
Draumaliðið
Heimavöllur íslenskrar knattspyrnusagnfræði. Hlaðvarpið fjallar um sögu og fróðleik um íslenska knattspyrnu.
Episodes
Svona var HM spurningakeppnin: Draumaliðið v. Sýn Sport
LENGJAN - THULE - UPPBOÐ.COM - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Síðasti þáttur Draumaliðsins í þónokkurn tíma er lentur. Við fengum Val Pál Eiríksson og Henry Birgi Gunnarsson til þess að keppa við okkur í spurningakeppni. HM þema, allir léttir. Takk fyrir okkur.
Svona var: HM 2002 - Það var Hyundai sem bjargaði mér
LENGJAN - THULE - DOMINOS - UPPBOÐ.COM - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Svona var HM 1998: Margmiðlun, flogaköst og hvítir bjargvættir
Svona var HM 1998: Margmiðlun, flogaköst og hvítir bjargvættir by Jói Skúli
Svona var: HM 1994 - Rothenberg, Romario og Roberto Baggio
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - UPPBOÐ.COM - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Sem upphitun fyrir Heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum í sumar ætlum við að skoða hvernig nokkrar nútímaknattspyrnukeppnir fóru fram.
Simon Tibbling
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - UPPBOÐ.COM - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Simon Tibbling hefur orðið bikarmeistari í Hollandi og Danmörku, hann hefur unnið gullverðlaun á Evrópumóti U21 árs sem lykilmaður og spilað djúpt inn í frumskógi Amazon á móti John Obi Mikel á Ólympíuleikum.
Svona var: HM - Draumalið HMlegra leikmanna
LENGJAN - THULE- DOMINO'S - UPPBOD.COM - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Við völdum Draumalið skipað af þeim leikmönnum sem okkur finnst HMlegustu leikmenn nútímaknattspyrnu. Því miður komst enginn af þeim leikmönnum sem eru á myndinni í liðið en það má alltaf skoða það seinna.
Gleymdum við einhverjum? Finniði okkar á instagram (@draumalidid) og hendið á okkur skilaboðum!
Svona var: Greenland Cup (1980) - Freyr Ófeigsson, Min Tanaka og kjúklingabúið í Sveinbjarnargerði
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - UPPBOÐ.COM - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Grænlendingar sigldu yfir og spiluðu sína fyrstu landsleiki á sama tíma og Norðurlandið fe´kk lyklana að því að búa til þessa ekta landsleikjastemningu.
skráið ykkur sem viðurkenndan söluaðila á UPPBOÐ.COM og notið kóðann DRAUMA fyrir 25% afslátt af söluþóknun.
Svona var: Valur - Hamburger SV (1979): Keegans kvöld, keisarinn Kikkí og Krankl
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Svona var: ÍA - Dynamo Kiev (1975): Brennsi, Blohkin og Bakarinn
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Svona var: ÍBV - B. Mönchengladbach (1973): Netagerðarmenn frammi, Eyjageðveikin og Jupp Heynckes
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Skoðuðum magnað einvígi Eyjamanna við Mönchengladbach sem dróg fjárhagslegan dilk á eftir sér og rak, samkvæmt söguskýringum þáttastjórnenda, stóran fleyg ofan í samskipti Vestmannaeyinga og meginlandsins sem má enn í dag skynja í öllum samskiptum.
Pétur Marteinsson
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Social Pete fór yfir ferilinn sem inniheldur sögur um flugslys, Hästens rúm, töskuna hans Bruce Grobbelar, enn eina eineltisfrásögnina af Tony Pulis og Rúnar Frey Gíslason á kantinum í 5. flokki Fram.
Svona var: Jólalög, jólatónleikar og fótbolti á parketi ft. Hjörvar Hafliðason
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Hvenær hættu jólin að verða hátíð barnanna og urðu að sumbl festivali fyrir foreldra? Af hverJU þArf þettaaa a veeeraa svonaaaa?
Skoðuðum svo hvernig innanhúsbolti þróaðist úr nostalgíu festivalinu sem er íslandsmótið innanhúss yfir í fútsal hátíð spænskra atvinnumanna. Til þess fengum við í settið Hjörvar Hafliðason og hringdum símtal í einn a
Svona var: Keflavík - Real Madrid (1972) - Golden Ears
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Á grunni Kanaútvarpsins komu gullaldarár Keflavíkur í knattspyrnu og lífinu þar sem þeir mættu Real Madrid og Hafsteinn Guðmundsson, Herra Keflavík, skipulagði magnaða tveggja vikna ferð til Costa del Sol með viðkomu á Santiago Bernabeau.
