
Hlaðvarp Landsnets
Við stjórnum og rekum flutningskerfi raforku á Íslandi. Fylgstu með hlaðvarpinu okkar þar sem við fjöllum reglulega um málefni líðandi stundar í raforkukerfinu.
Episodes

Jónas Bjarnason & lífið í stjórnstöðinni
Stundum leiðir tilviljun okkur á staði sem móta heila starfsævi. Í þessum þætti Landsnetshlaðvarpsins, sem tekinn var um áramótin, hittum við Jónas Bjarnason sem hefur starfað í stjórnstöð Landsnets og Landsvirkjunar í 31 ár. Hann segir frá vegferð sem var bæði krefjandi og skemmtileg, deilir minningum, sögum og innsýn í lífið í stjórnstöðinni. Jónas er nú á leið í nýjan kafla í lífinu og þetta

Með vindinn í fangið
Velkomin í spjallhlaðvarp um orku, framtíð og samtalið þar á milli. Í þessum þætti fengu þeir Gnýr Guðmundsson og Magni Þór Pálsson Karen Maríu Jensdóttur, verkefnastjóra í þróun vindorku hjá Qair Íslandi, í heimsókn í Landsnetshlaðvarpið. Þau ræða vindorku á Íslandi, þróunina fram undan og hvað þarf til að ná góðum meðbyr – með vindinn inn í fangið gjörið þið svo vel. #orkuskiptaskólinn

Leggjum línurnar til framtíðar
Í þætti dagsins ætlum við að skyggnast bak við tjöldin í undirbúningi stórra framkvæmda hjá Landsneti og fengum Hlín Benediktsdóttur, yfirmann undirbúnings framkvæmda, að hljóðnemanum þar sem hún leiðir okkur í gegnum ferlið, áskoranirnar, fólkið og framtíðina.

Kerfisjöfnuður, afhendingaröryggi og orkunýting
Hvernig þróast framboð og eftirspurn raforku næstu fimm árin? Hvaða áskoranir eru fram undan í flutningskerfinu - og hvernig bregðumst við við þeim? Í þessum þætti rýnum við í Kerfisjöfnuðarskýrslu Landsnets, árlega greiningarskýrslu sem gefur innsýn í orkukerfið og þær sviðsmyndir sem geta blasað við á næstu árum. Skýrslan er lykilverkfæri við ákvarðanatöku um afhendingaröryggi, orkunýtingu og or

Úr frystihúsi í friðargæslu og nú verkefnastjóri kerfisáætlunar
Hvað eiga kerfisáætlun, friðargæsla, stjórnmálafræði og frystihús í Þorlákshöfn sameiginlegt? Jú – Herdís Sigurgrímsdóttir. Hún er manneskjan sem stýrði frábærum hópi sem vann nýjustu kerfisáætlunina okkar – sem hún segir svera hryggjastykkið í starfsemi Landsnets. Í þætti dagsins spjöllum við við Herdísi um hvernig hún sér kerfisáætlun fyrst og fremst sem samfélagsþróun en líka um framtíðarorkug

Er vefsíðan úrelt eða hefur hún bara skipt um hlutverk?
Í þessum þætti rýna þau Steinunn, Hallur og Einar í stafræna landslagið, hvernig hefur vefurinn þróast, hvaða hlutverk gegna heimasíður í dag og hvernig hafa samfélagsmiðlar breytt leiknum? Er vefsíðan úrelt eða hefur hún bara skipt um hlutverk?
Þau ræða þróunina, staðreyndirnar, möguleikana og jafnvel heimspekina. Hvort sem þú ert forritari, markaðsmaður eða einfaldlega forvitin um hvað geris

" Á endanum snýst þetta bara um fólk " Hólmgrímur Elís
Í þessum þætti fáum við Hólmgrím Elís Bragason að hljóðnemanum í Landsnetshlaðvarpinu. Elli, eins og hann er alltaf kallaður, er sérfræðingur á mannauðssviðinu okkar hjá Landsneti. Hann settist niður með Steinunni Þorsteinsdóttur og ræddi áherslur í mannauðsmálum, mikilvægi samskipta og hvernig menning innan fyrirtækja hefur áhrif á fólkið – og árangurinn.
...já, og líka hvort lífið sé blómabeð.

