
Tveir á toppnum
Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu. Þættirnir eru óvenju góð flétta þar sem mannlegi þátturinn hefur ekki gleymst.
Episodes

#159 - Talking Bollocks!
Hefðbundin dagskrá trufluð og þætti #159 er droppað á miðvikudegi svo Oddur geti kastað sér head first ofan í Marvel-trogið á fimmtudaginn. Stjórnlaust og tilgangslaust blaður Tveggja á toppnum þar sem verslunarmannahelgin, bláir gaskútar og alls konar annað er tæklað ásamt skúbbi vikunnar: HVAÐA ÞJÓÐÞEKTTA MENNINGARDROTTNING GEKK ÚT AF THE ODYSSEY Í HLÉI????

#158 - The Odyssey
Þátturinn sem er búinn að vera u.þ.b. 3200 ár á leiðinni er loksins í höfn! Christopher Nolan er tekinn á beinið og Ódysseifskviðu hans snúið á alla kanta í epískum panel með Illuga Jökulssyni, sem kannast eitthvað aðeins við frumtextann sem myndin byggir á, og Birgi Olgeirssyni, sem hefur aldrei verið jákvæðari en að þessu sinni.

#157 - Frjáls tími og glápskýrslur
Þátturinn um allt sem hefur ekki komist að í fjarveru Odds ásamt tveimur stórfréttum sem skekið hafa heimsbyggðina; andlát Sam Neill og íslenskt Love Island.

#156 - Stallone 80 ára
Sylvester Stallone, okkar eigin Sly, fagnar 80 ára afmæli í dag, 6. júlí, og ekki annað hægt en sýna honum þann sjálfsagða sóma að rjúfa hefðbundna dagskrá með sérstökum þætti.Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, rithöfundur og jafnaldri fyrstu Rocky-myndarinnar, stígur aftur í hringinn og fer með Tóta yfir langan, glæstan en þó brokkgengan feril rómuðustu hasarhetju síðustu áratuga í 130 mínútur sem

#155 - Citizen Vigilante
Eldfimur þáttur þar sem Kristinn Theódórsson er kallaður til og fenginn til þess að ræða umtalað furðuverkið og svimandi lélega ruslið Citizen Vigilante jafn vítt og breitt og takmarkaður efniviðurinn leyfir.Myndin og áróðurinn sem hún rekur eru þess eðlis að umræðunum fylgja allar mögulegar og ómögulegar trigger warnings, til hægri og vinstri.

#154 - Disclosure Day
Undarlegur þáttur hlaðinn sláandi afhjúpunum þar sem hæst ber að Oddur er í gíslingu vondra hvalfangara og missir því af gesti þáttarins sem er af því kalíberi að hann þarfnast ekki kynningar. En við kynnum hann nú samt: Sjáðu-maðurinn sjálfur Ásgeir Kolbeins ræðir við Tóta um nýjustu Spielberg-myndina, Disclosure Day, og alls konar annað mismerkilegt en allt skemmtilegt.

#153 - Obsession
Öll og afar þeirra obsessa nú yfir Obsession. Maðurinn sem uppgötvaði Obsession á Íslandi, Arnar Tómas Valgeirsson, lætur sig því ekki vanta í þáttinn og þar sem hermt er að um sérstaka Gen Z-mynd sé að ræða voru sérstakir fulltrúar kynslóðarinnar, Ragga Björt Tótadóttir og Alda Örvarsdóttir, kallaðar til lóðbeint úr MH.

#152 - Backrooms
Öll eru að tala um Backrooms þannig að Oddur og Tóti verða að gera það líka. Verst bara að þeir skilja ekki neitt.

#151 - 2EXTRA - Euphoria 3
Dóra Júlía er dregin inn í neyðarpodd, sérstakan aukaþátt, þann fyrsta í langan tíma, um Euphoria 3 í fjarveru Tóta.

#150 - The Mandalorian and Grogu
Þegar ný Star Wars-mynd kemur í bíó dugir ekkert annað en að draga fram stóru geislabyssurnar og það er gert í þessum þætti sem fjallar bara um Stjörnustríð og ekkert nema Stjörnustríð með okkar helsta Star Wars-manni, sjálfum Geir Finssyni.

#149 - The Boys vertíð 5 - Lokauppgjör
Lokahnykkur The Boys er í brennidepli og maðurinn sem uppgötvaði þættina á Íslandi, sjálfur Arnar Tómas Valgeirsson, er ekki langt undan og kveður upp sinn endanlega dóm símleiðis.

