verið umboðsmaður listamanna, haldið tónleika og sinnt viðburðastjórnun hjá CCP áður en hann hellti sér út í veitingarekstur.Í þessum þætti af Eftirvaktinni fer Steinþór yfir tilurð Röntgens, fyrstu árin í rekstri, höggið sem fylgdi kórónuveirufaraldrinum og hvernig s
1. George Leite: Frá Kalda bar til víngerðar með stórstjörnum
1. George Leite: Frá Kalda bar til víngerðar með stórstjörnum Jun 18, 2026 01:51:17 George Leite er fyrsti gestur Eftirvaktarinnar. Margir þekkja hann sem Gogga á Kalda, manninn á bak við einn þekktasta bar miðbæjarins. Í þættinum fer George yfir rekstur Kalda bars, lífið í bransanum og hvað þarf til að skapa stað þar sem fólk vill koma aftur og aftur. Hann segir líka frá nýju verkefni sínu með Róbert Wessman, þar sem hann hefur fært sig úr barrekstri yfir í vínframleiðslu og alþ

Recommended