Home Podcasts Álhatturinn
Álhatturinn

Álhatturinn

Álhatturinn 34 Episodes Apr 21, 2026

Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Þátturinn kostar 1290 kr. á mánuði og veitir aðgang að yfir 50 þáttum af samsæriskenningaefni. Áskriftarhlekkur er aðgengilegur í gegnum pardus.is.

Episodes

Artemis II tunglverkefnið var sviðsett
Artemis II tunglverkefnið var sviðsett Apr 21, 2026 1675 Í yfir hálfa öld hefur mannkynið beðið eftir því að stíga aftur fæti á tunglið. Við höfum verið fóðruð á sögum af týndum gögnum og þeirri ótrúlegu staðreynd að NASA hafi hreinlega „eytt“ tækninni sem kom okkur þangað árið 1969. Teikningarnar og leiðarvísarnir týndust eða glötuðust á einhvern undarlegan hátt. Það bara gleymdist að taka afrit. En nú er NASA mætt aftur og að þessu sinni með Artemis-á
P2: Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar | Hluti 2
P2: Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar | Hluti 2 Apr 6, 2026 2031 Í þessum síðari hluta Álhattarins um Vísindakirkjuna sökkva þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sér enn dýpra ofan í hyldýpið í leit að svörum við því hvernig ein dularfyllstu samtök heims virka raunverulega, þegar glansmyndin fellur. Nú beina þeir vinirnir sjónum sínum að útsmogna manninum sem rændi völdum með klækjum og harðfylgi, David Miscavige, og hvernig hann breytti kirkj
Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar
Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar Mar 20, 2026 1705 Flest könnumst við við Vísindakirkjuna sem einhverskonar stórfurðuleg og dularfull samtök stjarnanna  í Hollywood, þar sem Tom Cruise og John Travolta brosa framan í heiminn sem andlit hins andlega frelsis. En hvað dylst raunverulega á bak við glansmyndina, milljarða fasteignaveldið og loforðin um „að hreinsa“ mannkynið? Er mögulegt að undir yfirskini trúfélagsskráningar starfi í raun einhver þaul
Trevor Moore úr gríneykinu Whitest Kids U' Know var komið fyrir kattarnef
Trevor Moore úr gríneykinu Whitest Kids U' Know var komið fyrir kattarnef Mar 6, 2026 1657 Flestir sem á annað borð höfðu aðgang að internetinu á fyrsta áratug þessarar aldar kannast við Trevor Moore, forsprakka grínhópsins The Whitest Kids U' Know. Trevor var ekki eingöngu ótrúlega hæfileikaríkur grínisti; hann var einn skarpasti samfélagsrýnir sinnar kynslóðar, sem notaði beittan og súran húmor til að rífa niður tjöldin hjá valdastéttinni og afhjúpa keisarann fyrir að vera ekki í
Mannkynið hefur komið upp leynilegum bækistöðvum á mars og tunglinu
Mannkynið hefur komið upp leynilegum bækistöðvum á mars og tunglinu Feb 20, 2026 1657 Í þessum þætti af Álhattinum kafa Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í eina frumlegustu og furðulegustu samsæriskenningu samtímans. Hugmyndina um að mannkynið hafi í áratugi rekið háleynilegt geimáætlunarverkefni, komið upp bækistöðum á Mars og tunglinu og þjálfað svokallaða ofurhermenn(e.supersoldiers) til að þjóna í leynilegum geimhernaði.Er hugsanlegt að bandarísk yfirvöld, í samsta
P2: Geimverur hafa heimsótt jörðina og yfirvöld hylma yfir tilvist þeirra | Hluti 2
P2: Geimverur hafa heimsótt jörðina og yfirvöld hylma yfir tilvist þeirra | Hluti 2 Feb 5, 2026 1367 Í þessum þætti af Álhattinum halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram þar sem frá var horfið og taka aftur fyrir stóru spurninguna sem enginn virðist mega, vilja eða geta svarað almennilega. Hafa geimverur heimsótt jörðina og eru yfirvöld að hylma yfir tilvist þeirra?Frá síðasta þætti hefur margt vatn runnið til sjávar og tíðarandinn verið dulítið skrýtinn. Hugtakið UAP hefur tekið vi
