Home Podcasts Lífið á meðan
Lífið á meðan

Lífið á meðan

Lífið á meðan 7 Episodes Jul 22, 2026

Lífið á meðan er hlaðvarp um aðstandendur krabbameinssjúklinga. Í þáttunum ræðir þáttastjórnandi við aðstandendur og fólk sem tengist þeim á einn eða annan hátt um lífið sem heldur áfram á meðan allt er í gangi. Samtölin fjalla um reynslu sem margir þekkja en fá sjaldan tækifæri til að tala um.

Episodes

11. Lóa Björk
11. Lóa Björk Jul 22, 2026 01:20:50 Þessi þáttur er aðeins öðruvísi en þeir sem hafa komið á undan.Að þessu sinni fæ ég til mín Lóu Björk Ólafsdóttur, ráðgjafa hjá Krabbameinsfélaginu, í eitt mjög mikilvægt samtal.Ég er kannski ekki alveg hlutlaus þegar kemur að Lóu. Hún hefur hjálpað okkur hjónum mikið og var hluti af Heruteyminu sem reyndist okkur ómetanlegur stuðningur á erfiðum tíma. Fyrir það verð ég henni og Heruteyminu ævinle
10. Helga og Björn
10. Helga og Björn Jul 8, 2026 01:34:40 Það eru sum samtöl sem breyta engu um það sem hefur gerst en geta breytt miklu fyrir þann sem situr í svipuðum sporum í dag. Í þessum þætti opna Helga og Björn hjörtu sín og segja af ótrúlegri hreinskilni frá því sem enginn undirbýr foreldra fyrir. Óttanum, óvissunni, geðshræringunni og því hvernig heimurinn getur hrunið á einu augnabliki þegar barnið þitt greinist með krabbamein.En það sem þau ge
9. Óðinn Svan
9. Óðinn Svan Jun 21, 2026 01:09:36 Í þessum þætti af Lífið á meðan sest Óðinn niður með mér.Flest þekkjum við hann úr fjölmiðlum og opinberri umræðu. En í þessum þætti kynntist ég allt öðrum Óðni.Þriggja barna föður, eiginmanni og aðstandanda.Manni sem hefur þurft að halda áfram að mæta í öll sín hlutverk á sama tíma og fjölskyldan hans hefur staðið frammi fyrir einni stærstu áskorun lífs síns.Við ræðum um það hvernig alvarleg veik
8. Laufey Hanna
8. Laufey Hanna Jun 7, 2026 00:47:10 Í þessum þætti fæ ég til mín Laufeyju sem segir frá því þegar systir hennar greindist með krabbamein á sama tíma og þær voru báðar óléttar.Við ræðum óttann, samviskubitið, óvissuna og hvernig lífið getur breyst á einu augnabliki. Um það að standa við hlið einhvers sem maður elskar og reyna að fóta sig í aðstæðum sem enginn er undirbúinn fyrir.Þetta er ekki bara saga um veikindi.Heldur saga um syst
7. Rakel Þorsteins
7. Rakel Þorsteins May 20, 2026 01:34:24 Í nýjasta þættinum af Lífið á meðan fæ ég til mín hana Rakel Þorsteins.Rakel segir svo fallega og einlægt frá pabba sínum sem lést eftir erfiða baráttu við krabbamein.Hún deilir með okkur hvernig það var að vera dóttir manns sem greindist ekki bara einu sinni heldur þrisvar og lifa með þeirri óvissu, ótta og sorg sem fylgir því að elska einhvern svona mikið.Það sem snerti mig mest var að heyra han
6. Guðrún Alma
6. Guðrún Alma May 7, 2026 01:27:51 Í nýjasta þættinum af Lífið af meðan sest ég niður með henni Guðrúnu.Það er eitthvað við sögu Guðrúnar sem ég tengi mjög sterkt við. Guðrún er mögnuð þriggja barna móðir, maki, í ábyrgðarfullu starfiog svo bætist það óumbeðið hlutverk við… að vera aðstandandi.Í þættinum ræðum við um hvernig hlutverkin snúast stundum við 👀óvissuna, ábyrgðina og lífið á meðan allt er í gangi.En það sem situr svo ste
5. Margrét Rósa
5. Margrét Rósa Apr 24, 2026 00:50:59 Í þessum þætti af Lífið á meðan fæ ég til mín Margréti.Hún er ung kona sem er að ganga í gegnum það að mamma hennar er með ólæknandi krabbamein. Við tölum um það sem gerist þegar lífið breytist svona skyndilega – óvissuna, tilfinningarnar og það að þurfa samt einhvern veginn að halda áfram. Þetta er samtal um að vera aðstandandi, um sorg á meðan…en líka um tengsl, ást og von.
4. Guðlaug Ingibjörg
4. Guðlaug Ingibjörg Apr 14, 2026 01:25:56 Í nýjasta þætti af Lífið á meðan fæ ég til mín Guðlaugu.Á einni nóttu breyttist allt. Barn verður langveikt, foreldrar fara út af vinnumarkaði og lífið sem þau þekktu hverfur.Í þættinum ræðum við hvernig það er að standa í svona aðstæðum, þegar þú veist ekkert hvert lífið stefnir, þegar þú þarft að verða sérfræðingur barnsins þíns og halda áfram á sama tíma.Guðlaug hefur ótrúlega nálgun á lífið, m
3. Tómas Þór
3. Tómas Þór Apr 2, 2026 01:14:12 Í þættinum sest ég niður með Tómasi Þór, og ræði við hann um að vera aðstandandi þegar lífið breytist á einu augnabliki.Þau voru stödd í ferli hjá Livio að reyna að eignast barn þegar maki hans greindist með mergæxli. Framtíðin breyttist og með henni allt sem þau höfðu séð fyrir sér. Í þættinum förum við yfir hvað er ómetanlegt að hafa góðan stuðning, hvernig tengslin geta bæði styrkst og stundum
2. Arna Katrín
2. Arna Katrín Mar 26, 2026 01:08:08 Í þættinum sest ég niður með Örnu Katrínu, sem segir frá sinni reynslu af því að verða aðstandandi þegar maki hennar greindist með krabbamein.Við ræðum augnablikið þegar lífið breytist, tilfinningarnar sem fylgja og það sem gerist á bak við tjöldin.Hvernig hlutverkin í sambandinu geta breyst og hvernig það er að halda lífinu gangandi þegar allt er í óvissu.Við tölum líka um hvernig það er þegar lí
1. kynningarþáttur
1. kynningarþáttur Mar 20, 2026 00:06:34 Í fyrsta þætti af „Lífið á meðan“ deili ég stuttlega minni eigin sögu sem aðstandandi krabbameinssjúklings síðustu tvö ár. Ég tala um hvernig lífið breyttist við greininguna, hvernig daglegt líf heldur áfram þrátt fyrir óvissuna.Þessi þáttur er fyrir þig sem ert að lifa lífinu „á meðan“ eitthvað stórt og oft sársaukafullt er í gangi og fyrir þá sem vilja skilja aðstandendur betur.

Recommended