Home Podcasts Bíófíklar
Bíófíklar

Bíófíklar

Bíófíklar Hlaðvarp 128 Episodes Sep 14, 2026

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.

Episodes

Súrt og svarað: Kokkurinn eða mannætan?
Súrt og svarað: Kokkurinn eða mannætan? Sep 14, 2026 01:16:12 Hvort myndirðu frekar vilja að kokkurinn úr The Menu myndi elda handa þér máltíð eða Hannibal Lecter? Hvaða fræga bíómynd myndi svínvirka sem Broadway-söngleikur? Hvaða ‘nepo baby’ leikari er skemmtilegastur? Nú er Bjarni Gautur mættur aftur í stúdíó Bíófíkla en nú í fyrsta sinn að spreyta sig í gallsúra spurningarleiknum þar sem engin svör eru röng. Þetta er meira spurning um að vera réttara en a
Ghost World (2001)
Ghost World (2001) Sep 7, 2026 00:59:15 Þetta er sagan af þeim Enid og Rebeccu eftir að þær klára miðskóla. Þær eiga báðar í erfiðleikum með að tengjast fólki og eyða tíma sínum í að slæpast og að stríða þeim sem þeim finnast óspennandi. Þegar þær kynnast Seymour, sem er utangarðs og elskar að safna gömlum 78 snúninga hljómplötum, þá breytist líf Enid til frambúðar.Atli Sigurjónsson kvikmyndagerðarmaður er mættur í stúdóið til Bíófíkla
Grease (1978) & Grease 2 (1982)
Grease (1978) & Grease 2 (1982) Aug 31, 2026 01:16:29 Grease er svo sannarlega orðið. Að minnsta kosti akkúrat þessa stundina. Kvikmyndagerðarþjarkurinn Salvör Bergmann hikaði ekki við að rétta upp hönd þegar Bíófíklar sýndu því áhuga að kafa djúpt í báðar myndirnar sem fjalla um skólaklíkur, rómantík, bíladellu og alls konar fjölskylduvæna greddu. Fyrri myndin er hugsanlega ein vinsælasta og þekktasta söngva- og dansmynd fyrr sem síðar og er hvergi
Topp 5: John Waters
Topp 5: John Waters Aug 25, 2026 01:58:55 Bíófíklar elska svo sannarlega flinka, fjölhæfa og fjöruga furðufugla, hvort sem þeir eru fyrir framan eða aftan kvikmyndatökuvélarnar.Hinn elskulegi, groddaralegi, drullufyndni og einkennilegi John Waters á fullkomlega erindi í þennan hóp og nú gefst hlustanda kost á því að fræðast og skyggnast inn í hugarheim mannsins sem færði heiminum Pink Flamingos, Mondo Trasho, Polyester, Hairspray og Cry B
Deadpool (2016-2024)
Deadpool (2016-2024) Aug 22, 2026 01:06:19 Uppreisnargjarna andhetjan með lækningarmáttinn og sorakjaftinn hefur glatt pöpulinn í þrígang með geysivinsælum grínmyndum og ekki síður tilþrifunum frá Ryan Reynolds undir grímunni. Í Deadpool-myndunum er fjórði veggurinn reglulega mölvaður og endalaust gert grín að bæði Marvel-sarpinum og stærri formúlum ofurhetjumynda. Leið þessarar fígúru að hvíta tjaldinu er jafn skemmtileg og hún var löng o
The End of Oak Street (2026)
The End of Oak Street (2026) Aug 17, 2026 01:04:51 Ef það eru risaeðlur í myndinni, þá eru góðar líkur að myndlistarmaðurinn og Jurassic-sérfræðingurinn Arnar Steinn Pálsson vilji vera með í umræðunum. Þannig varð akkúrat tilurð þessarar þáttar, er hann stakk upp á því við Bíófíkla að fjalla um kvikmyndina þar sem þeir J.J. Abrams og David Robert Mitchell (It Follows ofl.) snúa saman bökum með vonir um að kæta og hrella bíógesti um allan heim.The
