Home Podcasts Karlmennskan
Karlmennskan

Karlmennskan

Þorsteinn V. Einarsson 147 episodes Latest May 27, 2026

Gagnrýnið og kynjað sjónarhorn á völd og viðmið. Bakhjarlar fjármagna meðal annars hlaðvarpið Karlmennskan. Þú getur verið eitt þeirra.

Episodes

#1 Eðli karla Oct 2, 2020 2900 Klín­ísk­ur sál­fræð­ing­ur bend­ir á að heil­inn þró­ast stöð­ugt og breyt­ist í takt við lífs­reynslu, en hún, sagn­fræð­ing­ur og heim­spek­ing­ur sam­mæl­ast um að allt sem skipti máli hvað varð­ar kyn sé fé­lags­lega ákvarð­að.
#2 Karlar og tilfinningar Oct 9, 2020 2999 Karlar upplifa skömm og bæla og fela tilfinningar sínar fyrir öðrum. Sálfræðingar segja að karlar leiti sér síður aðstoðar vegna tilfinningavanda og þeir þurfi að sýna hugrekki til að gangast við tilfinningum sínum.
#3 Feður og jafnrétti Oct 16, 2020 3277 Ísland mælist með mesta jafnrétti í heiminum, samkvæmt alþjóðlegum samanburði World Economic Forum, þrátt fyrir að hér ríki íhaldssöm viðhorf, meðal annars gagnvart foreldrahlutverkinu, sem hindra jafnrétti. Í þessum þætti er leitast svara við því hvernig foreldrahlutverkið er fyrirstaða jafnréttis og hver ábyrgð karla er í því samhengi? Viðmælendur eru Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir kynjafræðingur
#4 Hlaðvarp: Nafnlausu skrímslin Oct 23, 2020 3841 Gerendur ofbeldis ganga huldu höfði í íslensku samfélagi í skjóli mýta um fólk sem beitir ofbeldi. Sérfræðingar í málefnum brotaþola og gerenda telja að nauðgunarmenningu og ofbeldi verði ekki útrýmt nema með því að varpa ljósi á gerendur og skapa menningu þar sem þeir geta og þurfa að axla ábyrgð.
#5 Klám Oct 30, 2020 3402 Klám fyrir sumum er ekki endilega það sama og klám er fyrir öðrum. Kynferðislega örvandi efni hefur þróast á síðustu árum og áratugum frá óaðgengilegum erótískum klámblöðum og rándýrum rauðum símalínum yfir í ókeypis og aðgengilegt internet klám. Sigga Dögg kynfræðingur, Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir verkefnastýra hjá Stígamótum og Þórður Kristinsson doktorsnemi og framhaldsskólakennari útskýra
#6 Bjarni Snæbjörnsson - Heterósexismi Nov 6, 2020 2471 „Ég bað til Guðs á hverju kvöldi um að ég væri ekki hommi“. Bjarni Snæbjörnsson leikari lýsir upplifun sinni af því að vera samkynhneigður karlmaður í samfélagi sem er gegnsýrt af gagnkynhneigðum viðmiðum. Í gegnum spjall við Bjarna verður leitast við að að svara hvað er homophobia og hvernig heterósexismi getur skýrt þöggun, útilokun og vanlíðan (ó)gagnkynhneigðra karla og hinsegin fólks.
#7 Sóley Tómasdóttir - Aktívismi Nov 13, 2020 3434 „Að passa sig er samofið femínískum aktívisma [...] útskýra að við hötum ekki karla og ég elski alveg son minn“. Sóley Tómasdóttir femínisti og fyrrverandi forseti borgarstjórnar í Reykjavík ræðir um það hvernig er að vera femínískur brautryðjandi og hafa verið gerð að holdgervingi femínismans á Íslandi. Förum yfir femíníska aktívismann, andspyrnuna og hvernig hún er að beita sér í dag.
#8 Narsisismi Nov 20, 2020 2367 „Ef að einstaklingar eru ekki til í að gera neitt í sínum málum, þá er bara best að sætta sig við það og halda áfram með líf sitt“ segir nafnlaus kona sem bjó við ofbeldi narsisísks manns í 5 ár. Nafnlausa konan deilir reynslu sinni af ofbeldistaktík narsisista og Anna Kristín Newton sálfræðingur skýrir þessa persónuleikaröskun sem leggst frekar á karla en aðra einstaklinga.
I aukaþáttur: Femínistafélag MH og Versló Nov 23, 2020 2899 „Rauðhærður vegan femínisti, hann myndi ekki fá lim [...] Já, MH-inga“ sagði viðmælandi í fyrirhuguðum podcast-þætti á vegum nemendafélags Verslunarskóla Íslands. Femínistafélag MH og femínistafélag Versló gagnrýndu þetta orðfæri, réttilega, og útskýra hér hvers vegna og hvaða áskoranir femínistar í framhaldsskólunum eru að takast á við. Typpa- og píkufýla eru hugtök sem koma fyrir og lýsa menning
#9 Mental load: Hjónin Hulda og Þorsteinn Nov 27, 2020 3387 „Það eru hundrað þúsund hlutir sem þarf að hugsa um [...] og ég held að menn átti sig oft ekki á því“ segir Hulda og vísar til fyrirbærisins mental load. Mental load er umfjöllunarefni þessa þáttar þar sem hjónin, Þorsteinn V. Einarsson og Hulda Jónsdóttir Tölgyes, spjalla saman um það hvernig mental loadið hefur birst í þeirra lífi og hvaða leiðir þau hafa farið til að jafna byrðina sem til fellu
#10 Alkóhólismi og edrúmennska karla Dec 4, 2020 4770 „Gagnvart áfengi hef ég alltaf fúnkerað eins og bíll sem er bremsulaus, gleymdist að setja bremsurnar í mig?“ segir karlmaður á sextugsaldri sem hefur barist við alkóhólisma í 40 ár. Sá hefur núna verið edrú í 9 mánuði og lýsir baráttu sinni við edrúmennskuna. Auk þess heyrum við í karlmanni sem einnig er alkóhólisti en hefur haldið sér edrú í tæp 18 ár. Reynsla þeirra, edrúganga og lífssýn er umf
#11 Umgengnis- og forsjármál - Líf án ofbeldis Dec 11, 2020 3196 „Nei, börn eru ekki vernduð fyrir ofbeldi á Íslandi,“ segir Sigrún Sif Jóelsdóttir talskona Lífs án ofbeldis. Umgengnis- og forsjármál eru oft lituð andstæðum sjónarmiðum í opinberri umræðu þar sem feður og mæður virðast takast á og við, dómstóll götunnar, erum krafin um afstöðu. Sigrún Sif vill aðgreina mál þar sem um ofbeldi er að ræða frá öðrum umgengnis- og forsjármálum og segir að feður þurfi

Recommended

Playing