Björn Daníel Sverrisson
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Björn Daníel Sverrisson, fyrrum knattspyrnumaður og núverandi þjálfari Sindra, fór yfir helvíti margar góðar sögur frá ferlinum og valdi Draumaliðið sitt af uppáhalds samherjunum sínum.
Svona var: Valur - Benfica (1968) - Svarta Perlan í Öskjuhlíðinni
LENGJAN - THULE- DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Svona var: KR - Liverpool (1964) - REYKJAVÍK! REYKJAVÍK! REYKJAVÍK!
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Tókum fyrir tíðaranda, aðdraganda og leik KR og Liverpool, fyrsta leik íslensks liðs í evrópukeppni þegar við fengum Englandsmeistarana til landsins. Maður hefði haldið að hér hefði ríkt gleði og ánægja en hinar ýmsu brennur en sitt sýndist hverjum með hversu góð landkynning það yrði að stilla upp laganema í innherja og nemanda í Menntaskólanum í
Svona var: Draumalið þjóðþekktra nafna
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Við veltum fyrir okkur hliðarveruleika þar sem þjóðþekktir Íslendingar væru leikmenn í efstu deild á Íslandi. Þannig létum við leikskáld standa á milli stanganna, við sáum fyrir okkur Alþingismann í hafsentinum hjá Víkingi Ólafsvík og raunveruleikastjörnu dreifa spilinu við hliðina á honum.
Kærar þakkir til allra sem lögðu hönd á plóg með tiln
Pablo Punyed
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Freddy Adu var eins og Messi, Shahab Zahedi er ekkert eðlilegur góður í fótbolta og af hverju Pablo skipti Nike og Adidas út fyrir Under Armour og Mizuno.
Svona var: One Hit Wonders
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Deep dive manneskjan á bakvið tónlistina þegar kom að plötunni Out of Alda sem tröllreið Bretlandi. Sögur hvunndagshetja eins og Villa á Bensanum, Lady Queen og skartgripasalans geðuga af Skaganum. Fékk þetta fólk nægilega virðingu? Einhverirsennilega alltof mikla, en þeir eru til sem eiga skilið að vera hampað oftar. Takk.
Svona var: Saga og draumalið íslenskra stuðningsmanna
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
B-hliða stuðningsmannalög, handrið, skortur á jarðtengingu og ábyrgð 365, identity chanting, nauðsynleg og baráttan um bongótrommurnar. Við skoðuðum það hverja við þyrftum fyrir erfiðan útileik í Evrópukeppni til þess að #takayfir stúkuna og til að vera tólfti maðurinn.
Svona var: Draumalið Lengjudeildarinnar
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUITUP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Hver er sá mesti? Ekki besta Lengjudeildarliðið síðustu 20 ár, en 100% það mesta. Við fengum mesta spekúlant landsins í 1. deildinni, Elvar Geir Magnússon ritstjóra Fótbolta.net og son Magnúsar Einarssonar til þess að aðstoða okkur við valið. Sennilega í kringum 100 nöfn á blaði, en einungis 11 fengu kallið.
Svona var: West Ham - Af hverju kaupiði ekki Beckham?
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Hello is this Real Madrid? Yes, this is Bjöggi calling. Would you by any chance be interested in securing the services of Julien Faubert on loan?
Steven Caulker
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Best skipaða Draumalið sem nokkurn tímann hefur farið yfir.
Steven Caulker names the best eleven from his career.
Svona var: Stoke Holding SA - Var Stoke djók?
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
"Út vil ek að íslenskum sið, til þess að kaupa fótboltalið".
Í nóvember 1999 mætti íslensk-lúxemborgíska félagið Stoke Holding SA á vettvang í Stoke-on-Trent, rak Gary Megson og hóf vegferð sem átti að enda í ensku úrvalsdeildinni. Það gekk ekki alveg, en what a ride!
Svona var: Danskir leikmenn á Íslandi - Handbolti og Pulsur
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Fórum yfir sögu danskra leikmanna á Íslandi, brautryðjendur og sprengjuna danska vorið 2003. Er hægt að lesa eitthvað í lýð- og landfræðilegan uppruna danskra leikmanna sem koma til Íslands?
