Home Podcasts Vörumerki
Vörumerki

Vörumerki

Margrét Björk Jónsdóttir 9 Episodes Sep 3, 2026

Hvernig byggir maður upp traust, trúverðugleika og sterkt vörumerki? Margrét Björk Jónsdóttir ræðir við frumkvöðla og sérfræðinga sem hafa unnið fyrir eða byggt upp sterk vörumerki - og deilir sinni eigin vegferð í leiðinni.

Episodes

S2E12 | Það sem virkaði fyrir 5 árum virkar ekki lengur
S2E12 | Það sem virkaði fyrir 5 árum virkar ekki lengur Sep 3, 2026 4271 Margrét og Arna setjast niður í lokaþætti seríu 2 og horfa bæði til baka og fram á við. Markaðsheimurinn hefur breyst hratt- og aðferðir sem virkuðu fyrir nokkrum árum geta í dag jafnvel haft öfug áhrif. Við ræðum hvað er að breytast í markaðsmálum, hvernig gervigreind hefur áhrif á vörumerki og hvers vegna raunverulegt, persónulegt efni verður sífellt verðmætara. Við förum líka yfir áhrifavalda o
S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“
S2E11 | Andrea Magnúsdóttir - „Ef ég get það, geri ég það“ Aug 20, 2026 5535 Fatahönnuðurinn, verslunareigandinn og hlaðvarpsstjórnandinn Andrea Magnúsdóttir, konan á bak við Andrea by Andrea, er gestur okkar í þessum þætti. Við förum yfir vegferðina frá fyrstu skrefum hennar í fatahönnun og eigin rekstri yfir í að byggja upp vörumerki sem er orðið nátengt hennar persónulega vörumerki. Við tölum um sköpunarkraftinn, frelsið sem hún þarf til að vinna, reksturinn á bak við f
S2E10 | Garðar & Lóa hjá  GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim
S2E10 | Garðar & Lóa hjá GoodGood – Frá eldhúsborði í 10.000 verslanir um allan heim Aug 13, 2026 4711 Vörurnar frá GoodGood eru fáanlegar í 31 landi og um 10.000 verslunum, þar á meðal hjá risum á borð við Walmart, Whole Foods, Kroger og Sprouts, og innan skamms bætist Target í hópinn. Færri vita þó kannski að þetta alþjóðlega vörumerki er alíslenskt. Garðar Stefánsson, forstjóri og meðstofnandi Good Good, og Lóa Fatou, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, eru gestir þáttarins og fara með okkur yfir ót
S2E9 | Sylvía Briem - Villti hesturinn sem landaði Red Bull á Íslandi
S2E9 | Sylvía Briem - Villti hesturinn sem landaði Red Bull á Íslandi Aug 6, 2026 5594 Athafnakonan Sylvía Briem Friðjónsdóttir er annar stofnenda Steindal ehf., sem flytur inn og markaðssetur vörumerki á borð við Töst, El Taco Truck og Red Bull á Íslandi. Sylvía hefur víðtæka reynslu af sölu, markaðssetningu og þjálfun. Hún starfaði um árabil hjá Dale Carnegie og hlaut þar alþjóðlega viðurkenningu sem besti þjálfari heims. Hún hélt auk þess úti geisivinsæla hlaðvarpinu Normið, ásam
S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá
S2E8 | Þóra Hrund- Að velja hugrekkið fram yfir eftirsjá Jul 23, 2026 5459 Þóra Hrund Guðbrandsdóttir er frumkvöðull, markþjálfi, markaðsfræðingur, gusumeistari og annar stofnenda Munum- vörumerkis sem hófst sem dagbók en hefur síðan þróast í mun stærri sýn og samfélag í kringum heilsu og vellíðan. Í þættinum ræðum við hvernig hugmyndin að Munum varð til og hvernig dagbókin seldist í allt að 12.000 eintökum á ári, þrátt fyrir vantrú margra á verkefninu í upphafi. Þóra se
S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki
S2E7 | Ásthildur stofnandi Mist & Co - Vandamálið sem varð að vörumerki Jul 16, 2026 4000 Þessi þáttur fangar kjarnann í því sem Vörumerki snýst um: að sjá vandamál, fá hugmynd að lausn...og framkvæma hana. Ásthildur Gunnlaugsdóttir var aðeins 26 ára þegar hún fékk hugmynd að lausn við vandamáli sem hún hafði sjálf glímt við í starfi sínu sem förðunarfræðingur. Úr þeirri hugmynd varð Mist & Co., íslenskt vörumerki sem gerir þrif á förðunarburstum einfaldari, fljótlegri og fallegri.
