Home Podcasts Gull og grænir skógar
Gull og grænir skógar

Gull og grænir skógar

RÚV Hlaðvörp 13 Episodes Sep 18, 2026

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana. Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hverskyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði - og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.

Episodes

Tákn rósarinnar: Rósir og sérstaða rósaættarinnar
Tákn rósarinnar: Rósir og sérstaða rósaættarinnar Sep 18, 2026 50:15 Í þættinum er fjallað um táknheim rósarinnar meðal annars út frá sögunni, hversdagsmenningu og pólitík. Rifjaðir eru upp atburðir úr fortíðinni þar sem rósir leika stórt hlutverk eins og sögufrægar rósblaðarigningar. Í seinni hluta þáttarins er kastljósinu beint sérstaklega að rósaættinni sem er fjölbreytt og finnst meðal annars í íslensku flórunni. Rætt er um runnamururnar sem skarta sínum oftast
Rósarækt og hinn harðgerustu yrki fyrir íslenskar aðstæður
Rósarækt og hinn harðgerustu yrki fyrir íslenskar aðstæður Sep 11, 2026 51:58 Í þættinum er fjallað um þá tegund blóma sem hefur heillað okkur mannfólkið hvað mest og lengst – rósir. Rætt er um táknfræðilegt hlutverk þeirra en þó allra mest um rósarækt á Íslandi og þau yrki rósa sem þykja hvað harðgerðust. Slíkar rósir má sjá á umferðartorgum víða og nálægt sjávarsíðunni enda eru margar þeirra vind- og saltþolnar. Minnst er á brautryðjendastarf Jóhanns Pálssonar fyrrverandi
Ísland á tertíer og ísöld: Gróðurvendingar og nýtt upphaf íslensku flórunnar.
Ísland á tertíer og ísöld: Gróðurvendingar og nýtt upphaf íslensku flórunnar. Sep 4, 2026 46:36 Í þættinum er fjallað um gróður á Íslandi á öldunum fyrir ísöld þegar loftlag var hlýrra eða á hinu svokallaða tertíer-tímabili jarðsögunnar. Ýmsar minjar frá þeim tíma sýna að hér á landi uxu á tegundir sem garðeigendur dagsins í dag leitast við að koma á legg. Rætt er um hvaða afleiðingar kólnunin rétt fyrir ísöld hafði og þær breytingar sem verða þegar siglt er inn í kvarter-tímabil jarðsögunna
Vesturbæjarvíðir, Schierbeck–reynirinn og garðfuglagróður.
Vesturbæjarvíðir, Schierbeck–reynirinn og garðfuglagróður. Jun 18, 2026 54:17 Í lokaþætti þáttaraðarinnar er fjallað um sögufræg tré en einnig gróður sem garðfuglar geta notið góðs af. Rætt er sérstaklega um hlíðaramal í samhengi við fuglafóðrun en runninn hefur einnig notið vinsælda hjá mönnum. Meginþorri þáttarins fjallar um sögufræ tré en staldrað er við Schierbeck-reyninn sem er silfurreynir og finna má í Fógetagarðinum við Aðalstræti. Þá er einnig rætt um gljámispil se
Garðurinn, skipulag og limgerðin stór og smá
Garðurinn, skipulag og limgerðin stór og smá Jun 11, 2026 55:10 Í þættinum er fjallað um hlutverk og skipulag limgerða. Limgerði hafa lengi verið nýtt til að skipta upp landi, stýra umferð, fela svæði og prýða. Rætt er um limgerði í sögulegu samhengi, völundarhús og svo hinn fallegustu og eftirsóknarverðustu limgerði. Fjallað er um tegundir sem henta í limgerði hér á landi. Í þættinum er einnig rætt um stefnur og strauma úr garðlistasögunni í samhengi við skip
Gróður gerir meira en að þekja: Ilmur, angan, lykt, áferð og skógarbað
Gróður gerir meira en að þekja: Ilmur, angan, lykt, áferð og skógarbað Jun 4, 2026 55:46 Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Garðagróður frá Kína: Fjölbreyttar kínverskar plöntur, fræsöfnun Joseph Rock og framtíðarhljómur
