Home Podcasts Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms
Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

heilsuhladvarp 84 Episodes Sep 17, 2026

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms fjallar um heilsu og forvarnir gegn sjúkdómum. Þáttastjórnendur ræða hvernig líftími fólks hefur lengst en heilbrigðum æviárum fækkað, og spyrja hvort það sé eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt. Þeir fjalla um algenga lífsstílssjúkdóma eins og sykursýki, krabbamein og hjarta- og æðasjúkdóma, og hvetja til að takast á við orsakirnar frekar en að bæla niður einkenni með lyfjum.

Episodes

Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson
Kannabis – frá fordómum til upplýstrar notkunar | Lyf, vímuefni eða wellness? | Hvað hefur lögleiðing víða í Bandaríkjunum kennt okkur? | Dr. Magnús Þórsson Sep 17, 2026 4111 🌿 Kannabis – frá fordómum yfir í fræðslu, rannsóknir og upplýstari notkun Í Heita potti Heilsuhlaðvarpsins fáum við til okkar Dr. Magnús Þórsson, prófessor í frumkvöðlafræði við Johnson & Wales University í Bandaríkjunum og stofnanda Canna Curious Wellness. Magnús hefur um árabil rannsakað neytendahegðun, nýsköpun og kannabismarkaðinn og tekið þátt í að þróa háskólanám tengt kannabis og frumkv
Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft
Að eldast án þess að verða gamall | Hörður Torfason | Að ganga aftur á bak til betri heilsu, dagleg heilsuráð og lífið sjálft Sep 14, 2026 4599 🎙️ Að ganga aftur á bak og hvað heldur okkur ungum – í líkama og sál? Í þessum þætti fáum við til okkar Hörð Torfason, einn af litríkari og merkilegri persónum íslenskrar menningar- og samfélagssögu. Hörður er söngvaskáld, leikari, leikstjóri, leikskáld og mannréttindabaráttumaður og hefur í meira en hálfa öld látið rödd sína heyrast – bæði á sviði og í samfélagsumræðunni.  Hörður fæddist árið 194
Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir
Heiti potturinn | Þegar kerfið hefur ekki svörin | Meira val, frelsi og nýjar leiðir að heilsu | Þórarinn Ævarsson og Þórunn „Tóta“ Þórs Jónsdóttir Sep 10, 2026 6523 🌿 Eigum við að hafa meira val og meira frelsi þegar kemur að okkar eigin heilsu? Í þessum þætti eigum við opið og afar áhugavert samtal við Þórarinn Ævarsson og Þórunni „Tótu“ Þórs Jónsdóttur, stofnanda og drifkraftinn á bak við alþjóðlegu ráðstefnuna Health for the Future, sem fram fer í IÐNÓ dagana 18.–20. september. Við fórum víðan völl en rauði þráðurinn var einfaldur: Hvernig getum við skapað
Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga
Sjúkdómurinn sem breytti öllu – og baráttan fyrir fleiri valkostum í heilbrigðiskerfinu | Siggi Jóhannesson | Hampur til lækninga Sep 7, 2026 7500 🎙️ Hvað gerist þegar dóttir þín greinist með einn flóknasta og sjaldgæfasta taugasjúkdóm heims – og framtíðin er allt í einu full af óvissu? Í þessum þætti ræðum við við Sigurð Hólmar Jóhannesson, Sigga Jóhannesson, um einstaka vegferð hans og eiginkonu hans Ragnheiðar Erlu Hjaltadóttur eftir að dóttir þeirra, Sunna Valdís, greindist um eins árs aldurinn með Alternating Hemiplegia of Childhood (AH
Heyrnarskerðing og áhrif á lífið og heilaheilsu | Mikilvægi snemmbærrar greiningar | Er kominn tími á heyrnarpróf? | Eva Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalæknir með sérhæfingu í heyrnarfræðum
Heyrnarskerðing og áhrif á lífið og heilaheilsu | Mikilvægi snemmbærrar greiningar | Er kominn tími á heyrnarpróf? | Eva Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalæknir með sérhæfingu í heyrnarfræðum Aug 31, 2026 5546 👂 Heyrnin – eitt mikilvægasta skynfærið sem við megum ekki taka sem sjálfsögðum hlut Í þessum þætti ræðum við við Evu Albrechtsen, háls-, nef- og eyrnalækni með sérhæfingu í heyrnarfræðum, um heyrnina – hvernig hún virkar, hversu mikilvæg hún er fyrir lífsgæði okkar og hvað við getum gert til að varðveita hana sem lengst. Heyrnarskerðing þróast oft hægt og lúmskt og margir átta sig ekki á því hver
Hvernig verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar - hvað þurfum við að gera og hvernig viljum við eldast? María Fjóla Harðardóttir fyrrverandi forstjóri Hrafnistu
Hvernig verður öldrunarþjónusta framtíðarinnar - hvað þurfum við að gera og hvernig viljum við eldast? María Fjóla Harðardóttir fyrrverandi forstjóri Hrafnistu Aug 24, 2026 4352 👵🏼 Hvernig viljum við eldast – og er kerfið tilbúið fyrir það sem er fram undan? Í þessum þætti ræðum við við Maríu Fjólu Harðardóttur, hjúkrunarfræðing og fyrrverandi forstjóra Hrafnistu, sem hefur áratuga reynslu af öldrunarþjónustu og einstaka innsýn í það sem þarf að breytast. Við lifum lengur, eldri borgurum fjölgar hratt og álagið á kerfið mun aukast verulega á næstu árum. María Fjóla er ský