#148 - Daredevil: Born Again vertíð 2 - The Punisher: One Last Kill
Arnar Tómas Valgeirsson kemur aftur eftir ársfjarveru en er enn með heitu take-in. Marvel trogið krufið í þaula.

#147 - The Devil Wears Prada 2
Hátískuþáttur með súperstjörnunni DJ Dóru Júlíu sem leiðir leppalúðana Odd og Tóta meðfram sýningarpöllunum inn í allan sannleikann um menningarfyrirbærið sem kennt er við Andskotann dressaðan upp í Prada.

#146 - Apex og bestu myndir síðustu 25 ára
Síðasti þáttur aprílmánaðar byrjar á spjalli við Björn Þór Vilhjálmsson, dósent í kvikmyndafræði við HÍ, um býsna áhugaverðan lista yfir 25 bestu kvikmyndir síðasta aldarfjórðungs. Apex hans Balta er síðan rædd út og suður en aðalega norður áður en hefðbundnu stöðutjékki er troðið sem rúsínu í þennan mánaðarenda.

#145 - Invincible og The Drama
Heilsufarsskoðun Tóta hjá hjartalækninum á sumardeginum fyrsta. Fjórða sería af The Invincible öll komin út, endurnýjun Law and Order og The Drama. Michael Jackson myndin sem er víst að falla í grýttan jarðveg meðal gagnrýnenda. Skoðanir Tóta á MJ koma ekki á óvart, eða hvað?

#144 Malcolm & Melania í miðjunni
Þreyttir, slæptir og tættir en óbugaðir barma Oddur og Tóti sér yfir ómannúðlegu glápálagi. Oddur finnur þó huggun í því að hann er að byrja aftur að éta vængi í sjónvarpi og hefur hrifist af Malcolm in the Middle: Life's Still Unfair. Tóti hins vegar deilir hlutskipti með Malcolm og hefur tekið út talsverða þjáningu til þess að efna loks loforið um Melaniu umfjöllun.

#143 - Project Hail Mary og sjónvarpsvorfenið
We are so back! Ferðasaga Odds, ótrúlegar hrakfarir Tóta í gestagangi, Project Hail Mary, The Boys, Invincible, Daredevil: Born Again, Euphoria, Harry Hole og vorbylgjan ógurlega.

#142 - Óskarinn 2026
Óskarinn gerður upp. Tóti er Nostradamus! Eða svona því sem næst. Hvenær kemur að Timothée Chalamet? Hvar var Sean Penn? Leonardo DiCaprio bölvunin. Manosphere, Spiderman trailer og að sjálfsögðu Law and Order. Og margt fleira.

#141 - ESB dómsdagurinn, Rachel Weisz og Vladimir plús allt reglulega bullið
Þáttur í flýtimeðferð þar sem Oddur er á leið í óbyggðaferð í vetrarfríinu. Farið er ofan í skuggalega kvikmyndatengingu sem boðar ekkert gott fyrir ESB-þjóðaratkvæðaflippið. Rachel Weiz rokkar Netflix með Vladimir á meðan Jack Reacher púllar Arnold og slæst við hönnungargallaðan Transformer frekar en alvöru Predator. Að ógleymdri fullkomlega ómarktækri og ábyrgðarlausri Óskarsspá.-----Tveir á to

#140 - Meint siðblinda Tyru Banks og mikilvægt stöðutékk
Vistaskipti Tóta, myrk saga America's Next Top Model, ótrúlegar breytingar á Jim Carrey, síðvetrardepurð og fleira og fleira og fleira.-----Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

#139 - A Knight of the Seven Kingdoms
Industry, America's Next Top Model, fannfergið úti og svo alvöru nördayfirferð yfir A Knight of the Seven Kingdoms með Stefáni Pettersson. Óvænt bestu þættir ársins? -----Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

#138 - Heated Rivalry
Dóra Júlía Agnarsdóttir fjölmiðlakona og plötusnúður mætir og greinir Heated Rivalry í þaula. Innskot frá gesti þáttarins. Að 25 mínútum liðnum kveður Dóra og tveir á toppnum fara yfir vettling dagsins. RIP Robert Duvall og fleira.-----Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

#137 - Fallout 2
Aðeins um Melaniu Trump heimildarmyndina. Hvað er verið að glápa á? Allar helstu kenningar upp úr vertíð 2 af Fallout. Stefán Pettersson er maðurinn sem allt veit um Fallout. -----Tveir á toppnum eru í samstarfi við Atwork og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

#136 - Óskarsverðlaunatilnefningar 2026 og Marty Supreme
Hvernig fer Ísland-Danmörk? Tóti spáir í spilin, með sínum hætti. Sjónvarpsglápið, Bíóhöllin, Óskarinn og Marty Supreme.