Garðagróður frá Kína: Fjölbreyttar kínverskar plöntur, fræsöfnun Joseph Rock og framtíðarhljómur May 28, 2026 54:41 Í þættinum er haldið í ferðalag til Kína út frá vel þekktum garðagróðri á Íslandi. Kastljósinu er beint sérstaklega að fjölæringum, gulbambus, reynitegundum og runnum frá Kína. Fjallað er um fræsöfnunarleiðangra Joseph Rock sem varði 27 árum í að ferðast um Kína og safna fræjum og gögnum en reynir ‘Joseph Rock’ ber heiti hans. Rætt er um stærsta skógrækta- og uppgræðslurverkefni heims, „The great
Skjól og ætur garðagróður
Skjól og ætur garðagróður May 21, 2026 54:11 Í þættinum er fjallað um um skjól, skjólbelti og skjólveggi – en einnig um fjölbreyttar tegundir garðagróðurs sem má leggja sér til munns. Gefin eru ráð varðandi skjólbeltagerð og rætt við sérfræðinga sem þekkja ætan garðagróður það vel að þeir geta tínt upp í sig mismunandi tegundir eftir þörfum. Rætt er um brautryðjendur í útiræktun, flautur úr hvönn, æt sumarblóm, æta fjölæringa svo og runna og
Jarðsögulegt samhengi plantna: súrefnisbyltingin, viðarvöxtur, blómgun og sveppir
Jarðsögulegt samhengi plantna: súrefnisbyltingin, viðarvöxtur, blómgun og sveppir May 14, 2026 54:44 Í ellefta þætti af Gulli og grænum skógum er fjallað um tilkomu planta og þróun þeirra í jarðsögulegu samhengi. Fjallað er um ýmis einkenni sem plöntur hafa þróað með sér allt frá súrefnisbyltingunni fyrir meira ein tveimur milljörðum ára. Sérstök áhersla er lögð á þróun plönturíkisins á tímum risaeðlanna en á þeirra tíma kom viðarvöxtur og blómgun til sögunnar. Ljósi er varpað á frumstæðar tegund
Lyngrósir og brautryðjendastarf Óla í Nátthaga í kjölfar fræsöfnunarleiðangursins 1985
Lyngrósir og brautryðjendastarf Óla í Nátthaga í kjölfar fræsöfnunarleiðangursins 1985 May 7, 2026 53:55 Í maímánuði er tilvalið að staldra við krúnudjásnið í garðinum, lyngrósir eða rhododendron. Rætt er við Ólaf Sturlu Njálsson eða Óla í Nátthaga um lyngrósir sem hann hefur ræktað frá ungingsárum. Þá er rætt um brauðryðjendastarf Óla þegar kemur að þeim tegundum sem komust á legg hér á landi eftir stóra fræsöfnunarleiðangurinn til Alaska 1985. Um er að ræða tegundir sem margar þykja vera sjálfsagðu
Stofuplöntur: umhirða, tengsl og sögulegt samhengi
Stofuplöntur: umhirða, tengsl og sögulegt samhengi Apr 30, 2026 52:00 Í þessum níunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um stofuplöntur sem stofustáss, ástríðu, minjagripi, nytjaplöntur og fleira. Rætt er um umhirðu stofuplanta s.s. áburðargjöf og umpottun. Fjallað er um stofuplöntur sem plumma sig á vinnustöðum. Staldrað er sérstaklega við vinsældir kentíapálmans á Viktoríutímabilinu og uppgötvun Wardian-kassas sem gaf kost á að flytja lifandi gróður heimshorna á
Garðyrkjuskólinn, Bananahúsið og gróður sem gjafir
Garðyrkjuskólinn, Bananahúsið og gróður sem gjafir Apr 16, 2026 52:12 Í þessum áttunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um Garðyrkjuskólann Reykjum, mikilvægi námsins og þær fágætu tegundir sem þar má finna – sérstaklega í Bananahúsinu. Rætt er við núverandi og fyrrverandi nemendur ásamt brautarstjóra garðyrkjubrauta. Vöngum er velt yfir gróðri í formi gjafa með þátttöku Vilmundar Hansens garðyrkju- og þjóðfræðings. Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir,

Recommended