Helsta markmið þáttanna er að hvetja fólk til að byrja að hreyfa sig og fara í ævintýri. Þáttastjórnandinn tekur sín fyrstu skref í hjólreiðum og lærir af fólki sem veit meira um allt tengt hjólreiðum. Samhliða umfjöllun um hjólaæfingar er fjallað almennt um hjólreiðar, skipulagsmál og öryggi hjólreiðafólks. Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti.
Episodes

Veturinn er loksins kominn og cancel á að yfirgefa fjölskyldur
Í þættinum erum við tvö aftur, K og B. Við tökum svona það helsta frá síðustu vikum og hendum okkur svo í smá spjall um útivist að vetrarlagi.Búi er að fara henda í styrktarnámskeið í Jan stay tuned.Og vetrardagskráin komin hjá Úti hreyfingunni.

Við erum brjáluð og fleira
Búi og Kristín tókum þennan saman. Allskonar viðfangsefni í dag, Taco Bell hlaupið, Andrea okkar Kolbeins (#takk), ástand í borginni, rammaáætlun og fleira.

Kilimanjaro fyrir þrítugt - Steinunn Helgadóttir
Steinunn er ung og metnaðarfull útivistarkona með Bs í jarðfræði og Ms í umhverfisbreytingum á Norðurslóðum. Hún starfar sem náttúruvásérfræðingur á Veðurstofunni, elskar Snæfellsjökulsþjóðgarð, á góða kúkasögu af Kilimanjaro og stefnir á að heimsækja Machu Picchu á næsta ári. Við fengum að kynnast þessari duglegu konu sem væri til í að vera utandyra alla daga, svona eins og við..

Úti í borginni og bíllaus lífstíll - Brynhildur Bolladóttir
Brynhildur Bolladóttir nýkjörinn formaður samtaka um bíllausan lífstíl kíkti í Úti. Já það er líka hægt að vera Úti í borginni. Við förum yfir fréttir af sviði útivistar og rennum svo yfir í virkar samgöngur bæði í borg og úti á landi.

Klifursenan og snarbratta Þuríður með Jónasi G. Sig. (Jonna)
Í þættinum fáum við til okkar Jónas G. Sigurðsson klifrara og útivistargarp. Við vörum yfir helstu fréttir af útivist svona í byrjun hausts og hendum okkur svo í mál málana; hver var fyrstur uppá Þuríði, klettur sem stendur úr Óshyrnu sunnan við Bolungarvík. En Jónas og félagi hans Andri fóru uppá hana í byrjun september en voru þeir fyrstir, það kemur í það minnsta í ljós í þessum þætti. Ásamt mö

Róbert Marshall og meira úti
Um þessar mundir sýnir RÚV þriðju seríuna af Úti, þáttarseríu Róberts Marshall og Brynhildar Ólafsdóttur. Í þáttunum fá áhorfendur að fylgja hópum þeirra hjóna í gegnum hin ýmsu útivistarævintýri. Okkur fannst því tilvalið að fá Róbert til okkar í spjall um þættina, ævintýrin, útivistina og lýðheilsumál þjóðarinnar. Við mælum eindregið með að kíkja á þættina Úti sem finna má í Sarpinum. Einnig mæl

Reykjavíkurmaraþon og haustið - Kristín og Búi
Í þessum þætti þá förum við yfir eitt og annað, undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon og líka skort á undirbúningi. Eins förum við aðeins yfir sumarið okkar og rútínuna sem haustið ber með sér. Það er af nægu að taka í dagskrá haustsins, Kristín verður með Fjallakonu námskeið sem byrjar í haust (tilvalið fyrir konur sem vilja ganga á fjöll og eins þær sem stefna á að verða fjallkona næsta júní) og

Birta & Emil - Allir í skátana!
Birta Hall og Emil Kjartan Valdimarsson, skátar og verðandi menntaskólanemar komu og spjölluðu um nýliðið Landsmót skáta og sjálfboðaliðastarf sitt í skátamiðstöð í Svíþjóð fyrr í sumar.Landsmót skáta var haldið á Akureyri dagana 20.-26. júlí. Þar komu saman skátar alls staðar að úr heiminum, skelltu upp tjaldbúðum og sóttu veglega og fjölbreytta dagskrá. Birta og Emil komu reynslunni ríkari heim

María Ögn, leiðsagnarlífið og Rift
Fimmti þáttur, gjörðu svo vel. Förum aðeins yfir vegferðina hjá Maríu úr stífu keppnisprógrami og yfir í hjólaleiðsögn, rútuprófið og fleira stuð. Tökum aðeins stöðuna á endurstillingu á markmiðum og forsendum gagnvart útivist og hreyfingu og allskonar eins og smá Rift yfirferð séð frá hliðarlínunni.Þessi þáttur er í boði Peloton þar sem er hægt að fá allskonar snilld í ævintýrin.Eins má endilega

Þroskaferlar á fjöllum og þermistigið
Í þættinum förum við yfir ævintýri síðustu daga hjá Kristínu og Búa. Kristín endaði bæði í á og á vegg í hjólaferð og er farin að uppgötva sjarma tjaldlífsins. Búi átti hins vegar eftirminnilega stund uppi á heiði – þar sem náttúran var bæði yfirþyrmandi og hans innri náttúra minnti á sig (hann kúkaði uppá heiði).Þátturinn er í boði Peloton hvar fást frábærar útivistarvörur gegn vægu gjaldi.Bestu

Eru allir að hneykslast á hlunknum? - Kristín og Sigga Bára
Í þetta sinn er gestur þáttarins Sigríður Bára Ingadóttir, 2ja barna móðir, vélaverkfræðingur, og útivistarkona með meiru.Frænkurnar Kristín og Sigga Bára ræða saman reynslu sína af því að hreyfa sig lítið, vera of þungar, andlega og líkamlega yfir í að gera útivist að lífsstíl sem þær geta ekki hugsað sér að vera án í dag.Þær tækla spurningar eins og hvernig megi komast yfir óttann við vera hægas

90% meira næs með súkkulaði, Guðrún Sóley Gestsdóttir
Í þætti dagsins er þemað að komast af stað, það eru fá betur til þess fallin en hún Guðrún Sóley enda fá sem nenna jafn miklu og eru jafn peppuð gagnvart því að peppa aðra. Guðrún fer yfir brothvarf úr hlaupum, endurstillingu gagnvart hreyfingu og talar mikið og fallega um kajak ástundun.Peloton er ævintýraverslun með allskonar gotterí fyrir útivistarfólk, endilega að gera sér ferð þangað eða skoð












