Home Podcasts Auðnast
Auðnast

Auðnast

Ghost Network® 31 episodes Latest May 13, 2026

Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum, en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Markmiðið er að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks með áherslu á sálfélagslegt öryggi, sjálfbærni og heilbrigð samskipti.

Episodes

Þegar eitthvað vantar upp á - Um tómleika í nánum samböndum May 13, 2026 54:48 Þátturinn fjallar um þá tilfinningu sem mörg pör kannast við en fá tala opinskátt um: Að vera í sambandi þar sem allt virðist í lagi á yfirborðinu en samt ríkir fjarlægð og einmanaleiki. Við skoðum hvað gerist þegar nándin dofnar hægt og rólega, hvers vegna pör detta úr takti og hvernig daglegt álag, samskiptamynstur og óuppfylltar þarfir geta skapað fjarlægð. Við ræðum hvað rannsóknir segja um te
Stjórnun í breytingum: Að leiða í gegnum óvissu og krefjandi tíma Apr 27, 2026 38:51 Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvernig stjórnendur geta leitt fólk í gegnum óvissu, breytingar og erfiða tíma. Þær skoða hvað gerist hjá fólki þegar tilfinningin um öryggi breytist, hvaða mistök stjórnendur gera gjarnan og hvað rannsóknir segja um traust, skýrleika, sýnileika og samkennd í stjórnun. Þátturinn er fyrir stjórnendur, mannauðsfólk og alla sem vilja skilja betur hvernig hægt
Þættinum hefur borist bréf: Álag, stjórnun og ábyrgð á vinnustað Mar 24, 2026 44:21 Í þessum þætti svörum við spurningum frá hlustendum um margvíslegar áskoranir á vinnustað. Við förum beint í það sem raunverulega mótar líðan og samskipti; kulnun, álag, stjórnun og ábyrgð. Við ræðum: Er kulnun stundum misskilin sem skortur á þrautseigju? Eru stjórnendur gerðir ábyrgir fyrir líðan starfsfólks? Hvers vegna eru konur ekki teknar jafn alvarlega í ágreiningi? Hvað á stjórnandi að ge
Einelti og óheilbrigð samskipti á vinnustað Feb 23, 2026 44:48 Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna um óheilbrigð samskipti og einelti á vinnustað, hvernig það verður til og í hvers konar starfsumhverfi það þrífst. Þær fara yfir muninn á ágreiningi og einelti, ræða valdaójafnvægi og mynstur í samskiptum og skoða hvaða þættir í menningu og stjórnun geta ýtt undir eða dregið úr áhættu. Að lokum fara þær yfir hvað er hægt að gera þegar mál koma upp og hvaða
Reiði – ógn eða leiðarvísir? Feb 2, 2026 46:23 Reiði er oft misskilin tilfinning bæði í einkalífi og starfi. Í þessum þætti kryfjum við reiðina og hvernig hún tengist mörkum, sjálfsvirðingu, valdaleysi og tengslum – og af hverju hún situr svona lengi í okkur. Við skoðum fræðin og hagnýt skref til að vinna með reiði á uppbyggilegan hátt.https://www.harrietlerner.com/https://hbr.org/2013/11/emotional-agilityhttps://drdansiegel.com/
Hamingja í vinnu - Markmið eða óraunhæf krafa? Jan 27, 2026 49:32 Hvað þýðir hamingja í vinnu og ertu með raunhæfar væntingar um hamingju? Við skoðum bæði mannlega og fræðilega sjónarhornið og veltum því fyrir okkur hvort hamingja sé frekar orðin krafa en markmið. Við skoðum hvað vísindin segja og kynnum praktískt verkfæri bæði fyrir einstaklinga og stjórnendur.https://skemman.is/handle/1946/40537https://www.mdpi.com/2076-3387/15/9/351
Sjálfstraust Jan 2, 2026 42:32 Hvað er raunverulegt sjálfstraust? Í þessum þætti ræðum við hvað sjálfstraust er, hvernig það mótast og hvernig það getur birst í ólíkum myndum - bæði heilbrigðum og óheilbrigðum. Við skoðum sjálfstraust út frá sálfræðinni, tengslamyndun, fjölskyldumynstrum og lífeðlisfræðinni, með það að markmiði að hjálpa þér að þekkja sjálfstraustið þitt og efla það á heilbrigðan hátt.
Allt sem þú þarft að vita fyrir aðventuna Dec 5, 2025 40:40 Í þessum þætti ætlum við að vera á ljúfu og léttu nótunum - Við förum yfir væntingar, tenglslamyndun og könnum hvers konar aðventutýpa þú ert. Að lokum förum yfir við nokkur atriði sem undirbúa taugkerfið þitt fyrir komandi vikur. Ef þu vilt gera aðventuna enn betri, hlustaðu þá á þennan þátt því hinn raunverulegi undirbúningur hefst með því að virkja sefkerfið. 
Ágreiningur - allt sem þú þarft að vita Nov 27, 2025 50:36 Ef þú vilt skilja ágreining þá er þetta þáttur fyrir þig. Við rýnum í hugtakið, skoðum hvers vegna hann vekur svona sterk viðbrögð og hvernig við getum farið úr forðun yfir í færni. Við ræðum ágreining í vinnu, parsamböndum, vináttu og upprunafjölskyldu og förum yfir hvað er algengast að fari úrskeiðis. Við fyllum á verkfærakassann með hagnýtum aðferðum - meðal annars hvernig er best að bregð
Hver er þinn fjölskylduarfur? Sagan sem mótar samböndin okkar Nov 5, 2025 46:54 Ef þú vilt skilja þig og þín sambönd betur – skaltu hlusta. Í þessum þætti skoðum við hvernig sagan okkar og tengsl í barnæsku hafa áhrif á samskipti og heilsu á fullorðinsárum. Við skoðum líka hvernig gömul mynstur frá fyrri kynslóðum og tilfinningakerfi fjölskyldunnar móta viðbrögð okkar og hafa áhrif bæði á ástarsambönd sem og önnur sambönd í þínu lífi.Lesefni: https://www.amazon.com/Love-Never
Frá innri ró til ytri áhrifa: sjö lykilþættir í leik og starfi Oct 24, 2025 44:12 Við förum yfir sjö hæfniþætti sem gott er að tileinka sér bæði í leik og starfi. Sum vilja kalla þetta mjúka hæfileika – okkur finnst þetta vera mikilvægu hæfileikarnir. Hlustaðu á þáttinn og kannaðu hvort það liggi sóknartækifæri hjá þér.
Bjargráð: Lausnamiðuð, tilfinningaleg og minna gagnleg Oct 1, 2025 45:41 „Bjargráð eru ekki töfrabrögð – þau eru verkfæri. Í þesstum þætti förum við yfir tilfinningamiðuð, lausnamiðuð og minna gagnleg bjargráð, og tölum heiðarlega um það hvernig kynslóðararfurinn og karaktereinkenni hafa áhrif. 

Recommended

Playing