Home Podcasts Stéttir Landsins
Stéttir Landsins

Stéttir Landsins

Stéttarfélagið 35 Episodes Mar 11, 2026

Stéttir Landsins er íslenskur podcast þáttur sem kafar inn í hin ýmsu störf Íslendinga. Í hverjum þætti fá hlustendur innsýn í raunveruleikann á bak við starfsheiti, allt frá leikurum til útfararstjóra. Þátturinn er í umsjón Hinriks Wöhler og Ólafs Jóhanns Þórbergs og kemur út á miðvikudögum. Samstarfsaðili þáttarins er Alfreð & Giggó.

Episodes

Sería 2 - Litið yfir farinn veg
Sería 2 - Litið yfir farinn veg Mar 11, 2026 1304 Í vetur höfum við fengið 16 starfsstéttir í heimsókn til okkar, allt frá sóknarprests til stjörnuspekings. Við félagarnir fengum okkur uppáhelling og fórum yfir seríuna, hringdum meðal annars í bókasafnsfræðing til að heyra hvað væri að frétta úr bókasöfnum landsins. Slóum einnig stuttlega á þráðinn til hlustenda til að fá hugmyndir fyrir næstu seríu.Við þökkum styrktar- og samstarfsaðilum kærlega
#33 - Réttarmeinafræðingur - Pétur Guðmann Guðmannsson
#33 - Réttarmeinafræðingur - Pétur Guðmann Guðmannsson Mar 4, 2026 3325 Réttarmeinafræðingurinn Pétur Guðmannsson hefur um árabil verið eini réttarlæknir landsins í fullu starfi. Í þætti vikunnar köfum við dýpra í eitt sérstæðasta starf landsins og spyrjum stóru spurningarinnar: hvernig er að vinna við það að kryfja lík?Spjallið leiðir okkur víða. Við ræðum meðal annars hvernig dánartími er metinn, hvað gerist í líkamanum þegar við tökum okkar hinsta andardrátt, nályk
#32 - Afbrotafræðingur - Margrét Valdimarsdóttir
#32 - Afbrotafræðingur - Margrét Valdimarsdóttir Feb 25, 2026 3835 Afbrotafræðingurinn Margrét Valdimarsdóttir sýndi okkur miskunn þegar við viðurkenndum nýlegar stöðumælasektir og við fórum yfir sviðið með henni í klukkustund eða svo.Við fórum um víðan völl: afglæpavæðingu fíkniefna, innflytjendamál og þróun glæpa á Íslandi og á Norðurlöndum, vopnaburð ungmenna, áhrif CSI á hennar feril, hvað einkennir svæði með háa glæpatíðni og að sjálfsögðu sjálft fagið og ná
#31 - Dýrahjúkrunarfræðingur - Eva Rún Freygerðard. Árnadóttir
#31 - Dýrahjúkrunarfræðingur - Eva Rún Freygerðard. Árnadóttir Feb 18, 2026 3531 Dýrahjúkrunarfræðingurinn Eva Rún er sannarlega öflugur talsmaður gæludýra landsmanna og talaði þeirra máli í þætti vikunnar.Við fórum víða um sviðið og ræddum meðal annars lífstílssjúkdóma dýra, umræðuhópa á samfélagsmiðlum, gullfiskaæðið í upphafi 21. aldar, samband dýrahjúkrunarfræðinga og dýra, hetjuleg augnablik á skurðstofunni, smitsjúkdóma tengda leðurblökum og hundaæði.Að sjálfsögðu fórum
#30 - Þingmaður - Sigmar Guðmundsson
#30 - Þingmaður - Sigmar Guðmundsson Feb 11, 2026 4107 Alþingismaðurinn alþýðlegi, Sigmar Guðmundsson, tók sér hlé frá þingstörfum og kíkti í uppáhelling til okkar.Fyrst og fremst brann á okkur sú spurning hvort þetta væri raun og veru skemmtilegt starf. Hversu gíraður þarftu að vera í kosningaframboði, hjá hverjum maður situr í mötuneyti Alþingis, sitja undir málþófi korter í sumarfrí og hvort það sé hægt að hafa skoðanir á öllu.Síðan var snert á alþ
#29 - Sjúkraliði - Elísa Finnsdóttir & Saga Ólafsdóttir