Fengum sömuleiðis fróðari menn til að velja uppáhaldsleikmenn ásamt því að velta fyrir okkur upphafi danskra daga hjá verslunarkeðjum la
Alfreð Finnbogason
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Alfreð Finnbogason valdi alvöru Draumalið frá félagsliðaferlinum sínum gjörsamlega stútfullt af gæðum og alvöru leikmönnum.
*Rétt útgáfa* Svona var: Íslenskar innrásir - Hver er Prince Polo knattspyrnunnar?
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
*Það var gömlum þætti uploadað í nótt, hér er nýjasti!*The Icebreakers syntu til sigurs á Suðurnesjunum, James Bett ruddi leiðina fyrir Marcelo og Rene Housemann á meðan Júggarnir sýndu okkur hvernig þetta var gert. Svo kom allt ruslið og mexíkóska kjúklingasúpan.
Svona var: Að smíða Íslandsmeistaralið - hver er sá mesti?
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Eftir einstaklega ströngum reglum smíðuðum við lið stútfullt af týpum og minnum úr Íslandsmeistaraliðum í nútímaknattspyrnu, hinar íslensku bitru b-hliðar. Við fengum lífskúnstnerinn og fjölmiðlamanninn Jóhann Pál Ástvaldsson, einn veikasta launþega Ríkisútvarpsins, til þess að aðstoða okkur við valið. Grindvíkingar, Keflvíkin
Svona var: Íslenskar útrásir - Platvinnumennska og PITSUR
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUIT UP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Hvað er platvinnumennska og hvernig er hún skilgreind? Af hverju gátu Kínverjar ekki búið til sínar einu pizzur og það þurfti hvern einasta pizzabakara á Íslandi til að færa út kvíarnar í Kína fyrir Pizza 67? Við vitum það ekki en giskuðum.
Svona var: Litli Stóri - Mótað af handritsskrifum George Lucas, fullkomnað með móttökum Tómasar Inga
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SUITUP REYKJAVÍK - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Nógu mikið höfum við rætt um sérstaka þætti fyrir hin ýmsu málefni. Við köfuðum loksins ofan í samband litla og stóra, innan sem utan vallar, í gegnum árin. Hvenær hófst þetta? Hvað gerir lítinn að litlum og stórum að stórum? Hvernig skilgreinum við þegar lítill hagar sér eins og stór? Hefur Dinka ættbálkurinn á bökkum Nílar sv
Baldur Sigurðsson
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Smalinn, einn af okkar alvirtustu Pepsimönnum, mætti og fór yfir langan og farsælan feril sinn hjá Völsungi, smá í Þór, Keflavík, Bryne, KR, SonderjyskE, Stjörnunni og FH og minntist á að hann hefði spilað með Fjölni.
Svona var Ísland LOKAÞÁTTUR ft. Kári Árna
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Kári Árna fór með okkur yfir upphaf sitt í landsliðinu á the banter years áður en hann krufði gullaldarárin og varpaði ljósi á þær rannsóknarspurningar sem við vörpuðum fram í upphafi seríunnar.
SVÍ Special: Þróun fjölmiðla og landsliðsins ft. HB Grande
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Henry Birgir Gunnarsson aka HB Grande mætti og fór yfir hvernig það var að vera í fjölmiðlum á dimmustu tímunum og hvernig fréttaumfjöllun hefur þróast frá aldamótum.
Í lokin settum við saman lista af inductees af fjölmiðla Hall of Fame frá Draumaliðinu.
SVÍ Special: HM 2018
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
“The Decision” hjá Tólfunni sem var fyrst og síðast í vinnuferð en ekki skemmtiferð.
Skerjafjarðarskáldið
Ferðasaga pípulagningamannsins um sveitir Rússlands á limmu og lúðrasveitin sem tók á móti Fálkunum.
23 manna leikmannahópur og auðvitað 32 manna starfslið.
