Home Podcasts Bókahillan - Forlagið
Bókahillan - Forlagið

Bókahillan - Forlagið

forlagid 11 Episodes Jul 15, 2026

Bókahillan er hlaðvarp frá Forlaginu um bækur, höfunda, lestur og menningu. Þar fá sögur, hugmyndir og samtöl að njóta sín.

Episodes

Bókahillan | Sólmyrkvar með Stjörnu-Sævari og Villa Neto
Bókahillan | Sólmyrkvar með Stjörnu-Sævari og Villa Neto Jul 15, 2026 2134 Stjörnu-Sævar mætir í spjall til Villa Neto! Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir, sólmyrkva og ýmislegt annað sem vekur forvitni. Einnig fara þeir yfir hvernig best er að undirbúa sig fyrir sólmyrkva, hvernig fylgjast á með þeim á öruggan hátt og tilurð bókarinnar Sólmyrkvar. Sólmyrkvar er ný bók eftir Sævar Helga Bragason með myndskreytingum Elíasar Rúna
Bókahillan I Salka Valka með Auði Jónsdóttur og Unni Ösp Stefánsdóttur - seinni þáttur
Bókahillan I Salka Valka með Auði Jónsdóttur og Unni Ösp Stefánsdóttur - seinni þáttur Jun 11, 2026 2466 Auður Jónsdóttir rithöfundur og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona ræða Sölku Völku eftir Halldór Laxness – eitt af áhrifamestu verkum íslenskra bókmennta. Í þessum tveimur þáttum kafa þær ofan í söguna, persónurnar, samfélagið sem hún lýsir og hvers vegna Salka Valka á enn jafn sterkt erindi við lesendur í dag. Unnur Ösp hefur fært Sölku Völku á svið í nýrri leikgerð sem hún samdi sjálf og flytur,
Bókahillan | Salka Valka með Auði Jónsdóttur og Unni Ösp Stefánsdóttur – fyrri þáttur
Bókahillan | Salka Valka með Auði Jónsdóttur og Unni Ösp Stefánsdóttur – fyrri þáttur Jun 3, 2026 2761 Auður Jónsdóttir rithöfundur og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona ræða Sölku Völku eftir Halldór Laxness – eitt af áhrifamestu verkum íslenskra bókmennta. Í þessum tveimur þáttum kafa þær ofan í söguna, persónurnar, samfélagið sem hún lýsir og hvers vegna Salka Valka á enn jafn sterkt erindi við lesendur í dag. Unnur Ösp hefur fært Sölku Völku á svið í nýrri leikgerð sem hún samdi sjálf og flytur,
Bókahúsið I Tíundi þáttur
Bókahúsið I Tíundi þáttur Dec 21, 2021 3266 Í tíunda þætti segir Hallgrímur Helgason frá öðru bindinu í Segulfjarðarepík sinni um síldarárin miklu, 60 kíló af kjaftshöggum, og talar almennt um skrif, lestur og listsköpun. Hann segist vera að gæla við að skrifa heilan „sextett“ af Segulfjarðarbókum. Áslaug Jónsdóttir, Ólafur Gunnar Guðlaugsson og Rut Guðnadóttir komu svo í „Kryddsíld Bókahússins“, hámuðu í sig síld og kæstan dreka og ræddu s
Bókahúsið I Níundi þáttur
Bókahúsið I Níundi þáttur Dec 17, 2021 3623 Gestir Sverris í níunda þætti eru Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir sem gaf á dögunum út hina hugljúfu og ákaflega vel skrifuðu minningasögu Ilmreyr; Hólmfríður Matthíasdóttir, oft kölluð Úa, sem er útgáfustjóri Forlagsins og hugar vakin og sofin að því að ilmandi nýjar bækur rati til landsmanna; loks leit inn í Bókahúsið Gunnar Theódór Eggertsson sem skrifað hefur fyrsta bindið í Furðufjalli, skemmti
Bókahúsið I Áttundi þáttur
