Home Podcasts Ormstungur
Ormstungur

Ormstungur

Ormstungur 104 episodes Latest May 25, 2026

Íslendingasögurnar! Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum. Tilgangur hlaðvarpsins er að styðja við lestur og upplifun á Íslendingasögunum.

Episodes

14. Gísla saga Súrssonar - Uppgjör Jun 12, 2026 00:34:47 Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Gíslinn gerður upp og við förum í sjálfskipaða útlegð frá Vestfjörðum.
13. Gísla saga Súrssonar - Einhamar Jun 12, 2026 00:23:37 Kaflar 34-38 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Lokaorustan harðnar. Gísli fer upp á Einhamar og fellur þaðan. Við föllum öll með honum og Ormstungur falla endanlega á prófinu.
12. Gísla saga Súrssonar - Fé er best eftir feigan Jun 12, 2026 00:17:38 Kaflar 31-33 í skólaútgáfuÞáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Njósnar-Helgi fær háðuglega útreið, en ekki verri en Eyjólfur grái þegar feðraveldið fær á snúðinn. Gísla er orðið svo illt í maganum að hann fær sturlaða drauma.
11. Gísla saga Súrssonar - Draumfarir slæmar Jun 12, 2026 00:22:26 Kaflar 28-30 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Þorkell fellur, ekki fyrir eigin hendi en þó fyrir eigin sverði. Gestur hinn spaki er farinn að toga í spotta. Magaverkir Gísla ágerast og valda honum slæmum draumförum. Hann er þó háll sem áll og ólíklegt að Ormstungur geti nokkurn tímann fangað hann.
10. Gísla saga Súrssonar - Hasar í Hergilsey Jun 12, 2026 00:25:39 Kaflar 25-27 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Njósnar-Helgi sýnir hvers hann er megnugur en Gísli er snjallari. Hann er nú orðinn frægur enda enginn hraustari eða hugrakkari. Ekki er hann þó gæfumaður.
9. Gísla saga Súrssonar - Útlaginn Jun 12, 2026 00:19:59 Kaflar 23-24 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Ormstungum hefur ekki tekist að fanga Gísla. Þá er kynntur til sögunnar 007 Íslands, útsendari Eyjólfs gráa, sjálfur Njónsar-Helgi. Gísli reynir enn að fá bróður sinn til að hjálpa sér en Þorkell hafði ekki lesið 152. kafla Njálu og skilur við bróður sinn beran að baki.
8. Gísla saga Súrssonar - Draumkonur Jun 12, 2026 00:22:17 Kaflar 20-22 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Ormstungur missa Gísla frá sér og hann hrekst að heiman og fer í leiðinni illa með þrælinn Þórð. Hann er dæmdur sekur og fer að finna fyrir ónotum í maganum.
7. Gísla saga Súrssonar - Skammt er þá milli illra verkra og stórra Jun 12, 2026 00:18:00 Kaflar 17-19 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Nefið belgir út nasirnar og hnusar í allar áttir. Það hefur voveiflegar afleiðingar síðar meir en fyrst er Nefinu komið fyrir kattarnef. Þess á milli játar Gísli á sig morð.
6. Gísla saga Súrssonar - Eigi kann ég helskó að binda ef þessir losna Jun 12, 2026 00:25:00 Kaflar 14-16 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Þorgrímur reimar skó... já það er merkilegt! Grásíða fær að væta sig blóði í annað sinn og það í höndum manns á nærbuxunum.
5. Gísla saga Súrssonar - Nú falla öll vötn til Dýrafjarðar Jun 12, 2026 00:31:36 Kaflar 11-13 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Allt vitlaust fyrir vestan! Vötn renna öll til Dýrafjarðar, reflar eru gefnir en ekki þegnir og að lokum er framið morð. Síðast en ekki síst mætir Nefið til leiks.
4. Gísla saga Súrssonar - Oft stendur illt af kvennahjali Jun 12, 2026 00:27:25 Kaflar 7-10 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Nú dregur til tíðinda. Bræður skipta búi og eftir stendur spurningin: Stendur oft illt af kvennahjali?
3. Gísla saga Súrssonar - Vestfirðir 952 Jun 12, 2026 00:23:55 Kaflar 4-6 í skólaútgáfu.Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026.Vestfirðir 952. Það er súld. Lönd eru keypt, fólk giftist og vinir skera sig á púls. Basic.

Recommended

Playing