“Takk fyrir leikinn Messi”
Var það einhver shaman með hestaleg sem kom Jóa Berg
Svona var Ísland '16-'18: Snúsað til tvö, twittingar og #road2russia
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Landsliðsþynnka einkenndi árið 2016 eftir þennan ótrúlega dag á Arnarhóli. Við skröltum af stað, á sama tíma og ferill Charlie Keller fór á flug. Rúnar Eff sigraði hug og hjörtu þjóðarinnar þegar hann söng um hversdagslegan dag í lífi einstaklings á listamannalaunum og Fókushópurinn stappaði stálinu í íslensku þjóðina eftir erfiðan dag í Finnland
SVÍ Special: EM 2016: Farð inn á teiginn
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Við komumst til fyrirheitna landsins.Tólfan samdi söngskrá. Við fórum að tapa öllum vináttuleikjum. Það var klassískt drama um hverjir áttu að vera í hópnum. Orri var heima og prumpaði á leið til Nice. Joe fór heim á sama tíma og mamma hans skildi ekkert á leikdegi þegar hann labbaði inn með hóp fólks og sagði "ha?? ertu mættur með mat að utan? é
SVÍ '14-'16: Leiðin til fyrirheitna landsins
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Eftir að herramaðurinn úr norðri nánast einn síns liðs kostaði okkur sætið á HM 2014 héldu einhverjir að við myndum slaka á. Sá eini sem slakaði á var Almar þegar hann hékk í kassa í viku. Sigmundur Davíð leiðrétti en fékk svo stígvélið. Take your pick á það besta sem gerðist; skallinn hjá Aroni á móti Tékkum, The Sig á móti Hollandi, endurkoma G
SVÍ 12-14: Lars, Lundi, Landi, Lopapeysa
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 ráðgjöf og bókhald
Óumbeðinn hafði Karlsvagninn samband við útvarpsstöð og sagðist vera með þjóðhátíðarlag sem myndi fanga stemningu landans. Meginatriði lagsins voru hæðir sem enduðu í lægðum sem kallaðar voru ævintýrareisa. Ekkert nær að súmmera upp meira þá tíð sem ríkti frá 12-14, eftir að hafa hafið leik með Skattgrím og endað í gósentíð. Þegar Eggert mætti á
Uppgjör 2000-2012: Fjórar árstíðir á tólf árum
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - R3 ráðgjöf og bókhald
Það var súpergrúppa sem við þurftum að fara yfir og rifja upp sem gleymdist. Að öðru leyti veltum við fyrir okkur af hverju fótbolta landsliðið gæti aldrei verið jafn gott og handbolta landsliðið, þ.e.a.s á sama tíma. Já einmitt svo kom Indriði Sig og sagði milljón geggjaðar sögur, m.a. frá því þegar Freddy Kanoute jarðaði hann.
Dælið í Thule ho
Jón Daði Böðvarsson
LENGJAN - THULE - DOMINOS - SESSION CRAFT BAR - PROTIN.IS - BIRTA CBD - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Svona var EM u21 2011
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - BIRTA CBD - R3 ráðgjöf og bókhald
Árið 2011 greip um sig algjört fjölmiðlafár í kringum Vormenn Íslands, stráka fædda á árunum 1988-1991 og þáttöku þeirra á EM u21 sem haldið var á Jótlandi. Við fórum í gegnum allt ferlið og allt sem gerðist á bakvið tjöldin, eða á veitingahúsum eða karíókístöðum.
Gestur:
Bjarni Þór Viðarsson
Aðrir v
Svona var Ísland YOUTH SPECIAL: EM U17 2012 ft. Emil Ásmunds og Sindri Björns
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - BIRTA CBD - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald
Emil og Sindri eru hluti af hinum mjög svo spennandi 1995 árgangi sem kannski náði ekki því flugi sem búist var við af þeim en djöfull voru þeir seigir sem YOUTH!
Vicente úr Valencia, Sá þýski að skóla til Thomas Frank, Leon Goretzka að hægelda menn, Sindri Björnsson dansandi um ganga Verzlunarskólans
Svona var Ísland '10-'12: Þeir sem eru í bransanum kunna að haga sér í sviðsljósinu
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - BIRTA CBD - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Kreppan er alltumlykjandi en rykið er þó farið að setjast. Við tekur auðn, menningarleg og knattspyrnuleg. Trúðanám nær flugi. Tveir fiskar og 5 brauð sagði Jesús en Óli Jó hafði ekki húmor fyrir einu rauðvínsglasi og tveimur bjórum. Þjóðin reynir að keyra í gegn changing of the guards og íþróttamiðlar
Svona var Ísland ‘08-‘10: Smíðum upp á nýtt
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - BIRTA CBD - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald
Svona var Ísland ‘06-‘08: Landslið plötusnúða og mannlegir harmleikir
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald
EMU17 2007 hidden bonus track: Frásagnir í heild
Í þeirri röð sem þeir heyrast:
Brynjar Benediktsson, eigandi og framkvæmdastjóri Soccer and Education.