#29 - Sjúkraliði - Elísa Finnsdóttir & Saga Ólafsdóttir Feb 4, 2026 3046 Sjúkraliðarnir síkátu, Elísa Finnsdóttir og Saga Ólafsdóttir, gáfu okkur innsýn í starf og umhverfi sjúkraliða á Íslandi.Sjúkraliðar ganga með marga hatta innan heilbrigðiskerfisins og var komið víða við. Félagslíf og virkni eldri borgara var í brennidepli, opnar skurðaðgerðir, heldri menn með mótþróa, samskipti við skjólstæðinga, boccia, hvernig á að taka á því þegar einstaklingar eru á síðustu m
#28 - Fornleifafræðingur - Hildur Gestsdóttir
#28 - Fornleifafræðingur - Hildur Gestsdóttir Jan 28, 2026 3266 Fornleifafræðingurinn Hildur Gestsdóttir lagði múrskeiðina til hliðar og spjallaði við okkur. Það var farið aftur til fortíðar og meðal annars rætt um mannabeinarannsóknir en Hildur sérhæfir sig í þeirri áhugaverðu undirgrein fornleifafræðarinnar.Það var rætt m.a. um merka uppgrefti, tæki og tól fornleifafræðinga, umhverfi fornleifafræðinga á Íslandi, gömul sverð, myntasöfnun, fallega bæjarhóla, o
#27 - Íþróttafréttamaður - Jóhann Páll Ástvaldsson
#27 - Íþróttafréttamaður - Jóhann Páll Ástvaldsson Jan 21, 2026 3332 Íþróttafréttamaðurinn Jóhann Páll Ástvaldsson er iðulega staðsettur í Efstaleiti hjá Ríkisútvarpi allra landsmanna. Hann leit við hjá okkur í spjall og fór yfir landslagið í sportinu. Handboltinn tröllríður umræðunni í dag og við fórum aðeins yfir stöðu handboltans á alþjóðavísu og fyrirkomulag stórmóta. Auðvitað var ekki hægt að tala um íþróttir án þess að ræða uppgang krullunnar, en einnig var k
#26 - Flugumferðarstjóri - Diljá Mjöll Kolár Hreiðarsdóttir
#26 - Flugumferðarstjóri - Diljá Mjöll Kolár Hreiðarsdóttir Jan 14, 2026 3293 Flugumferðarstjórinn Diljá Mjöll steig úr flugturninum og leit við til okkar í stúdíóið. Við ræddum námið hjá Isavia og hið daglega starf flugumferðarstjóra, allt frá samskiptum, ákvarðanatöku og öllu sem starfinu fylgir. Einnig bar á góma flugvélalingóið, óvænt atvik í háloftunum, áhrif veðurfars, flugvöllinn á Gjögur, mikilvægi rýmisgreindar í starfi flugumferðarstjóra, listflug í steggjunum og
#25 - Fangavörður - Heiðar Smith
#25 - Fangavörður - Heiðar Smith Jan 7, 2026 3584 Fangavörðurinn Heiðar Smith fór yfir stöðuna í fangelsismálum á Íslandi, starf fangavarða og hið daglega líf innan veggja fangelsanna. Heiðar starfar í fangelsinu á Hólmsheiði og er jafnframt formaður Félags fangavarða.Í spjallinu var farið yfir þær fjölmörgu áskoranir sem fangelsisyfirvöld standa frammi fyrir í nútímasamfélagi. Að vanda var farið um víðan völl og einnig komið inn á stigskiptingu
#24 - Stjörnuspekingur - Guðrún Bergmann
#24 - Stjörnuspekingur - Guðrún Bergmann Dec 31, 2025 3103 Stjörnuspekingurinn Guðrún Bergmann er með marga hatta og einn þeirra er stjörnuspekin. Nýtt ár er í vændum og því tímabært að rýna í stjörnukortin og kanna hvað þau segja um það sem fram undan er. Við ræddum hvort stjörnuspeki geti nýst við að velja réttu lottótölurnar, taka skynsamlegar ákvarðanir á fasteignamarkaði og í lífi og leik.Guðrún dró upp persónuleg stjörnukort fyrir okkur félagana og
#23 - Jólasveinn - Bjúgnakrækir
#23 - Jólasveinn - Bjúgnakrækir Dec 21, 2025 1420 Jólasveinninn gjafmildi, Bjúgnakrækir, hélt að hann væri á leið á jólaball þegar hann sparkaði upp hurðinni á stúdíóinu. Við fengum hann þó til að setjast niður með okkur á þessum háannartíma.Það var rætt um þennan fjölskyldubransa og mikla eftirspurn í desember, kjarasamninga jólasveina, hvort Kertasníkir væri uppfullur af sjálfum sér, og þá gagnrýni sem Gluggagægir hefur sætt undanfarin ár. Bjúg

Recommended