
Lestin
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Episodes

Sheeran í klípu, heimsendi frestað, Fuglar (og menn), No Rest for the Wicked
Stormur hefur geysað í kring um Ed Sheeran á dögunum eftir að rapparanum Macklemore var sparkað út úr tónleikaferðalagi þar sem hann átti að hita upp fyrir Sheeran. Netheimar hafa logað síðan og nýjar vendingar virðast verða í málinu á hverjum degi. Við förum yfir atburðarásina og veltum fyrir okkur tjáningarfrelsinu, völdum milljarðamæringa og hvort tími hinna ópólitísku poppara sé liðinn.
Róman

Draumaríngl og kuðungar
Draumaríngl er samsýning 14 listamanna sem haldin er á Gljúfrasteini og stendur til 31. október 2026. Sýningin er leikur milli listforma og listaverka, samtal við Halldór og Auði; samtal við skáldverkin, lífið og listaverkin sem þau hjónin sköpuðu.
Auður Lóa Guðnadóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir eru sýningarstjórar en sú síðarnefnda fór með Lestina í leiðsögn.
Í byrjun mánaðarins kom út 8 la

NAZA, töframáttur matarins, verslunin 114, Rómönsk-amerísk kvikmyndahátíð
Menning fólks frá rómönsku Ameríku er að verða stöðugt meira áberandi í Reykjavík, það eru æ fleiri veitingastaðir sem bjóða upp á mat frá álfunni, tónlistarviðburðir og danspartý. Og nú í dag hefst í fjórða sinn rómansk Ameríska kvikmyndahátíðin í Bíó Paradís. Það eru fimm myndir sýndar frá fimm löndum en allar eftir konur. Við fáum til okkar skipuleggjendur hátíðarinnar, þau Hugo Llanes og Tani

Hið slor-móderníska ástand og menningarhátíðin Ulga/Fró
Nú á dögum fer fram pólsk menningar- og listahátíð víða um borgina. Hátíðin ber nafnið Ulga, eða fró, og er markmiðið að skapa rými fyrir fólk til að koma saman, nærast og njóta menningar á afslappaðan hátt. Á meðal þess sem er um að vera er hljóðganga um Sorpu og matarlist með einföldi i-i. Lestin settist niður með skipuleggjendum hátíðarinnar, þeim Ignacy Rybka, Katarzynu Strojnowsku og Weroniku

Hangið í Bókinni, Hvar er draumurinn?, Misþyrming og Nergal, Um tímann og vatnið
Margir þekkja hina ævintýralegu fornbókaverslun Bókina, sem stendur á horni Klapparstígs og Hverfisgötu. Lestin heimsótti ræddi við eigandann, Ara Gísla Bragason, um breytingar sem hafa nýlega orðið á búðinni, bókakostinn og ferðamennina sem sækja mikið í búðina. Þá ræddum við einnig við gesti og gangandi og tókum púlsinn á stemningunni í þessari miðbæjarperlu.
Þessa dagana er hægt að sjá tvær ný

Ímyndunarafl Bergs Ebba
Öld ímyndunaraflsins nefnist ný bók eftir Berg Ebba Benediktsson, rithöfund og fyrirlesara - sem vill ekki láta kalla sig framtíðarfræðing. Í bókinni skorar hann samtímann á hólm og veltir fyrir sér stöðu mennskunnar á tímum gervigreindar.
Fríða og Kristján spjalla við Berg um gervigreind, bækur, líkamleika og kapítalisma.

Samfélag ólæsra, Anthony Bourdain og Tilboð mánaðarins
Það er alþjóðlegur dagur læsis. Læsi er í þó nokkurri útrýmingarhættu en bara rétt rúmlega helmingur íslenskra unglinga býr yfir grunnhæfni í lesskilningi. Við veltum fyrir okkur hvers konar samfélag tekur við þegar lestur og bækur hætta að skipta máli, það sem á ensku er kallað post-literate samfélag.
Anna María Tómasdóttir og Gígja Hilmarsdóttir hafa skapað öðruvísi leikhúsupplifun í Tjarnarbíó

Stórt svart núll, óhlýðin gervigreind og Furious
Í þætti dagsins fjöllum við um leikræna tilburði stjórnmálafólks. Á Íslandi hafa pólitíkusar framið alls kyns gjörninga til að vekja athygli á þeim málum sem þeir vilja koma á dagskrá. Við förum yfir nokkra slíka og veltum fyrir okkur hvað stóra núll Kristrúnar Frostadóttur merkir í því samhengi.
Eftir alvarlegt atvik í júlí óttast nú margir að mannkynið geti ekki haft stjórn á gervigreindinni s

Sigvaldi, strumpar og Mos Def
Hið Íslenska bókmenntafélag gaf nýlega út glæsilegt yfirlitsrit yfir verk Sigvalda Thordarson arkitekt. Albína Thordarson, arkitekt og dóttir Sigvalda, skrifaði bókina eftir að hafa safnað upplýsingum um verk föður síns um árabil en Pétur H. Ármannsson ritar aðfararorð og kafla um mótunarár arkitektsins. Líkt og flestar bækur um arkítektúr inniheldur hún mikinn fjölda teikninga og ljósmynda en þar

Maríuklefi Eiríks Guðmunds og geðleikhús
Á morgun kemur út skáldsagan Maríuklefinn, eftir Eirík Guðmundsonn rithöfund og útvarpsmann, en fullfrágengið handrit af bókinni fannst í fórum Eiríks eftir að hann lést árið 2022. Þetta er bréfaskáldsaga þar sem bréfritari í Lissabon skrifar til ástarinnar sinar Maríu, hann skrifar um allt sem sækir á hugann, leiftur úr bókmenntum og mannkynssögunni og það sem verður á vegi ferðalangs á framandi