Í stígvélum á vaktinni - Spói og lífið hjá Landsneti
Sigurður Pétur Ólafsson – Spói – lagði nýverið stígvélin á hilluna eftir heil 45 ár í geiranum, þar af 20 í stjórnstöð Landsnets — eða allt frá stofnun.
Hann settist niður með Margréti Evu Þórðardóttur og Steinunni Þorsteinsdóttur og sagði þeim sögur af tímanum í Sigöldu og Hrauneyjum, ræddi vatn og virkjanir — og flugið og flugvélasmíði, sem hafa verið honum hugleikin frá unga aldri.

Draumar, Döðlur og rafmagn
Guðrún Ýr Guðmundsdóttir eða Gugga er nýjasti viðmælandi Landsnetshlaðvarpsins.
Hún er sumarstarfsmaður hjá okkut, klár verkfræðingur og tónlistarkona í hljómsveitinni Dóra og Döðlurnar. Í þessum þætti segir hún frá því hvernig hún eltir bæði draumana sína í tækni og tónlist, af hverju það er ekki nauðsynlegt að velja bara eitt og auðvitað hvernig lífið hjá Landsneti er að birtast henni.
Þe

Samtal við samfélagið
Samtalið skiptir okkur hjá Landsneti miklu máli – og í nýjasta þætti Landsnetshlaðvarpsins ræða Steinunn, Einar, Hlín og Valgerður um mikilvægi góðs samtals við fólkið í nærsamfélagi raflínanna okkar. Hvernig ætlum við að hlusta, miðla og byggja traust? Hvaða lærdóma höfum við dregið – og hvert stefnum við

Unnur Helga, framkvæmdir og flutningskerfi framtíðarinnar
Það er margt í gangi hjá okkur hjá Landsneti og í nýjasta hlaðvarpsþætti Landsnetshlaðvarpsins fáum við skýra mynd af stöðunni frá Unni Helgu Kristjánsdóttur, forstöðumanni verkefnastjórnunar framkvæmda.
Unnur fer yfir:
🏗️ Hvaða framkvæmdir eru í gangi núna
📍 Hvar þær fara fram og hvers vegna
📅 Hvenær hægt er að búast við að framkvæmdum ljúki
📊 Og hvernig verkefnin eru forgangsraðuð með öryggi

Ef lífið væri leikskóli – væri þá Landsnet staðurinn?
Hvað gerist þegar sameindalíffræðingur, nútímafræðingur og sagnfræðingur setjast saman við hlaðvarpsmíkrafóninn og ræða orkumál ? Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi fékk þá Hall Þór Halldórsson vefstjóra og Erlingur Fannar Jónsson verkefnastjóra í spjall þar sem óvæntar tengingar, ný sjónarhorn og samtal varð til - ekki missa af þessum þætti af Landsnetshlaðvarpinu.

Vörumerki, orkufyrirtækin og fólkið sem elskar að tala um það
Í Landsnetshlaðvarpsþætti dagsins fá Steinunn Þorsteindóttir upplýsingafulltrúi og Einar S. Einarsson, forstöðumaður skrifstofu forstjóra hjá Landsneti, til sín að hljóðnemanum þær Heiðu Halldórsdóttur, framkvæmdastjóra hjá Orkusölunni og Birnu Lárusdóttur, upplýsingarfulltrúa hjá HS Orku – og saman ræða þau ímynd, traust og þá list að tala um rafmagn með hjartanu.

Að skapa virði fyrir samfélagið með öruggum og sjálfbærum rekstri
Sjálfbærni-, árs- og frammistöðuskýrslan okkar fyrir árið 2024 veitir skýra mynd af árangri okkar á árinu. Hún sýnir hvernig við tryggjum traustan raforkuflutning, eflum afhendingaröryggi og vinnum að sjálfbærri framtíð og fengum við hjá Landsnetshlaðvarpinu þær Margréti Guðmundsdóttur verkefnastjóra og Guðnýju Björg Hauksdóttur framkvæmdastjóra í spjall um skýrsluna og allt það áhugaverða sem þar

„Þegar þið haldið ljósunum logandi í hamförum, haldið þið einnig voninni lifandi.“
Með þessum öflugum orðum lauk Sóley Kaldal, áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur vorfundinum okkar í Hörpu þann 5. mars sl.
Í framhaldinu settust þær Sóley og Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi fyrir framan hljóðnemann í Landnsetshlaðvarpinu og ræddu saman um þjóðaröryggi, rafmagn, viðbúnað og ábyrgð.
Hvað merkir það í raun að halda landinu gangandi, sama hvað dynur á?