Guðlaugur Victor Pálsson, landsliðsmaður og fyrrum samherji Thierry Henry.
Finnur Orri Margeirsson, Bliki og líkamsræktarstöðvareigandi
Frans Elvarsson, Keflvískur Hornfirðingur
Hólmar Örn Eyjólfsson, einn leikjahæsti unglingalandsliðsmaður Norður Evrópu.
Arnar Sveinn Geirsson, bakvörður og
Svona var Ísland YOUTH SPECIAL: EMU17 EURO 2007 ft. Ragnar Þór Gunnarsson frkvstjóri
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
KAGGI MÁS SPECIA. Fórum yfir það þegar Ísland komst í fyrsta skipti á stórmót í gegnum alvöru dæmi, ekki í gegnum það að vinna Lettland og gera jafntefli við Austurríki. Undankeppni, milliriðill og stemning. Gullkynslóðin er mætt en það sem meira er, týnda gullkynslóðin er alls ráðandi og hún er mætt til að skila sk
Svona var Ísland '04-'06: Ást á pöbbnum
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Konan hans Viktors í Sandgerði sagði farir sínar ekki sléttar, af nokkrum sköpuðum hlut. Ívar Ingimars og Jói Kalli voru í sambærilegum hugleiðingum en Ásgeir og Logi gáfust ekki upp. DV setti upp álitshópa við minnsta tilefni og Jakob Bjarnar hélt úti sýningum í hverju blaði. Svona var Ísland '04-'06!
Haldiði áf
SVONA VAR ÍSLAND '02-'04: Tómatsósuslettur og skoska haustið
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF
#WeGoAgain með Atla Mikson, en on a short lease. Gleðitíðindi fyrir Guðmund Felix en einn stórtækasti íslenski slöngueigandinn varð fyrir tjóni. Guðjohnsen tekur við keflinu og Helugson öskrar í andlitið á Kahn. Þjóðin leyfði sér að dreyma eftir að Astro breyttist í Pravda en Valentin Ivanov var á öðru máli.
Svona var Ísland '00-'02: Gísli á Napster og Atli á Parken
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
The Rise and fall of Einar Bárðarson. Ísland á HM innistæðulaust chantað í stúkunni á sama tíma og virtustu blaðamenn DV skrifuðu greinar sem hefðu helst átt heima á folk.is svæðinu þeirra. Gísli Marteinn gjörsamlega elskaði að brjóta á hugverkaréttindum og Eyjólfur Sverris raðaði inn mörkum. Svona var Ísland.
Aron Einar Gunnarsson
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR -DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 Ráðgjöf og bókhald
Aron Einar valdi Draumalið skipað af bestu leikmönnum sem hann spilaði með frá tíma sínum í Þór, AZ Alkmaar, Coventry, Cardiff og Al-Arabi. Frá Louis van Gaal til Neil Warnock og frá Einari Sigþórssyni, bróður Kött Grá Pjé, til Rafinha Alcantara. Allt sviðið var skoðað.
Svona var Ísland ft. Rúnar Kristinsson (1986-2000)
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - PRÓTÍN.IS - DOMINO'S R3 RÁÐGJÖF
Við fengum eina leikmanninn sem spilaði í öllum undankeppnunum sem við höfum farið yfir til þessa upp í stúdíó og bárum undir hann alla þá vitleysu sem við höfum matreitt í síðustu þáttum (Byrjar þarna eftir ca 20 mínútur eftir mikilvæga umræðu um Köttinn Kela, sem þarf meiri ást (brúðan ekki punditinn).