#135 - 28 Years Later: The Bone Temple
Uppvakningadramað 28 Years Later: The Bone Temple og í raun allur 28 bálkurinn eru krufin inn að beini og brotin til mergjar með mæðgunum Kareni Kjartansdóttur og Unu Kristjönu.Alveg hreint sprellfjörgur panell og þáttur með tæknilegum mistökum og grímulausum Duran Duran áróðri.

#134 - Sjónvarpsárið er hafið og Sydney Sweeney fækkar fötum
Fyrsti þátturinn gestalausir í háa herrans tíð. Förum yfir það helsta sem er á döfinni í sjónvarps-og bíóheimum. Golden Globe og svo kvikmyndin The Housemaid. Og miklu meira!

#133 - Stranger Things 5
Stranger Things er nú á enda. Birgir Olgeirsson mætir og greinir nýjustu seríuna og hinar í þaula.

#132 - Áramótaskaupið 2025 og árið gert upp
Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Arnar Eggert Thoroddssen doktor í tónlistarfræðum og aðjúnkt í fjölmiðlafræði ræða Áramótaskaupið 2025 og gera upp árið 2025 í sjónvarps -og kvikmyndaheimum og líta til þess hvað er framundan 2026.

#131 - Jólaþátturinn 2025
Tveir á toppnum hraðspóla í gegnum alls konar jólajóla í sínum þriðja Jólaþætti. Mæla með góðu og sígildu jólaglápi, rifja upp jólamyndir kvikmyndahúsanna 1985, fyrir 40 árum og bíta enn og aftur í gamla þrætueplið hvort Die Hard sé jólamynd eða ekki. Avatar-fyrirbærið er greint og hjónanna Rob og Michele Singer Reiner er minnst með hlýhug, þakklæti og sorg í hjarta. Sérstakur gestur er JólaSveinn

#130 - Sprettkeppni Odds og Tóta 2025 ft. Bíóblaður
Hafsteinn Sæmundsson hlaðvarpsstjórnandi og höfundur bíóspurningaspilsins Bíóblaðurs mætir og spyr Tvo á toppnum spjörunum úr. Fyrst aðeins um gláp núlíðandi stundar, að lokum um einu tvær myndir ársins sem Hafsteini fannst eitthvað varið í. Mynd tengist efni þáttar beint. -----Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf

#129 - Puff Daddy, Stranger Things og meira stöðutékk
Bland í poka þáttur þar sem allskonar er rætt með Jónasi Má Torfasyni. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

#128 - The Running Man
Símon Birgisson og Valur Grettisson mæta og greina The Running Man í döðlur. Fyrst aðeins um gagnrýni og svo mikið um Stephen King. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum

#127 - Bannað að hlæja 2
Auðunn Blöndal okkar allra mætir og fer yfir vertíð tvö af Bannað að hlæja. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum.

#126 - Frankenstein
Nýjasta afurð Guillermo Del Toro rædd í þaula. Fyrst aðeins yfir vettling dagsins. Sérstakur gestur: Stefán Atli Sigtryggsson kvikmyndagerðarmaður í Svíþjóð OG kvikmyndafræðingur. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum.

#125 - House of Dynamite
Alþjóðastjórnmálafræðingur mætir í hús til að ræða mynd Kathryn Bigelow á Netflix um eldflaugina yfirvofandi. Ræðum ýmislegt fleira: Nýjan rafmagnsbíl Tóta, hrekkjavökurifrildi, sjónvarpsgláp Tóta og margt, margt, margt fleira. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tvo á toppnum.

#124 - Hrekkjavaka 2025
Hátíðaryfirferð yfir Halloween og fleiri hryllingsmyndir í tilefni af hrekkjavöku 2025. Aðeins um ónýtan bíl og vetrarfærð. Aníta Guðlaug Axelsdóttir specialisti í horror og Kjartan Rúnarsson bíófíkill mæta og kryfja málin. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósenta afslátt af skoðun, eina sem þarf að gera er að nefna Tveir á toppnum.

