Home Podcasts LANGA - hlaðvarp
LANGA - hlaðvarp

LANGA - hlaðvarp

Snorri Björns 98 Episodes Sep 4, 2026

Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.

Episodes

101. Besta frammistaða allra tíma, Ben Dhiman deep dive, skóleikurinn breytist og Courtney er búin.
101. Besta frammistaða allra tíma, Ben Dhiman deep dive, skóleikurinn breytist og Courtney er búin. Sep 4, 2026 01:51:35 Ben Dhiman æfir sig á skíðum, rústar UTMB og segir að við höfum lifað á steinöld hvað varðar frammistöður í 100 mílna hlaupum - má skjóta svona fast á Kilian og Walmsley þegar þú nærð lang bestu frammistöðu allra tíma? Gulli tók út Chamonix (sem er sprungið) og Egill kemur með fréttir af sviptingum hjá skóframleiðendum Slúður um íslenskt UTMB hlaup, minkur sást í Heiðmörk og allar helstu fréttir s
100. Elísa Kristins – stálheiðarlegt CCC uppgjör
100. Elísa Kristins – stálheiðarlegt CCC uppgjör Sep 2, 2026 00:47:46 Elísa Kristinsdóttir gerir upp frumraun sína í CCC, stærsta 100km hlaupi heims, á stálheiðarlegan máta. Hún er hvergi af baki dottin og frumflytur svakalega keppnisdagskrá sem er framundan og hlutina sem hún þarf að laga fyrir tilraun tvö.
99. Baldvin Þór - Íslandsmet á EM
99. Baldvin Þór - Íslandsmet á EM Aug 21, 2026 01:15:38 Baldvin gerir upp viðburðarríkt Evrópumeistaramót, þar sem hann setti Íslandsmet í 10.000m, og vegferðina fram að mótinu. Við förum yfir æfingabúðirnar, rauðrófu+koffín kokteilinn fyrir keppni, VLOG fram að Ólympíuleikunum, hvernig hann bregst við æfingum í háfjallalofti, að hafa áhyggjur alla keppnisvikuna, yfirburði Andreas Almgren, taktíkina í keppninni og möguleikann á því að hlaupa nálægt 13
Elísa í CCC, Baldvin á Íslandsmeti, Arnar á brautarmeti? og ÍBR vill ekki hraða tíma
Elísa í CCC, Baldvin á Íslandsmeti, Arnar á brautarmeti? og ÍBR vill ekki hraða tíma Aug 18, 2026 02:07:01 ÍBR virðist ætla að breyta 10km götuhlaupinu í 10km hindrunarhlaup - Reykjavíkurmaraþonið samt alltaf best mælda, best skipulagða og best tímatekna hlaup landsins.Endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Íslandsmet Baldvins, 800m rimman, ALMGREN og viðburðarríkt Evrópumeistaramót gert upp.SLÚÐUR um miðbik þáttar sem mun ekki fara framhjá neinum íþróttaáhugamanni á næstu dögum.Er Arnar Pétursson skemmtilegast
97. Jón Diðriksson - Maðurinn sem setti markið hærra
97. Jón Diðriksson - Maðurinn sem setti markið hærra Aug 14, 2026 01:35:38 „Hver er þessi Jón Diðriksson?“Sveitastrákurinn úr Borgarfirði sem setti Íslandsmet í öllum greinum frá 800m og upp í 10km götuhlaup. Jón setti markið svo hátt fyrir þá sem á eftir komu að metin hans stóðu sum hver í meira en 40 ár og eitt þeirra stendur enn þann dag í dag, þó það hafi verið sett fyrir algjöran misskilning!“Það var bara regla… maður var aldrei ánægður. Maður vildi alltaf hlaupa be
96. Stundin er runnin upp: Baldvin og Hlynur reima skóna, Arnar hamrar Laugaveginn og sub2 maraþon sjokk
96. Stundin er runnin upp: Baldvin og Hlynur reima skóna, Arnar hamrar Laugaveginn og sub2 maraþon sjokk Aug 7, 2026 01:29:34 Gunnar Páll er sendur til Birmingham í nafni LANGA hlaðvarps þar sem hann mun fylgjast með Baldvini Þór keppa í 10.000m og Hlyni Andréssyni í maraþoni fyrir Íslands hönd.Evrópumeistaramótið er feykna sterkt í ár en Gunni Palli upplýsir þig um allt sem þú þarft að vita fyrir mótið: Meiðsli og endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Baldvin héraði 5km á 15mín og mældist 1,7mmol í mjólkursýru, Nordås er hættur