Mighty Morphin Power Rangers (1995)
Mighty Morphin Power Rangers (1995) Aug 9, 2026 01:07:45 Eitt vinsælasta ofurgengi í sögu (bæði japanskrar og bandarískrar) dægurmenningu flaug fyrst á hvíta tjaldið árið 1995 við miklar vinsældir markhóps síns. Hið svonefnda Power Rangers teymi, í öllum sínum útfærslum, formum, litum og myndum, hefur aldrei verið gífurlegur hluti af íslenskum kúltúr en víða um heim hefur þetta vörumerki haldið stjórnlausri göngu í áraraðir og séð sinn skerf af lægðum o
Spider-Man: Brand New Day (2026)
Spider-Man: Brand New Day (2026) Aug 3, 2026 01:47:32 Nú er Peter Parker orðinn niðurlútur, enda liðin fáein ár síðan allir hans nánustu gleymdu honum og þýðir þá ekkert annað fyrir hann að sökkva sér dýpra í hlutverk vingjarnlegu hverfishetjuna í New York. Spider-Man: Brand New Day er fjórða kvikmyndin með Tom Holland í burðarhlutverkinu og má fastlega reikna með að um sé að ræða eina af langstærstu myndum ársins.Bíófíklar tóku á móti fastagestinum
The Warriors (1979)
The Warriors (1979) Jul 29, 2026 01:27:26 Walter Hill vissi stundum vel hvað hann söng og þegar hann afhjúpaði The Warriors á sínum tima fylgdi útgáfunni heilmikið vesen. Visssulega hitti ræman alveg í mark hjá ungu fólki en var ítrekað gagnrýnd fyrir að vera áhrifagjörn og hreinlega bara stórhættuleg. Þetta var líka fyrsta Hollywood-myndin sem fjallaði um gengi án þess að það fjalla um slíkt sem rót alls hins versta. Hill tók mjög pönkað
The Rules of Attraction (2002)
The Rules of Attraction (2002) Jul 24, 2026 01:00:42 Hefur þú heyrt um vanmetnu ’systkinamynd’ hinnar geggjuðu American Psycho? Nei? Já? Hvílíka lukkulega tilviljunin, því nú skal ítarlega leggjast yfir kolsvörtu unglingamyndina sem (því miður) of fáir hafa séð. Þetta er The Rules of Attraction, sem fjallar meðal annars um ónytjunginn Sean (bróður Patricks…) Bateman og sveittu ævintýri nokkurra ólíkra háskólanema; ástir þeirra og örlög með smá sukki
The Odyssey (2026)
The Odyssey (2026) Jul 18, 2026 02:00:41 Stærsta, furðulegasta og sennilega drungalegasta kvikmyndin til þessa frá Íslandsvininum Christopher Nolan, sem enn eina ferðina lætur reyna á nýja vöðva og vinkla. Hér hefur ofurþjarkurinn snúið sér að Ódysseifskviðu Hómers þar sem öllu er allsvakalega tjaldað til og erfitt er að þverneita fyrir umfangið. Peningurinn sést svo sannarlega á skjánum, bæði í leikmyndum og leikaravali. Þrátt fyrir hið
The Mask (1994) & Son of the Mask (2005)
The Mask (1994) & Son of the Mask (2005) Jul 17, 2026 01:07:15 Hin brjálæðislega vinsæla (og að margra mati sígilda) The Mask var á meðal fyrstu myndanna til að koma gúmmíkarlinum Jim Carrey á kortið og skjóta honum hátt upp á stjörnuhimininn. Ekki nóg með það, heldur markaði þetta jafnframt fyrsta stóra hlutverkið fyrir Cameron Diaz, sem á þarna ógleymanlega innkomu. Sjálfstæða Carry-lausa framhald þeirrar myndar var… vægast sagt ekki jafn vinsæl eða umtöluð

Recommended