Home Podcasts Tékk-inn með Helgu og Örnu
Tékk-inn með Helgu og Örnu

Tékk-inn með Helgu og Örnu

Helga María Finnbjörnsdóttir & Arna Ósk Arnarsdóttir 21 episodes Latest Jun 1, 2026

Þáttur um vinnustaðamenningu, leiðtogahlutverkið, stjórnun og hvernig meðvitund spilar inn í þetta allt saman.

Episodes

#1 Tékkum okkur inn með Helgu og Örnu Sep 21, 2025 34:07 Fyrsti þáttur af Tékk-inn með Helgu og Örnu. Við segjum frá okkur sjálfum, hvernig kviknaði hugmyndin af podcasti og hvers er að vænta.
#2 Sveinbjörn Indriðason - "Við verðum að vera tilbúin að takast á" Sep 22, 2025 51:26 Gestur þáttarins er Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. Hann ræðir við okkur á persónulegum nótum um vegferð Isavia í áttina að uppbyggilegri menningu, af hverju var lagt í mikla umbreytingarvinnu og áskoranirnar sem hann og fyrirtækið hafa staðið frammi fyrir.
#3 Trausti Björgvinsson - "Árangurinn minn hefur margfaldast við það að sleppa aðeins tökunum" Sep 22, 2025 52:02 Við fáum til okkar Trausta Björgvinsson, framkvæmdastjóra Lotu verkfræðistofu og ráðgjöf. Hjá Lotu fara allir stjórnendur í markþjálfanám. Hann segir okkur frá því hvernig það hefur virkað og þeirr persónulegri þróun sem hann hefur verið að vinna að síðustu ár og hvernig það hefur styrkt hann í starfi.
#4 Maríanna Magnúsdóttir - "Þetta byrjar alltaf hjá okkur sjálfum" Oct 6, 2025 52:30 Maríanna Magnúsdóttir, ráðgjafi og leiðtogi breytinga, kom til okkar og ræddi við okkur um breytingastjórnun og hlutverk leiðtogans í stórum umbreytingaverkefnum. Hvað ber að hugsa vel og hvað ber að varast þegar breytingar eru annars vegar? Ef ykkur vantar innblástur fyrir breytingarnar framundan, þá er þetta þátturinn fyrir ykkur!
#5 Auður Ýr Sveinsdóttir - "Er ég að hlusta, heyra og finna hvað er að gerast með mig?" Oct 20, 2025 49:17 Í þessum þætti ræðum við við Auði Ýr Sveinsdóttur, leiðtoga sem segir frá hvaða aðferðir hún hefur notað til að styrkja og efla sig sem leiðtoga. Mjög áhugavert spjall við sterkan stjórnanda sem er óhrædd við að skoða inn á við allt með því markmiði að sjá aðra vaxa. Hversu geggjað er það? Skoða sjálfan sig og aðrir njóta góðs af? Auður talaði m.a. um bókina Lífsreglurnar fjórar sem hún hefur hlus
#6 - Vangaveltur á sunnudegi Nov 3, 2025 53:21 Hér erum við tvær að fara yfir síðustu þætti, okkar vangaveltur og komum aðeins inn á okkar persónulegu þróun.
#7 - Helena Jónsdóttir hjá Mental um geðheilbrigði starfsfólks Nov 17, 2025 50:34 Í þessum þætti ræðir Helena við okkur almennt um geðheilbrigði, hvernig það hefur áhrif á vinnustaðnum okkar og hvernig fyrirtæki og stjórnendur geta betur stutt við starfsfólkið sitt. Þetta var virkilega fróðlegt og áhugavert samtal um mikilvægt málefni sem við vonum svo sannarlega að fái meiri skilning og umræðu í samfélaginu okkar.
#8 - Þórhallur Gunnarsson, "Það er mikilvægt að velja fólk sem er betra en þú sjálfur" Dec 1, 2025 64:07 Í þessum þætti fer Þórhallur Gunnarsson um víðan völl, hann ræðir við okkur um æskuna og það sem mótaði hann þar, reynsluna sína sem stjórnandi í fjölmiðlabransanum og deilir því sem hann telur mikilvægt að stjórnendur spyrji sig reglulega. Þetta er lifandi og skemmtilegur þáttur en hér lærum við margt um Þórhall sem við vissum ekki fyrir!
#9 - María Rós Skúladóttir - "Það sem ég vildi að stjórnandinn minn vissi" Dec 15, 2025 43:51 Í þessum þætti ræðum við við Maríu Rós sem er ráðgjafi hjá KPMG en hún hefur m.a. mikla reynslu af stjórnun hjá sveitarfélögum og hefur bakgrunn í félagsráðgjöf. Spjallið fer inn á meðvirkni á vinnustöðum, hvað það er mikilvægt að setja skýr mörk og hvað hugrekkið er mikilvægt í stjórnunarhlutverkinu. https://vb.is/skodun/thad-sem-eg-vildi-ad-stjornandinn-vissi/
Slökunarhugleiðsla Dec 23, 2025 7:34 Hér er stutt hugleiðsla sem er hægt að nýta sér til að róa hugann í dagsins önn. Hugleiðslan er leidd af Örnu og við vonum að þið njótið vel.
#11- Tékk-inn konur og Sísí - "Gerum að normi að tala um hegðun" Jan 5, 2026 52:23 Við fengum spurningu frá hlustanda sem snéri að því hvernig stjórnendur geta unnið með starfsfólk sem eru ekki góðir liðsfélagar. Við fengum Sisí til liðs við okkur og gerðum tilraun til að svara þeirri spurningu með þeim ráðum sem við höfum í pokahorninu. Við fórum svo líka um víðan völl, tókum almennilegt tékk-inn og niðurstaðan varð gott og heiðarlegt samtal samstarfs- og vinkvenna.
#12 - Christian Grønbjerg - "We can´t seperate personal development from business development" Jan 19, 2026 64:32 Hér ræðum við við Christian hjá Conscious Consulting um persónulega þróun og vöxt. Hvernig finnum við tilgang okkar? Hvað er l"óðrétt" markþjálfun (vertical coaching)? Hvað þýðir það að vera meðvitaður og til hvers að vera það? Við förum alveg á dýptina í þessum þætti og við fundum algjörlega kraftinn sem felst í því að spyrja sig góðra spurninga.

Recommended

Playing