Enduðum þáttinn á að f
Svona var Ísland '98-'00: Elsku drengurinn
Það styttist í aldamót og þjóðin fer að taka sénsa. Þorfinnur Ómarsson og lærisveinar hans í Kvikmyndasjóði byrja að veita Edduverðlaun og leikmenn keppast við að hætta að leika fyrir íslenska landsliðið. Fórum yfir það þegar DV hrútskýrði fyrir þjóðinni hverjir væru gáfuðustu Íslendingarnar og svo var nóg að gera hjá Ingólfi Hannessyni. Á meðan er Guðjón að smíða eitthvað skrímsli og nei þá erum
Svona var Ísland '96-'98: Enter the Dragon
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Við tókum upp þráðinn frá Svona var Sumarið og fórum enn dýpra í Fjölnis sögu Þorgeirssonar og ævintýri hans með "Mel krydd". Hefndarklám var sent inn í stuttmyndakeppni á sama tíma og óveðursskýið hlóð upp regni og eldingum yfir Laugardalnum. Eggert Magnússon hélt þó áfram að skrifa undir hina ýmsu samninga. Chang
Svona var Ísland '94-'96: Ræktun og Roland litli Macintosh
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Benjamin, the Dove kom út og veitingamaður í miðbæ Reykjavíkur barðist í bökkum við að fullnægja kúnnum sínum á þá vegu sem þeir ætluðu. Á sama tíma hafa skin og skúrir aldrei komið og farið jafn oft hjá einum manni og Ásgeiri Elíassyni þrátt fyrir metfjölda af tengiliðum í bakvörðum og Þorgeir Ástvaldsson með myn
Kristján Finnbogason
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Kristján Finnbogason er næst sigursælasti leikmaður íslenskrar nútímaknattspyrnu með 8 Íslandsmeistaratitla með skammstöfunarliðunum ÍA, KR og FH yfir feril sem teygði sig yfir fjóra áratugi frá 1987 til 2016. Draumalið frá manni sem spilaði með báðum risum íslenskrar knattspyrnu á 10. áratugnum. Hverjir fá sénsin
Svona Var Ísland '92-'94: Það eru töfrar
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald
Þjóðin eignaðist að öðrum ólöstuðum mesta Íslandsvin fyrr og síðar þegar georgískur málvísindamaður tók ástfóstri við Ísland og komst með krókaleiðum og Guðna Th. til Íslands. Á sama tíma er Ásgeir Elíasson setjandi tengiliði í bakvarðastöðurnar og prófandi allar útfærslur sem til eru í leit Eggerts Magnússonar að
Svona var Ísland '90-'92: Til hvers?
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 ráðgjöf og bókhald
Úr þýskum aga í sænskan toppfótbolta(?). Eggert mætti, Davíð fær lyklana að flokknum og í Vesturbænum er alls konar vitleysisgangur í boði. Það var sárt að sakna en þjóðin flykktist á bakvið eftirmanninn þegar Spánverjar voru bakaðir. Svo fór Diddi Fiðla til London. Svona var Ísland '90-92.
Svona var Ísland '88-'90: Það sem næstum sást
Jóhannes litli Páll kíkti til landsins og Hjammi þreif bílinn hans. Sigi Held fékk a month of friendlies í ágúst en ekkert meir eftir það. Goðsögn kvaddi og handhafar forsetavalds kíktu í ríkið. Bjórinn fékk að flæða á ný, Valgeir Guðjóns ákvað að ganga heim á öllum vígsstöðum en fyrst og síðast setti geðþekkur Akureyringur 85 þúsund sovéska áhangendur hljóða á Lenínvellinum.
Viðmælendur: Ólafur
Patrik Andersson
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Patrik Andersson picks the best eleven of his former teammates and goes over his career highlights.
Patrik Andersson spilaði með m.a. með Bayern Munchen og Barcelona. Veltum steinum um hvernig er að klúðra víti í úrslitaleik Champions League en samt vinna, hvernig er að skora sigurmarkið með síðustu spyrnu í Bunde
Svona var Ísland '86-'88: Mikið lagt inn, lítið tekið út
LENGJAN - THULE - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR - PRÓTÍN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Svona var Ísland kryfur tíðaranda og stemningu landans tvö ár í senn, sérstaklega í tengslum við þátttöku karlalandsliðs Íslands í fótbolta í undankeppnum stórmóta.
Viðmælendur þáttarins: Sigmundur Ó Steinarsson, geit í blaðamennsku, og Arnór Guðjohnsen, methafi yfir flestar aukaspyrnur á einu tímabili í efstu dei
Svona var sumarið 2014
LENGJAN - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S - PRÓTIN.IS - R3 RÁÐGJÖF OG BÓKHALD
Það hlaut að koma að því að 5 klukkustunda múrinn yrði rofinn en það var einfaldlega nauðsynlegt að koma til skila að Sölvi Fannar lék í tónlistarmyndbandi hljómsveitarinnar Angel at my Table og hverjir fengu mention á kreditlistanum á Algjör Sveppi 4. Metrómenn voru út og Timburmenn komnir inn og mesti timburmaðurinn færð
Svona var sumarið UPPGJÖR 2003-2013 - ft. AGG10 og Brunnurinn
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S
Orri er kominn í tvöfalt barneignarleyfi og Joe er að flytja til Kaliforníu svo til að kveðju með einhverju var ákveðið að hlaða í uppgjör á síðustu 10 þáttum þar sem áherslan var á því sem gerðist after dark í miðbæ Reykjavíkur eða heimapartýjum í Hafnafirði og góðir gestir voru fengnir til að kryfja gullaldarárin. Svona var sumarið verður e
Lárus Orri Sigurðsson
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS
Lárus Orri spilaði í 10 ár í Championship, League 1 og Premir League með Stoke og WBA. Þess utan er hann harðasti Þorpari landsins og fór upp í gegnum yngri flokkanna í sennilega hæfileikaríkasta hópi leikmanna sem þjóðin hefur séð, spilaði 42 A-landsleiki og var næstum því keyptur af Newcastle.
