Home Podcasts Bíóblaður
Bíóblaður

Bíóblaður

Hafsteinn Sæmundsson 379 Episodes Sep 10, 2026

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

Episodes

#338 Topp 10 með Snorra Rafni
#338 Topp 10 með Snorra Rafni Sep 10, 2026 02:22:46 Snorri Rafn Frímannsson er ungur leikari og tónlistarmaður. Snorri lék meðal annars eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Berdreymi árið 2022. Snorri kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars ástríðu Snorra á kvikmyndum, hversu mikill Daniel Day-Lewis aðdáandi Snorri er, hvort Stanley Kubrick sé ofmetinn leikstjóri, hversu vanmetin Joker 2
#337 Topp 10 með Coach Clean
#337 Topp 10 með Coach Clean Sep 2, 2026 02:47:15 Hreinn Orri Hreinsson, betur þekktur sem Coach Clean, er fjarþjálfari og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hann kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Snatch sé betri en Lock Stock, hversu mikill Will Smith aðdáandi Orri er, hvort það ætti að gera enn eina Ocean’s Eleven mynd, hvort Heat 2 verði góð, hver er lélegasta Tarantino myndin
#336 Bransaspjall með Christof Wehmeier
#336 Bransaspjall með Christof Wehmeier Aug 24, 2026 02:41:26 Christof Wehmeier er sérfræðingur í markaðs- og kynningarmálum og hefur yfir 30 ára reynslu af markaðssetningu kvikmynda. Christof hefur meðal annars séð um kvikmyndamarkaðssetningu hjá Stjörnubíó, Sambíóunum og Skífunni. Frá árunum 2007 til 2025 starfaði hann sem kynningarstjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands þar sem hann kynntist vel innlendri kvikmyndagerð. Christof hefur einnig leikið lítil hlut
#335 2025 með Ásgeiri Kolbeins
#335 2025 með Ásgeiri Kolbeins Jan 6, 2026 03:25:33 Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2025. Strákarnir leggja helst áherslu á stóru kvikmyndirnar sem komu út á árinu en þeir voru sammála um að árið sem slíkt hafi verið fullt af vonbrigðum. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Leonardo DiCaprio hafi staðið sig vel sem aumingi í One Battle After Another, hvort Avatar: Fire and Ash sé besta Avatar myndin, hvort Ba
#334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni
#334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni Dec 21, 2025 02:03:50 Það er komið að úrslitum í fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Kilo og Ísrael unnu Odd og Tóta í undanúrslitunum og Óli og Máni unnu Hugleik Dagsson og Ævar.Í þessum þætti mætast því sterkustu liðin í mótinu, Kilo og Ísrael á móti Óla og Mána. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, löggur og bófa, nörd
#333 Avatar: The Way of Water með Jóhanni Leplat
#333 Avatar: The Way of Water með Jóhanni Leplat Dec 10, 2025 01:49:00 Í tilefni þess að nú er stutt í að þriðja Avatar myndin verði frumsýnd, þá ákvað Hafsteinn að opna fyrir gamlan áskriftarþátt þar sem hann og Jóhann Leplat Ágústsson, stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn, ræddu Avatar: The Way of Water. Jóhann og Hafsteinn voru ekki sammála um gæði myndarinnar og úr myndaðist skemmtileg umræða. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort biðin hafi verið þ
#332 Best of the Best: Hugleikur og Ævar vs. Óli og Máni
#332 Best of the Best: Hugleikur og Ævar vs. Óli og Máni Dec 1, 2025 01:41:20 Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Í þessari seinni lotu keppa uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og handritshöfundurinn Jóhann Ævar Grímsson við Bíóblaðurs fastagestina og quiz meistarana Óla Bjarka og Mána Frey. Fyrir rúmu ári síðan keppti Hugleikur við strákana sem endaði með einungis tveggja stiga mun. Óli og Máni unnu þá keppni og nú er komið að stærsta rematch q
#331 Best of the Best: Oddur og Tóti vs. Kilo og Ísrael
#331 Best of the Best: Oddur og Tóti vs. Kilo og Ísrael Nov 25, 2025 01:40:51 Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs!Í þessari fyrstu lotu keppa hlaðvarpsstjórnendurnir Oddur Ævar og Tóti á móti Bíóblaðurs fastagestunum Kilo og Ísrael. Oddur og Tóti eru með kvikmyndahlaðvarpið Tveir á toppnum og eru því vel undirbúnir fyrir þetta mót. Kilo og Ísrael hafa áður keppt á móti hvor öðrum en í þetta skipti snúa þeir bökum saman gegn Oddi og Tóta.Í þættinum þurfa keppendu
#330 Nördaspjall með John Inga Matta
#330 Nördaspjall með John Inga Matta Nov 3, 2025 03:38:33 John Ingi Matta hefur verið í kvikmyndabransanum síðan 2008. Hann hefur gert ýmislegt í bransanum en hefur þó undanfarið einbeitt sér að flest öllu sem snertir sjálfar tökuvélarnar.John Ingi hefur meðal annars unnið við Game of Thrones, þrjár Star Wars myndir, tvær Transformers myndir, Sveppamyndirnar og The Marvels. Hafsteinn var spenntur fyrir því að fá John Inga í spjall þar sem John vinnur ekk
#329 Horror Quiz: Pétur vs. Jökull
#329 Horror Quiz: Pétur vs. Jökull Oct 27, 2025 01:25:33 Hryllingsmyndaaðdáendurnir Pétur Ragnhildarson og Jökull Jónsson eru fastagestir Bíóblaðurs en strákarnir eru vanir að mæta í þáttinn og ræða einhverja hryllingsmyndaseríu.Hafsteinn ákvað að breyta til í þetta skiptið og láta strákana keppa í spurningakeppni! Pétur og Jökull þurfa að svara ýmsum spurningum sem allar eiga það sameiginlegt að tengjast hryllingsmyndum. Spurningaliðirnir eru meðal ann
#328 Old School Quiz: Kilo vs. Ísrael
#328 Old School Quiz: Kilo vs. Ísrael Oct 13, 2025 01:30:06 Ísrael Daníel Hanssen og Kilo eru báðir fastagestir Bíóblaðurs og Hafsteini datt í hug að fá þá til sín til að keppa í spurningakeppni. Þema þáttarins eru 80’s og 90’s kvikmyndir og strákarnir keppa í nokkrum liðum. Í þættinum eru meðal annars Tom Cruise spurningar, strákarnir fá að sjá nokkur plaköt þar sem titilinn vantar og þurfa að fylla í eyðurnar, þeir fá að sjá einn ramma úr bíómynd og þurf
#327 Dahmer með Kiddu Svarfdal
#327 Dahmer með Kiddu Svarfdal Oct 8, 2025 02:08:10 Ritstjóri hun.is, Kidda Svarfdal, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti til að ræða hina umdeildu Netflix seríu, Monster: The Jeffrey Dahmer Story. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu erfið serían er, hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þetta, hvort serían fari eftir öllum staðreyndum, hversu frábær Evan Peters er sem Dahmer, hvort það ætti yfirhöfuð að vera að fjalla um svona men

Recommended