Home Podcasts Bílar, fólk og ferðir
Bílar, fólk og ferðir

Bílar, fólk og ferðir

Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli. 57 Episodes Feb 28, 2026

Rally Palli fær góða gesti í heimsókn til að spjalla um alls konar ferðir fólks á bílum, bæði ferðir í óbyggðum, erlendis, áætlanaferðum vöruflutningabílstjóra og hópferðamanna fyrr á tímum. Hlaðvarpið er sett upp til að heiðra minningu frumkvöðlana og minna á notagildi bílsins.

Episodes

#58 - Ómar Friðþjófsson
#58 - Ómar Friðþjófsson Feb 28, 2026 01:54:52 Ómar Friðþjófsson er sögumaður af guðs náð og hér segir talar hann um hvernig ferðamennskan er svo mikilvæg í lífi margra, td frá pabba sínum sem fór 1946 á Dyngjujöklul á sínum Willisjeppa, ástæðum þess er hann sjálfur er svo háður ferðalögum, en megin hluti þáttarins fór í að tala um einstaka "jeppaferð" með góðum félögum, þar sem ekið var m.a. á ís á hinu stóra Mackenzie fljóti, um ób
#57 - Hlynur "Sæti" Bragason
#57 - Hlynur "Sæti" Bragason Feb 10, 2026 01:01:38 Gleðigjafinn og gæðadrengurinn Hlynur Bragason frá stór Fellabæjarsvæðinu er gestur minn að þessu sinni. Gaf sér tíma í þessari bæjarferð og segir hér sögu sína á góðan og skemmtilegan hátt. Kappinn er alltaf kallaður Hlynur Sæti og ber nafnbótina vel.
#56 - Halldór Jónsson / Dóri Tjakkur
#56 - Halldór Jónsson / Dóri Tjakkur Feb 7, 2026 01:10:05 Hann Halldór Jónsson, betur þekktur sem Dóri Tjakkur er einn af okkar alreynslumestu ökumönnum þessa lands. Hefur td starfað í 41 ár við að aka gámum um Höfuðborgarsvæðið. "Allir þekkja Dóra og bílinn hans", enda með eindæmum natinn við þrif og hafa allar perur í lagi, svo það sé nú sagt. Klárlega fyrirmynd margra yngi ökumanna í bransanum. Dóri fer hér vel yfir feril sinn í aksri f
#55 - Ómar Jóhannsson
#55 - Ómar Jóhannsson Jan 18, 2026 02:11:46 Við Ómar Jóhannsson áttum langt og mikið spjall um allskonar kvisti, þar sem bílar, fólk og ferðir koma við sögu. Síðustu árin hefur hann verið ökumaður hjá Líflandi en lengst af var hann með eigin bíl í rekstri á Sendibílastöðinni Þresti. Óhætt er að segja að Ómar hefur komið víða víð í allskonar akstri og segir hér skilmerkilega frá.
#54 - Ólafur Þór Erlingsson / Óli Skrjóður
#54 - Ólafur Þór Erlingsson / Óli Skrjóður Jan 9, 2026 01:01:27 Ólafur Þór Erlingsson vörubílstjóri á Þrótti er fyrsti gestur ársins 2026. Alltaf kallaður Óli Skrjóður, en það nafn festist á hann á unga aldri á Reykhólum. Óli er lífsglaður að eðlisfari og við förum hér hratt yfir málin en gleymdum örugglega fullt af sögum.
#53 - Kerlingafjallaferð í júní 1978
#53 - Kerlingafjallaferð í júní 1978 Dec 28, 2025 00:18:14 Þáttarstjórnandi les hér stuttar endurminningar sínar um skíðaferð í Kerlingafjöll í júní 1978. Fyrst birt á facebók í desember 2012.
#52 - James Goodall Alexandersson
#52 - James Goodall Alexandersson Dec 13, 2025 01:13:35 Það er langt síðan þáttarstjórandin bað James Goodall Alexandersson um að koma í þáttinn og segja ma frá akstri sem hann tók að sér fyrir Rauða Krossinn fyrir rúmum 30 árum síðan í stríðinu í fyrrum Júgóslavíu.James sem hefur afar gott orðspor sem ökumaður og i raun algjör ljúflingur, segir hér afar skilmerkilega frá þessu viðburðaríka tímabili í lífi hans.
#51 - Arngrímur Hermannsson
#51 - Arngrímur Hermannsson Dec 6, 2025 01:29:43 Allt áhugafólk um ferðir þekkja frumkvöðullinn Arngrím Hermannson, en hann er gestur þáttarins að þessu sinni. Addi er klárlega einn af okkar allra bestu fjallamönnum og hefur staðið fyrir eða komið að flestum mest krefjandi leiðöngrum um hálendi Íslands. Hér í þessum þætti er td farið vel yfir ferð sem var kölluð, "Yfir jöklanna þrjá" sem farin var fyrst á skíðum árið 1975 og svo af
#50 - Úr dagbók Sigurjóns Jóhannessonar frá Húsavík
#50 - Úr dagbók Sigurjóns Jóhannessonar frá Húsavík Nov 22, 2025 00:40:32 Hann Björn Sigurðsson frá Húsavík sendi mér nokkrar síður úr dagbók Sigurjóns Jóhannessonar, er snýr að ferðalagi Ferðafélags Húsavíkur hingað suður um Kjöl í júlí 1959. Svo var farið haldið heim á leið um Sprengisand, en þá þurfti að aka yfir Hófsvað í Tungná, sem var mikill farartálmi, enda löngu áður en brýr og virkjanir komu á svæðið. Um er að ræða fróðlega, ítarlega og skemmtilega frásögn er
#49 - Tvíburarnir Pétur og Eggert
#49 - Tvíburarnir Pétur og Eggert Nov 16, 2025 00:55:39 Þeir Pétur Hoffmann og Eggert Sigurðs Karlssynir eru viðmælendur þáttarins að þessu sinni.  Flestir muna eftir þeim tvíburum að aka rútumseinni árin hjá Norðurleið, en sem ungir menn störfuðu þeir við alls konar akstur bíla og tækja, td hjá Vestfjarðarleið, Ræktunarsambandi Dalamanna, Vegagerðinni,Kaupfélagi Hvammsfjarðar og víðar.  Þessir strákar úr Steingrímsfirðinum hafa engu gleymt.
#48 - "Banaslys" á Óshlíðinni II
#48 - "Banaslys" á Óshlíðinni II Jun 2, 2025 01:01:51 Eins og talað var um í síðasta þætti, þá var ákveðið að Snorri S Konráðsson bifvélavirkjameistari myndi koma í heimsókn þar sem hann myndi fara vel yfir sín gögn og þær niðurstöður sem voru kynntar í þætti Sigursteins Mássonar um Íslensks Sakamál.Snorri segir í fyrstu örstutt frá sínum bakgrunni í fræðunum og frá reynslu sinni vegna starfa sinna í 14 ár við að rannsaka vettvang og bíla þar sem sly
#47 - "Banaslys" á Óshlíðinni I
#47 - "Banaslys" á Óshlíðinni I May 29, 2025 01:38:53 Eftir nýlegan sjónvarpsþátt Sigursteins Mássonar um Íslensk Sakamál, þar sem fjallað var ítarlega um útafakstur leigubíls á Óshlíð í september 1973, gerði þáttarstjórnandi örsuttan pistil á facebók sem fékk mikil viðbrögð. Í framhaldi af þeim viðbrögðum þótti einsýnt að saga þess látna yrði að koma enn betur fram, enda allt of mikið af rangfærslum í lögregluskýrslum, auk þess sem að heilbrigð skyn

Recommended