Home Podcasts Lífæðar landsins
Lífæðar landsins

Lífæðar landsins

Samorka 18 Episodes Jun 25, 2026

Lífæðar landsins er hlaðvarp Samorku um orku- og veitumál. Það fjallar um mikilvægi orku og veitna fyrir íslenskt samfélag. Hlaðvarpið kynnir viðfangsefni tengd orkuframleiðslu, dreifingu og nýtingu. Markmiðið er að fræða hlustendur um þau mál sem snerta daglegt líf.

Episodes

Orkan í efnahagsljósi
Orkan í efnahagsljósi Jun 25, 2026 00:40:51 Orkumálin eru krufin í hagfræðilegu samhengi í þessum þætti Lífæða landsins. Jón Gunnarsson greinandi hjá Samorku og Friðjón Þórðarson framkvæmdastjóri Qair á Íslandi kafa ofan í þau mál með Hafdísi Helgu Helgadóttur, upplýsingafulltrúa Samorku.
Stækkun orkuvers í skugga jarðhræringa
Stækkun orkuvers í skugga jarðhræringa Dec 19, 2025 00:30:06 Þann 1. desember var sjöundi áfangi Svartsengis, orkuvers HS Orku, tekinn í notkun og jókst þar með framleiðslugeta þess um þriðjung. Það er í sjálfu sér fréttnæmt að við bætist uppsett afl hér á landi, en í þessu tilfelli er það ekki síður vegna þess að orkuverið var stækkað á tímum jarðhræringa, eldgosa og mikillar óvissu. Stóðst framkvæmdin þó allar verk- og tímaáætlanir.Rafn Magnús Jónsson yfi
Vestfirðir eru heitur reitur
Vestfirðir eru heitur reitur Nov 10, 2025 00:45:07 Á Vestfjörðum hefur verið notast við rafkyntar hitaveitur í stað hefðbundinna jarðhitaveitna, því lítið hefur fundist í gegnum tíðina af nægilega heitu vatni sem gæti nýst til húshitunar. En með tækniframförum og myndarlegu átakistjórnvalda í jarðhitaleit á svæðinu hefur vonin aldeilis kviknað um að þetta geti breyst, íbúm á svæðinu til mikilla hagsbóta. Elena Dís Víðisdóttir, verkfræðingur á orku
Þétt alþjóðlegt tengslanet margborgar sig
Þétt alþjóðlegt tengslanet margborgar sig Oct 10, 2025 00:19:06 Öflugur hópur frá Íslandi, fulltrúar orkufyrirtækja, háskóla, verkfræðistofa og fleiri, sóttu Evrópsku jarðhitaráðstefnuna í Zurich frá 6. til 9. október sem EGEC – European Geothermal Energy Council skipulagði. Þessi góða þátttaka er til marks um forystuhlutverk Íslands í nýtingu jarðhita og margvíslega alþjóðlega samvinnu um rannsóknir, nýjungar og annað sem eflir þessa grænu orkulind. Sveinn He
Hreint vatn er ekki heppni
Hreint vatn er ekki heppni Oct 2, 2025 00:30:42 Mikilvægt er að standa vörð um neysluvatnið okkar því það er okkar mikilvægasta auðlind. Í nútímasamfélagi verður það sífellt flóknara verkefni. Hrefna Hallgrímsdóttir, forstöðumanneskja vatnsmiðla hjá Veitum, ræðir við Lovísu Árnadóttur um vatnsveituna á höfuðborgarsvæðinu og minnir okkur rækilega á að hreint vatn er ekki heppni. Þátturinn kemur út 2. október, en þann dag árið 1909 var vatnsleiðs
Mikilvægast að styrkja bakbeinið í flutningskerfi raforku
Mikilvægast að styrkja bakbeinið í flutningskerfi raforku Aug 6, 2025 00:27:16 Orkuskipti og aukin eftirspurn eftir raforku kallar á mikla samvinnu í uppbyggingu raforkuinnviða. Kerfisáætlun Landnets hefur það hlutverk að áætla hvar og hvenær nýjar línur verða byggðar upp eða styrktar og þannig tryggja öruggan flutning raforku á milli landshluta. En uppbyggingin er umfangsmikil og mikilvægt að forgangsraða þeim verkefnum sem skila mestum ávinningi.Í þættinum fara þær Arngunn