Morðingi Tupac sakfelldur, Um tímann og vatnið, ljóstillífunarlist
Rétt tæpum 30 árum eftir að rappstjarnan Tupac Shakur var myrtur í Las Vegas hefur sá sem fyrirskipaði morðið loksins verið sakfelldur.
Heimildarmyndin Um tímann og vatnið var frumsýnd hér á landi fyrir helgi. Myndin byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar frá árinu 2019. Myndin notast við gríðarlegt magn af heimamyndböndum frá Andra, mömmu hans og afa, til að velta fyrir sér framgangi tím

Dauði sjónvarpsfréttanna, leitað að stæði
Við kynnum nýjan liðsmann í Lestinni. Fríða Þorkelsdóttir mun leysa Lóu af næstu vikurnar.
Hún kíkti upp í Kópavog um helgina, en þar er mikið um að vera þessa dagana - Hamraborg Festival fer fram í sjötta sinn. Listakonan Silfrún Una Guðlaugsdóttir segir frá gjörningi sínum sem fram fór í bílakjallara í Hamraborginni en þar bauð hún upp á bíladans, tónlist, öskrandi hljólreiðafólk og labradora

Sænskir lögfræðihundar
Viðfangsefni þáttarins er nýtt sænskt sjónvarpsdrama sem nefnist Hundarnir. Þættirnir sem hafa fengið glimrandi dóma og gríðarlegt áhorf í heimalandinu fjalla um starfsfólk á lögmannsstofunni Matsson og Moradi í Stokkhólmi sem sérhæfa sig í að verja harðsvíraða glæpamenn. Þarna er tekist á við gengjamenningu í svíþjóð þar sem ungmenni og börn eru notuð til voðaverka, þarna er tekist á við metoo,

Hver er fullvalda?
Myndu Íslendingar afsala sér fullveldinu með því að ganga í Evrópusambandið, eða er innganga einmitt besta leiðin til að tryggja raunverulegt fullveldi Íslands til framtíðar. Um þetta hafa verið skrifaðar ótal skoðanagreinar undanfarnar vikur í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Í þætti dagsins ætlum við að reyna að skilja betur þetta hugtak, hvað það þýðir

Grínáhrif Radíusbræðra
Um helgina bárust þær fréttir að leikarinn og grínistinn Steinn Ármann Magnússon væri látinn, 62 ára að aldri. Steinn Ármann er þekktur fyrir hlutverk í fjölmörgum sjónvarpsþáttum, kvikmyndum, leikritum og talsetningum - Kötturinn Keli í Stundinni Okkar, Sveppi í Veggfóðri, Siggi Sæti í Latabæ en hann vakti fyrst athygli sem annar hluti gríntvíeykisins Radíusbræður sem komu eins og stormsveipur

Beef, Hver var sumarsmellurinn 2026?
Í Lestinni í dag ætlum við að leita að sumasmellinum 2026. Var eitthvað eitt lag sem fangaði sumarið í ár eða er hinn brotakenndi samtími búinn að gera út af við stóra sameiginlega sumarsmellinn? Við fáum hóp tónlistargrúskara til að segja hvaða lag einkenndi sumarið hjá þeim og hvað gerir lag að góðu sumarlagi.
Bellamix69, Óli Dóri, Margrét Erla Maack, Dóra Júlía, Una Schram og Einar Karl í Óláta

Næsta stríð Ásgeirs
Það er 20. ágúst og í dag fagnar Lestin fimmtudagsafmæli góðvinar þáttarins, ljóðskáldsins og menningargagnrýnandans Ásgeirs H. Ingólfsson.
Ásgeir lést eftir skammvinn veikindi í byrjun síðasta árs og hefur skilið eftir sig skarð í íslensku menningarlífi. Hann fjallaði reglulega um kvikmyndir og bækur í hina ýmsu prent- og vefmiðla, ekki síst á bloggsíðunni sinni Menningarsmygl. Hér á Rás 1 var

Ódysseifskviða og Christopher Nolan
Í Lestinni í dag miðvikudaginn 19. Ágúst ætlum við að hrekjast um miðjarðarhafið undir lok bronsaldar með sjálfum Ódysseifi. The Odyssey eftir bandaríska leikstjórann Christopher Nolan hefur notið mikilla vinsælda í kvikmyndahúsum í sumar.
Myndin byggir á einu höfuðriti vestrænna bókmennta, Ódysseifskviðu sem eins og Illíónskviða er eignuð gríska skáldinu Hómeri - og hún var líklega rituð fyrir

Sagan af Jason Arday
Jason Arday átti sér ævintýralega sögu, sonur Ganískra innflytjenda í Bretlandi sem var á einhverfurófi, lærði ekki að tala fyrr en 11 ára og lesa 18 ára - en var orðinn yngsti svarti prófessor Cambridge háskóla fyrir fertugt.
Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið fjallað ítarlega og stundum heiftúðlega í breskum fjölmiðlum um Arday en hann var sakaður um ritstuld og að hafa ýkt eða logið ýmsu

House of the Dragon, Afsakið á meðan ég æli, Lestin 10 ára
Sjónvarp verður áberandi í þessum fyrsta Lestarþætti haustsins. Þriðja sería af House of the Dragon kom út í sumar og við ætlum að rýna í hana með sjónvarpsgagnrýnanda Lestarinnar Brynju Hjámsdóttur - þættir í sagnaheimi Krúnuleikanna eftir George RR Martin.
Ljósmyndarinn og heimildarmyndargerðarmaðurinn Spessi kíkir í heimsókn og segir frá heimildarmyndinni Afsakið á meðan ég æli sem hann gerð

