Home Podcasts Skuggavaldið
Skuggavaldið

Skuggavaldið

skuggavaldid 43 Episodes Aug 3, 2026

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu.

Episodes

#47 - Hvað er eiginlega í gangi á Svalbarða?
#47 - Hvað er eiginlega í gangi á Svalbarða? Aug 3, 2026 3468 Var dómsdagshvelfingin á Svalbarða reist svo heimselítan gæti náð stjórn á matvælaframleiðslu heimsins? Hulda og Eiríkur rýna inn í frosna fjallshlíð þar sem fræ frá um hundrað löndum eru geymd. En á þessum sama ísilagða eyjaklasa kraumar líka annað og raunverulegra njósnastríð, þar sem rússneskir togarar sigla yfir sæstrengi sem rofna á dularfullan hátt. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboði
#46 - Stóra Tartaría - heimsveldið sem hvarf í leðjuflóði
#46 - Stóra Tartaría - heimsveldið sem hvarf í leðjuflóði Jul 20, 2026 3313 Drukknaði eitt stærsta heimsveldi mannkynssögunnar í leðju og var kjölfarið þurrkað út úr öllum sögubókum? Hulda og Eiríkur ræða söguna um Stóru Tartaríu, eina furðulegustu og áhrifamestu samsæriskenningu alnetsins. Við rekjum slóðina frá hugmyndum virtasta stærðfræðings Rússlands í Moskvu, yfir í gamlan landafræðilegan misskilning Evrópumanna, og alla leið til 580 þúsund manna Facebook-hóps þar s
#45 - Útskiptin miklu – seinni þáttur
#45 - Útskiptin miklu – seinni þáttur Jul 6, 2026 3220 Umturnaði samsæriskenningin um útskiptin miklu Vestrænum stjórnmálum varanlega? Í seinni þætti af tveimur um útskiptin miklu ræða Eiríkur og Hulda hvernig óttinn um „Evrarabíu“ færðist úr afviknum kimum internetsins og beint inn í hjarta stjórnmálanna í kjölfar áfalla á borð við 11. september, fjármálahrunið og flóttamannakrísuna.   Kíkt er ofan í vélarúm popúlismans, hvernig hefðbundnir flokkar h
#44 - Útskiptin miklu - fyrri þáttur
#44 - Útskiptin miklu - fyrri þáttur Jun 22, 2026 3232 Standa íslamistar í Miðausturlöndum að því að skipta út kristnu fólki í Evrópu fyrir múslima? Jafnvel með aðstoð evrópskrar elítu? Þessi ótti er kjarninn í samsæriskenningunni um Evrarabíu og „útskiptin miklu“ (The Great Replacement). Í fyrri þætti af tveimur rekja Eiríkur og Hulda tilurð sögunnar og kryfja hvernig slíkar samsæriskenningar færðust af myrkum jaðri internetsins og urðu að hversdagsl
#43 - Tuskegee-rannsóknin: Þegar svart fólk var blekkt til dauða í nafni vísinda
#43 - Tuskegee-rannsóknin: Þegar svart fólk var blekkt til dauða í nafni vísinda Jun 8, 2026 2737 Var svart fólk dregið til dauða í nafni vísindanna? Árið 1932 bauð bandaríska ríkið fátækum, svörtum bændum ókeypis „lækningu“ við „slæmu blóði“ sem varð upphafið að fjörutíu ára martröð. Hulda og Eiríkur rekja sögu Tuskegee-rannsóknarinnar, þar sem læknar meinuðu mönnum vísvitandi um lífsbjargandi lyf við sárasótt. Við kryfjum þetta raunverulega samsæri yfirvalda, mál sem skapaði djúpstætt vantra
#42 - Fljúgandi furðuhlutir - seinni þáttur
#42 - Fljúgandi furðuhlutir - seinni þáttur May 25, 2026 3571 Gangast ráðamenn nú við torkennilegum fyrirbærum í háloftunum? Í síðari þætti um fljúgandi furður rýna Hulda og Eiríkur í hvernig yfirvöld hafa færst frá því að mæta öllum tilkynningum með afneitun - sem einmitt kynti undir langsóttum samsæriskenningum um að stjórnvöld leyni heimsókn geimvera - yfir í að viðurkenna nú takmarkaða þekkingu sína á ýmsu því sem örðugt er að greina. Það þýðir þó ekki a
#41 - Geimverur fyrri þáttur