Svona voru viðtölin 2013 - Extremely hidden bonus track
Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Viðar Örn Kjartansson fóru yfir stormasöm ár í neðri hluta Pepsi deildarinnar 2013 hjá Víkingi Ólafsvík og Selfossi.
Hannes Þór Halldórsson
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR
Hannes Halldórsson fór á toppinn sem besti markmaður Shellmótsins 94, á botninn þegar hann eyðilagði á sér öxlina 99, aftur á toppinn þegar hann vann MORFÍS þökk sé Dóra DNA sem talaði of lengi og svo aftur á botninn þegar hann kostaði Leiknisljónin hverfishátíð og skrúðgöngu árið 2004. Frá botninum spyrnti hann sér og stoppaði ekki uppflotin
Svona var sumarið 2013
LENGJAN - SJÓVÁ - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S
Eftir að hafa íhugað það í tvö ár ákváðum við að hleypa lofti út um lúgur(NB - á kolsvörtum rúðum) og gefa South Centralesque rappara sénsinn á að veita okkur fullnægingu í eyrun. Nýtt 5 ára plan er í smíðum á Hlíðarenda og það er lúður klár fyrir þá sem láta röng orð af sinni tungu. Orri fór yfir það þegar hann hægði sér í hnéháa hvönn og up
Hannes Þorsteinn Sigurðsson
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - DOMINOS
Hannes Sig á einhvern ótrúlegasta atvinnumannaferil nokkurs Íslendings sem spannar níu lönd, þám Rússland (að sjálfsögðu sá hluti sem liggur að Tsjetsjeníu) og Kazakhstan þar sem haugur af þekktum leikmönnum, þjálfurum og stjórnarmönnum spila rullu. Í dag er hann svo gerandi magnaða hluti í þýska boltanum sem þjálfari og dósent í knattspyrnufr
Svona voru viðtölin 2012 (Very hidden and secret bonus track exclusive)
Baldur Sig gaf in depth skýringar á innkomu Gary Martin í KR, hruni liðsins eftir Verslunarmannahelgina og gæðin í Birni Jónssyni.
Alexander Scholz fór yfir tíma sinn á Íslandi eins og þegar amma hans hræddi líftóruna úr Kennie Chopart.
Jón Daði rifjaði upp erfitt ár á Selfossi sem þó var gott persónulega og hvernig Hannes Halldórs hefur ekki enn jafnað sig á screamernum sem hann setti í grillið
Svona var sumarið 2012
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S- SESSION CRAFT BAR
Karíókímenningu Íslendinga voru gerð góð skil og enn og aftur gefur Kristmundur Axel út an absolute banger. KRingar fóru í rebrand og 5 ára plan Valsara virtist komið aftur á byrjunarreit. Deildin fékk nýjan villain og það er spurning hvor hendur hefðu ekki átt að koma í handa stað varðandi landsliðsþjálfara íslenska landsliðsins í fótbolta? B
Svona voru viðtölin 2011 Hidden Bonus Track
Viðtöl í fullri lengd vegna sumarsins 2011
Pétur Georg Markan fór yfir ástandið í Víkinni ásamt því að svara spurningum um Power of Love og þrennuna í Efra-Breiðholtinu.
Atli Sigurjónsson ræddi við okkur um gullkynslóð Þórsara, byr undir báða vængi og bakpokaferðalag sitt með Pall Gísla til Hollands á miðju tímabili.