Bókaklúbbur: Hyperpolitics, og hægrisveifla í Rómönsku Ameríku.
Nú um helgina kusu íbúar Perú sér nýjan forseta, Keiko Fujimori, og um viku áður kusu Kólumbíumenn sér nýjan forseta, Abelardo de la Espriella, en þetta eru fimmta og þriðja fjölmennasta ríki rómönsku ameríku. Báðir sigurvegararnir eru hægrisinnaðir og bætast þar með við nokkra íhaldsbylgju í stjórnmálum suður og mið-ameríku, þar sem jafnvel róttækir hægrimenn hafa náð völdum í nokkrum löndum og þ

Ósamhverfur fótbolti, Boards of Canada, Primavera Sound og sumarmenning
Lestin er á leiðinni í sumarfrí eftir vikuna og Lóa og Kristján nefna það menningarefni sem hefur setið á hakanum á tímabilinu.
Halldór Armand Ásgeirsson fjallar um HM 2026 og að þessu sinni fjallar hann um assymetrískan fótbolta eins og hans birtist í sigri Paragvæ á Þýskalandi og assymetrískan hernað eins og hann birtist í stríði Bandaríkjanna og Írans.
Við fáum svo tónlistarpistil um Primave

Popplagakrufning: Gera sitt besta með Hasar
Í þætti dagsins er aðeins eitt á dagskrá: við kryfjum, undir handleiðslu Friðriks, lagið Gera sitt besta með reykvísku rokkhljómsveitinni Hasar. Hvað hljóma þeir eins og? Hvað fjallar textinn um? Eiga þeir heima fyrir ofan læk eða neðan?

Mat Dryhurst, Midillinn.com, fótboltabullur og útlendingar
Fyrir tveimur vikum tókum við upp Lestina í lifandi flutningi með áhorfendum í Iðnó. Þá sögðum við frá sýningunni Strange Rules sem var opnuð í Feneyjum í maí, sýning sem tekst á við nýja tækni og kynnir til leiks hugtakið reglulist, protcol-art. Í þætti dagsins ræðum við nánar við einn sýningarstjóranna, breska listamanninn Mat Dryhurst. Við ræðum um regluverk heims, tvíhöfða orma og höfundarétt

Lionel Messi, Our hero Balthazar og bókaklúbbur: Lausaletur
Vikulegur bókaklúbbur Lestarinnar í Júní tekur fyrir nýjustu skáldsögu Þórdísar Helgadóttur, Lausaletur, sem kom út fyrir síðustu jól. Aðalpersónurnar er starfsfólk á prentsafni í ónefndri borg í miðjum heimsfaraldri, þar sem dularfull heilabilun herjar á fólk. Sölvi Halldórsson, skáld, er gestur bókaklúbbsins.
Senn lýkur riðlakeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu karla sem fer fram í Bandarí

Aðildarviðræður við ESB, fyrsti billjarðamæringurinn
Við ætlum að kíkja í Kringluna og Smáralind og heyra hvað mun ráða ákvörðun fólks hvernig það mun kjósa í ágúst, hvort ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hvað ræður skoðunum fólks á Evrópusambandinu og hvaða mál skipta mestu máli þegar fólk sest niður og ákveður hvort það segir já eða nei.
Eiríkur Örn Norðdahl veltir fyrir sér hvað það þýðir að mannkynið hafi eignast sinn f

Brostin loforð tækninnar, leikritið Leikritið
Inga Steinunn Henningsdóttir setti sér það markmið að setja upp leikrit fyrir þrítugt. En um hvað á leikritið að vera? Í sýningunni Leikritið, sem er sett upp í sumarleikhúsinu Afturámóti í Háskólabíói, fáum við svarið við því. Á hverri sýningu fær Inga Steinunn nýjan mótleikara, sem veit ekkert um hvað sýningin er og er að sjá línurnar sínar í fyrsta skipti.
Einar Már Jónsson, pistlahöfundur Le

Kier kveður, Half Man
Kier Starmer varð í morgun sjötti forsætisráðherra Bretlands á tíu árum til að segja af sér. Við hringjum til London og ræðum við Sigrúnu Davíðsdóttur um feril þessa lánlausa leiðtoga Verkamannaflokksins.
Hinn skoski Richard Gadd sló í gegn með óvæntu eltihrellisþáttunum Baby Reindeer fyrir tveimur árum. Nú er hann mættur aftur með nýja þætti sem hann skrifar og leikur aðalhlutverkið í, Half Man.

Midnight Sun fær krufningu, sagnfræðingurinn Marc Bloch
Lagið Midnight Sun með Zöru Larsson kom út í fyrra á samnefndri plötu, en nýtur enn þvílíkra vinsælda þetta sumarið. Við kryfjum þetta lag sænsku poppprinsessunar undir dyggri leiðsögn Friðriks Margrétar Guðmundssonar.
Svo fáum við pistil sendan með flugi frá París, Einar Már Jónsson, rithöfundur, segir frá merkum manni. Marc Bloch var afkastamikill fræðimaður en á miðjum aldri tók hann svo þátt

Fullkomnun Berlínarhipstersins, Bloomsday, rauð spjöld á HM
Parið Tom og Anna hefur flust til Berlínar á öðrum áratug 21. aldarinnar til að lifa hinni fullkomnu tilveru. Þau starfa í skapandi greinum, búa innan um fallega hluti í fallegri íbúð, og deila myndum af lífi sínu á samfélagsmiðlum. Þau eru aðalpersónur skáldsögunnar Le perfezioni eftir ítalska rithöfundurinn Vincenzo Latronico sem kom út árið 2022. Íslensk þýðing á bókinni kemur út hjá bókaforlag