#41 - Geimverur fyrri þáttur May 11, 2026 3267 Leyna yfirvōld fljúgandi furðuhlutum frá fjarlægum hnöttum? Hulda og Eiríkur rekja sögu frásagna af fljúgandi furðuhlutum, afvegaleiðingu slíkra frásagna og til þess að bandarísk stjórnvöld viðurkenna nú að ekki sé hægt að útskýra allt sem sést hefur á himni. Sjónum er beint að því hvernig ríkið nýtti Robertson-nefndina á 6. áratugnum til að gera umræðuna „hallærislega“ og hvernig dularfull starfs
#40 - Neró: Harðstjóri eða fórnarlamb slaufunarmenningar?
#40 - Neró: Harðstjóri eða fórnarlamb slaufunarmenningar? May 6, 2026 3587 Spilaði Neró fiðlu á meðan Róm brann? Við kryfjum mýtur um móðurmorð, brennuna miklu og hvernig nafn keisarans varð að hinu dularfulla dulmáli 666. Var hann andkristur sjálfur eða fórnarlamb ríkisstyrktrar ófrægingarherferðar? Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á skug
#39 - Loftárás, listaverkarán og sprengjugerð á tímum átakanna á Norður-Írlandi: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, seinni hluti
#39 - Loftárás, listaverkarán og sprengjugerð á tímum átakanna á Norður-Írlandi: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, seinni hluti Apr 13, 2026 2841 Hvernig knúði kúgun Breta á Norður-Írlandi enska yfirstéttarkonu til þess að leggja frá sér tebollann og stökkva ofan í skotgrafir ÍRA? Í þessum síðari þætti af tveimur um Rose Dugdale ræða Eiríkur og Hulda um aðgerðirnar sem fleyttu Rose í fremstu víglínu átakanna. Við fylgjumst með henni ræna þyrlu til að gera loftárás á lögreglustöð, skipuleggja stærsta listaverkarán Írlandssögunnar til að knýj
#38 - Frá höllum drottningar til skotgrafa ÍRA: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, fyrri hluti
#38 - Frá höllum drottningar til skotgrafa ÍRA: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, fyrri hluti Mar 30, 2026 3165 Hvað fær enska hefðarmey til að snúa baki við uppruna sínum og gerast skæruliði ÍRA? Rose Dugdale ólst upp í bresku yfirstéttinni, en andúð á stéttakerfinu og arðráni nýlendustefnunnar dró hana inn í blóðug átök á Norður-Írlandi. Eftir hrylling Blóðuga sunnudagsins árið 1972 rauf hún öll tengsl við fjölskyldu sína og valdi vopnaða byltingu. Í þessum fyrri þætti rekja Eiríkur og Hulda ótrúlega sögu
#37 - Sölumaður óttans: Alex Jones
#37 - Sölumaður óttans: Alex Jones Mar 16, 2026 2651 Hvernig fór Alex Jones að því að græða milljarða á samsæriskenningum? Í þessum þætti Skuggavaldsins rekja Hulda og Eiríkur þróun upplýsingahernaðar í samtímanum og rýna í feril sölumanns óttans“ sem vopnavæddi upplýsingaóreiðu og ruddi brautina fyrir nýja tegund popúlismans. Við skoðum „viðskiptamódel óttans“ þar sem bætiefni og neyðarbúnaður eru seld sem vörn gegn samsærum ríkisins, og ræðum Sand
#36 - Rothschild-goðsögnin – stóra skrímslið í huga samsæriskenningasmiða
#36 - Rothschild-goðsögnin – stóra skrímslið í huga samsæriskenningasmiða Mar 2, 2026 2687 Ætlar Rothschild-ættin að sölsa allan heiminn undir sig? Í þessum síðari þætti af tveimur um hina frægu Rothschild-fjölskyldu skoða Eiríkur og Hulda hvernig ættin varð að holdgervingi hins illa og talin stjórna bandaríska seðlabankanum, sitja á toppi Illuminati-píramídans og stýra hinni Nýju heimsskipan. Undanfarin ár hafa sögurnar orðið enn fáránlegri og ættin hefur verið sökuð um að eiga einkale

Recommended