Home Podcasts Ráðhúsið
Ráðhúsið

Ráðhúsið

Samband íslenskra sveitarfélaga 24 Episodes Jul 3, 2026

Hlaðvarp um sveitarstjórnarmál.

Episodes

27. Húsnæði við hæfi
27. Húsnæði við hæfi Jul 3, 2026 1852 Í þessum þætti af Ráðhúsinu er gestur þáttarins Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambandsins og fjöllum við um nýbirta skýrslu sem ber nafnið Húsnæði við hæfi og er afrakstur starfshóps undir forystu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Hópurinn lagði til breytingar á reglugerð um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk og tillögur að aðgerðum sem hvoru tveggja hefur það markmið að uppfylla þörf fa
26. Gagnainnviðir: undirstaðan að gagnadrifnum ákvörunum.
26. Gagnainnviðir: undirstaðan að gagnadrifnum ákvörunum. Jun 19, 2026 2145 Í þessum þætti af Ráðhúsinu fjöllum við um uppbygging á gagnainnviðum Sambandsins, þ.e. upplýsingaveitu Sambandsins og gagnalón og hvernig gögn geta nýst sveitarfélögum og Sambandinu í starfi og hagsmunagæslu. Gestir þáttarins eru Sólveig Ástudóttir Daðadóttir, starfsmaður Sambandsins, og Óttar Guðmundsson frá Gangverk, sem er samstarfsaðili Sambandsins í þessari vinnu.
25. Orkuskipti sveitarfélaga: Grípum tækifærin! - Ottó Elíasson
25. Orkuskipti sveitarfélaga: Grípum tækifærin! - Ottó Elíasson Jun 4, 2026 1799 Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hann segir okkur frá stóru samstarfsverkefni um orkuskipti á Norðurlandi Eystra og Vestfjörðum (RECET). Við ræðum meðal annars hvernig orkuskipti líta út í samhengi sveitarfélaga, hver ávinningurinn er af orkuskiptum og hvaða afurðir úr RECET verkefninu geta nýst sveitarfélögum um allt land í að stíga sín næstu skref
24. Eftir kosningar: Þátttaka og næstu skref
24. Eftir kosningar: Þátttaka og næstu skref May 22, 2026 1561 Í Ráðhúsi vikunnar ræðum við kosningaþátttöku, hvernig persónukjör og nýliðun móta nýtt landslag og fáum nokkrar góðar ráðleggingar frá Bryndísi Gunnlaugsdóttur, lögfræðings hjá Sambandinu, um fyrstu skref eftir að nýr meirihluti hefur verið myndaður.
23. Kosningatips fyrir kjósendur og kjörstjórnir - Ástríður Jóhannesdóttir
23. Kosningatips fyrir kjósendur og kjörstjórnir - Ástríður Jóhannesdóttir May 12, 2026 1656 Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hún fer yfir helstu atriði komandi sveitarstjórnarkosninga. Við ræðum meðal annars framkvæmd kosninganna, hvað kjósendur þurfa að hafa í huga og hlutverk og ábyrgðir kjörstjórna.
22. Stafræn ráðstefna sveitarfélaga 2026 - Sólveig Ástudóttir Daðadóttir
22. Stafræn ráðstefna sveitarfélaga 2026 - Sólveig Ástudóttir Daðadóttir Mar 16, 2026 846 Stafræn ráðstefna sveitarfélaga árið 2026 verður haldin þann 25. mars n.k. í Grósku. Í þætti dagsins fáum við Sólveigu Ástudóttur Daðadóttur til að segja okkur frá því helsta sem verður á boðstólnum á ráðstefnunni. Skráningu lýkur föstudaginn 20. mars. https://www.samband.is/vidburdir/stafraen-radstefna 
21. Hvað þurfa framboð að hafa klárt fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí?
21. Hvað þurfa framboð að hafa klárt fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí? Mar 5, 2026 1724 Í þessum þætti fræðir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, okkur um framboðsfrest, meðmælalista og hlutverk kjörstjórna við yfirferð framboða. Við komum líka inn á listabókstaf, persónukjör og listakjör - og hvað gerist ef aðeins einn listi býður sig fram. 
20. Hvað felst í Kveikjum neistann—og hvaða lærdóm geta önnur sveitarfélög dregið af reynslu Vestmannaeyja?
20. Hvað felst í Kveikjum neistann—og hvaða lærdóm geta önnur sveitarfélög dregið af reynslu Vestmannaeyja? Feb 19, 2026 1902 Hvað felst í Kveikjum neistann—og hvaða lærdóm geta önnur sveitarfélög dregið af reynslu Vestmannaeyja? Í þessum þætti ræðir Bryndís við Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja, og í lokin deilir Íris hagnýtum ráðum til þeirra sem vilja kveikja svipaðan neista heima hjá sér. Hlustaðu núna—og deildu þættinum með einhverjum sem hefur áhuga á skóla- og sveitarstjórnarmálum.  
19. Brúum bilið - greining á stöðunni!
19. Brúum bilið - greining á stöðunni! Feb 3, 2026 1919 Í desember 2025 kom út skýrslan "Brúum umönnunarbilið - Skýrsla og tillögur aðgerðarhóps" en aðgerðarhópurinn var skipaður af forsætisráðuneytinu í framhaldi af undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Helga María Pálsdóttir sviðstjóri stjórnsýslusviðs hjá Sambandinu kom að vinnu aðgerðarhópsins og fjallar um helstu tillögur. 
18. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur: Árið 2025 gert upp
18. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur: Árið 2025 gert upp Jan 8, 2026 1843 Í þessum fyrsta þætti ársins er árið 2025 gert upp í hagfræðilegum skilningi út frá sjónarhorni sveitarfélaganna Meðal þess sem er rýnt í eru tölur um fólksfjölgun, skattekjur, innviðafjárfestingar, atvinnuleysi, veltu atvinnugreina og gjaldskrárhækkanir. 
17. Virk ungmennaráð eða formsatriði? - Ingimar Guðmundsson
17. Virk ungmennaráð eða formsatriði? - Ingimar Guðmundsson Dec 18, 2025 1489 Virk ungmennaráð eða formsatriði? Í þætti vikunnar er rætt við Ingimar Guðmundsson, verkefnastjóra hjá Sambandinu, um stöðu ungmennaráða og ráðstefnu ungmennaráða sveitarfélaga sem fór fram í byrjun desember.
16. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur: Hvers vegna er 34 milljarða halli á grunnskólarekstri?
16. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur: Hvers vegna er 34 milljarða halli á grunnskólarekstri? Dec 9, 2025 1062 30 ár eru frá því að sveitarfélögin tóku við rekstri grunnskólanna frá ríkinu og í þætti vikunnar ræðum við söguna, hvers vegna grunnskólar landsins eru reknir með stöðugum halla og hvaða lausnir standa til boða.

Recommended