Lestin í lifandi flutningi
Föstudaginn 12. júní var Lestin tekin upp í Klúbbi Listahátíðar í Iðnó. Við veltum fyrir okkur stöðu listarinnar í samtímanum - á tímum snjallsíma, samfélagsmiðla, gervigreindar, á tímum þegar lýðræðið á undir högg að sækja, á stríðstímum, verðbólgutímum, á tímum Trump og tækni-kapítalisma.
Getur listin sagt eitthvað nýtt og áhugavert um þessa tíma, getur hún haft einhver alvöru áhrif, þegar hú

Umræðuþáttur um Feneyjatvíæringinn
Þátturinn Mollhljómar og mótmæli sem áður var á dagskrá á Hvítasunnudag. Kristján Guðjónsson stýrir umræðum um alþjóðlegu myndlistarhátíðina í Feneyjum sem fer nú fram í sextugasta og fyrsta sinn. Mótmæli hafa sett sinn svip á Feneyjatvíæringinn í ár en yfirskrift hátíðarinnar er In Minor Keys, Í mollhljómum.
Myndlistarfólkið Hallgerður Hallgrímsdóttir, Hrafnkell Tumi Georgsson og Sigrún Inga Hró

Ástin í tímum tinder #10, og Brottfararstöð
Í gær samþykkti Alþingi frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Brottvísunarstöðinni er ætlað að hýsa útlendinga sem vísa á úr landi. Henni verður fundið húsnæði á Suðurnesjum en lögin taka gildi 1. Desember. Frumvarpið hefur verið gagnrýnt, umfram allt fyrir það að börn skuli vistuð í lokuðu úrræði. En í þinginu var nokkur samhljómur, 42 þingmenn kusu með en restin sat hjá. Eiríkur Örn Norðd

SORI-manifestó, Njálssaga fyrir börn
Árið 1967 kom út eitthvað alræmdasta og öfgafullasta rit feministahreyfingarinnar, SCUM manifesto (eða SORI á íslensku) eftir Valerie Solanas. Hún leggur til að öllum karlmönnum verði eytt af jörðinni, en glasafrjóvganir og sjálfvirknivæðing muni viðhalda samfélagi kvenna. Við ræðum bókina við Kristínu Svövu Tómadóttur, sagnfræðing og þýðanda bókarinnar, í bókaklúbbi Lestarinnar.
Við ræðum svo um

Hasar og Nýjasta tíska, list og velferð í Klúbbnum
Örn Gauti er forsprakki og söngvari rokkhljómsveitarinnar HASAR, sem eru nýbúnir að senda frá sér plötu, Nýjasta tíska. Við ræðum pönk, Kalla á þakinu og skeitera á göngutúr um hverfið með Erni Gauta.
Listir og velferð er nýtt nám á meistarastigi í Listaháskóla Íslands og nokkrir nemendur í því námi munu standa fyrir dagskrá á morgun í Klúbb Listahátíðar, sem fer fram undir yfirskriftinni Samféla

Backrooms, Obession og popplagakrufning
Við kryfjum slagarann Gleymmérei með Bríeti og KK, lag sem að má svo sannarlega glamra á gítarinn í útilegu í Básum í sumar. Er þetta vel samið kántrý eða kúrekablæti Bríetar komið úr böndunum? Friðrik Margrétar Guðmundsson, tónskáld og tónlistarmaður, ræðir þetta við umsjónarmenn Lestarinnar.
Um þessar mundir njóta tvær hryllingsmyndir eftir unga menn mikilla vinsælda í kvikmyndahúsum. Báðir fen

Björk í Listasafni Íslands, pistill um liti
Björk Guðmundsdóttir og James Merry opnuðu um helgina sýningu í Listasafni Íslands, Echolalia og Ummyndlingar. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og stendur yfir fram á haust. Við fáum Björk í heimsókn og ræðum við hana um samstarfið við James, sköpunarferlið, umhverfisbaráttu og gervigreind.
Svo fáum við heyra nýtt lag með Skröttum, Stressed, og pistil frá Eiríki Erni Norðdahl, sem er a

Kæri fáviti, Patti Smith og Einar Már Jónsson
Bókaklúbbur Lestarinnar verður í gangi í júní. Fyrsta bókin sem við tökum fyrir er Kæri Fáviti eftir franska rithöfundinn Virginie Despentes. Bókin gerist á internetinu í tölvupóstssamskiptum, og fjallar um Metoo, fíkn, stéttaklifur og ótal margt fleira.
Rokkgoðsögnin Patti Smith kom fram í Eldborg í Hörpu um helgina og brunaði svo beint á Akureyri til að spila í Hofi. Við ræðum við Andreu Jónsdó

Í beinni á Listahátíð
Sameiginleg bein útsending Víðsjárog Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík.
Viðmælendur í þættinum eru
Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Hrefna Lind Lárusdóttir, Eygló Höskuldsdóttur, Kjartan Hólm, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Jóhannes Zimsen, Viðar Eggertsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Chlo

Lestin á Feneyjatvíæringnum
Við röltum um Feneyjatvíæringinn, eina elstu og vinsælustu myndlistarhátíð heims, sem hófst í byrjun maí. Við kíkjum inn í nokkra þjóðarskála, ræðum við listafólk og hátíðargesti, og veltum fyrir okkur pólitísku hitamálunum.

