Home Podcasts Stjörnuspekiskólinn
Stjörnuspekiskólinn

Stjörnuspekiskólinn

Gísli Hrafn Gunnarsson 38 Episodes Jun 23, 2026

Í þessu podcasti mun ég kenna stjörnuspeki. Stjörnuspekin er margslungið fag en mjög aðgengileg ef maður lærir hana í stigum og leggur grunninn vel. Ég ætla því að fara vel og vandlega yfir þá aðalþætti sem leggja grunninn að stjörnuspekinni og byggja ofan á það. Stjörnuspekin er túlkun hvers stjörnuspekings fyrir sig og því mun ég kenna stjörnuspekina eins og ég upplifi hana. Von mín með þessu podcasti er að hlustendur geti að lokum fylgt eftir stjörnuspeki útskýringum og skilið hvað sé verið að ræða.

Episodes

39. þáttur - Ás nautsins og sporðdrekans
39. þáttur - Ás nautsins og sporðdrekans Jun 23, 2026 00:47:33 Í þessum þætti fer ég ögn betur yfir hvernig þessar andstæður í stjörnumerkjunum virka og hvernig er hægt að nýta sér þær til þess að dýpka skilning sinn á merkjunum sem og öllu faginu. Ég tek ögn steingeitar og krabba ásinn fyrir en aðalefni þáttarins er nauts og sporðdreka ásinn.
38. þáttur -Kompás þátturinn og lífið í kjölfarið
38. þáttur -Kompás þátturinn og lífið í kjölfarið Jun 8, 2026 01:21:57 Ég fann köllun til að segja frá minni hlið eftir að hafa verið tekinn fyrir í Kompás í maí 2022, hérna á mínum vettvangi/podcasti fyrir ykkur hlustendum mínum, því þetta markaði gífurlega mína vegferð sem stjörnuspekingur en einnig í lífinu almennt. Ég tók þennan þátt upphaflega upp í apríl 2026 en eftir að Sölvi Tryggvason vildi fá okkur Elínu konuna mína til sín í podcastið sitt þá ákvað ég að b
37. þáttur - Norður og suður nóðan
37. þáttur - Norður og suður nóðan Nov 12, 2025 01:08:35 Hérna fer ég yfir norður og suður nóðurnar í gegnum öll stjörnumerkin.
36. þáttur - Orka meyjunnar
36. þáttur - Orka meyjunnar Oct 30, 2025 01:11:31 Í þessum þætti fer ég yfir orku meyjunnar.
35. þáttur - Fyrsta viðtalið
35. þáttur - Fyrsta viðtalið Oct 18, 2025 01:33:10 Fyrsta viðtal stjörnuspekiskólans leit dagsins ljós þar sem Aðalheiður Sigursveinsdóttir bauðst til að mæta og ræða upplifun sína af því að mæta í stólinn og spegla masculin og feminin partana innra með sér. Ég fékk upptökubúnað lánaðan sem ég kunni ekki almennilega á og því eru hljóðgæðin töluvert verri en ég hefði viljað en engu að sýður þá vona ég að þið munið hafa gaman af.
34. þáttur - Orka vatnsberans
34. þáttur - Orka vatnsberans Oct 5, 2025 01:07:38 Í þessum þætti tala ég ítarlega um orku vatnsberans en í upphafi þáttarins kynni ég hlustendur fyrir retreati sem verður núna helgina 23.-26. október á skálholtsbúðum. Ef áhugi er á að bóka hjá mér einkatíma þá getið þið fundið tíma hér:https://noona.is/gislihrafn
33. þáttur - Tvö stjörnukort
33. þáttur - Tvö stjörnukort Sep 29, 2025 01:12:59 Í þessum þætti tek ég fyrir uppgvötun mína á því að við séum ekki með einungis eitt stjörnukort heldur tvö, og að þessi tvö stjörnukort eru orkukort fyrir þá tvo einstaklinga sem eru innra með okkur. Í flestum tilvikum er samruni þessara beggja einstaklinga nánast algjör en í sumra tilvikum er þessi aðgreining mjög skýr. Í þættinum fjalla ég um þessa uppgvötun og leiðina að því að ná þessum tveimu
32. þáttur - Stjörnukort Íslands
32. þáttur - Stjörnukort Íslands May 16, 2025 00:53:02 Í þessum þætti fer ég yfir stjörnukort Íslands, 17. júní 1944 kl. 14:00 á Þingvöllum.Fyrir ykkur sem viljið sjá mynd af stjörnukortinu þá getið þið farið inná facebook síðu Stjörnuspekiskólans eða einfaldlega flett því upp.
31. þáttur - Orka ljónsins
31. þáttur - Orka ljónsins Jan 9, 2025 01:18:23 Í þessum þætti fer ég yfir orku ljónsins.
30. þáttur - Hugleiðingar: Að stýra eigin tíma
30. þáttur - Hugleiðingar: Að stýra eigin tíma Jan 3, 2025 00:51:45 Hér í þessum þætti tala ég um mína dýpstu þrá um að geta stjórnað mínum eigin tíma, um hvernig samfélagið okkar er uppbyggt hvað varðar kröfu einstaklinga um tíma sinn, eða lífið sitt, og hvernig hægt sé að virða þetta fyrir sér með augum vatnsbera orkunnar. Að velta því fyrir sér hvort þetta sé eðlilegt eða það sem við myndum nokkurn tíman kjósa yfir okkur ef við áttuðum okkur á því að við höfðum
29. þáttur - Allt sem á upphaf á sér stjörnukort
29. þáttur - Allt sem á upphaf á sér stjörnukort Oct 24, 2024 00:50:45 Í þessum þætti fjalla ég um mismunandi nýtingu stjörnukorta á öllum mögulegum sviðum lífsins. Að brúðkaupsdagurinn eigi sér stjörnukort, að ný atvinna eigi sér stjörnukort, að lönd eigi sér stjörnukort rétt eins og við einstaklingarnir.
28. þáttur - Sálar plánetan
28. þáttur - Sálar plánetan Oct 17, 2024 00:47:14 Í þessum þætti fer ég lauslega yfir upprunalegu tengingu mína við sálarorkuna og hvernig sálar plánetan barst mér hvernig ég túlka hana. Ég lýsi mikilvægi sálar plánetunnar hjá hverjum og einum og hvaða hlutverki hún gegnir í stjörnukorti hvers og eins.

Recommended