Home Podcasts Móment með mömmu
Móment með mömmu

Móment með mömmu

Helga Kristín 22 Episodes May 25, 2025

Móment með mömmu er hlaðvarp mæðgna sem fara um víðan völl í heimi tískunnar og hönnunar, segja frá skemmtilegum mómentum sem þær hafa átt saman og taka viðtöl við aðrar skemmtilegar mæðgur.

Episodes

Eitt móment að lokum (sería 2)
Eitt móment að lokum (sería 2) May 25, 2025 3028 Kæru hlustendur, þá er komið að lokaþætti seríu tvö! Mikið hefur þetta verið skemmtilegt og takk fyrir hlustunina. Í þættinum förum við yfir ýmislegt eins og t.d. Tene fríið okkar dásamlega og hvernig var að ferðast með ungabarn. Svo er spurning hvort ilmandi ruslapokar verði ellilífeyrir Guðrúnar. Sjáumst síðar og takk fyrir okkur! 
Brúðkaupsundirbúningur
Brúðkaupsundirbúningur May 18, 2025 4742 Góðan daginn kæru hlustendur! Í þessum þætti fengum við dásamlegar mæðgur í heimsókn, þær Þórhildi og Heklu. Þannig er nefnilega mál með vexti að Hekla er að fara að gifta sig í sumar og því langaði okkur að skyggnast aðeins inn í undirbúninginn fyrir stóra daginn. Þetta var alveg ótrúlegt og margt sem kom okkur á óvart, t.d. "budget-ið" fyrir svona brúðkaup, á maður að eyða 5-7 milljónu
Tískuspjall
Tískuspjall May 11, 2025 3209 Við mæðgur gáfum okkur loksins tíma í smá tískuspjall, allt frá sumarlitum ársins yfir í fermingartísku. Svo vorum við að velta fyrir okkur hvort það væru ekki bara tvær árstíðir á Íslandi, haust og vetur. Hvað segið þið um það kæru hlustendur? Annars bara góða hlustun!
Móment með eiganda Scandi Home
Móment með eiganda Scandi Home May 4, 2025 3403 Ef ykkur finnst hönnunar- og framkvæmdaspjall skemmtilegt, og jafnvel áhuga á hvernig maður stofnar fyrirtæki, þá er þetta þátturinn fyrir ykkur! Góða hlustun kæru hlustendur.
Breytingaskeiðið
Breytingaskeiðið Apr 27, 2025 2710 Jæja, við ákváðum að vera aftur á persónulegu nótunum þennan sunnudaginn en Guðrún segir okkur frá sinni reynslu á breytingaskeiðinu. Góða hlustun! 
Átröskun: reynsla dóttur og áhrif á móður
Átröskun: reynsla dóttur og áhrif á móður Apr 20, 2025 3172 Í þessum þætti rifjum við mæðgur upp erfitt tímabil í okkar lífi, saga átröskunarsjúklings og reynsla móður. Góða hlustun!
Örþáttur: Hvernig á að pakka í ferðatösku
Örþáttur: Hvernig á að pakka í ferðatösku Apr 16, 2025 1615 Já kæru hlustendur, í þessum þætti fáið þið góð ráð um það hvernig á að pakka í ferðatöskur. Góða hlustun! 
Móment með Önnu Steinsen
Móment með Önnu Steinsen Apr 13, 2025 6121 Anna Steinsen, eigandi KVAN og svo margt fleira, mætti í spjall til okkar mæðgna til að ræða samskipti kynslóðanna. Skemmtilegt umræðuefni enda er þátturinn sá lengsti til þessa! Góða hlustun kæru hlustendur. 
Móment með Guðrúnu Sørtveit og Áslaugu
Móment með Guðrúnu Sørtveit og Áslaugu Apr 6, 2025 4837 Mæðgurnar Guðrún Sørtveit og Áslaug mættu í spjall til okkar. Við hefðum getað setið með þeim í marga klukkutíma því þær eru svo skemmtilegar og ljúfar. Góða hlustun og njótið sunnudagsins! 
Fæðingarsaga
Fæðingarsaga Mar 30, 2025 3171 Nú fórum við mæðgur á persónulegu nóturnar. Góða hlustun og eigið dásamlegan sunnudag!
Jólagjöfin sem kom fæðingu af stað
Jólagjöfin sem kom fæðingu af stað Mar 23, 2025 2875 Við byrjuðum í brekku, ein með hjartslátt í hnjánum og hin máttlaus fyrir neðan mitti, en eftir því sem leið á þáttinn urðum við hressari. Við fórum nefnilega um víðan völl í þessum þætti, úr skírn Ingólfs Arnarssonar yfir í jólagjöfina sem kom fæðingu af stað og þar svo yfir í klæðareglur Alþingis. Kæru hlustendur, góða hlustun! 
Eitt móment að lokum
Eitt móment að lokum Dec 22, 2024 3027 Tíminn flýgur! Allt í einu gáfum við mæðgur bara út 10 þætti, ásamt einum örþætti. Þetta er búið að vera heljarinnar ævintýri og hreint út sagt dásamlegt ferli. Við fengum frábæra viðmælendur til okkar og sköpuðum mörg ný móment saman sem við erum svo þakklátar fyrir. Næstu skref eru að njóta jólanna og taka á móti barni. Góða hlustun, heyrumst á nýju ári!

Recommended