#123 - Gen V vertíð 2
Kuldakast, Kvennaverkfall, Boots, Halloween og Gen V, vertíð 2. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf er að nefna Tvo á toppnum.

#122 - Nágrannafælni og Smassmaskínan
Sunnudagur til sælu. The Perfect Neighbour á Netflix, Smassmaskínan, Keira Knightley, Peacemaker, Task og miklu fleira. Engir spillar! Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf er að nefna Tvo á toppnum.

#121 - Monster: The Ed Gein Story
Missterkar skoðanir á seríu sem hefur fengið misjafna dóma. Sérstakur gestur: Kristel Dögg Vilhjálmsdóttir. Tveir á toppnum eru í samstarfi við Regus og Aðalskoðun sem býður hlustendum 20 prósent afslátt af skoðun, eina sem þarf er að nefna Tvo á toppnum.

#120 - Alien: Earth
Björn Leví Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður og Stefán Pettersson einn mesti aðdáandi Alien mæta og kryfja Alien: Earth.

#119 - One Battle After Another
Ekkert annað kemst að en að kryfja myndina sem allir eru að tala um. Tóta tekst að vísu að troða inn Law and Order tilvísun, en ekki hvað. Sérstakur gestur: Arnar Már Eyfells, framleiðandi hjá Ketchup Creative.

#118 - Stöðutékk
Ómarkvisst stöðutékk, Slow Hourses, House of Guinness, Alien Earth, One Battle After Another, hvað er í vatninu hjá Leonardo DiCaprio, töfralæknir og norska konungsfjölskyldan, fótaaðgerð og ýmislegt fleira.

#117 - Eldarnir
Ræðum allskonar, Charlie Sheen, The Girlfriend, Jimmy Kimmel. Eldarnir eftir Uglu Hauksdóttur svo í forgrunni.

#116 - Unknown Number: The High School Catfish
Margrét Helga Erlingsdóttir fréttamaður mætir og greinir í þaula heimildarmyndina á Netflix sem allir eru að tala um.

#115 - The Thursday Murder Club
Geitungaárás í miðri umferð, hvað er framundan á skjánum í september? Alien Earth, bjórtegundir, eldriborgara morðráðgáta í boði Netflix, RIFF og Kim Novak. Og fleira.

#114 - Caught Stealing
Ófarir Sydney Sweeney, Biggest Loser og allskonar. Umræða um Caught Stealing frá Darren Aronofsky ÁN SPILLA.

#113 - Weapons
Mynd ársins? Myndin rædd í þaula, hugrakkur Oddur mætti í bíó. Sérstakur gestur: Arnar Már Eyfells framleiðandi hjá Ketchup Creative. Ræðum kvikmyndabransann og miklu fleira.

#112 - 2EXTRA - Love Island UK sería 12
Elísabet Inga Sigurðardóttir fréttakona mætir og kryfur til hlýtar einu rosalegustu bresku Love Island seríu seinni ára. Mætti síðast í þætti #36 þar sem hún krufði All Stars seríuna. Harmleikur Harrisons og Harry og MIKLU FLEIRA.

#111 - Aðsóknarmestu myndir ársins á Íslandi
Oddur mætir aftur úr sumarfríi! Förum yfir víðan völl, gestalausir að þessu sinni. Hlustendabréf, Verbrechen im Visier, hin hörmulega War of the Worlds, aðsóknarmestu myndir ársins á Íslandi, Alien: Earth, Naked Gun, Weapons og margt margt fleira.

#110 - Naked Gun húmorinn virkar
Í fjarveru Odds kemst Tóti að því að húmor virkar. Bæði í bíó og lífinu þótt hann og gesturinn Sveinn Waage týni fljótt aðalefninu, The Naked Gun, í stjórnlausum kjaftavaðli að hætti X-kynslóðarinnar.

#109 - Happy Gilmore 2
Helsti sérfræðingur landsins í Adam Sandler, sá sem skrifaði lokaritgerð um hann og ræddi í þætti #12 - Jón Þór Stefánsson mætir og kryfur framhaldið sem er loksins komið 29 árum síðar.

#108 - Seint koma sumir en koma þó....
....þetta er þáttur um HBO…………….. (Max). Og miklu fleira! Förum aðeins í lífstílsmálin og einmanaleika. Ræðum Untamed á Netflix, Love Island, öll þessi andlát í Hollywood. Pamelu Anderson, Liam Neeson ofl!