Ritlistarfnykur og grískir harmleikir
Lestin í dag er að mestu lögð undir umræður um stíl í bókmenntum, svokallaðan ritlistarstíl sem sumir telja sig geta greint í bókum fólks sem er menntað í skapandi skrifum í Amerískum háskólum.
Við fáum innlegg frá Eiríki Erni Norðdahl sem reynir að setja fingurinn á þessa fagurfræði, og svo höldum við áfram með rithöfundunum Þórdísi Gísladóttur og Fríðu Ísberg og reynum að setja umræðuna í skan

Fjord fær Gullpálmann, Veröld ný og góð, 20 og eitthvað
Kvikmyndin Fjord, í leikstjórn rúmenska leikstjórans Christan Mungiu, hlaut Gullpálmann um helgina. Hún stóð upp úr að mati dómnefndar af þeim 22 myndum sem voru í aðalkeppninni í ár. Búist er við að myndin muni skapa miklar umræður þegar hún fer í almenna sýningu, en í henni verður strangtrúuð rúmensk/norsk fjölskylda fyrir barðinu á norsku barnaverndarnefndinni. Myndin er í raun byggð á máli se

Íslendingar í Cannes, línuleg saxskrá, Palantir tíska
Við ræðum við nokkra íslendinga sem eru staddir í Cannes í ólíkum erindagjörðum, Dögg Mósesdóttir, framleiðandi, sem er að kynna myndina Eyríki. Ása Baldursdóttir og Hrönn Sveinsdóttir úr Bíó Paradís, sem eru að horfa á myndir og funa og velja hvað verður á dagskrá á komandi mánuðum í eina listabíói landsins. Við fræðumst um plönin þeirra og förum yfir nokkur mál er varða keppnina um Gullpálmann.

Drake popplagakrufning, aðdáendur Ávaxtakörfunnar, biðröðin
Drake er hratt og örugglega að jafna sig eftir rappbardagann við Kendrick Lamar fyrir tveimur árum. Í vikunni gaf hann ekki út eina endurkomuplötu heldur þrjár. Friðrik Margrétar Guðmundssson hjálpar okkur að kryfja einn slagara af plötunum þremur, Janice STFU. The Sopranos, Lykke Li og trapp-taktar frá Atlanta eru meðal þess sem poppmeinafræðingurinn veiðir upp úr laginu.
Söngleikurinn Ávaxtakar

Brunað milli kvikmyndahátíða: Cannes, Zürich, Patreksfjörður
Við ætlum að flakka milli kvikmyndahátíða í Lestinni í dag. Við verðum Í Suður-Frakklandi, í Sviss og á Patreksfirði. Við hringjum til Cannes þar sem einhver þekktasta kvikmyndahátíð heims stendur nú yfir, þar er Lóa Björk stödd og við tökum stöðuna á henni.
Við heyrum líka í Kristínu Andreu Þórðardóttur sem er einn skipuleggjenda heimildamyndahátíðarinnar Skjaldborg sem fer fram venju samkvæmt

Fasískir vindar í franskri bókaútgáfu og lífið er ennþá Kabarett,
Við veltum fyrir okkur söngleiknum Kabarett og hvernig þemu hans birtast okkur í samfélagi samtímans, með Sigríði Jónsdóttur, leikhúsrýni og sérfræðingi hjá Leikminjasafni Íslands.
Frönsk menningarumræða hefur logað síðustu vikurnar vegna fjárfestinga og afskipta milljarðamæringsins Vincent Bolloré. Hera Guðmundsdóttir, blaðamaður Lestarinnar, ræðir við Bergþóru Snæbjörnsdóttur og Jón Kalman Stef

Vilja kjósendur bara láta skemmta sér? Bókin, gangvirki Cannes
Hvað gerist á kvikmyndahátíðinni í Cannes? Grímar Jónsson og Sara Nassim, framleiðindur, eru stödd í Frakklandi og þekkja hátíðina út og inn. Við fáum að skyggnast inn í gangvirki Cannes og komast að því hvað framleiðendur gera þar.
Eiríkur Örn Norðdahl veltir fyrir sér bókinni og blikkandi ljósi dópamínvélarinnar. Hvert er hlutverk rithöfundarins, á hann að vera í samkeppninni við símana og Net

Pólitískar vindvélar Evrópu, heimildarþættir um America's Next Top Model
Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, segir frá þáttunum Reality Check, sem fjalla um raunveruleikaþættina America's Next Top Model. Þeir hófu göngu sína árið 2003 og í þeim kepptust ungar konur um að verða næsta ofurfyrirsæta Bandaríkjanna. En það var ýmislegt misjafnt sem gekk á.
Gísli Marteinn Baldursson kemur og ræðir Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva, en fyrri undankep

Nýtt tóma rými, Devil Wears Prada og ítök tískuprentmiðla
Devil Wears Prada 2 er ein af stóru myndum vorsins, Hera Guðmundsdóttir, hönnuður og blaðamaður lestarinnar fór að sjá hana á dögunum og fór í kjölfarið að velta fyrir sér tískuprentmiðlum. Myndin er sjálfstætt framhald fyrstu myndarinnar, sem kom út fyrir tveimur áratugum, Devil Wears Prada. Sú mynd byggir á bók sem fyrrum aðstoðarkona Önnu Wintour skrifaði. Hera ræddi við Önnu Clausen sem er lis

Queer Situations, bylting frjálshyggjunnar, Apex og Michael
Hinsegin bókmenntir, langborðsumræður, fræðadagskrá og fjölbreyttur hópur alþjóðlegra höfunda, er það sem gestir bókmenntahátíðarinnar Queer Situations geta átt von á í næstu viku. 14.-17. maí fer hátíðin fram í annað sinn, og þær Eva Rún Snorradóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir, skipuleggjendur, eru gestir Lestarinnar í dag.
Kolbeinn Rastrick rýnir í tvær nýjar bíómyndir, Apex í leikstjórn Ba

