Home Podcasts Snorri Másson ritstjóri
Snorri Másson ritstjóri

Snorri Másson ritstjóri

Snorri Másson 95 Episodes Mar 28, 2025

Þátturinn fjallar um blaðamennsku á breyttum tímum, með fréttum, ritgerðum og málefnalegum persónuárásum. Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur þar sem fjallað er um málefni vikunnar. Aðgangur að greinum alla vikuna og meira efni er í boði á www.ritstjori.is.

Episodes

Viðtal | Brynjar Karl: Sannleikurinn um Breiðholt og vakning þjóðar
Viðtal | Brynjar Karl: Sannleikurinn um Breiðholt og vakning þjóðar Mar 28, 2025 01:26:09 Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og íþróttaleiðtogi ræðir hér um það hvernig beri að gera kröfur til ungs fólks, körfuboltaliðið Aþenu, stöðuna í Breiðholti, ofbeldisþróun þar, fullkominn skort á stefnu og vonlaus samskipti við Reykjavíkurborg.
Alls staðar breytist umræðan! Sigríður Andersen og Kjartan Magnússon.
Alls staðar breytist umræðan! Sigríður Andersen og Kjartan Magnússon. Mar 15, 2025 01:07:24 Í þessum þætti ræðir Snorri Másson ritstjóri við Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Kjartan Magnússon, ekki borgarfulltrúa, heldur formann Hjálms – ungliðahreyfingar Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Til umfjöllunar eru þau fimm ár sem liðin eru frá upphafi kórónuveirufaraldurs, evrópsk stjórnvöld sem vakna upp við vondan draum þegar málfrelsi er innlei
Ræða: Það er hægt að skipta um trúarbrögð í landinu
Ræða: Það er hægt að skipta um trúarbrögð í landinu Jan 25, 2025 00:35:40 Ég flutti erindi á vegum Stúdentafélags Reykjavíkur þann 23. janúar, þar sem ég fjallaði um það hvernig stjórnmálin hegða sér í sífellt auknum mæli eins og trúarbrögð, bæði hér á landi og erlendis. Með öðrum orðum: Hvað annað en hröð trúarleg sinnaskipti hafa leitt til þeirra grundvallarbreytinga sem hafa orðið á ráðandi stjórnmálahugsun á Íslandi á undanförnum árum, hvort sem er í sambandi við vi
Jakob Frímann um svakalegan fund, Reykjavíkurborg og þriðju leiðina
Jakob Frímann um svakalegan fund, Reykjavíkurborg og þriðju leiðina Nov 19, 2024 00:49:40 Jakob Frímann Magnússon goðsögn og þingmaður Miðflokksins ræðir hér stjórnmálin, allt frá dapurri upplifun sinni af Reykjavíkurborg á sínum tíma og til nauðsynlegrar uppbyggingar sem er fram undan í íslensku samfélagi. Ekki er hjá því komist að drepa niður fæti á mikilvægum stöðum í sögunni, ferðalög Stuðmanna til Kína og Rússlands, Kalda stríðið og Ísland í fyrri tíð. Últrafrjálshyggja eða hardc
Ég býð mig fram
Ég býð mig fram Oct 19, 2024 00:14:51 Risatilkynning: „Ég tilkynni hér með að ég sækist eftir oddvitasæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í komandi alþingiskosningum.“
Viðtal | Jón Gnarr um Íslendinga, hugarfar, skynsegin ráðherra og grín
Viðtal | Jón Gnarr um Íslendinga, hugarfar, skynsegin ráðherra og grín Oct 11, 2024 01:36:57 Hér er rætt við Jón Gnarr grínista sem nú hyggur á þingframboð undir merkjum Viðreisnar. Við ræðum tímann sem borgarstjóri, muninn á stjórnmálaþátttöku hans þá og nú, woke-heilavírusinn, útlendingamálin, hernaðarbandalög og varnarbandalög, sögu styrjalda, eðli gríns og menntamálin þegar Jón verður fyrsti jaðarsetti skynsegin ráðherrann. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Nettó, Myntkaup, Reykjav
Viðtal | Heiðar Guðjónsson um þjóðerni, auðlindir, fjölmiðlarekstur, fjárfestingar og Peter Thiel