Mjólkursýra = óvinurinn eða leynivopnið? Lyfjapróf að næturlagi, Tour De France, HYROX og hitabylgja
Mjólkursýra = óvinurinn eða leynivopnið? Lyfjapróf að næturlagi, Tour De France, HYROX og hitabylgja Jul 23, 2026 01:45:58 Af hverju eru hlauparar að æfa undir mjókursýruþröskuldi til þess að forðast mjólkursýru en ætla núna að borða hana? Eru lactate gel næsta byltingin í úthaldsíþróttum eða bara snilldar markaðssetning? Stærsta þrekraun úthaldsíþróttamannsins, Tour de France, er í fullum gangi - hjólarar eru lyfjaprófaðir að næturlagi með ófyrirséðum afleiðingum, Latsi setti hæstu wöttin sín í pedalana eftir stutta
94. Tove Alexandersson
94. Tove Alexandersson Jul 10, 2026 00:37:56 Sú albesta, stigahæsta og æfingaglaðasta er mætt í LANGA hlaðvarp. 30 klukkutíma hlaupavikur, sænska leiðin, rjómaþamb á æfingum, hákolvetnainntaka, magn fram yfir gæði - en stundum gæði framyfir magn, UTMB > götumaraþon, sænska leiðin > norska leiðin og af hverju eru rathlauparar svona góðir í utanvegahlaupum?
93. Arnar Péturs spáir Laugaveginum - hvað gerist, hvað gerist ekki, sub4, sub5, sigurvegarar og pallsætin.
93. Arnar Péturs spáir Laugaveginum - hvað gerist, hvað gerist ekki, sub4, sub5, sigurvegarar og pallsætin. Jul 9, 2026 01:26:23 Arnar Pétursson kann að hlaupa hraðan Laugaveg og Arnar Pétursson hikar ekki við að spá í spilin um frammistöðu bestu hlaupara Íslands í Laugaveginum um næstu helgi. Ekkert bendir til sub 4 Laugavegs, Tove mun hrista upp í karlaflokknum og keppnin um pallsætin verður gríðarsterk í ár.
92. Offramboð af úthaldi - Synir LANGA létta af sér
92. Offramboð af úthaldi - Synir LANGA létta af sér Jun 28, 2026 01:40:28 Western States vannst á sögulega hröðum tíma af mesta myrkrahesti hlaupasenunnar - en það er Elísa Kristinsdóttir sem á afrek helgarinnar og lokar þriðja UTMB sigrinum á 8 mánuðum. Helgin var smekkfull af úthaldsafrekum: Tove vinnur Mont Blanc Marathon á tíma sem fær menn til að spá henni sigri gegn íslensku körlunum í Dyrfjallahlaupinu í næstu viku, Norðmenn sýna enn og aftur að þeir eru bestir í
91. Tilhneigingin til að ofgera sér, beinbjúgur, hjól fyrir hlaupara, WSER og The Swedish Method
91. Tilhneigingin til að ofgera sér, beinbjúgur, hjól fyrir hlaupara, WSER og The Swedish Method Jun 25, 2026 01:51:59 Handbolta- hjóla- og hlaupadrottningin Ágústa Edda og bakgarðs- og brokkolíspírukóngurinn Andri Guðmundsson mæta í stúdíóið til þess að ræða tilhneiginguna til þess að gera eins mikið og mögulegt er (👀🫵), hjólaæfingar fyrir hlaupara (hvað er hægt að læra af Tour de France hjólara sem hleypur hálft maraþon á 61 mínútu?), REDs og beinmeiðsli sem koma aftan að manni, sterkustu ráslínu í Western State
90. Latsi & Geir Ómars - Kominn til Kona!
90. Latsi & Geir Ómars - Kominn til Kona! Jun 16, 2026 01:47:05 Latsi er kominn til Kona, Björgvin Karl er kominn í þríþraut og Andrea Kolbeins er komin í hjólreiðarnar.Geir Ómarsson og Einar Sigurjónsson eru komnir frá Filippseyjum með hálfan og heilan járnkarl undir beltinu til þess að gefa okkur ferðasöguna og fara yfir helstu vendingar í heimi úthaldsíþrótta.

Recommended