Leifur Ingimundur og leiðin til Landsnets
Leiðin til Landsnets og sánuferðir til Finnlands var eitt af því sem þau Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi og Leifur Ingimundur Runólfsson einn af nýjustu liðsmönnum Landsnets spjölluðu um í þessum Hlaðvarpsþætti.Ekki missa af þessu skemmtilega spjalli – Leifur og og leiðin hans til Landsnets.

Guðný Björg Hauksdóttir, mannauðsmálin og framtíðar vinnustaðurinn Landsnet
Guðný Björg Hauksdóttir framkvæmdastjóri mannauðs og umbóta settist við hljóðnemann í Landsnetshlaðvarpinu og ræddi við Steinunni Þorsteinsdóttur um mikilvægi mannauðs í umhverfi eins og okkar sem er á fleygiferð. Hún ræddi m.a. um áskoranir og tækifæri sem eru fram undan og hvernig Landsnet vinnur markvisst að umbótum fyrir betri framtíð. Kíktu á samtalið til að fá dýpri innsýn í mannauðsmálin h

Úr raforkuverkfræði yfir í upplýsingatækni - Jóhannes Þorleiksson
Í þessum þætti hittum við Jóhannes Þorleiksson, nýjan framkvæmdastjóra, sem breytti um kúrs þegar hann réð sig ný verið til Landsnets. Jóhannes deilir hér í spjalli við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa áhugaverðum hugmyndum og markmiðum sem allar eiga að leiða að því að koma manni til tunglsins - kannski samt ekki alveg í orðsins fyllstu merkingu en krefjast hugrekkis, vilja og teymi

Fjárfestingar og framtíðin
Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri og Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi ræddu um fjármál, framkvæmdir og framtíðina í nýjasta þætti Landsnetshlaðvarpsins. Stútfullur þáttur af áhugaverðu efni en Guðlaug hefur farið með Landsneti í gegnum stórar áskoranir á þeim tíma sem hún hefur verið framkvæmdastjóri fjármála og árangurs.

Holtavörðuheiðarlína 1, hlutverk, leiðir og staðan
Holtavörðuheiðarlína 1, lína sem liggja mun frá Hvalfirði að nýju tengivirki á Holtavörðuheiði, var umfjöllunarefni Landsnetshlaðvarpsins nú í byrjun október. Daginn sem hlaðvarpið var tekið upp var hálft landið einmitt án rafmagns – en nýja línan hefði að öllum líkindum komið í veg fyrir það.
Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi, og Kristinn Magnússon, verkefnastjóri línunnar, ræddu línun

Elma - Skipulagður og virkur viðskiptavettvangur raforku á Íslandi
Að skapa betri skilyrði fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, færa orkuviðskipti landsins í samkeppnishæft og skilvirkt umhverfi sem stuðlar að verðmætasköpun og styður orkuöryggi er umfjöllunarefni þáttarins.
Þau Einars Snorri Einarsson og Steinunn Þorsteinsdóttir fengu Katrínu Olgu Jóhannesdóttur að hljóðnemanum til að ræða framtíðina, Elmu og orkumarkaðinn.

Er framtíðin fyrirsjáanleg ?
Þær Svandís Hlín Karlsdóttir framkvæmdarstjóri og Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi tóku fimmtán mínútu spjall um framtíðina og hvað Landsnet er að gera til að þoka okkur nær henni m.a. með virkum raforkumarkaði.