Viðtal | Heiðar Guðjónsson um þjóðerni, auðlindir, fjölmiðlarekstur, fjárfestingar og Peter Thiel Oct 4, 2024 01:37:19 Í viðtali vikunnar er birt á ný samtal við Heiðar Guðjónsson fjárfesti frá því í júlí 2023. Viðtalið birtist í hlaðvarpi Skoðanabræðra, Snorra Mássonar og Bergþórs Mássonar. Umræðuefni eru m.a: bjartsýni, þjóðernisofsi, hagfræði, ævintýri, báknið, hægrimennska, fjárfestingar í listum, Peter Thiel, framtíðin og Guð veit hvað annað. Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Happ
Viðtal | Sigmar Guðmundsson um veikleika krónunnar, ESB-drauminn, mannúðarpælinguna og fíkniefni
Viðtal | Sigmar Guðmundsson um veikleika krónunnar, ESB-drauminn, mannúðarpælinguna og fíkniefni Sep 27, 2024 01:38:06 Sigmar Guðmundsson var fjölmiðlamaður um áratugaskeið og sneri sér svo að stjórnmálum fyrir Viðreisn. Stundum kallaður best klæddi Píratinn. Hér er rætt um fíknivandann, áfengi, Evrópusambandið, ríkisfjármál, tungumálið, innflytjendur, flóttamenn, íslensku krónuna, Jón Gnarr, Viðreisn, stjórnmálastarfið, fjölmiðla, RÚV og almennt hina pragmatísku nálgun. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy
Fréttir vikunnar | Jakob Birgisson um vafasöm stjórnmálatákn, þvottavélar og efnahag uppistandara
Fréttir vikunnar | Jakob Birgisson um vafasöm stjórnmálatákn, þvottavélar og efnahag uppistandara Sep 20, 2024 01:09:17 Jakob Birgisson uppistandari sest við borð ritstjórans og ræðir allt frá brottvísun flóttamanna og málefni ríkisstjórnarinnar til sálarástands ungmenna, áfengis í búðir, þvottavéla, nýs merkis Alþingis, nýrrar stjórnarsetu Brynjars Níelssonar og margs annars. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Myntkaup og Happy Hydrate.
Viðtal | Diljá Mist um hægrisveiflu, fjölskylduna, íslenska fánann og stríðið á milli góðs og ills
Viðtal | Diljá Mist um hægrisveiflu, fjölskylduna, íslenska fánann og stríðið á milli góðs og ills Sep 13, 2024 01:29:50 Diljá Mist Einarsdóttir er hæstaréttarlögmaður og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hér er rætt um ríkisfjármál, þjóðerni, frelsi, hægrisveiflu, stöðu Sjálfstæðisflokksins, efasemdir Diljár um Samfylkingu og Miðflokk, stríðsástand og góðu og vondu kallana í heiminum, fjölskyldumál, opinbera starfsmenn og tillögur Diljár að skattaafsláttum vegna barneigna. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Ha
Viðtal | Rúnar Helgi um ringlaða karla, taugaáfall í #MeToo og skoðanakúgun
Viðtal | Rúnar Helgi um ringlaða karla, taugaáfall í #MeToo og skoðanakúgun Sep 6, 2024 01:41:12 Rúnar Helgi Vignisson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í ritlist. Um það leyti sem #MeToo-byltingin skall á fékk hann taugaáfall eftir neikvæð viðbrögð við ýmsum greinarskrifum, dró sig í hlé og fór að hugsa sinn gang. Bókin Þú ringlaði karlmaður: Tilraun til kerfisuppfærslu er afurð þess ferlis, þar sem hann rekur sína sögu sem karlmanns í íslensku samfélagi. Viðtalið er opinskátt og persónul
Viðtal | Björn Jón Bragason um hnignun, agaleysi, hrun klassískra mennta og sjálfsmynd þjóðar
Viðtal | Björn Jón Bragason um hnignun, agaleysi, hrun klassískra mennta og sjálfsmynd þjóðar Aug 30, 2024 01:34:23 Björn Jón Bragason er sagnfræðingur, lögfræðingur og rithöfundur og einkar afkastamikill á öllum þessum sviðum. Hér í þessu viðtali er um auðugan garð að grisja. Hrun Sjálfstæðisflokksins og borgaralegra stjórnmála almennt, ólýðræðisleg ríkisvæðing stjórnmálaflokkanna, fjármálasaga Íslands, sjálfsmynd þjóðar á hnignunarskeiði í menntamálum, þjóðarstoltið, félagsleg hnignun á Vesturlöndum, mikilvæg

Recommended