Bókahúsið I Áttundi þáttur Dec 10, 2021 3992 Gestir Sverris í áttunda þætti eru Eliza Reid, sem hefur skrifað hina áhugaverðu og skemmtilegu Sprakkar, bók um íslenska kvenskörunga samtímans; Benný Sif Ísleifsdóttir sem rabbaði um ógleðiskók, sveitaböll og afar líflega skáldsögu sína Djúpið; loks skaust Sverrir í ræktarsal Bókahússins og svitnaði þar ærlega á hamstrahjóli ásamt hinum síhressu kynningar- og markaðsstýrum Forlagsins, þeim Guðrú
Bókahúsið I Sjöundi þáttur
Bókahúsið I Sjöundi þáttur Dec 3, 2021 4816 Gestir Sverris í í sjöunda þætti Bókahússins eru tvíeykið taumlausa Valgerður Benediktsdóttir og Kolbrún Þóra Eiríksdóttir sem eru potturinn og pannan í réttindastofu Forlagsins; Þorgrímur Þráinsson sem miðlar sinni skemmtilega hvetjandi og jákvæðu lífsspeki í Verum ástfangin af lífinu og sendir einnig frá sér ungmennabókina Tunglið, tunglið taktu mig nú í haust; loks reka inn nefið hin hæfileikar
Bókahúsið I Sjötti þáttur
Bókahúsið I Sjötti þáttur Nov 26, 2021 4312 Sverrir Norland leiðir gesti um töfraveröld Bókahússins. Gestir hans í sjötta þætti eru Eiríkur Örn Norðdahl sem var að gefa út stórsnjalla skáldsögu sem nefnist Einlægur Önd; ljóðskáldin mælsku Eydís Blöndal og Þórdís Helgadóttir sem sendu á dögunum frá sér ljóðabækurnar Ég brotna 100% niður (Eydís) og Tanntaka (Þórdís); og loks hinn andríki Sævar Helgi Bragason, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar,
Bókahúsið I Fimmti þáttur
Bókahúsið I Fimmti þáttur Nov 19, 2021 4925 Sverrir Norland er gestgjafi í Bókahúsinu. Gestir hans í fimmta þætti eru Eiríkur Bergmann, sem ræddi nýja bók sína Þjóðarávarpið í stórfróðlegu spjalli sem snerti á þjóðernishugmyndum, popúlisma, upplýsingaóreiðu og ótal öðru; Linda Ólafsdóttir teiknari og Margrét Tryggvadóttir rithöfundur en þær sendu nýlega frá sér hið fallega samvinnuverkefni Reykjavík barnanna auk þess sem Margrét gaf fyrr á
Bókahúsið I Fjórði þáttur
Bókahúsið I Fjórði þáttur Nov 12, 2021 3321 Sverrir Norland leiðir hlustendur um undraveröld Bókahússins. Gestir hans í fjórða þætti eru Hildur Knútsdóttir, sem hræddi úr Sverri líftóruna með nýrri hrollvekju sinni, Myrkrið á milli stjarnanna; Sindri Freyr Steinsson, sem er sérlegur hljóðbókari Forlagsins og ræddi af áhuga og þekkingu um hljóðbækur sem njóta sívaxandi vinsælda þessi misserin; loks leit inn í Bókahúsið Snæbjörn Arngrímsson,
Bókahúsið I Þriðji þáttur
Bókahúsið I Þriðji þáttur Nov 5, 2021 4437 Gestir Sverris Norland í þriðja þætti Bókahússins eru þau Sigrún Pálsdóttir, sem sendir í haust frá sér skáldsöguna Dyngju, og Haukur Ingvarsson, sem gaf á dögunum út ljóðabókina Menn sem elska menn; í heimsókn kom einnig Anna Hafþórsdóttir, sem sló í gegn fyrr á árínu með skáldsögunni Að telja upp í milljón; loks litu til Sverris glæpadrottningarnar Lilja Sigurðardóttir og Jónína Leósdóttir. Nýja
Bókahúsið I Annar þáttur
Bókahúsið I Annar þáttur Oct 29, 2021 3627 Leiðsögumaður og gestgjafi hlustenda í Bókahúsinu er Sverrir Norland. Gestir hans í öðrum þætti Bókahússins eru Emilía Erla Ragnarsdóttir, bókahönnuður hjá Forlaginu; Rán Flygenring, teiknari og rithöfundur, og Gunnar Helgason, rithöfundur og leikari, en þau voru að senda frá sér tvær sprúðlandi fjörugar bækur, Bannað að eyðileggja og Drottningin sem kunni allt nema…; loks settist Einar Kárason

Recommended