Orkuskiptin og orkugeymslur
Gnýr Guðmundsson skólastjóri Orkuskiptaskólans og Magni Pálsson yfirkennari, okkar helstu sérfræðingar í orkuskiptunum á spjalli um þetta mikilvæga málefni. #þátturnúmersjö

Virkir raforkumarkaðir eru í lykilhlutverki við að ná loftslagsmarkmiðunum
Við hjá Landsneti vorum að gefa út nýja skýrslu þar sem farið var yfir helstu atriði um hlutverk og ábata af virkum raforkumarkaði Í skýrslunni kemur fram að virkur raforkumarkaður er nauðsynleg forsenda þess að ná fram skilvirkara raforkukerfi og auka þannig þjóðhagslegum ábata, öllum til hagsbóta. Ábati sem mun á endanum nema tugum milljarða árlega. Við fengum þá Jón Skafta Gestsson og Svein Gu

Er framtíðin orkuörugg ?
Nils Gústavsson framkvæmdastjóri reksturs og eigna mætti Landsnetshlaðvarpið og spjallaði við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa um flutningskerfið, orkuöryggið og leiðina að orkuskiptunum - sem sagt stútfullur þáttur af rafmagnaðri framtíð.

Sjálfbærni og samfélagsábyrgð
Við hjá Landsneti höfum sett okkur þá stefnu að vinna markvisst að því að lágmarka neikvæð áhrif sem hljótast af rekstri og uppbyggingu flutningskerfis raforku á umhverfið. Engilráð Ósk Einarsdóttir verkefnastjóri samfélagsábyrgðar og umbóta settist við hljóðnemann í Landsnetshlaðvarpinu og spjallaði við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa um eitt og annað sem snýr að þessum mikilvæga má

Verkefnastjóraspjall - nýliðinn og reynsluboltinn
Áttu einhver tips handa mér ? Kristján Ari Úlfarsson var búinn að vera hjá okkur í mánuð þegar hann settist við hljóðnemann í Landsnetshlaðvarpinu og spurði Daníel Scheving Hallgrímsson um eitt og annað sem viðkemur starfi verkefnastjóra hjá Landsneti.

"Það þarf heilt þorp til að gera við streng" - sagan af viðgerðinni á Vestmannaeyjastreng 3
Þann 30. janúar 2023 kom upp bilun á Vestmannaeyjastreng 3, sæstrengnum sem liggur frá Rimakoti og út Eyjar. Í upphafi óraði engan fyrir því að fram undan væri ríflega hálft ár þar til strengurinn væri kominn aftur í rekstur. Okkar fólk var ótrúlega lausnamiðað þegar kom að undirbúningi, viðgerðinni og að halda ljósunum á eyjunni logandi allan tímann. Til að segja okkur söguna af af viðgerðinn

Raforkuspáin og orkuskiptin
Nýlega kom út ný raforkuspá Landsnets. Í henni kemur meðal annars fram að ekki sé útlit fyrir að fullum orkuskiptum verði náð árið 2040 eins og markmið stjórnvalda ganga út á, heldur 10 árum síðar. Hún Svala Birna Þórisdóttir vann að útgáfu Raforkuspárinnar og kom í heimsókn í Orkuskiptaskólann til þeirra Magna Þórs Pálssonar og Gnýs Guðmundssonar og sagði frá helstu niðurstöðum vinnunnar.

Með byggðalínuna á heilanum
Heimildarmyndin Rafhringur Íslands var sýnd í sjónvarpinu sunnudaginn 27. ágúst. Myndin er saga af stórhuga uppbyggingu, saga af fólki, hugrekki, dugnaði, elju, sorgum, sigrum og meira að segja ást. Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets settist niður með framleiðendum myndarinnar þeim Hans Orra Kristjánssyni og Sigurði Frey Björnssyni kvikmyndagerðarmanni og fór yfir söguna, tilu

Með blik í auga náum við árangri
Í Landsnetshlaðvarpinu að þessu sinni eru þær Margrét Eva Þórðardóttir og Maríanna Magnúsdóttir að ræða breyturnar og drifkraftana sem verða til þess að vinnustaðamenning innleiði stefnu fyrirtækisins. Það er ákveðin list að horfa á rekstur fyrirtækja heildrænt og sjá hvað mannlegi þátturinn vegur mikið. Það setja fókus á helgun starfsmanna skiptir þar höfuðmáli, jafnt starfsþróun og persónulega