Djúpborun: Tæknilegt ævintýri sem getur skipt sköpum
Djúpborun: Tæknilegt ævintýri sem getur skipt sköpum Jul 16, 2025 00:35:48 Að bora djúpt ofan í jarðlögin til að ná í orku er eitthvð sem unnið hefur verið að árum saman hér á landi. Með þessu væri hægt að ná í meiri orku á sömu jarðhitasvæðum og þannig nýta jarðhitaauðlindina enn betur. En það fylgja því tæknilegar áskoranir að ætla sér að bora svona djúpt ofan í jörðina. Í þættinum ræðir Sigurður H. Markússon, leiðtogi djúpnýtingar hjá Orkuveitunni, um djúpborunarverke
Vaðölduver verður til
Vaðölduver verður til Jul 4, 2025 00:25:06 Hingað til hafa jarðvarmi og vatnsafl verið meginuppsprettur raforkuframleiðslu á Íslandi. Nú er breyting fram undan, því Vaðölduver Landsvirkjunar – fyrsta vindorkuver landsins – er komið á framkvæmda- eða rekstrarstig.Að mörgu er að huga þegar hafist er handa við að byggja eitthvað alveg nýtt og í þættinum fáum við að heyra meira um ferlið, undirbúning og upphaf framkvæmda, auk þess sem hægt er
Viðnámsþróttur vatns og ríkidæmi Íslands
Viðnámsþróttur vatns og ríkidæmi Íslands Jun 23, 2025 00:28:17 Birna Guttormsdóttir, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir að ný stefna ESB um viðnámsþrótt vatns (European Water Resilient Strategy)  sé yfirgripsmikil enda við margvíslegar áskoranir að glíma.  „Stærsta markmiðið með stefnunni er að laga þessa brotnu hringrás vatnsins,“ segir í Birna í viðtali við Svein Helgason í Brussel, í hlaðvarpi Samorku. Birna Guttormsdóttir, sérfræ
Snjöll samvinna er sterkasta vopnið
Snjöll samvinna er sterkasta vopnið May 28, 2025 00:09:19 Netárásum á mikilvæga inniviði hefur fjölgað mikið sem kallar á öflugar varnir um tæknibúnað. Kristrún Lilja Júlíusdóttir, forstöðukona hjá Orkuveitunni, ræddi við Svein Helgason á Samorkuþingi 2025 um öryggismál og hvernig samtal, traust og samvinna getur skipt sköpum í að verja innviði á Íslandi. Sveinn og Kristrún Lilja ræða saman á Samorkuþingi 2025.
Öryggi og áfallaþol innviða
Öryggi og áfallaþol innviða May 26, 2025 00:16:06 Karl Steinar Valsson yfirlögreglustjónn hjá ríkislögreglustjóra var annar frummælenda í lokamálstofu Samorkuþings 2025 þar sem fjallað var um áfallaþol mikilvægra innviða hér á landi og orkuöryggi í ljósi þróunar í Evrópu. Í viðtali við Svein Helgason, verkefnastjóra erlends samtarfs hjá Samorku, leggur Karl Steinar m.a. áherslu á virkt samtal og samvinnu milli lögreglu og orku- og veitugeirans t
REMIT: Hvað er það?
REMIT: Hvað er það? Apr 11, 2025 00:30:37 REMIT er umfjöllunarefni í nýjasta hlaðvarpsþætti Samorku. Þar ræðir Katrín Helga, lögfræðingur Samorku, við þær Hönnu Björgu Konráðsdóttur og Ninnu Ýr Sigurðardóttur hjá Raforkueftirlitinu, um nýjar reglur sem munu taka gildi á næstunni um viðskipti á raforkumarkaði. Þær fjalla um tilurð reglnanna og uppruna þeirra í Evrópu og hvaða þýðingu þær hafa fyrir íslenskar aðstæður.  Frá upptöku þáttari

Recommended