Kjartan Henry fór yfir hina ýmsu hluti á mögnuðu sumri KRinga, ruglaðist reynd
Svona var sumarið 2011
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINOS - SESSION CRAFT BAR
Það birtir alltaf til. Við erum að vinna okkur upp úr öskufallinu og hruninu og upprisan hefst með nýjum morgunþætti FM957. Valsmenn henda 5 ára planinu í ruslið eins og hverri annarri kúkableyju og við fáum eina af okkar fyrstu þjáfaratvennum í íslenska boltann. Óskar Hrafn mætti aftur og hlutir gengu nærri honum en hver verður efnilegasti l
Svona voru viðtölin 2010 - HIDDEN BONUS TRACK
Full length viðtölin við prófessor Ólaf Helga Kristjánsson, Viðar Örn Kjartansson og Arnar Svein Geirsson.
Prófessorinn fór yfir allt milli himins og jarðar sem náði ekki að troða öllu í endanlega útgáfu þáttarins Svona var sumarið 2010 en einfaldlega verður að fara í loftið, eins og til að mynda aðdraganda og örlög fjólubláu peysunnar. Of gott material til að henda því í recycle bin og sömuleiði
Svona var sumarið 2010
LENGJAN - THULE - DOMINOS - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR
Við erum enn að jafna okkur á því að hér varð hrun en í staðinn poppar upp a little fella called Eyjafjallajökul sem skilur Hásteinsvöll eftir í 2000cm öskufalli en Eyjamenn hugsa sér gott til glóðarinnar. Það var rifist alltof lengi um hvort hefði verið skemmtilegra á Karamba eða Oliver og við sviptum hulunni af því að hinn íslenski David Bec
Svona var sumarið 2009
Hér varð hrun! Myntkörfulán. Icesave. Guð blessi Ísland. Lehman brothers, Hvanndals brothers og Tillen brothers áttu misjöfnu gengi að fagna en hverjir stóðu uppi sem sigurvegarar? Allir og ömmur þeirra voru sendir heim, samningum var rift en í gömlum kústaskáp fannst rykfallna bókin YOUTH by Kaggi Más sem prófessorinn reif blaðsíðu úr. Yohanna kom sá og sigraði enn eitt silfrið í sögu þjóðar og V
Svona var sumarið 2008
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSIONCRAFTBAR - DOMINO’S
Við höldum áfram að eyða umfram og óveðursskýið er byrjað að myndast en samt hendum við í biluðustu Eurovision undankeppni allra tíma. Silfur náðist í Peking um miðja nótt eftir djamm á Hverfisbarnum og Heimir Guðjóns fór í nostalgíukast til að styrkja liðið sitt. Kristján Guðmunds bjó til nýjan Bjargvætt í Keflavík en myndi það duga? Logi Ólaf
Svona var sumarið 2007
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION - DOMINO’S.
Íslenska þjóðin hefur aldrei haft það jafn gott. Íslenskar Lúxussnekkjur voru lagðar við Thames, afmæli haldin á Jamaica og leikmenn keyptu sjálfa sig fyrir metfé í Landsbankadeildinni. FH voru með rosalegt lið og gott bakland eftir sigursæl ár, en í Miðbæ og Hlíðum var einhver ástríða að kvikna sem erfitt getur reynst að stöðva. Hundurinn Lúkas fór u
Hörður Magnússon
LENGJAN - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - THULE
Hörður Magnússon vann þrjá gullskóa í röð árin 1989, 1990 og 1991. Það hafði enginn gert í að verða 30 ár og enginn hefur leikið eftir síðan.
Svona var sumarið 2006
Það eru Magni-ficent hlutir að eiga sér stað í íslenska samfélaginu og þjóðin tekur ástfóstri við Gilby Clarke og Dave Navarro. Hetja yfirgefur Vesturbæinn og er staðráðinn í að kenna þeim lexíu og stjórnarmenn halda áfram að reyna að fella Börkinn. Splash TV og MySpace ryðja sér til rúms, Sigursteinn Gíslason semur við leikmann af lagernum hjá Eimskip. Óli Jó þarf að fara í hefilbekkinn og hluste
Svona var sumarið 2005
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO’S
Það myndast gjá milli áskriftarþjónustu sem íslenska ríkið neyðir fólk til þess að kaupa af sér og þjóðar við val á því hvernig skal velja Eurovision lag. Lúðurinn lætur í sér heyra í Vesturbænum og Börkur er tekinn af appelsínum á Hlíðarenda með flugbeittum hníf. Risinn er vaknaður, búinn að tannbursta sig og klár í daginn og poppstjörnur sl