Mögnuð saga 13 ára drengs sem lamaðist skyndilega og var sagt að hann gæti aldrei gengið aftur | Magnús Helgason & Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir
Mögnuð saga 13 ára drengs sem lamaðist skyndilega og var sagt að hann gæti aldrei gengið aftur | Magnús Helgason & Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir Aug 17, 2026 4896 Lífið breytist á einu augabragði. En von og þrotlaus vinna flytur fjöll! ✨ Sumarið 2023 breyttist líf hins 13 ára íþróttastráks Magnúsar Mána á einni nóttu þegar hann lamaðist skyndilega frá bringu og niður. Yfirlæknir spáði því að hann myndi eyða ævinni í hjólastól en fjölskyldan neitaði að gefast upp. Eftir mikla vinnu með blöndu af æfafornum náttúruaðferðum og krefjandi hátækniendurhæfingu á Sp
Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann?  Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Svanhildur 'Sasa' Sigurðardóttir
Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir og Svanhildur 'Sasa' Sigurðardóttir Aug 10, 2026 5311 Heilandi garðar við sjúkrahús – lúxus eða nauðsynlegir innviðir? Hvernig er staðan við nýja Landspítalann? Í þessum þætti ræðum við við Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur og Svanhildi „Sösu“ Sigurðardóttur um heilandi garða og mikilvægi náttúrunnar í og við sjúkrahús. Guðfinna skrifaði á sínum tíma lokaritgerð um heilandi garða og möguleika þeirra á Íslandi og hefur lengi haft sérstakan áhuga á því hvern
Er golf bara dýr og tímafrek yfirstéttaríþrótt eða leynist þar lykillinn að bættri lýðheilsu, minni einmanaleika og hraustari og hamingjusamari þjóð? | Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands
Er golf bara dýr og tímafrek yfirstéttaríþrótt eða leynist þar lykillinn að bættri lýðheilsu, minni einmanaleika og hraustari og hamingjusamari þjóð? | Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands Aug 4, 2026 5268 Í þessum bráðskemmtilega og kraftmikla þætti af heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu mæta þær Huldu Bjarnadóttur, fyrsta kvenkyns forseta Golfsambands Íslands. Hulda, sem er þekkt fyrir að vera algjör „jarðýta“ sem kemur ótrúlegustu hlutum í verk, mætir þáttastjórnendum sem viðurkenna fúslega eigin fordóma og mótþróa gagnvart golfíþróttinni – en það stendur ekki steinn yfir steini þegar líður á spjall
Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og IFS meðferðaraðili – Pendúll taugakerfisins og krabbameinsgreiningar - hluti 1
Auður Elísabet Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og IFS meðferðaraðili – Pendúll taugakerfisins og krabbameinsgreiningar - hluti 1 Jul 29, 2026 8422 Pendúll taugakerfisins – innra öryggi, IFS og krabbameinsvegferðin Í þessum þætti ræðum við við Auði Elísabetu Jóhannsdóttur hjúkrunarfræðing og IFS meðferðaraðila um taugakerfið, áföll, krabbameinsvegferðina og það hvernig við getum skapað meira innra öryggi. 🧠 Pendúll taugakerfisins Hvernig sveiflast heilbrigt taugakerfi á milli virkni og hvíldar – og hvað gerist þegar við festumst í streitu, ót
Karl Gústaf Kristinsson læknir, prófessor emeritus í sýkla- og veirufræði um hinn þögla faraldur sýklalyfjaónæmis sem er ein helsta ógn samtímans og ráð til að sporna við honum.
Karl Gústaf Kristinsson læknir, prófessor emeritus í sýkla- og veirufræði um hinn þögla faraldur sýklalyfjaónæmis sem er ein helsta ógn samtímans og ráð til að sporna við honum. Jul 21, 2026 6632 🎙️ Heilsuhlaðvarpið – Hinn hljóði faraldur sýklalyfjaónæmis? Í dag ræðum við eitt stærsta en jafnframt vanmetnasta heilbrigðismál samtímans – baráttuna við bakteríur sem hætta smám saman að svara þeim sýklalyfjum sem hafa bjargað ótal mannslífum undanfarna áratugi. Gestur okkar er Karl G. Kristinsson, fyrrverandi yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans, prófessor emeritus í sýklafræði
Pálmi V Jónsson öldrunarlæknir um tilgang lífsins, kjötsúpu afa síns, leyndarmálið á bak við heilbrigða öldrun og Gunnarshólma; framtíðarparadís fyrir 60 ára og eldri.
Pálmi V Jónsson öldrunarlæknir um tilgang lífsins, kjötsúpu afa síns, leyndarmálið á bak við heilbrigða öldrun og Gunnarshólma; framtíðarparadís fyrir 60 ára og eldri. Jul 13, 2026 6810 Pálmi V. Jónsson, öldrunarlækni og prófessor, hefur í áratugi verið leiðandi rödd í málefnum eldra fólks á Íslandi. Í þessum fróðlega þætti af Heilsuhlaðvarpinu brýtur Pálmi upp staðalmyndir um ellina og ræðir hvernig við getum ekki bara lifað lengur, heldur betur. Þátturinn er stútfullur af staðreyndum og sögum sem vekja fólk til umhugsunar. Pálmi deilir til að mynda góðri sögu af afa sínum sem v

Recommended