Gelluteknó, vanlíðan og bæld reiði
Við heyrum um viðburðinn Bratzgat - sem er nýtt samsett orð, Bratz (eins og dúkkurnar) og gat - rassgat. Ísabella Lena og Lára kalla sig Fonky Events, og hafa það eina og háleita markmið að halda góð partý. Á föstudaginn mun Fonky Events taka yfir Lækjargötu 6A og stemmingin verður Bratzgat.
Í dag hóf HönnunarMars göngu sína, Sandra Rós Björnsdóttir er ein af þeim sem taka þátt, verkið hennar er

Jeff Bezos á Met Gala, Ægir Sindri skilyrtur af reynslu
Ellen Loftsdóttir, stílisti, ræðir við okkur um það sem hefur lengi verið hápunktur tískuársins, frá því að Anna Wintour tók við skipulagninu á tíunda áratugnum. Fyrsta mánudaginn í Maí kemur ríka og fræga fólkið saman, klæðir sig upp og safnar fyrir búningadeild Metropolitan safnsins í New York. En viðvera og fjárhagslegur stuðningur tæknimilljarðamæringsins Jeff Bezos varpaði skugga á viðburðinn

Ástin án Tinder, ást í Vesturbænum, hnökraleysi
Salóme Júlíusdóttir, námsmaður í Árósum, þolir ekki Tinder, og verkefnið hennar í skólanum snýst um að hjálpa einhleypu fólki að finna ástina án stefnumótappa.
Við ræðum því ástina án Tinder í þætti dagsins. Svo rifjum við upp facebook-grúppu færslu sem sló í gegn, hún þótti svo rómantísk. Anna Marsibil Clausen ræðir við Brynhildi Björnsdóttur.
Fríða Þorkelsdóttir, bóksali og bókmenntafræðingur

Popplagakrufning: Harry Styles, vorlegt rifrildi, Feneyjatvíæringurinn
Harry Styles byrjaði í strákahljómsveitinni One Direction en hefur þróast og þroskast á fjórum sólóplötum. Nýlega gaf hann út plöt með athyglisvert nafn: Kiss all the time. Disco, occasionally. Í popplagakrufningunni í þetta skiptið ætlum við fara í saumana á laginu American Girls. Okkur til halds og trausts er að venju Friðrik Margrétar Guðmundsson, tónlistarmaður og tónskáld.
Rithöfundurinn Eir

Konungssinnar í Kísildal #13 - Ellison-feðgar eignast allt
Larry Ellison er einn ríkasti maður í heimi. Auður hans er mestallur í hlutabréfum fyrirtækis sem hann stofnaði í Kísildalnum árið 1977. Fyrirtækið heitir Oracle og sérhæfir sig í hýsingu og vinnslu gagna. Hann á eyju, orrustuþotur og börn sem hafa áhuga á kvikmyndum og hafa gert sig gildandi í Hollywood.
Ef að kaup Larry og sonar hans David á Warner Bros Discovery ganga í gegn munu þeir feðgar

Sound of Falling, gljúp dramatúrgía
Hvernig kemstu inn í kvikuna á fólki? Við endurheimsækjum samtal við sviðslistakonuna Steinunni Knúts Önnudóttur í þætti dagsins. Við kynnumst gljúpri dramatúrgíu og listrannsóknum Steinunnar, þar sem stóra spurningin er: Hve lítið er nóg?
Kolbeinn Rastrick rýnir í kvikmyndina In die Sonne Schauen eða Sound of Falling, eftir þýska leikstjóran Mascha Schilinski sem er sýningu í Bíó Paradís. Mynd

Greindarpróf, Enn ein U-beygjan hjá Havarí
Við heyrum um sögu greindarprófa og tilraunum til að mæla gáfur fólks í pistli Einars Más Jónssonar í dag. Hann veltir fyrir sér hvernig sumir valdamestu menn heims, forstjórar tæknirisanna í Ameríku, eru farnir að leggja síaukna áherslu gáfur sem mælikvarða á manngildi.
Við ætlum kíkja í Skeifuna og heimsækja nýtt heimili Havarí. Undanfarin sautján ár hefur það verið regnhlíf utan um allt það se

Bestu bíómyndir aldarinnar, Lena Dunham, regnbogafánar
Við skoðum glænýjan lista yfir bestu kvikmyndir 21. aldarinnar hingað sem birtist á vefiritinu Hugrás í byrjun vikunnar. Tæplega 150 álitsgjafar komu að gerð listans. Við setjumst yfir listann með Birni Þór Vilhjálmssyni, dósent í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands og öðrum hvatamanninum að listanum.
Eins og margir aðrir er Eiríkur Örn Norðdahl að velta fyrir sér merkingu regnbogafánans þessa dag

Hæst, Sagnaland og 40 ár frá Tsjernobyl-slysinu
Nokkrir kennarar við Menntaskólann við Sund taka sig til og skipuleggja hinn fullkomna glæp, þeir ætla að ræna nemendafélagið. Það er grunnhugmyndin í nýjum íslenskum grínþáttum Hæst á Sjónvarpi Símans. Sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina.
Við fræðumst um nýja íslenska hljóðbókaveitu, Sagnaland, sem ætlar að borga rithöfundum betur en samkeppnisaðilinn Storytel, e

Ástin FYRIR tíma Tinder og Chet Baker
Í nokkrar vikur hefur Lóa verið að ræða við fólk um ástina og ástarleit á stafrænum tímum, í innslögunum ástin á tímum Tinder. En hver voru lögmál ástarinnar í kringum aldarmótin 1900. Sigriður Kristín Þorgrímsdóttir sagnfræðingur, skrifaði bókina Piparmeyjar - Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi sem er að miklu leiti byggð á bréfaskriftum Thoru Friðriksson (1866 – 1958) til systur si