Framtíð íslenska raforkukerfisins
Svandís Hlín Karlsdóttir framkvæmdastjóri viðskipta- og kerfisþróunar, Jón Skafti Gestsson sérfræðingur í hagfræðilegum greiningum og Gnýr Guðmundsson forstöðumaður kerfisþróunar settust fyrir framan hljóðnemann og töluðu m.a. um framtíðina í íslensku raforkukerfi. Áhrif væntanlegrar uppbyggingar vindorkukosta, nýja tegund stórnotenda og aukið hlutverk markaðslausna til að tryggja stöðugleika, hag

Hvað þarf margar vindmyllur til að knýja eina flugvél ?
Hvað þarf margar vindmyllur til að knýja eina flugvél? Þetta og margt fleira fróðlegt og skemmtilegt í glænýjum þætti af Orkuskiptaskólanum þar sem þeir Gnýr Guðmundsson og Magni Þór Pálsson eru við stjórnvölinn.

Menningarvegferða leiðtogarnir Margrét Eva og Arna Ósk
Í þessu skemmtilega spjalli fara þær Margrét Eva Þórðardóttir okkar leiðsögumaður í menningarvegferðinni og Arna Ósk Arnarsdóttir hjá Isavia um víðan völl þegar kemur að menningu og þeirri vegferð sem fyrirtækin hafa verið á.

Tveir af öruggustu mönnum Landsnets
Öryggismál skipta okkur hjá Landsneti miklu máli og því fannst okkur tilvalið að fá öryggisstjórana okkar í raf- og raunheimum þá Styrmir Geir Jónsson og Halldór Halldórsson við hljóðnemann. Þeir voru auðvitað öryggið uppmálað þegar fóru yfir málin með Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa.

Anna Sigga og línan með langa nafnið - Holtavörðuheiðarlína 3
Anna Sigga Lúðvíksdóttir er verkefnastjóri Holtavörðuheiðarlínu 3. Í hlaðvarpsþætti dagsins förum við með henni yfir holt og heiðar í spjalli um línuna, leiðina og framtíðina sem í okkar huga er ljós. Sem sagt allt sem þú þarft að vita um Holtavörðuheiðarlínu 3 : )

Framtíðin er stafræn, tækifærin eru óendanleg
Veröldin er að breytast og verða snjallari enn áður og því þótti okkur tilvalið að fá tvo snjalla samstarfsfélaga, þá Theodór Jónsson og Birki Heimisson, í hlaðvarpsspjall þar sem þeir segja okkur m.a. að þeir séu að vinna á sviði sem heilinn okkar gæti aldrei unnið á . Áhugavert, ekki missa af þessum þætti þar sem horft er til framtíðar sem í þeirra huga er ótrúlega spennandi.

Árni Jón, byggðalínan, ísingarannsóknir og lífið á línunni
Árni Jón Elíasson og allt sem þig langar að vita um byggðalínuna, ísingar og heimildarmyndina sem gerð var um upphafið og lífið hjá þeim sem reistu byggðalínuhringinn fyrir um 50 árum síðan.

Smári Jónasson, fótsporin og netþjónustan
Smári Jónasson forstöðumaður netþjónustunnar okkar mætti í hlaðvarpið og ræddi arfleifðina, óveður, hann sjálfan og lífið á línunni við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa sem sagði netþjónustuna vera í hennar huga hjartað í starfsemi Landsnets.

Ímynd, orðspor, vörumerkið og við hjá Landsneti.
Einar S. Einarsson framkvæmdastjóri Stjórnunarsviðs og Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi settust við hljóðnemann og ræddu um eitt af uppáháhalds umræðuefnum þeirra, vörumerkið Landsnet.

Umhverfismat - hvað er það ?
Rut Kristinsdóttir sérfræðingurinn okkar í umhverfismati framkvæmda mætti í Landsnetshlaðvarpið og sagði okkur allt um það hvað umhverfismat er mikilvægt þegar kemur að okkar stóru framkvæmdum. Hún sagði okkur líka aðeins frá leiðinni til Landsnets en við gleymdum að fjalla um Rán sem er með Rut á myndinni en hún hefur stundum komið við sögu þegar við höfum verið að spjalla.