#107 - Risaeðlur, björn og ástareyjan
Tóti kemur aftur úr sumarfríi! Förum yfir víðan völl með frjálsri aðferð. Jurassic World: Rebirth, Love Island, The Bear, Ironheart, meira af Superman og margt, margt, margt fleira.

#106 - Superman
Nýjasta ofurhetjumynd James Gunn og DC ofurhetjuheimsins um stærstu ofurhetju í heimi er mætt í kvikmyndahús. Geir Finnsson hleypur í skarðið fyrir Tóta.

#105 - F1 ft. Pitturinn
Kristján Einar Kristjánsson og Bragi Þórðarson sem lýsa Formúlu 1 og eru kenndir við Pittinn mæta til leiks og greina F1 myndina eins og enginn annar getur greint hana.

#104 - 28 Years Later
Flosi Þorgeirsson draugur fortíðar og hin draughrædda Aníta Guðlaug, dýnamíska dúóið frá helvíti fer út um víðan völl og um allar áttir í fjörugri greiningu á nýjustu uppvakningamynd Danny Boyle.

#103 - Sjálfstæðar konur og sumarstreymið 2025
Gestalaus yfirferð með frjálsri aðferð yfir myndir með sjálfstæðum konum í aðalhlutverki í tilefni dagsins og svo jú allt það sem við erum að horfa á. HBO Max til Íslands eftir smá og ýmislegt fleira.

#102 - The Last of Us vertíð 2
Einn mesti Last of Us aðdáandi landsins Tómas Gauti Jóhannsson mætir og kryfur seríu tvö, hvað betur hefði mátt fara og hvað var vel gert.

#101 - Mission: Impossible - The Final Reckoning
Birgir Olgeirsson mætir og fer yfir nýjustu og síðustu (?) Mission: Impossible myndina. Fyrst aðeins um Mobland ofl.

#100 - Óður til Sylvester Stallone
Margboðaður þáttur um Stop Or My Mom Will Shoot. Og reyndar svo miklu meira, ferill Sylvester Stallone gerður upp í hátíðarþætti. Henry Birgir Gunnarsson og Benedikt Bóas Hinriksson vita allt sem hægt er að vita um málið. Minnum á afmælispöbbkviss Tveggja á toppnum á Stúdentakjallaranum miðvikudagskvöldið 28. maí klukkan 20:00. Veglegir vinningar!

#99 - Cannes þá og nú og Final Destination: Bloodlines
Pöbbkviss Tveggja á toppnum til að fagna hundrað þáttum fer fram í Stúdentakjallaranum kl. 20:00 miðvikudagskvöldið 28. maí (frí daginn eftir!)-----Förum yfir víðan völl. Tóti rifjar upp sögur frá Cannes og segir okkur hvað er að frétta af kvikmyndahátíðinni sem fer þar nú fram. Ræðum líka nýjustu Final Destination myndina.

#98 - Sinners en aðallega Andor 2
Förum yfir víðan völl. Pöbbkviss á Stúdentakjallaranum kl. 20:00 þann 28. maí. Mobland. Sinners. En aðallega Andor sería tvö.

#97 - Thunderbolts*
Biðst Arnar Tómas Valgeirsson loksins afsökunar á aðför sinni að Marvel? Hlustendur láta hann heyra það.

#96 - Verkalýður og njósnir
Baráttudagur verkalýðsins er hátíðisdagur hjá Tveimur á toppnum. Gestir fá því frí. Ræðum það sem við erum að horfa á, það sem er framundan og jú njósnamyndir og þætti. Og miklu fleira!

#95 - Black Mirror vertíð 7
Sjöunda vertíð af Black Mirror rædd í þaula. Halldór Auðar Svansson og Arnar Tómas Valgeirsson mæta. Takið frá 28. maí þegar Tveir á toppnum fagna hundrað þáttum!

#94 - Páskar 2025
Sneisafullur páskaþáttur af allskonar blaðri, páskaeggjum og páskamyndum. Arnar Tómas gerir þriðju tilraun til þess að mæta með Marvel trogið.

#93 - Táraflóð og Minecraft-tryllingur
Oddur og Tóti skila nýjum þætti allt of seint en bæta það upp með heilum 84 mínútum þar sem þeir rekja hversdagslegar raunir sínar, halda áfram að minnast Vals Kilmer. Oddur kveður einnig upp sinn Minecraft dóm og Tóti hágrætur yfir lokaþætti 1923 og nýjustu niðurlægingu Mickey Rourke.

