Home Podcasts Víkings hlaðvarpið
Víkings hlaðvarpið

Víkings hlaðvarpið

Víkingur Media 63 Episodes Jun 26, 2026

Allt milli himins og jarðar sem tengist Víking og/eða fótbolta.

Episodes

Hverfisfélagið eins og kirkja
Hverfisfélagið eins og kirkja Jun 26, 2026 00:51:27 Í síðasta þætti Meðal fólks á Rás 1 var fylgst með undirbúningi stærsta leiks sumarsins í Bestu deild karla, þegar Víkingur tók á móti Knattspyrnufélagi Reykjavíkur síðasta þriðjudag.Sverrir Geirdal, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, segir að mikið hafi verið gert til að fá fólk á völlinn sem hafi ekki brennandi áhuga á fótbolta. Félagið geti í dag gegnt því hlutverki sem kirkjan gegndi áðu
Einar Guðnason
Einar Guðnason Jul 21, 2025 01:16:22 Bjarki og Hörður settust niður með Einari Guðna og ræddu fótbolta, Black Sabbath, Svíþjóð og allt þar á milli.Einar Guðnason er tók nýlega við kvennaliði Víkings og þó flestir Víkingar viti hver hann er þá vildum við aðeins kynnast honum betur. Hvað er Einar búinn að vera að gera síðustu ár? Hvaðan kemur hann og hvernig fótbolta vill hann spila?Þú einfaldlega verður að hlusta. ❤️🖤
Tómas Þór og Halldór Smári Sigurðsson
Tómas Þór og Halldór Smári Sigurðsson Mar 29, 2025 00:46:39 Eftir áratugi í treyjunnni, 464 leiki, 2 Íslandsmeistaratitla, 4 bikara, Evrópuævintýri og ótrúlegt magn af Hamingju segjum við takk við Halldór Smára Sigurðsson. Herra Víkingur nær alls ekki utan um allt sem þú hefur gefið félaginu okkar. Takk Halldór Smári ❤️🖤
Tómas Þór og Arnar Gunnlaugsson
Tómas Þór og Arnar Gunnlaugsson Jan 18, 2025 00:50:02 Tómas og Arnar fara yfir 6 ár af Hamingju í Hamingjunni. Tómas spyr Arnar spjörunum úr og sýnir honum myndir frá mikilvægum augnablikum á ferli Arnars sem þjálfara Víkings. Takk fyrir allt Arnar og gangi þér vel á nýjum vettvangi. Áfram Víkingur og áfram Ísland. 🖤❤️ Lag í byrjun er eftir Futuregrapher / Árna Grétar og heitir 303 Melody flow. Mælum með að kíkja á þann frábæra listamann. ❤️
Fyrirmyndirnar okkar: Sveindís Jane Jónsdóttir
Fyrirmyndirnar okkar: Sveindís Jane Jónsdóttir Jun 28, 2024 01:27:17 Fyrirmyndirnar okkar - þáttur 6 Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Wolfsburg og íslenska landsliðsins kíkti í heimsókn í Víkings stúdíóið. Hver er Sveindís Jane? Hvernig náði hún markmiðum sínum? Hvert er uppáhalds augnablikið á ferlinum hingað til? Í hvernig takkaskóm spilar Sveindís og margt fleira! Það var sannur heiður að fá að setjast niður með Sveindísi og ræða um það sem við elskum jú öll,
Fólkið okkar - Arnar Gunnlaugsson
Fólkið okkar - Arnar Gunnlaugsson Mar 19, 2024 01:30:45 Loksins náðum við í skottið á Arnari Gunnlaugssyni þjálfara meistaraflokks karla og stilltum honum upp fyrir framan hljóðnemann í Víkings stúdíóinu. Það er mjög viðeigandi að Hörður og Bjarki hafi grillað Arnar í 90 mínútur og fengu aðeins að kynnast manneskjunni Arnari Gunnlaugssyni betur. Aðeins öðruvísi viðtal en Arnar er kannski vanur, en dómur féll strax eftir viðtalið : "Strákar, þetta
Fólkið okkar - Þórarinn Einar Engilbertsson
Fólkið okkar - Þórarinn Einar Engilbertsson Mar 12, 2024 00:58:49 Serían "Fólkið okkar" heldur áfram. Hér fáum við að kynnast fólkinu okkar sem gerir allt nema að spila fótboltaleikina sjálfa. Hörður og Bjarki fengu Þórarinn Einar Engilbertsson (Tóta) í heimsókn og ræddu hvað þjálfarastarfið felur í sér og hver sýn Tóta er á þjálfun í yngri flokkunum.
Stelpurnar okkar : Gígja og Rakel
Stelpurnar okkar : Gígja og Rakel Mar 6, 2024 00:55:00 Stelpurnar okkar - Season 2 - Þáttur 1 Bjarki og Hörður fengu tvo leikmenn meistaraflokks í heimsókn. Gígja Valgerður Harðardóttir var byrjuð að spila fótbolta í meistaraflokki áður en Rakel Sigurðardóttir fæddist. Farið var yfir ferilinn, hvernig er að vera Víkingur, hvernig tilfinningin var fyrir Rakel að vera í stúkunni á sjálfum Bikarúrslitaleiknum þar sem hún hélt með Breiðablik og margt mar
Uppgjörið - John og Kristó
Uppgjörið - John og Kristó Nov 30, 2023 01:19:12 Hörður og Bjarki náðu tali af John Andrews og Kristófer Sigurgeirssyni og fóru yfir stöðuna hjá Meistaraflokki kvenna. Í þættinum er meðal annars að finna : Hvernig fór sumarið 2023? Var John sáttur með árangurinn? Af hverju við Víkingar eigum ekki leikmann í A landsliði kvenna Yngri flokka þjálfun Gerðum smá grín að Kristó Mikil enska töluð af því að John krefst þess að öll viðtöl séu á en
Fólkið okkar - Viktor Bjarki Arnarsson
Fólkið okkar - Viktor Bjarki Arnarsson Oct 5, 2023 01:04:14 Serían "Fólkið okkar" er komin af stað. Hér fáum við að kynnast fólkinu okkar sem gerir allt nema að spila fótboltaleikina sjálfa. Það var því heldur betur við hæfi að hitta á Viktor Bjarka sem tók nýlega við starfi yfirþjálfara yngri flokka Víkings. Viktor er Víkingur í húð og hár en kom víða við á ferlinum sem leikmaður og hefur undanfarin ár starfað við þjálfun. Hörður og Bjarki náðu
Uppgjörið með Bjarka og Herði
Uppgjörið með Bjarka og Herði Sep 28, 2023 01:33:36 Bjarki og Hörður mættu "under the lights" í Víkings stúdíóið og fóru yfir tímabilið 2023 hjá Meistaraflokki kvenna. Farið var yfir Lengjubikarinn, Lengjudeildina og að sjálfsögðu Mjólkurbikarinn. Hver var markahæst í sumar? Hver átti flestar stoðsendingar? Hver fékk flest gul spjöld? Njótið vel.
Eftirpartý: 2-2 jafntefli við KR
Eftirpartý: 2-2 jafntefli við KR Sep 20, 2023 00:09:24 Markús Árni fékk til sín þá Gísla Gottskálk & Þórð Ingason eftir 2-2 jafntefli við KR á heimavelli hamingjunnar í kvöld.

Recommended