Skiptir það máli fyrir vinnustað eins og Landsnet að huga að jafnréttismálum ?
Gerðum upp jafnréttisdaga í hlaðvarpi dagsins með Svandísi Hlín Karlsdóttur formanni jafnréttisnefndar Landsnets.

Hlustum, miðlum og skiptumst á skoðunum - Elín Sigríður Óladóttir samráðsstjóri
Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi hitti hana Ellu , Elínu Sigríði, samráðsstjóra hjá Landsneti og leit í baksýnisspegilinn með henni. Þær ræddu m.a. hvað við höfum gert og hvað við getum gert betur þegar kemur að samtali, samráði og framtíðinni sem í þeirra og okkar huga verður bara rafmagnaðri.

Margrét Eva og menningarvegferðin okkar.
Hvernig endar sérfræðingur í Stjórnstöð sem verkefnastjóri menningarvegferðar ? Þetta er spurning sem Margrét Eva Þórðardóttir hefur oft fengið en okkur í LandsnetsHlaðvarpinu fannst tilvalið að fá hana að hljóðnemanum í spjall um vegferðina og lífið hjá Landsneti og heyra um leið hvernig hún fékk menninguna í fangið.

Mannauðsmálin, menningarvegferðin og mánuðirnir hjá Landsneti
Jason Már Bergsteinsson sérfræðingur í mannauðsmálum hjá Landsneti settist við hljóðnemann og ræddi lífið og tilveruna við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa - já og helstu verkefni síðustu mánaða en Jason hefur verið hjá Landsneti í hálft ár.

Jón Bergmundsson, ferlinn, flakkið og framtíðin
Það eru tímamót hjá Jóni Bergmundssyni verkefnastjóra á framkvæmda- og rekstrarsviði sem kíkti í spjall og ræddi m.a um Tom Swift, Bosníu, Kosovo og lífið með Landsneti. Fyrir næstum 55 árum heillaðist hann af rafmagni sem hefur fylgt honum yfir heiðar og haf síðan þá - nú er komið að öðru og fram undan er tími til að njóta.

"Orkuskiptin, innviðir og orkuskortur - Förum vel með auðlindina"
Verið velkomin í Orkuskiptaskólann þar sem þeir Gnýr Guðmundsson og Magni Þór Pálsson leiða þig í allan sannleika um orkuskiptin. Hvað felst í orkuskiptum, hafa orkuskiptin áhrif á mitt líf eða er þetta kannski bara spurning um að koma öllum á rafmagnsbíla? #þriðjiþáttur

Eigum við orku í orkuskiptin, mun orkuskortur ráða hraða orkuskipta, er hægt að geyma rafmagn ?
Hlustið og fræðist með þeim Gný Guðmundssyni skólastjóra Orkuskiptaskólans og Magna Pálssyni yfirkennara en þeir eru okkar helstu sérfræðingar í þessum málaflokki. #þátturnúmertvö #orkuskiptaskólinn

Orkuskiptin - hvað, hvernig, hvenær ?
Verið velkomin í Orkuskiptaskólann þar sem þeir Gnýr Guðmundsson og Magni Þór Pálsson leiða þig í allan sannleika um orkuskiptin. Hvað felst í orkuskiptum, hafa orkuskiptin áhrif á mitt líf eða er þetta kannski bara spurning um að koma öllum á rafmagnsbíla? #fyrstiþáttur

Smári Jóhannsson og sagan af Suðurnesjalínu 2
Sagan af Suðurnesjalínu 2

Glötuð tækifæri, samkeppnishæfni, loftslagsmál og styrking byggðalínunnar.
Glötuð tækifæri, samkeppnishæfni, loftslagsmál og styrking byggðalínunnar - Jón Skafti Gestsson sérfræðingur á fjármálasviði Landsnets mætti í hjóðver og spjallaði við Steinunni Þorsteinsdóttur upplýsingafulltrúa um þetta og margt fleira.

Viljinn til að gera gott betra - Menningarferðalag Landsnets
Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri á Stjórnunarsviði, gaf sér tíma með okkur fyrir þetta hlaðvarp og sagði okkur frá menningarverkefni sem á sér stað hjá Landsnet. Hvað er menning og afhverju borðar hún stefnur í morgunmat?

