
Vendipunkturinn með Ásgeiri Ólafs
Vendipunkturinn er splunkunýtt hlaðvarp þar sem viðmælendur fara til þess tíma þar sem líf þeirra breyttist. Ef þú vilt að ég hringi í einhvern, sendu hugmyndina þína á asgeirpodcast@gmail.com.
Episodes
Gísli Einars og Landinn S1 E10
Lokaþáttinn í fyrstu seríu af Vendipunktinum fær Gísli Einarsson, fjölmiðlamaður. "Multimaðurinn" eins og sumir kalla hann. Hann er skemmtilegur og hefur komið víða við. Hann segir frá því hvernig Landinn varð til, og hvers vegna hann en ekki einhver annar landaði djobbinu. Hann segir frá símtali sem hann fékk sem var vendipunktur fyrir hann. í 16 ár hefur Landinn verið á skjánum, Gísli líka, og
Snorri Ásmunds S1 E9
Hvar skal byrja þegar maður talar við Snorra Ásmunds. Hann er listamaður í húð og hár, hefur boðið sig fram til forseta, hann ætlaði að verða formaður sjálfstæðisflokksins. Hann er talinn vera færasti píanóleikari Evrópu og hann stofnaði tvö pólítísk öfl sem boðið hafa fram á Akureyri sem Kattarframboðið og sem Vinstri hægri snú í Reykjavík. Að auki er hann mikill dýravinur og sérstaklega tengir
Sigurbjörn Árni Arngrímsson S1 E8
Bjössi er mikill sögumaður. Hann á vendipunkt sem þig langar að heyra og svo allt hitt sem hann hefur að segja. Mikið roooosalega er gaman að tala við sumt fólk.
Takk fyrir að hlusta á Vendipunktinn.
Karl Ágúst Úlfsson S1 E7
Kalli segir okkur frá uppsetningu Harrýs og Heimis sem hefur verið sýnt nú fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúskjallaranum. Hann á einn mikilvægan vendipunkt í lífinu þar sem hann segir okkur frá því að hann sé mögulega ástæða þess að hann varð leikari. Hvað ef þetta hefði ekki gerst og geta aðrir tekið þetta sér til fyrirmyndar? Endurskoðar maður líf sitt þegar maður veikist? Eigum við von á Karli í há
María Lena, M - Fitness S1 E6
Maríu Lenu hefur tekist á aðeins níu árum að gera hugmynd sína að þeim veruleika að vera með fimmtán starfsmenn, 200 fermetra verslun og 500 fermetra lager af vörunum sínum M - Fitness. M - Fitness nafnið varð hins vegar til löngu áður en fatnaðurinn fór af stað. Af hverju gengu buxurnar hennar, það fyrsta sem hún setti á markað, svona vel? Hvað gerði hún öðruvísi? Hvernig tókst henni að gera þ
Bjarni Fritzson S1 E5
Ég hringdi í Bjarna eldsnemma og hann var í banastuði eins og alltaf. Bjarni segir okkur sína vendipunkta í lífinu, og útskýrir fyrir okkur þegar hann fékk símtalið sem gerði það að verkum að hann er nú í framboði. Af hverju valdi hann 8. sætið? Hann svarar því einnig og útskýrir það vel.
Orri óstöðvandi fær frí næstu jól í fyrsta sinn í 8 ár, og skúbbar Bjarni af hverju og hvað það er sem hann e
Ragga Nagli S1 E4
Ragnhildur Þórðardóttir, eða Ragga Nagli í frábæru viðtali þar sem hún rifjar upp vendipunkta í sínu lífi.
Hún talar líka um allskonar.
Voðalega er gaman að tala við skemmtilegt fólk. Ragga er það. Hún er skemmtileg.
Sendu þínar hugmyndir til mín á viðmælendur á asgeirpodcast@gmail.com. Eða kannski langar þig vera með?
Takk fyrir að hlusta á Vendipunktinn.
Birgir Örn Steinarsson / Biggi Maus S1 E3
Biggi er í fríi á mánudögum. Hann er að skrifa handrit fyrir sænskan leikstjóra. Hann skrifaði Vonarstræti og Lof mér að falla með Badda Z. Margir vita það ekki.
Sorglegur og magnaður vendipunktur í lífi Bigga átti sér stað árið 2003 sem leiddi hann þangað sem hann er í dag. Virkilega gott að heyra þetta Biggi. Takk.
Ef þú vilt vera með eða vilt að ég hafi samband við einhvern ákveðinn aðila, sen
Felix Bergsson S1 E2
Í öðrum þætti segir Felix okkur frá sínum vendipunkti í lífinu. Það gæti tengst Greifunum, Rúv eða einhverju allt öðru. Hann segir okkur líka frá skegginu. Ég Spurði Felix hvort hann væri alltaf jákvæður, hann svaraði því mjög skýrt.
Deildu endilega þættinum og leyfðu öðrum að hlusta og sendu mér hugmyndir að viðmælendum á asgeirpodcast@gmail.com
Takk fyrir á hlusta á Vendipunktinn og þúsund þak
Óðinn Svan - S1 E1
Óðinn Svan hætti á RÚV, byrjaði að pípa og fer nú sem oddviti fram fyrir L- listann á Akureyri í kosningunum á Akureyri. Það er ekkert sem þessi gæi getur ekki gert held ég. Virkilega gott og einlægt spjall þegar hann segir okkur frá vendipunktinum í sínu lífi og frá mjög erfiðri stöðu sem fjölskylda hans glímir við í dag. Jákvæðni og gott hugarfar umvefur þennan dreng.
Takk fyrir að hlusta!
Ef