Konungssinnar í Kísildal #12 - mannætukóngurinn Sam Altman
Á næstu árum er óhjákvæmilegt að einhver muni þróa stórhættulega ofur-gervigreind. Það er spurning upp á líf og dauða hver það er sem muni stjórna þessari tækni. Sam Altman vill að við treystum honum fyrir því. Það eru þó ekki allir sammála því að stórhættulega ofur-gervigreindin sé óhjákvæmleg og finnst jafnvel önnur vandamál af völdum gervigreindar meira aðkallandi að leysa. Um þetta er fólk inn

Kostur við lesti, Mundi, brúðkaupshryllingur á Netflix
Yfirleitt heyrum við mikið um ókosti synda og slæmra lasta, en í pistli sínum í dag telur Eiríkur Örn Norðdahl upp kosti lastanna.
Something Very Bad is Going to Happen er nýr brúðkaupshryllingur á Netflix. Sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar Brynja Hjálmsdóttir tekur þá fyrir.
Við rifjum líka upp afdrifaríka strætóferð í Lestinni fyrir rúmum tveimur árum síðan, þegar við hittum skáldið og bókasafn

Angine de Poitrine, Project Hail Mary, Miriam Makeba
Hljómsveitin Angine de poitrine hefur vakið furðulega mikla athygli að undanförnu fyrir dansvænt míkrótóna-stærðfræðirokk og skringilega doppótta búninga. Í popplagakrufningu Lestarinnar sökkvum við okkur ofan í slagarann Sarniezz og kryfjum til mergjar.
Ryan Gosling er geimfari í Project Hail Mary og hefur myndin notið gríðarlegra vinsælda. Kolbeinn Rastrick er ómyrkur í máli í gagnrýni sinni um

Ástin á tímum Tinder #7
Hvers vegna er svona óþægilegt að fara að spjalla, ódrukkinn, við sæta ókunnuga manneskju á almannafæri? Er það útaf því að við eigum að vera á Tinder eða er það útaf því að það er samfélagslega ekki viðurkennd hegðun á norðurlöndum. Við ræðum við einhleypan, gagnkynhneigðan mann í Berlín, Gunnar Örn Stephensen.

Bully, Undir Ísnum, Jóhanna af Örk, fyrsta íslenska útvarpsstöðin
Framkoma Kanye West síðustu misseri hefur verið einhvers konar lifandi gjörningur. Svo segir Davíð Roach Gunnarsson tónlistargagnrýnandi Lestarinnar. Hann ætlar að rýna í tólftu breiðskífu brjálaða snillingsins Kanye West, Bully.
Við fáum svo dóma um tvær mjög ólíkar nýjar íslenskar kvikmyndir. Undir Ísnum er spennumynd með strákunum úr popptónlistarhópnum Tónhylur í aðalhlutverki, en Jóhanna af

Ástin á tímum Tinder #6
Þekkiru einhvern heterópessimista? Hvernig gengur á Tinder? Er kominn tími til að leggja öppin frá sér og velta því fyrir sér hvort þetta sé yfirhöfuð þess virði?
Í þætti dagsins ræðum við við Emblu Ýr Teitsdóttur, sem hefur komist að því að önnur lífsformúla henti sér. Hún hefur lokað Tinder fyrir fullt og allt.
Undir lok þáttar fáum við pistil frá Eiríki Erni Norðdahl, sem fékk Macintosh bor

Pólitík og dauði á Feneyjatvíæringnum, hubris og ate
Það er yfirleitt spennuþrungið andrúmsloft þegar styttist í Feneyjatvíæringinn, líklega nafntoguðustu myndlistarhátíð heims. Nú er aðeins einn mánuður í að hátíðin hefjist 9. maí en hún stendur fram í nóvember, og allt virðist á suðupunkti. Pólitíska ástandið í heiminum hefur smitast inn í hátíðina þetta árið svo um getur: Ísrael, Rússland, Ameríka og já svo er aðalsýningarstjórinn dáinn. Við fjöl

Konungssinnar í Kísildal #11 - Gönguskíðagarpurinn Dr. Alex Karp
Hann er heimspekingur í Kísildal, en hann er ekki heimspekingur Kísildalsins. Þvert á móti þá sker hann sig úr og gerir í því að aðgreina sig frá öðrum tæknifyrirtækjum Kísildalsins.
Við fjöllum um Alex Karp, framkvæmdastjóra Palantir. Áður en hann varð framkvæmdastjóri og síðar milljarðamæringur, þá var hann doktorsnemi í heimspeki við Goethe-háskóla í Frankfurt.
Palantir er eitt umdeildasta

Church bros - endurfluttur
Þáttur var fyrst fluttur í janúar 2025. Þar kanna Anna Gyða og Kristján aukna kirkjusókn ungra manna, skoða Biblíuapp og fara í messu,

Falinn Gjóður, Jóhanna af Örk
Sigurvegarar Músíktilrauna 2026 er tilraunarokkhljómsveitin Falinn Gjóður, sem er skipuð þremur tíundubekkingum sem elska Þursaflokkinn og Frank Zappa. Aron Elí Arnarsson, Baldur Þórarinsson og Þorri Hrafnsson heimsækja Lestina og ræða sigurinn, tilraunarokk og fuglinn sem bandið er nefnt eftir.
Við hringjum svo í Hlyn Pálmason, kvikmyndaleikstjóra, um hans nýjustu mynd, Jóhanna af Örk. Myndavéli