Upplýsingafulltrúinn og fólkið sem segir sögur
Það kom að því, ég fékk hana Steinunni hinu megin við hljóðnemann svo að segja :) Steinunn segir okkur frá lífinu og tilverunni sem upplýsingafulltrúi Landsnets, hvaðan hún kemur og afhverju hún elskar að segja sögur.

Frá sundlauginni til Spánar og út á land - lífið þá og nú.
Við fengum að ræða við hinn eina sanna Sigurð Sigurðsson, goðsögnina hjá Landsnet. Hann hefur verið lengi í geiranum og snert á flest öllu í raforkukerfinu okkar.
Heyrum hvað hann hefur að segja :)

Snjallar ryksugur, snjöll tengivirki, snjallt starfsfólk!
Við tókum spjallið við hann Guðlaug Sigurgeirsson og fengum að skyggnast inn í heim þar sem rafmagnið er snjallara og hvað "snilldin" getur gert fyrir okkur :)

Sírenur og mors-sendingar: Ferðalag öryggisstjórans til Landsnets
Sírenur og mors-sendingar: Ferðalag öryggisstjórans til Landsnets by Landsnet

AC/DC, raðtengt, hliðtengt og strengir með tilfinningalegt gildi.
Við fengum Magna Þór Pálsson, verkefnastjóra rannsókna, til að ræða við okkur um jafnstraum, riðstraum, jarðstrengi og allt þar á milli. Það er óhætt að segja að þetta var lærdómsríkt viðtal, allavega fyrir okkur sem spjölluðum við doktorinn :)

Raggi Bjarni; Indíánar, varðhundar, fallegar línur og viðbragð
Við fengum tækifæri til að ræða við hann Ragnar Bjarna, verkstjóra netþjónustunnar á Austurlandi. Hann sagði okkur frá vinnunni, lífinu á línunni og hvað góður starfsmaður þarf að búa yfir. Þetta er annað fjarviðtalið okkar úr heimavinnu :)

FH-ingar, landamæraverðir, sendiráð og stál!
Við spjölluðum við hann Daníel Scheving Hallgrímsson á fjarfundi um Kröflulínu 3 og fengum að heyra hans reynslu og upplifun af þessu stóra verkefni. Takk fyrir okkur Daníel!

Hrollvekjur, bylgja tvö og rammagerð
Óhefðbundinn þáttur hjá okkur þar sem við byrjum haustið og tökum hugleiðingar um daginn í dag.

Samráð hjá Landsnet - Elín Sigríður Óladóttir
"Mitt meginmarkmið er að hlusta"
Elín Sigríður samráðsfulltrúi segir okkur frá hlutverki sínu, mikilvægi samráðs þegar ákvarðanir eru teknar um flutningskerfið og hver framtíðin er.

Óveður, jarðhræringar, faraldur, sóttvarnir og heimavinnan
Eftir langt tímabil af heimavinnu, sóttvörnum, viðgerðum og tæknilegum örðuleikum tengdum hlaðvarpi erum við komin aftur af stað!
Neyðarstig í 6 mánuði, óveður, jarðhræringar, faraldur og allt þar á milli.

Kerfisáætlun samþykkt
Gnýr Guðmundsson gaf okkur tíma til að ræða nýsamþykkta kerfisáætlun, verkefnin framundan og framtíðina.

Blöndulína 3 & Hlín Benediktsdótir
Við ræddum við hana Hlín Benediktsdóttur og báðum hana um að segja okkur frá Blöndulínu 3.

Selta, ísing og óveður
Í þessum þætti ræðum við við hann Ingvar Kára, vaktmann í stjórnstöð hjá okkur. Hann segir okkur frá seltu, ísingu og óveðrinu sem er að ganga yfir landið.

Viðtal við Svandísi Hlín Karlsdóttur forstöðumann viðskiptaþróunar.
Í þessum fyrsta þætti frá hlaðvarpi Landsnets ræðum við við hana Svandísi Hlín Karlsdóttur forstöðumann viðskiptaþróunar hjá okkur.











