Home Podcasts Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu
Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

Benedikt bókaútgáfa 22 episodes Latest Dec 15, 2025

Í Sólinni er rætt um bækur sem koma út hjá Benedikt bókaútgáfu. Höfundar lesa úr og segja frá verkum sínum og góðir gestir spjalla um þýddar bækur.

Episodes

Fríða Ísberg ræðir við Jón Kalman um Þyngsta frumefnið Dec 15, 2025 00:46:04 Fríða Ísberg ræðir við Jón Kalman Stefánsson um fimmtu ljóðabók hans; Þyngsta frumefnið. Upptakan var gerð fyrir framan fullan sal af fólki í Skáldu bókabúð 5. nóvember 2025.
Sigríður Hagalín ræðir Vegur allrar veraldar Dec 8, 2025 00:41:57 Einar Kári Jóhannsson ræðir við Sigríði Hagalín Björnsdóttur um skáldsöguna Vegur allrar veraldar - Skálkasaga, sem er sjálfstætt framhald af Hamingja þessa heims - Riddarasaga. Þau ræða söguna, sagnaritun, heimildir og söguleganskáldskap.
Dagur Hjartarson ræðir Frumbyrjur Nov 25, 2025 00:30:23 Einar Kári Jóhannsson ræðir við Dag Hjartarson um skáldsöguna Frumbyrjur. Um bókina: Það er aðfangadagur og hjónin á Kölduhömrum búa sig undir jólahaldið. Handan áramóta eiga þau von á sínu fyrsta barni og spennan í kviðnum smitar andrúmsloftið. Snjórinn hleðst upp og vegurinn út úr firðinum hefur ekki enn verið ruddur. Þegar kýrin á bænum tekur sótt hrökkva dyr upp á gátt sem ekki verður lokað.
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir Fröken Dúllu: Ævisögu Jóhönnu Knudsen Nov 18, 2025 00:40:59 Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla: Ævisaga Jóhönnu Knudsen sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti
Sif Sigmarsdóttir ræðir Allt sem við hefðum getað orðið Nov 10, 2025 00:36:44 Sif Sigmarsdóttir ræðir við Helgu Ferdinands um skáldsöguna Allt sem við hefðum getað orðið. Bókin fjallar um þrjár konur og leyndarmál sem leiðir þær saman. Blaðamaðurinn Lilja fær veður af því að hún sé líklegt fórnarlamb niðurskurðar. Þegar henni er falið að fjalla um nýútkomna bók um Annie Leifs, eiginkonu tónskáldsins Jóns Leifs, vakna hjá henni grunsemdir. Getur verið að mislyndi skjalavörðu
Fríða Ísberg um Huldukonuna Nov 7, 2025 00:40:45 Fríða Ísberg ræðir við Einar Kári Jóhannsson um skáldsöguna Huldukonan. Þau ræða hvernig er að fylgja eftir fyrstu skáldsögu með bók númer tvö, fortíðarþrá, nútímavæðingu, rómans og margt fleira.
Natasha S. spjallar um Mara kemur í heimsókn Apr 30, 2025 00:34:54 Einar Kári Jóhannsson ræðir við Natöshu S. um nýjustu ljóðabók hennar, Mara kemur í heimsókn. Bókin fjallar um heimkomu til Rússlands eftir langa fjarveru, en er um leið uppgjör við pólitískt og menningarlegt ástand í gamla heimalandi ljóðmælanda.
Fríða Ísberg spjallar um Stargate eftir Ingvild Rishøi Dec 10, 2024 00:55:14 Fríða Ísberg spjallar við Einar Kára Jóhannsson um skáldsöguna Stargate eftir Ingvild Rishøi. Stargate er jólaævintýri frá Noregi sem hefur farið sigurför víða um heim og endaði meðal annars á lista Oprah Winfrey yfir bækur ársins 2024. Fríða ræðir líka um útkomu Merkingar á ensku í sumar, kunningsskap þeirra Ingvild Rishøi og áhuga sinn á bókmenntum frá Norðurlöndum.
Eva Rún Snorradóttir spjallar um Eldri konur Nov 25, 2024 00:41:39 Eva Rún Snorradóttir spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu skáldsögu, Eldri konur. Þau ræða þráhyggju höfundar fyrir eldri konum, bókmenntahátíðina Queer Situations og að kerlingabylting sé leiðin til að breyta heiminum til betri vegar.
Eva Rún Snorradóttir les úr Eldri konur Nov 19, 2024 00:05:14 Eva Rún Snorradóttir les úr sinni fyrstu skáldsögu, Eldri konur.
Þórdís Gísladóttir spjallar um Aðlögun og þýðingar Nov 8, 2024 00:43:13 Þórdís Gísladóttir ræðir við Einar Kára Jóhannsson um ljóðabókina Aðlögun. Þau ræða líka feril Þórdísar og þýðingar hennar á tveimur nýjum bókum, Þessir djöfulsins karlar eftir Andrev Walden og Æsku eftir Tove Ditlevsen.
Þórdís Gísladóttir les úr Aðlögun Nov 8, 2024 00:09:47 Þórdís Gísladóttir les ur sinni sjöttu ljóðabók, Aðlögun.

Recommended

Playing