Herra Skepna, umræðan, Persepólis
Fríða Þorkelsdóttir bókmenntafræðingur og netblaðamaður Lestarinnar, fjallar um YouTube-stjörnuna MrBeast. Þó þú hafir kannski aldrei heyrt um hann þá heldur hann úti vinsælustu YouTube rás í heimi. En það er eitthvað undarlegt við hann.
Eiríkur Örn Norðdahl flytur pistil um sjálfa umræðuna og hvernig hún á það til að þróast. Svo ræðum við við Kjartan Orra Þórsson, Íranssérfræðing, um teiknimynd

Ástin á tímum Tinder #5
Dr. Love er á línunni. Við þurfum á hjálp hans að halda.
Rétt fyrir aldamót, fyrst í gríni en svo af fullri alvöru, hélt Páll Óskar úti dagskrárliðnum Dr. Love á útvarpsstöðinni Mono.
Í þessum þætti af ástinni á tímum Tinder förum við djúpt inn í menninguna á Grindr, pælum í því hvaða áhrif það hefur að byrja ævina inni í skápnum og heyrum hvernig draumaprinsinn kemur þegar þú átt síst von á h

Heated Rivalry, íslenskur stríðsljósmyndari
Við rýnum í sjónvarpsþættina Heated Rivalry sem hafa notið mikilla vinsælda að undanförnu - hómóerótísk ástarsaga á íshokkísvellinu. Þættirnir eru byggðir á bókaflokknum Game Changers eftir Rachel Reed og eru aðgengilegir á streymisveitu HBO. Brynja Hjálmsdóttir spjallar um þættina.
Við rifjum líka upp bíómynd um íshokkí sem naut mikilla vinsælda fyrir rúmlega 30 árum - en þar kom Ísland heldur b

Íslenskur Herkúles, One Battle After Another
Orri Guðmundsson er tvítugur kvikmyndagerðarmaður í námi í Listaháskóla Íslands. Hann er að taka þátt í Sprettfisk, keppni á Stockfish hátíðinni, og framlagið hans er heimildarmynd um Guðmund Emil Jóhannsson. Myndin heitir Íslenskur Herkúles og veitir innsýn í hversdagsleika Gumma Emil. En hvernig er að gera mynd um manneskju sem hefur nú þegar myndað lífið sitt og birt það á netinu?
Svo flytjum

Ástin á tímum Tinder #4
Hver er munurinn á því að deita á Íslandi og í Bandaríkjunum? Við berum okkur saman við Bandaríkjamenn í gegnum afþreygingarefnið sem við neytum, en menningin og aðstæður í ástarleit hafa mótast út frá gjörólíkum forsendum. Birna Gustafsson kynfræðingur, talar við okkur frá Brooklyn.
Einar Már Jónsson, rithöfundur, flytur okkur pistil um sögukennslu og framfararhyggju. Og Fríða Þorkelsdóttir rif

Manosphere-ið, Eitt af blómunum krufið
Við ræðum umtöluðustu heimildarmyndina um þessar mundir, Inside the Manosphere, úr smiðju Louis Theroux. Þar hittir hann áhrifavalda sem tala fyrir íhaldssömum kynjahlutverkum, stórum vöðvum og vafasömum fjárfestingum.
Svo kryfjum við popplag með Friðriki. Að þessu sinni, í tilefni Íslensku tónlistarverðlaunanna, er það íslenskt popplag. Eitt af blómunum með Benna Hemm Hemm og Páli Óskari.

Skarsgård-leikarafjölskyldan, ástarbækur, Kabarett
Um þessar mundir má sjá í kvikmyndahúsum þrjár myndir með þremur mismunandi Skarsgård í aðalhlutverkum. Hinn 74 ára Stellan leikur í norsku óskarsmyndinni Affeksjonsverdi, elsti sonur hans Alexander leikur í BDSM-homma-rómantíkinni Pillion og annar sonur, Bill, leikur í spennumynd leikstjórans Gus Van Sant, Dead Man's Wire. Reyndar eru allt í allt sex synir Stellans Skarsgård virkir í leiklistinn

Óskarsverðlaunin, Jürgen Habermas
Helsta uppskeruhátið amerískra kvikmyndabransans, Óskarsverðlaunahátíðin var haldin í Los Angeles í nótt, í 98 skipti. Stóru fréttirnar af hátíðinni eru þær að One Battle after Another, mynd Paul Thomas Anderson, var verðlaunuð sem besta myndin, fyrir bestu leikstjórn, og besta aðlagaða handritið. Vampíru-períóðu-tónlistarmyndin Sinners í leikstjórn Ryan Coogler fékk fjóra óskara Besta aðalleiko

Ástin á tímum Tinder #3
Líður þér eins og þú sért útlagi úr ríki Ástarinnar? Í þessum þriðja þætti flettum við aðeins í bókinni Love in Exile eftir Shon Faye og ræðum við Bríeti Blæ Jóhannsdóttur. Umræðuefnin eru stefnumótamiðlar og afhjúpun á samfélagsmiðlum.
Eiríkur Örn Norðdahl er í þema, hann flytur sinn annan pistil um ástina, Narkissos og Erich Fromme veita innblástur.

Íransstríðið breiðist út
Við erum á tólfta degi stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran, og átökin hafa breiðst víða út um Miðausturlönd. Samkvæmt nýjustu tölum hafa 1300 fallið í Íran, 570 manns verið drepnir í Líbanon, 7 bandarískir hermenn látis, 11 ísraelar og 17 manns í ríkjunum við Persaflóa.
Gestur Lestarinnar er Magnús Þorkell Bernharðsson sem er prófessor í sögu Mið-Austurlanda við Williams háskóla í Bandaríkj











