Home Podcasts Fjármálakastið
Fjármálakastið

Fjármálakastið

Fjármálakastið 107 Episodes Jul 20, 2026

Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.

Episodes

Þáttur 112 - Rætt um horfur í ferðaþjónustunni við framkvæmdastjóra SAF
Þáttur 112 - Rætt um horfur í ferðaþjónustunni við framkvæmdastjóra SAF Jul 20, 2026 00:49:09 Í þessum þætti er rætt við Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um stöðu og horfur í greininni. Rætt er um fyrirhugaðar skattahækkanir stjórnvalda á greinina, boðaða neytendamarkaðssetningu, hvernig þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst blasir við greininni og margt fleira.-------------Þátturinn er í samstarfi við Reykjavík Fintech.
Þáttur 111 - Spjall við Val Þór, meðstofnanda Taktikal
Þáttur 111 - Spjall við Val Þór, meðstofnanda Taktikal Jul 17, 2026 00:41:50 Í þessum þætti er rætt við Val Þór Gunnarsson meðstofnanda tæknifyrirtækisins Taktikal. Rætt er um vöxt og rekstur fyrirtækisins, nýsköpunargeirann, þá hröðu tækniþróun sem er að eiga sér stað um þessar mundir og hvaða áhrif hún mun hafa á rekstur fyrirtækja og margt fleira.----------Samstarfsaðili þáttarins er Reykjavik Fintech.
Þáttur 110 - Viðtal við Hermann Guðmundsson forstjóra Kemi
Þáttur 110 - Viðtal við Hermann Guðmundsson forstjóra Kemi Jul 9, 2026 00:27:51 Í þessum þætti er rætt um rekstur og vöxt fyrirtækisins Kemi sem Hermann Guðmundsson hefur stýrt um langt skeið. Rætt er um nýleg kaup Kemi á Fálkanum-Ísmar, vaxtartækifærin í geiranum á næstunni, nálgun Hermanns á rekstur og stjórnun fyrirtækja, efnahagsástandið og margt fleira.Vek athygli á fréttabréfi Fjármálakastsins en lesa má eldri bréf á fjarmalakastid.substack.com.Samstarfsaðili þáttarins
Þáttur 109 - Viðtal: Fjártækni á Íslandi í sókn
Þáttur 109 - Viðtal: Fjártækni á Íslandi í sókn Jul 2, 2026 00:42:34 Í þessum þætti er rætt við Gunnlaug Jónsson stofnanda og stjórnarformann Reykjavík Fintech. Rætt er um vöxtinn sem hefur átt sér stað í fjártæknigeiranum, einkum að undanförnu, starfsemi Fjártækniklasans, tækifærin í fjártækni og á sviði gervigreindar og margt fleira.Ég vil einnig vekja athygli á nýju fréttabréfi Fjármálakastsins. Hægt er að lesa bréfin og gerast áskrifandi á fjarmalakastid.substa
Þáttur 108 - Staða lítilla og meðalstórra fyrirtækja rædd
Þáttur 108 - Staða lítilla og meðalstórra fyrirtækja rædd Jun 19, 2026 00:42:11 Í þessum þætti er rætt um stöðuna í rekstrarumhverfi lítill og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um skýrslu sem unnin var af Reykjavík Economics fyrir Íslandsbanka sem ber heitið Óvissa út við sjóndeildarhring: Efnahagur lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um þær áskoranir og tækifæri sem fyrirtækin standa frammi fyrir um þessar mundir, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á þeirra starfsemi, v
Þáttur 107 - Efnahagsspjall við Kára hagfræðing hjá Arion
Þáttur 107 - Efnahagsspjall við Kára hagfræðing hjá Arion Jun 11, 2026 00:39:53 Í þessum þætti er farið um víðan völl yfir efnahagsmálin. Kári Friðriksson hagfræðingur hjá Arion greiningu er gestur þáttarins. Í þættinum er rætt um verðbólguhorfur, hagvaxtarhorfur, fasteigna og byggingamarkaðinn, hvaða efnahagslegu áhrif innganga Íslands í ESB myndi hafa, atvinnuleysi, stöðuna á vinnumarkaði og fleira.
Þáttur 106 - Efnahagsspjall við Agnar Tómas Möller
Þáttur 106 - Efnahagsspjall við Agnar Tómas Möller May 21, 2026 00:30:59 Í þessum þætti er rætt um ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti um 25 punkta. Einnig er rætt um efnahagsmálin, Opinber fjármál, sjávarútveginn og skuldabréfamarkaðinn.
Þáttur 105 - Viðtal við Hreiðar Má Hermannsson, forstjóra Eikar
Þáttur 105 - Viðtal við Hreiðar Má Hermannsson, forstjóra Eikar May 8, 2026 00:34:42 Í þessum þætti er rætt við Hreiðar Má Hermannsson forstjóra fasteignafélagsins Eikar. Rætt er um stöðu og horfur í rekstri Eikar, atvinnuhúsnæðismarkaðinn, horfur í efnahagsmálum og fleira.
Þáttur 104 - Efnahagsspjall með Unu Jónsdóttur hjá Landsbankanum
Þáttur 104 - Efnahagsspjall með Unu Jónsdóttur hjá Landsbankanum Apr 21, 2026 00:25:11 Í þessum þætti er rætt um nýja Hagspá Landsbankans og efnahagsmálin. Rætt er við Unu Jónsdóttur aðalhagfræðing Landsbankans.
Þáttur 103 - Spjall um tækni og hugverkaiðnaðinn
Þáttur 103 - Spjall um tækni og hugverkaiðnaðinn Apr 17, 2026 00:27:43 Í þessum þætti er rætt við Sigríði Mogensen, sviðstjóra iðnaðar og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins. Rætt er um nýja atvinnustefnu stjórnvalda, framþróun á sviði gervigreindar og vöxt hugverkaiðnaðarins en Samtök iðnaðarins gáfu út skýrslu um það málefni á dögunum.----------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid
Þáttur 102 - Viðtal við Andra Þór Guðmundsson
Þáttur 102 - Viðtal við Andra Þór Guðmundsson Mar 26, 2026 00:32:06 Í þessum þætti er rætt við Andra Þór Guðmundsson sem starfaði lengi vel sem forstjóri Ölgerðarinnar sem nú heitir Bera. Rætt er um þær breytingar sem eru í farvatninu hjá fyrirtækinu, vaxtartækifærin hjá fyrirtækinu, nýtt hlutverk Andra Þórs innan fyrirtækisins, efnahagshorfur og ýmislegt fleira.----------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid
Þáttur 100 - Praktísk ráð í rekstri frá Sólveigu í Strata Advisory
Þáttur 100 - Praktísk ráð í rekstri frá Sólveigu í Strata Advisory Feb 20, 2026 00:27:33 Í þessum þætti er rætt við Sólveigu Gunnarsdóttur fjármálaráðgjafa og eiganda Strata Advisory. Rætt er um rekstur fyrirtækja, námskeiðið Praktík í rekstri sem ráðgjafarfyrirtækið stendur fyrir, efnahagsástandið, hvernig skattahækkanir ríkisstjórnarinnar eru að hafa áhrif á fyrirtæki í rekstri og margt fleira.--------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalak

Recommended