Æðstu ráðamenn í Minnesota eru viðriðnir milljarða svikamyllu í fylkinu
Æðstu ráðamenn í Minnesota eru viðriðnir milljarða svikamyllu í fylkinu Jan 23, 2026 1503 Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í það sem sumir kalla “Minnesota svikamylluna”(e.minnesota scam).  Barnagæsla sem virðist sífellt vera lokuð eða er í það minnsta með gluggum þökktum dökkum dúkum með engin raunveruleg ummerki um börn. Tugir meintra heilbrigðisþjónusta og góðgerðarstofnana, sem eru að öllum líkindum skúffufyrirtæki, skráð
P4: Jeffrey Epstein er á lífi | Hluti 4
P4: Jeffrey Epstein er á lífi | Hluti 4 Jan 9, 2026 1303 Nýlega birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna fjöldan allan af skjölum tengdum viðurstyggðinni og viðrinu  Jeffrey Epstein, vitorðsmönnum hans og viðbjóðnum sem þeir frömdu á eyju hans, í flugvél hans og víðar. Fjöldi og umfang yfirstrikana í skjölunum hefur vakið undrun og ugg meðal margra og fólk veltir því fyrir sér hvað sé eiginlega verið að fela og hverja sé verið að vernda. Er einungis verið
Guðjón Heiðar er Psyop
Guðjón Heiðar er Psyop Dec 26, 2025 1303 Guðjón Heiðar Valgarðsson, borgarstjóra Samsæríu og Álhatt allra álhatta, þarf vart sérstaka kynningu meðal álhugafólks um samsæri.Í hugum margra er hann orðinn eins konar samnefnari fyrir samsæri og opinber fulltrúi íslenskra samsærissinna. Maðurinn sem stendur á horninu með gjallarhornið í hendi og reynir að vara grunlausan almenning við öllu því skuggalega sem gerist bakvið tjöldin. Hann hefur
Michael Jackson var hafður að rangri sök og var ekki barnaníðingur
Michael Jackson var hafður að rangri sök og var ekki barnaníðingur Dec 12, 2025 1518 Michael Jackson þarf vart að kynna fyrir nokkrum.. Barnastjarnan úr Jackson 5 sem skein, líkt og Betlehemstjarnan, skærast allra stjarna. Hann skaust fram á sjónarsviðið eins og eldibrandur á barnsaldri og heillaði heimsbyggðina með bræðrum sínum og systrum. En þó Jackson 5 nytu hylli almennings þá var það ætíð Michael sem  lýsti upp stjörnuhiminn og þaut um himinskautin líkt og halastjarna.  Hann
P2: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 2
P2: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 2 Nov 28, 2025 1637 Suðurskautið hefur lengi verið sveipað mikilli dulúð og leyndardóm sem vakið hefur forvitni og furðu margra. Þetta ógnarstóra landsvæði sem er að mestu leyti hulið ís er óðafjarri öðrum löndum og svo virðist sem enginn búi á þessu annars gríðarstóra og auðuga landsvæði. Þó svo að þó nokkur lönd hafi reynt að gera tilkall til þess að eignast landið virðist svo vera sem að á einhverjum tímapunkti ha
P1: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 1
P1: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 1 Nov 14, 2025 1496 Það má vera að sumir kunni að halda að Suðurskautslandið sé ekkert annað en auðn, ís og mörgæsir. En svo eru til þeir sem trúa því staðfastlega að mikil leyndarmál og heill huliðsheimur sé falin á suðurskautinu og að aðgengi að Suðurpólnum sé jafn takmarkað og það er til þess að fela risastór leyndarmál sem eru talin hættuleg almenningi. Huldar stórborgir falinna heimsvelda, gífurlega tæknivæddar

Recommended