#92 - Val Kilmer og uppbót og upprifjun á þættinum sem hvarf
Smá yfirferð yfir þáttinn sem glataðist. Allskonar: Severance, Reacher, Daredevil osfrv. Hvíl í friði Val Kilmer. Hver var maðurinn? Yfirferð og meira til.

#91 - Adolescence
Kolbrún Bergþórsdóttir guðmóðir þáttarins heiðrar Tvo á toppnum með nærveru sinni og fer yfir þáttinn sem allir eru að tala um.

#90 - Mickey 17
Valur Gunnarsson og Birgir Olgeirsson ræða Mickey 17 eftir Bong Joon-ho í þaula. Alvöru umræður, á dýptinni. En fyrst: Á hvað eru menn að horfa á? Talið berst svo að Óskarnum, hinum víðfræga Óskarstjékka og fleiru.

#89 - Óskarsverðlaunin 2025
Yfirferð yfir Óskarinn 2025. Hvað kom á óvart? Hvað ekki? Er blockbusterinn í útrýmingarhættu? Mickey 17 og Captain America: New Brave World, svo fátt eitt sé nefnt.

#88 - Afsakið hlé-ið
Endurkoman mikla eftir tveggja vikna havarí. Hjartastopp í eldhúsinu. Bandaríkjaferð. Andlát Gene Hackman og Michelle Trachtenberg. Hvað erum við að horfa á? Pólitísk áhrif Tveggja á toppnum og Óskarsspáin 2025 með óvæntu lokainnslagi.

#87 - Babygirl
Úr rauðri veðurviðvörun: Tveir á toppnum standa ávallt vaktina. Kristín Ólafsdóttir fréttakona Stöðvar 2 greinir Babygirl með þeim Nicole Kidman og Harris Dickinson í frumeindir. Margt annað: Kynlíf í bíómyndum, ungir menn í kirkjunni, kynsvelt og kassalaga Z kynslóð, vinna á tímum veiru, back 2 back bíóferð í Ástralíu og miklu fleira.

#86 - The Damned
Þórður Pálsson leikstjóri hryllingsmyndarinnar The Damned mætir og ræðir myndina, hvernig hugmyndin kviknaði, leikaravalið, tökurnar á Vestfjörðum og margt fleira tengt kvikmyndum, kvikmyndagerð og leikstjórn, svo fátt eitt sé nefnt. Umræða án spilla.

#85 - David Lynch
David Lynch lést í liðinni viku. Hvíl í friði. Gerum upp ferilinn. Fyrst aðeins um Óskarstilnefningar 2025. Svo er það Lynch, Lynch og aftur David Lynch. Sérstakir gestir: Theodóra Björk Guðjónsdóttir og Magnús Jochum Pálsson.

#84 - Squid Game 2
Suður-kóreska undrið er mætt aftur á Netflix eftir þriggja ára bið. Ræðum allar kenningarnar, hvernig okkur fannst fyrri hluti seríunnar vs. seinni. Margt fleira. Sérstakur gestur: Vésteinn Örn Pétursson, sérfræðingur í málefnum Suður-Kóreu og fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni.

#83 - Nosferatu
Aðeins um Golden Globe og bruna í Hollywood. Nosferatu eftir Robert Eggers. Endurkoma vampírunnar? Hvers vegna eru vampírur svona sexí? Sérstakur gestur: Bríet Blær Jóhannsdóttir.

#82 - Áramótaskaupið 2024
Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður mætir og ræðir skoðanir sínar á Skaupinu 2024 á sinn eigin hispurslausa hátt. Alvöru umræður.

#81 - The Christmas Quest
Aldís Amah Hamilton fer með risahlutverk í jólamynd Hallmark sem gerist á Íslandi, The Christmas Quest. Hún er sérstakur gestur í jólaþætti Tveggja á toppnum 2024. Ræðir myndina (án spilla!), jólahefðirnar, næstu hlutverk og miklu miklu fleira. Gleðileg jól! <3

#80 - Arcane
Arcane sería 1 og 2 ræddar. Vestrar. Yellowstone. Stiklan úr 28 Months Later. Sjónvarpsefni. Verðbólga í stjörnugjöfum. Margt fleira. Sérstakur gestur: Arnar Tómas Valgeirsson.