S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið
S2E6 | Andreas hjá Sahara - Fleiri fylgjendur eru ekki markmiðið Jul 9, 2026 5410 Andreas Aðalsteinsson hjá auglýsingastofunni Sahara veit sannarlega eitt og annað um markaðssetningu, ekki síst þegar kemur að samfélagsmiðlum. Hann fer yfir það sem virkar í dag: hvað grípur athygli, hvað skapar tengingu og hvað hjálpar vörumerkjum að vaxa. Umræðuefni þáttarins eru meðal annars: Er „branding vs. sala“ röng spurning? Af hverju segir fylgjendatala ekki alla söguna? Hvaða íslensku
S2E5 | Hjörtur (og Magnús) - Hvernig getur gervigreind einfaldað líf þitt?
S2E5 | Hjörtur (og Magnús) - Hvernig getur gervigreind einfaldað líf þitt? Jul 2, 2026 4933 Í þættinum fáum við Hjört Sigurðsson, gervigreindarsérfræðing og stofnanda Mynstra, til að útskýra AI á mannamáli. Tilgangurinn er að átta sig á hvernig venjulegt fólk, frumkvöðlar og fyrirtæki geta byrjað að nota gervigreind til að einfalda lífið og spara tíma.  Stjarna þáttarins er þó án efa Magnús, persónulegi gervigreindaraðstoðarmaðurinn hans Hjartar. Hann les og svarar tölvupóstum, fer yfir
S2E4 | Fyrstu skrefin að sterku vörumerki
S2E4 | Fyrstu skrefin að sterku vörumerki Jun 25, 2026 4437 Stútfullur þáttur af ráðum fyrir alla sem stefna á að stofna eigið fyrirtæki, hvort sem það er verslun, vörumerki, þjónusta, námskeið, vara..... eða bara hugmynd sem er farin að biðja um að verða að einhverju stærra. Arna og Margrét fara ítarlega yfir fyrstu skrefin við að byggja upp vörumerki, og það sem þarf að liggja fyrir áður en þú ferð í lógó, lén og Instagram. Við ræðum meðal annars: – hvað
S2E3 | Sara í Júník - Andlit vörumerkis í 15 ár
S2E3 | Sara í Júník - Andlit vörumerkis í 15 ár Jun 18, 2026 4575 Sara Lind Pálsdóttir var aðeins 21 árs þegar hún opnaði tískuvöruverslunina Júník. Þrátt fyrir enga reynslu úr viðskiptalífinu, en með brennandi áhuga á tísku og fatnaði, sá hún gat á markaðnum og ákvað að stökkva í djúpu laugina. 15 árum síðar er Júník ein þekktasta fataverslun landsins og Sara sjálf löngu orðin órjúfanlegur hluti af vörumerkinu. Í þættinum fer Sara yfir ótrúlega sögu Júník: fyrs
S2E2 | Davíð Örn Símonarson - Hinn fullkomni prófíll
S2E2 | Davíð Örn Símonarson - Hinn fullkomni prófíll Jun 11, 2026 6072 Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Smitten, er fyrsti viðmælandi okkar í seríu 2 af Vörumerki. Í þættinum ræðum við söguna á bak við skemmtilegasta dating-app í heimi, hvernig app verður að vörumerki, fjármögnun fyrir frumkvöðlaverkefni og bókina sem kveikti frumkvöðlaeldinn hjá Davíð. Davíð segir frá verkefnunum, tilraununum og lærdómunum á undan Smitten og af hverju það he
S2E1 |  Arna & Margrét – „Hver er ég þá?“
S2E1 | Arna & Margrét – „Hver er ég þá?“ Jun 11, 2026 3674 Í fyrsta þætti s02 ræðum við miklar breytingar í persónulega lífinu hjá Margréti frá síðustu seríu og sjálfsmyndarkrísu sem Arna hefur staðið frammi fyrir eftir að hún sagði skilið við auglýsingastofuna Sahara.  Á ólíkan hátt fundum við okkur báðar á þeim stað þar sem við þurftum að spyrja okkur: ….Hver er ég þá? Þá segir Arna frá hugmyndinni á bakvið H9 Studio og Margrét fer yfir stöðuna á vörume

Recommended